Ægir - 01.07.2015, Blaðsíða 29
29
þyrnir í augum smábátasjó-
menna og sagði formaðurinn
að þar sé verið að hygla fáum
einstaklingum á kostnað
fjöldans. Kvótasetning sé rök-
studd með því að komið sé í
veg fyrir ofveiði og samkomu-
lagi haldið við alþjóðasamfélag-
ið. „Á meðan þessi rulla er tugg-
in aftur og aftur ofan í okkur er
ósamkomulag strandríkja í
Norður-Atlantshafi að leiða til
þess að veitt er 800 þúsund
tonn samanlagt umfram ráð-
gjöf í makríl, kolmunna og
norsk-íslenskri síld,“ sagði hann.
Halldór sagði veiðigjöldin
sérstaklega íþyngjandi í smá-
bátaútgerðinni og benti á að
þau slagi upp í að vera 10% af
fiskmarkaðsverði á ýsu og tvö-
falt hærri í makríl. Allir sjái að
slíkt gangi ekki upp. Formaður-
inn vék síðan máli sínu að
strandveiðunum og brýndi
sjávarútvegsráðherra til verka.
„Það er ótrúlegt að sjávarút-
vegsráherra skuli ekki nýta sér
þann meðbyr sem nú liggur í
loftinu og nota tækifærið til að
breyta fyrirkomulagi við strand-
veiðar. Gefa mönnum kost á því
að róa 4 daga í viku hverri með
þeim takmörkunum sem þó eru
fyrir í kerfinu. Það myndi auka
öryggi þeirra sem stunda
strandveiðar til muna með
minni sókn í vafasömum veðr-
um. Við erum að veiða alltof lít-
ið úr þorskstofninum og höfum
verið að gera það undanfarin ár
þannig að það er næg inni-
stæða fyrir aukinni strandveiði.
Ég vona að hæstvirtur sjávarút-
vegsráðherra geri sér grein fyrir
þeirri mikilvægu stöðu sem að
hann gegnir sem talsmaður
sjávarútvegs í heild fyrir Ísland
og hve miklu máli smábátar og
veiðar smábáta skipta fyrir
ímynd Íslands í heild.
Að sama skapi skiptir miklu
máli að í rödd smábátasjó-
manna sé samhljómur og vilji
sé til þess að vinna að málum
sameinaðir. Við þurfum breiða
flóru fiskimanna á öllum mið-
um í kringum landið til að fá
sem fjölbreyttasta sýn á haf-
svæðið sem við byggjum að
mörgu leyti lífsafkomu okkar á.
Við þurfum að vinna að þessum
málum saman og til þess þarf
vilja og samræður. Það er
skylda okkar gagnvart íslensku
samfélagi að skila eins góðu
hráefni og hægt er hverju sinni
og hámarka verðmæti hverrar
tegundar fyrir sig. Enn og aftur
vil ég minna á að við smábáta-
sjómenn erum í fremstu röð
með ferskasta, verðmætasta og
sjálfbærasta hráefni sem að völ
er á.“
Halldór Ármannsson, formaður Landssambands
smábátasjómanna á 30. aðalfundi samtakanna:
Smábátasjómenn
skila ferskasta,
verðmætasta
og sjálfbærasta
hráefninu
Halldór Ármannsson, formaður LS.
Smábátar í Bolungarvíkurhöfn sem er meðal stórra útgerðarstaða smábáta.