Morgunblaðið - 27.08.2016, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 27.08.2016, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016 Morgunblaðið/Eggert Ævistarfið Þórunn hjá bókunum sínum öllum tuttugu og tveimur sem hún hefur sent frá sér síðustu þrjátíu ár. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég varð óvart rithöfundur,það er mín lukka. Þó aðupplýsingin hafi kenntokkur að hugsa vísinda- lega eru örlögin og tilviljanir enn að kasta okkur fram og til baka, rétt eins og á miðöldum. Ég er ekki ein af þess- um sterku stelpum sem ákváðu þegar þær voru litlar að þær ætluðu að verða skáld, en ömmur og afar og mamma og pabbi hafa kannski hvíslað að mér að ég gæti eitthvað, því ég sagði einhvern tíma að ég ætlaði að verða blaðamaður eða þingmaður. Hvíslið hefur skilað sér,“ segir Þór- unn Jarla Valdimarsdóttir, rithöf- undur og sagnfræðingur, sem nú fagnar því að þrjátíu ár eru liðin frá því að hún sendi frá sér fyrstu bók sína. Bækurnar eru orðnar tuttugu og tvær og eru af ýmsum toga; sagn- fræðibækur, skáldsögur, ljóðabækur, ævisögur, sögulegar ævisögur, skáld- ævisögur, ættarsögur og síðast var það sjálfsævisaga. „Seint og um síðir hef ég, þessi lina kerling sem ég er, lært að ég verð að standa með sjálfri mér og þess vegna dreif ég í að halda upp á útgáfu- afmælið mitt. Hér var fullt hús og mikil gleði.“ Að kafa með réttu hugarfari Þórunn segist hafa áttað sig á því nýlega að fjórar fyrstu bækurnar sín- ar hafi hún verið beðin um að skrifa. „Það var mín gæfa. Ég lærði reikning í barnaskóla svo ég gæti lagt saman gæfur mínar og ógæfur, og ég er í svo miklum plús, að hafa fengið að vinna við það sem mér finnst skemmtilegt. En þetta brúna á borð- inu á milli bókanna minna er öll drull- an, erfiðleikarnir og sársaukinn sem það útheimtir. Ég dey frekar en að standa mig ekki, þannig er það með mig,“ segir hún þar sem hún situr við borð í stofunni heima þar sem þær hvíla allar bækurnar hennar. „Það eiga ekki allir lífið sitt svona, að geta lagt það á borð. Ég elska bækur líka sem fyrirbæri, af því þær eru svo hógværar, þær eru ekki að öskra eins og arkitektúr, en það þarf að minna á þær, og maður verður að standa með hugsjón sinni. Ég elska bækur og ég skrifa um það sem brennur á mér að upplýsa og gera heiminn betri. Það kemur ekki til mála að lyppast niður.“ Þórunn segir þá vera örlaga- valda látna vini hennar hjá Sögufélag- inu, Björn Þorsteinsson og Einar Laxness. „Allt byrjaði þetta á því að Björn bað mig um að skrifa sögu Jarðræktarfélags Reykjavíkur. Ég horfði á hann undrunaraugum og hugsaði hvort hann elskaði mig ekki, hvort hann ætlaði virkilega með mig ofan í hundleiðinlega jörðina. En ég dreif mig í að skrifa Cand. mag.- ritgerð um þetta félag, sem var heil- mikil vinna en líka hugljómun, því allt er skemmtilegt þegar maður kafar ofan í það með réttu hugarfari. Einar Laxness, forseti Sögufélags, sá að rit- verkið passaði í ritröð félagsins og ég bætti í ritgerðina mína og úr varð fyrsta bókin mín, Sveitin við Sundin, um búskap í Reykjavík frá 1870 til 1950. Sú bók er í raun hversdagssaga, sem er miklu skemmtilegra en að nálgast söguna í gegnum pólitík og karla.“ Megas var til í slaginn Eftir útkomu fyrstu bókarinnar var leitað til Þórunnar með að skrifa ævisögu gamals bónda í Reykjavík, sögu Einars Ólafssonar í Lækjar- hvammi. Hún tók verkið að sér og af- raksturinn var önnur bók hennar, Af Halamiðum á Hagatorg. „Við þá vinnu komst ég í tölvu í Bændahöllinni og meðan ég sat þar kom til mín annar dásamlegur gamall bóndi, Sigurður Líndal frá Lækj- armóti í Húnavatnssýslu, og spurði hvort ég vildi ekki skrifa um forföður hans, Snorra á Húsafelli. Ég sagði já, og þegar ég var búin að því og hafði fengið tilnefningu til íslensku bók- menntaverðlaunanna fyrir þessa þriðju bók mína, Snorra á Húsafelli, þá sagði Eggert maðurinn minn við mig eldsnemma einn morguninn: „Æ, viltu ekki skrifa sögu Megasar?“ Ég hitti Megas á götu þann sama dag og hann var til í slaginn. Úr varð fjórða bókin mín, Sól í Norðurmýri, sem við Megas skrifuðum saman.“ Konur verða að standa saman „Ég áttaði mig á því þarna, fjög- urra bóka kerling sem ég var orðin, að kannski gæti verið að ég væri rit- höfundur. Ég hafði fengið verðlaun fyrir ritgerð í barnaskóla og kenn- arar í menntaskóla höfðu hvatt mig til að skrifa, svo ég vissi alveg að ég gæti þetta. En þessi voðalega blíða sem kemur með estrógeninu gerir mann linan í að trúa á sjálfan sig. Það að vera blíð þýðir samt ekki að undir blundi ekki kraftur, enda hafa ís- lenskar kerlingar gert ótrúlega hluti og afrekað. Við konur verðum að standa með konum, en við byrjum ekki fyrr en eftir fimmtugt þegar við erum lausar við eggjabakkana að slaka á í samkeppni við aðrar konur og förum að styðja og elska hver aðra,“ segir Þórunn og bætir við að undir niðri sé trukkur í henni. „Þegar eggin fóru og estrógenið hvarf úr mér kom meiri gribba í mig og nú þoli ég betur illsku heimsins.“ Ég hélt við yrðum drepin Þórunn segist ekki vilja gera upp á milli bókanna sinna en að skrifa margar þeirra hafi verið mjög menntandi fyrir hana. „Til dæmis stóra verkið mitt, bókin um Matthías Jochumsson, Upp á Sigurhæðir, ég lærði við þá vinnu allt um þennan uppreisnargjarna mann sem dró inn í landið nýja guð- fræði sem tók bókstafinn úr sam- bandi og varð til þess að við gátum hangið í Guði. Og þegar ég vann að bókinni minni um kristni á Íslandi komst ég inn í hugmyndasöguna í kristninni. Hún er líka mjög eftirminnileg ástarsagan Dagur kvennanna, sem ég skrifaði með Megasi. Ég hélt við yrðum drepin fyrir að gera grín að hinum helga Kvennadegi. En við lifð- um af og fengum rauðu fjöðrina fyrir hana, verðlaun fyrir besta klámið.“ Þórunn segir skáldskapargyðj- unni og sagnfræðigyðjunni líða vel saman í hausnum á henni núna. „En þær voru í stríði, af því að úti í samfélaginu þykir fínna að vera skáld en sagnfræðingur.“ Núna er Þórunn að vinna að bók um Skúla fógeta, sem er stórt og mik- ið verk, og hún er á leið til Kaup- mannahafnar í Jónshús þar sem hún ætlar að sinna því. „Ég vil verða heið- ursdoktor áður en ég drepst úr elli eða krabbameini,“ segir hún að lok- um og hlær, en meinar það. Ég dey frekar en að standa mig ekki „Ég elska bækur og ég skrifa um það sem brennur á mér að upplýsa og gera heiminn betri. Það kemur ekki til mála að lyppast niður,“ segir Þórunn Jarla Valdimarsdóttir rithöfundur, sem fagnar því að þrjá- tíu ár eru síðan hún sendi frá sér fyrstu bók sína. Hún segist núorðið þola illsku heimsins betur. Árið 1986 Þórunn með Ragnheiði vinkonu sinni þegar fyrsta bókin kom út, Sveitin við Sundin. Fimmtugsafmæli Pípuhatts-Þórunn með gestum á leið til kventetts kvenblásara á Þingvöllum. Dagskrá um rithöfundarferil Þórunn verður í Hannesarholti 15. október klukkan 15 Þórunn hefur hlotið 13 tilnefn- ingar og 7 viðurkenningar fyrir ritstörf sín: Skáldsögur 1. Júlía. 1992. 2. Höfuðskepnur. 1994. 3. Alveg nóg. 1997. 4. Stúlka með fingur. 1999. 5. Hvíti skugginn. 2001. 6. Kalt er annars blóð. 2007. 7. Mörg eru ljónsins eyru. 2010. 8. Dagur kvennanna. Með Meg- asi. 2010. Ljóð 9. Fuglar. 1991 10. Loftnet klóra himin (klór, klór). 2008. Sagnfræði 11. Sveitin við Sundin, búskapur í Reykjavík 1870–1950. 1986. 12. Aldarsaga L.R. 1897–1997. Fyrri hluti. 1997. 13. Kristni á Íslandi IV. Fyrri hluti 1830–1910. 2000. 14. Horfinn heimur. Árið 1900 í nærmynd. 2002. Sögulegar ævisögur 15. Snorri á Húsafelli 1711–1803. 1989. 16. Upp á Sigurhæðir. Saga Matthíasar Jochumssonar. 2006. Ævisögur 17. Af Halamiðum á Hagatorg. Einar Ólafsson í Lækjar- hvammi. l986. 18. Engin venjuleg kona. Sigrún Jónsdóttir kirkjulistakona. 2000. 19. Með sumt á hreinu. Jakob Frímann Magnússon. 2011. Skáldævisaga/ættarsaga/ sjálfævisaga 20. Sól í Norðurmýri. Með Meg- asi. 1990. 21. Stúlka með maga. 2013. 22. Stúlka með höfuð. 2015. Allar bækur Þórunnar FJÖLBREYTTAR BÆKUR Allar bækurnar „Það eiga ekki allir lífið sitt svona, að geta lagt það á borð,“ segir Þórunn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.