Ægir - 01.12.2015, Blaðsíða 8
Sjávarútvegshúsið var byggt fyrir starfsemi Hafrannsóknastofnunar og Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins og
afhent þeim í febrúar 1966.
Jón Jónsson, forstjóri 1965-1984. Jakob Jakobsson forstjóri 1984-
1998.
Á vormánuðum árið 1965 var
ákveðið með lögum frá Alþingi
að Fiskideild Atvinnudeildar
Háskólans, sem starfrækt hafði
verið frá árinu 1937, skyldi
renna í sjálfstæða stofnun, Haf-
rannsóknastofnunina. Sú stofn-
un hefði sérstakt skilgreint
hlutverk í þágu sjávarútvegs-
ins.
Á þessum 50 árum hefur
sjávarútvegur verið burðarás
atvinnulífsins, þó margt fleira
hafi komið til, einkum síðari ár.
Á þessu tímabili háðu Íslend-
ingar stríð í tengslum við út-
færslu landhelginnar, síðast ár-
ið 1976, sem leiddi til viður-
kenningar 200 sjómílna efna-
hagslögsögunnar með Hafrétt-
arsamningnum árið 1982. Þar
voru vísindaleg rök Hafrann-
sóknastofnunar leiðarljósið í
kröftugum málflutningi stjórn-
valda. Þá urðu gríðarlegar
tækniframfarir í sjávarútvegi,
þróun skilvirks fiskveiðistjórn-
unarkerfis og ýmiss konar hag-
ræðing í atvinnugreininni, sem
stuðlaði að velsæld. Í dag get-
um við Íslendingar því státað af
fiskveiðum og sjávarútvegi,
sem horft er til sem fyrirmyndar
um víða veröld.
Frá því að Hafrannsókna-
stofnun komst á legg hafa vel á
annað þúsund starfsmenn lagt
hönd á plóg. Þeir sem leitt hafa
starfið þessi 50 ár eru forstjór-
arnir þrír, Jón Jónsson, Jakob
Jakobsson og sá sem þetta
skrifar. Á Hafrannsóknastofnun
hefur ávallt verið að störfum af-
ar samstillt sveit fagmanna. Ár-
ið 1965 voru starfsmenn Haf-
rannsóknastofnunar í landi um
30 talsins, þar af 13 sérfræðing-
ar. Síðustu ár hafa starfsmenn
verið á bilinu 140-150, hátt í
100 háskólamenntaðir, þar af
tæplega 60 með meistara- eða
doktorspróf. Nokkur samdráttur
hefur orðið síðustu ár, en mest-
ur var fjöldi starfsmanna árið
2005, um 170 manns.
Mikill stórhugur ríkti á fyrstu
árum stofnunarinnar þrátt fyrir
nokkra efnahagslega lægð.
Strax var hafist handa um hús-
byggingu við Skúlagötu 4, Sjáv-
arútvegshúsinu, sem afhent var
Hafrannsóknastofnun og Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins í
febrúar 1966. Snemma árs 1966
var afráðin smíði á nýju rann-
sóknaskipi sem hlaut nafnið rs.
Árni Friðriksson og var afhent
ári síðar. Árið 1970 kom svo rs.
Bjarni Sæmundsson nýr til
landsins. Það var síðan árið
2000 að nýr Árni Friðriksson var
byggður og þeim eldri skipt út í
hans stað. Auk þessara skipa
voru tvö minni skip nefnd
Dröfn um skeið í eigu stofnun-
arinnar og tvö fiskiskip sem
báru nafnið Hafþór.
Nýsmíði rannsóknaskipanna
þriggja var fjármögnuð með
Haf- og fiskirann-
sóknir í hálfa öld
T
ím
a
m
ót
Höfundur er Jóhann Sigurjónsson,
forstjóri Hafrannsóknastofnunar
8