Morgunblaðið - 27.08.2016, Side 1

Morgunblaðið - 27.08.2016, Side 1
Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þáverandi forsætisráðherra, og eiginkona hans, Anna Sigurlaug Pálsdóttir, afhentu fjölmiðlamönn- um ítarlegar upplýsingar um eign- arhaldsfélagið Wintris í aðdrag- anda þess að Ríkissjónvarpið sendi út Kastljósþátt að kvöldi sunnu- dagsins 3. apríl síðastliðins þar sem fjallað var um hin svokölluðu Panamaskjöl. Í þættinum var hvergi vikið að þeim útskýringum sem tíundaðar voru í svörunum. Í ítarlegu viðtali við Önnu Sig- urlaugu í Morgunblaðinu í dag ræðir hún um upplifun sína af þeim atburðum sem leiddu til þess að Sigmundur Davíð vék úr emb- ætti forsætisráðherra. Hún segir að umfjöllunin um fjárhagsmálefni þeirra hjóna hafi öll miðað að því eina marki að koma höggi á eig- inmann hennar og Framsóknar- flokkinn. Tóku ekkert tillit til ítarlegra upplýsinga sem afhentar voru  Hundsuðu gögn frá forsætisráðherra er vörðuðu eignar- haldsfélagið Wintris Morgunblaðið/RAX Stjórnmál Anna Sigurlaug segir mann sinn hafa verið beittan blekkingum. MStaðreyndirnar virtust … »24 ustsúpur oghundasúrupestó Draumargeta ræst Gerir þættium EdduBjörgvins Irina Sazonova byrjaði að æfa fimleika fjögurra ára gömul í Rússlandi. Ekki höfðu allir trú á að hún næði langt en hún setti snemma stefnuna á Ólympíuleika. Draumurinn rættist í ár þegar hún varð fyrsta konan til að keppa í fimleikum fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikunum í Ríó 12 28. ÁGÚST 2016SUNNUDAGUR Helga Arnar-dóttir úr Kastljósivinnur nú aðþáttum umeina fyndnustukonu ÍslandsEddu Björgvinsog leiðist ekki íklippiher-berginu 2 Ha Ekki dæma lesefniðBörn eiga að lesa það sem þeim finnst skemmilegt. Ekkert lesefni er öðru fremra og foreldrar skyldu varast að dæmi lesefni barna sinna 16 uppskriftir sem hæfaárstíðinni vel 267 L A U G A R D A G U R 2 7. Á G Ú S T 2 0 1 6 Stofnað 1913  200. tölublað  104. árgangur  MEIRIHLUTI VERKANNA ÍSLENSK MIKIL TÆKIFÆRI LEYNAST Í FLUGINU FLUGMÁLAFÉLAG ÍSLANDS 80 ÁRA 22TJARNARBÍÓ 76 Sigríður Á. Andersen alþingismaður - 2. sæti www.sigridur.is Öræfasveitin skartar sínu fegursta í góða veðrinu um þessar mundir og umhverfið svíkur engan. Þangað hefur verið stöð- ugur straumur ferðamanna að undanförnu. Þar leynast víða perlur í landslaginu og sumar hafa fáir eða engir komið á, þótt þær sjáist úr fjarlægð. Upp af Kvíárjökli er Staðarfjall, sem státar af tveimur drekum. Sagan segir að þeir hafi á sínum tíma gleymt sér í kossa- flensi og orðið að steini efst í fjallinu við sólarupprás. Vítin eru til að varast þau en sjón er sögu ríkari. Morgunblaðið/RAX Drekarnir í Staðarfjalli í Öræfasveit kyssast Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Fyrstu sjö mánuði þessa árs nam kortavelta erlendra ferðamanna í menningu, afþreyingu og tómstund- ir um 3,2 milljörðum kr., sem er aukning frá sama tíma í fyrra um 53%. Með stóraukinni fjölgun ferða- manna til landsins hafa þeir í meira mæli sótt viðburði í menningu og listum og framboð slíkra viðburða hefur sömuleiðis aukist. Ferðamenn sækja leiksýningar, málverkasýn- ingar, tónleika og söfnin, þar sem að- sókn hefur aukist verulega. Viðmælendur Morgunblaðsins úr menningargeiranum voru flestir sammála um að fjöldi tækifæra væri til staðar. Markaðssetning á menn- ingu landsins væri vannýtt sóknar- færi í ferðaþjónustunni. Tvær leik- sýningar í Hörpu eru sérstaklega ætlaðar ferðamönnum og hafa þær laðað til sín þúsundir gesta. „How to become Icelandic in 60 Minutes“ hef- ur gengið fyrir fullu húsi í nokkur ár og í sumar hófust sýningar á úrvali Íslendingasagna, „The Icelandic Sa- gas - Greatest Hits in 75 Minutes“. Meðal hluthafa í því verkefni er sér- stakur framtakssjóður sem fjárfestir í afþreyingartengdri ferðaþjónustu. Alls hafa um 65 þúsund gestir komið að jafnaði í Hörpu vikulega í sumar, þar af um 90% þeirra útlend- ingar. Í júlí komu 240 þúsund gestir, 60% fleiri en í fyrra. „Við erum orðin mest sótti ferðamannastaðurinn á Íslandi,“ segir Halldór Guðmunds- son, forstjóri Hörpu. »34-36 Verja milljörð- um í menningu  Ferðamenn sækja meira í menning- ar- og listviðburði  Fjöldi tækifæra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.