Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.2015, Blaðsíða 16

Ægir - 01.12.2015, Blaðsíða 16
Fyrst og fremst er Vestmannaeyjahöfn góð fiskihöfn en hún er einnig mikilvæg samgönguæð vegna ferða Herjólfs milli lands og Eyja, að ógleymdum öllum þeim fragtflutningaskipum og skemmtiferðaskipum sem þangað leggja leið sína. Andrés Þorsteinn Sigurðsson, skrifstofustjóri og yfirhafsögumaður, á skrifstofu sinni. Að baki honum er málverk af Heimakletti. Þrátt fyrir snarbrattar hlíðar sjá sauðfé á beit í Heimakletti stóran hluta úr ári og á degi hverjum ganga margir þangað upp sér til yndis og ánægju. Myndir: Óskar Þór Halldórsson Vestmannaeyjahöfn er meðal stærstu löndunar- og útflutn- ingshafna landsins en árlega er landað vel á annað hundrað þúsund tonnum af afla í höfn- inni. Gengi uppsjávarveiðanna hefur þó umtalsverð áhrif á þessa tölu. Andrés Þorsteinn Sigurðsson, skrifstofustjóri og yfirhafsögumaður Vestmanna- eyjahafnar segir höfnina vel í stakk búna að þjóna þörfum sjávarútvegsgreinarinnar í Eyj- um. „Ég tel að staða Vestmanna- eyjahafnar sé að mörgu leyti góð. Sjávarútvegurinn er og hefur verið sterkur hér í Eyjum og mikil uppbygging átt sér stað, ekki síst hjá stærstu fyrir- tækjunum; Ísfélaginu og Vinnslustöðinni. Hins vegar hef- ur þessum rótgrónu, gömlu fjöl- skylduútgerðum hér fækkað en þó eru ennþá starfandi nokkur öflug slík fyrirtæki. Það má óhik- að fullyrða að höfnin er okkar lífæð, enda er fiskurinn það sem allt snýst um hér. Almennt má segja að hafnarmannvirkin séu í góðu ásigkomulagi, undanfarin ár hefur verið unnið að því að endurnýja bryggjukantana og því tel ég að megi segja að eins og er sé staðan nokkuð góð,“ segir Andrés Þorsteinn. Sveiflast með uppsjávarfiskinum Magn landaðs afla í Eyjum er af- ar mismunandi á milli ára og segir Andrés að það ráðist að miklu leyti af því hversu vel gangi í uppsjávarveiðunum, t.d. í loðnu og makríl. Bolfiskaflinn sé ekki eins sveiflukenndur milli ára – bæði sé honum landað til vinnslu í Eyjum og einnig í gáma sem síðan eru fluttir til Evrópu. „Vegna mikilla sveiflna í upp- sjávarveiðinni er mjög breyti- legt milli ára hversu miklum afla er landað hér í Vestmannaeyj- um. Á síðasta ári var landaður afli hér um 137 þúsund tonn. Útflutningsafurðir frá Eyjum eru af ýmsum toga, mjöl og lýsi, ferskar afurðir, saltfiskur, þurrk- aðar afurðir og frosnar afurðir. Þetta endurspeglar hversu breið flóran er í sjávarútvegin- um hér,“ segir Andrés. Skemmtiferðaskipum fjölgar Höfnin og innsiglingin í Eyjum hafa sérstakan sjarma með hinn 283ja metra háa móbergsstapa, Heimaklett, sem einskonar út- vörð. Hins vegar má segja að fyrir stærstu skipin sé innsigl- ingin nokkuð þröng, til dæmis eiga stór skemmtiferðaskip nokkuð erfitt með að athafna sig inni í höfninni. Heimsóknum þeirra fer þó fjölgandi ár frá ári. „Það hefur verið gríðarleg aukning í komum skemmti- ferðaskipa til okkar. Fyrir nokkr- um árum sóttu okkur heim kannski 8-15 skip á hverju sumri. Síðastliðið sumar hafði 31 skip viðkomu hér og það stóð til að fleiri kæmu hér við en þurftu frá að hverfa vegna óhagstæðra veðurskilyrða. Fyrir næsta sumar liggja fyrir 42 bók- anir skemmtiferðaskipa sem staðfestir áframhaldandi vöxt á þessu sviði fyrir höfnina og ferðaþjónustuna hér í Eyjum. Þetta skiptir okkur að sjálfsögðu miklu máli og þetta er hrein við- bót við aðra fasta tekjupósta hafnarinnar vegna löndunar fiskafla. En það liggur fyrir að svo tíðar komur skemmtiferða- skipa kalla á aukna þjónustu af okkar hálfu við skipin. Það myndi bæta aðstöðuna veru- lega ef byggður yrði nýr við- legukantur við nýja hraunið, sem myndi þýða að skemmti- ferðaskipin þyrftu ekki að koma inn í höfnina. Þetta er möguleiki sem vonandi verður að veru- leika innan fárra ára.“ H a fn ir Vestmanna- eyjahöfn vel í stakk búin 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.