Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.2015, Blaðsíða 12

Ægir - 01.12.2015, Blaðsíða 12
og áhrifum veiða á umhverfið og að stjórnvöld fylgi ráðgjöf vísindamanna. Árangur og nýjar áskoranir Ef litið er til stóra samhengisins í fiskirannsóknunum á liðinni hálfri öld, þá þróaðist starfið frá því að lýsa náttúrufarinu til þess að rannsaka samhengi breyt- inganna og áhrif breyttra um- hverfisþátta á lífríkið og fiski- stofnana. Í stað fiskileitar og að- stoðar við flotann við að finna nýja veiðimöguleika beindust rannsóknir að mati á veiðiþoli og fiskvernd, sem var breytt hlutverk og kannski ekki jafn vinsælt. Á sama tíma hefur um- ræðan sannarlega þróast frá átakaumræðu til upplýstrar samræðu um sameiginleg sjálf- bær markmið stjórnvalda, at- vinnulífs og ráðgjafar Hafrann- sóknastofnunar. Það er vita- skuld afar ánægjuleg breyting, sem án efa má m.a. rekja til ár- angurs upplýsingamiðlunar og jákvæðrar umræðu. Í upphafi var tilgangurinn með Hafrannsóknastofnun að afla þekkingar um hafið og auð- lindir þess með skipulegum hætti og gefa leiðsögn um sjálf- bærar veiðar nytjastofna á Ís- landsmiðum. Heilt á litið má fullyrða að staða allra okkar helstu nytjastofna sé sem stendur góð. Það er ekki síst vegna þeirrar þekkingar, sem fengist hefur með áratuga löngu, öflugu rannsóknastarfi vísindamanna og rannsókna- fólks í fremstu röð, en einnig og ekki síður fyrir tilstilli og með samstarfi við atvinnugrein og stjórnvöld, sem hafa að leiðar- ljósi ábyrga fiskveiðistjórnun á grundvelli þekkingar og sjálf- bærni. En ástandið í hafinu við Ís- land er stöðugt að breytast og þar með staða nytjastofnanna. Sóknarfæri íslensks sjávarút- vegs er nú sem fyrr að vera skrefi framar og fyrirmynd öðr- um. Þess vegna, þegar fram- undan er sameining Hafrann- sóknastofnunar og Veiðimála- stofnunar, má í engu slaka á rannsóknastarfinu og við vökt- un umhverfis hafsins og lífríkis, heldur frekar herða róðurinn sem um sóknarfæri sé að ræða, svo auðlindin í hafinu verði okkur áfram uppspretta vel- sældar um ókomna tíð. Ályktun ríkisstjórnar Íslands þann 20. nóvember s.l. um að ljúka kort- lagningu hafsbotns á næstu ár- um er vísbending um stórhug sem þarf að ríkja á komandi ár- um svo við áfram höldum sjó. Hátíðargestir í Hörpu. Matís ohf. er í mörgum skilningi mikilvæg auðlind fyrir Íslendinga. Fyrirtækið er lykilaðili í matvælarannsóknum og matvælaöryggi og hefur að baki sér þekkingu 100 starfsmanna sem eru sérfræðingar og vísindamenn á ólíkum sviðum. Rannsóknir eru íslenskum sjávarútvegi mikilvægar því þæ styðja framþróun, nýsköpun og markaðsstarf greinarinnar. Hjá Matís er stöðugt unnið að fjölda rannsóknarverkefna sem tengjast sjávarútvegi með ýmsum hætti. Þannig leitum við sífellt svara og vitum alltaf meira í dag en í gær. Rannsóknir í þágu sjávarútvegs Gildi Matís  Frumkvæði  Sköpunarkraftur  Metnaður  Heilindi www.matis.is Stefna Matís er að  ... vera framsækið þekkingarfyrirtæki sem eflir samkeppnishæfni Íslands og skilar þannig tekjum til íslenska ríkisins  ... vera eftirsóttur, krefjandi og spennandi vinnustaður með fyrsta flokks aðstöðu þar sem starfsmenn njóta sín í starfi  ... hafa hæft og ánægt starfsfólk Hlutverk Matís er að  ... efla samkeppnishæfni íslenskra afurða og atvinnulífs  ... tryggja matvælaöryggi og sjálfbæra nýtingu um- hverfisins með rannsóknum, nýsköpun og þjónustu  ... bæta lýðheilsu 12
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.