Morgunblaðið - 27.08.2016, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016
Morgunblaðið/Eggert
Ævistarfið Þórunn hjá bókunum sínum öllum tuttugu og tveimur sem hún hefur sent frá sér síðustu þrjátíu ár.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég varð óvart rithöfundur,það er mín lukka. Þó aðupplýsingin hafi kenntokkur að hugsa vísinda-
lega eru örlögin og tilviljanir enn að
kasta okkur fram og til baka, rétt eins
og á miðöldum. Ég er ekki ein af þess-
um sterku stelpum sem ákváðu þegar
þær voru litlar að þær ætluðu að
verða skáld, en ömmur og afar og
mamma og pabbi hafa kannski hvíslað
að mér að ég gæti eitthvað, því ég
sagði einhvern tíma að ég ætlaði að
verða blaðamaður eða þingmaður.
Hvíslið hefur skilað sér,“ segir Þór-
unn Jarla Valdimarsdóttir, rithöf-
undur og sagnfræðingur, sem nú
fagnar því að þrjátíu ár eru liðin frá
því að hún sendi frá sér fyrstu bók
sína. Bækurnar eru orðnar tuttugu og
tvær og eru af ýmsum toga; sagn-
fræðibækur, skáldsögur, ljóðabækur,
ævisögur, sögulegar ævisögur, skáld-
ævisögur, ættarsögur og síðast var
það sjálfsævisaga.
„Seint og um síðir hef ég, þessi
lina kerling sem ég er, lært að ég verð
að standa með sjálfri mér og þess
vegna dreif ég í að halda upp á útgáfu-
afmælið mitt. Hér var fullt hús og
mikil gleði.“
Að kafa með réttu hugarfari
Þórunn segist hafa áttað sig á því
nýlega að fjórar fyrstu bækurnar sín-
ar hafi hún verið beðin um að skrifa.
„Það var mín gæfa. Ég lærði
reikning í barnaskóla svo ég gæti lagt
saman gæfur mínar og ógæfur, og ég
er í svo miklum plús, að hafa fengið að
vinna við það sem mér finnst
skemmtilegt. En þetta brúna á borð-
inu á milli bókanna minna er öll drull-
an, erfiðleikarnir og sársaukinn sem
það útheimtir. Ég dey frekar en að
standa mig ekki, þannig er það með
mig,“ segir hún þar sem hún situr við
borð í stofunni heima þar sem þær
hvíla allar bækurnar hennar.
„Það eiga ekki allir lífið sitt
svona, að geta lagt það á borð. Ég
elska bækur líka sem fyrirbæri, af því
þær eru svo hógværar, þær eru ekki
að öskra eins og arkitektúr, en það
þarf að minna á þær, og maður verður
að standa með hugsjón sinni. Ég elska
bækur og ég skrifa um það sem
brennur á mér að upplýsa og gera
heiminn betri. Það kemur ekki til
mála að lyppast niður.“
Þórunn segir þá vera örlaga-
valda látna vini hennar hjá Sögufélag-
inu, Björn Þorsteinsson og Einar
Laxness. „Allt byrjaði þetta á því að
Björn bað mig um að skrifa sögu
Jarðræktarfélags Reykjavíkur. Ég
horfði á hann undrunaraugum og
hugsaði hvort hann elskaði mig ekki,
hvort hann ætlaði virkilega með mig
ofan í hundleiðinlega jörðina. En ég
dreif mig í að skrifa Cand. mag.-
ritgerð um þetta félag, sem var heil-
mikil vinna en líka hugljómun, því allt
er skemmtilegt þegar maður kafar
ofan í það með réttu hugarfari. Einar
Laxness, forseti Sögufélags, sá að rit-
verkið passaði í ritröð félagsins og ég
bætti í ritgerðina mína og úr varð
fyrsta bókin mín, Sveitin við Sundin,
um búskap í Reykjavík frá 1870 til
1950. Sú bók er í raun hversdagssaga,
sem er miklu skemmtilegra en að
nálgast söguna í gegnum pólitík og
karla.“
Megas var til í slaginn
Eftir útkomu fyrstu bókarinnar
var leitað til Þórunnar með að skrifa
ævisögu gamals bónda í Reykjavík,
sögu Einars Ólafssonar í Lækjar-
hvammi. Hún tók verkið að sér og af-
raksturinn var önnur bók hennar, Af
Halamiðum á Hagatorg.
„Við þá vinnu komst ég í tölvu í
Bændahöllinni og meðan ég sat þar
kom til mín annar dásamlegur gamall
bóndi, Sigurður Líndal frá Lækj-
armóti í Húnavatnssýslu, og spurði
hvort ég vildi ekki skrifa um forföður
hans, Snorra á Húsafelli. Ég sagði já,
og þegar ég var búin að því og hafði
fengið tilnefningu til íslensku bók-
menntaverðlaunanna fyrir þessa
þriðju bók mína, Snorra á Húsafelli,
þá sagði Eggert maðurinn minn við
mig eldsnemma einn morguninn: „Æ,
viltu ekki skrifa sögu Megasar?“ Ég
hitti Megas á götu þann sama dag og
hann var til í slaginn. Úr varð fjórða
bókin mín, Sól í Norðurmýri, sem við
Megas skrifuðum saman.“
Konur verða að standa saman
„Ég áttaði mig á því þarna, fjög-
urra bóka kerling sem ég var orðin,
að kannski gæti verið að ég væri rit-
höfundur. Ég hafði fengið verðlaun
fyrir ritgerð í barnaskóla og kenn-
arar í menntaskóla höfðu hvatt mig til
að skrifa, svo ég vissi alveg að ég gæti
þetta. En þessi voðalega blíða sem
kemur með estrógeninu gerir mann
linan í að trúa á sjálfan sig. Það að
vera blíð þýðir samt ekki að undir
blundi ekki kraftur, enda hafa ís-
lenskar kerlingar gert ótrúlega hluti
og afrekað. Við konur verðum að
standa með konum, en við byrjum
ekki fyrr en eftir fimmtugt þegar við
erum lausar við eggjabakkana að
slaka á í samkeppni við aðrar konur
og förum að styðja og elska hver
aðra,“ segir Þórunn og bætir við að
undir niðri sé trukkur í henni. „Þegar
eggin fóru og estrógenið hvarf úr mér
kom meiri gribba í mig og nú þoli ég
betur illsku heimsins.“
Ég hélt við yrðum drepin
Þórunn segist ekki vilja gera
upp á milli bókanna sinna en að skrifa
margar þeirra hafi verið mjög
menntandi fyrir hana.
„Til dæmis stóra verkið mitt,
bókin um Matthías Jochumsson, Upp
á Sigurhæðir, ég lærði við þá vinnu
allt um þennan uppreisnargjarna
mann sem dró inn í landið nýja guð-
fræði sem tók bókstafinn úr sam-
bandi og varð til þess að við gátum
hangið í Guði. Og þegar ég vann að
bókinni minni um kristni á Íslandi
komst ég inn í hugmyndasöguna í
kristninni.
Hún er líka mjög eftirminnileg
ástarsagan Dagur kvennanna, sem
ég skrifaði með Megasi. Ég hélt við
yrðum drepin fyrir að gera grín að
hinum helga Kvennadegi. En við lifð-
um af og fengum rauðu fjöðrina fyrir
hana, verðlaun fyrir besta klámið.“
Þórunn segir skáldskapargyðj-
unni og sagnfræðigyðjunni líða vel
saman í hausnum á henni núna.
„En þær voru í stríði, af því að
úti í samfélaginu þykir fínna að vera
skáld en sagnfræðingur.“
Núna er Þórunn að vinna að bók
um Skúla fógeta, sem er stórt og mik-
ið verk, og hún er á leið til Kaup-
mannahafnar í Jónshús þar sem hún
ætlar að sinna því. „Ég vil verða heið-
ursdoktor áður en ég drepst úr elli
eða krabbameini,“ segir hún að lok-
um og hlær, en meinar það.
Ég dey frekar en að standa mig ekki
„Ég elska bækur og ég skrifa um það sem brennur á
mér að upplýsa og gera heiminn betri. Það kemur
ekki til mála að lyppast niður,“ segir Þórunn Jarla
Valdimarsdóttir rithöfundur, sem fagnar því að þrjá-
tíu ár eru síðan hún sendi frá sér fyrstu bók sína.
Hún segist núorðið þola illsku heimsins betur.
Árið 1986 Þórunn með Ragnheiði vinkonu sinni þegar fyrsta bókin kom út, Sveitin við Sundin. Fimmtugsafmæli Pípuhatts-Þórunn með gestum á leið til kventetts kvenblásara á Þingvöllum.
Dagskrá um rithöfundarferil
Þórunn verður í Hannesarholti 15.
október klukkan 15
Þórunn hefur hlotið 13 tilnefn-
ingar og 7 viðurkenningar fyrir
ritstörf sín:
Skáldsögur
1. Júlía. 1992.
2. Höfuðskepnur. 1994.
3. Alveg nóg. 1997.
4. Stúlka með fingur. 1999.
5. Hvíti skugginn. 2001.
6. Kalt er annars blóð. 2007.
7. Mörg eru ljónsins eyru.
2010.
8. Dagur kvennanna. Með Meg-
asi. 2010.
Ljóð
9. Fuglar. 1991
10. Loftnet klóra himin (klór,
klór). 2008.
Sagnfræði
11. Sveitin við Sundin, búskapur
í Reykjavík 1870–1950. 1986.
12. Aldarsaga L.R. 1897–1997.
Fyrri hluti. 1997.
13. Kristni á Íslandi IV. Fyrri
hluti 1830–1910. 2000.
14. Horfinn heimur. Árið 1900 í
nærmynd. 2002.
Sögulegar ævisögur
15. Snorri á Húsafelli 1711–1803.
1989.
16. Upp á Sigurhæðir. Saga
Matthíasar Jochumssonar.
2006.
Ævisögur
17. Af Halamiðum á Hagatorg.
Einar Ólafsson í Lækjar-
hvammi. l986.
18. Engin venjuleg kona. Sigrún
Jónsdóttir kirkjulistakona.
2000.
19. Með sumt á hreinu. Jakob
Frímann Magnússon. 2011.
Skáldævisaga/ættarsaga/
sjálfævisaga
20. Sól í Norðurmýri. Með Meg-
asi. 1990.
21. Stúlka með maga. 2013.
22. Stúlka með höfuð. 2015.
Allar bækur Þórunnar
FJÖLBREYTTAR BÆKUR
Allar bækurnar
„Það eiga ekki allir lífið sitt svona, að
geta lagt það á borð,“ segir Þórunn.