Morgunblaðið - 27.08.2016, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016
Styrkur Jón Sigurður hefur æft fimleika frá fimm ára
aldri og er Íslandsmeistari í fjölþraut karla í fimleikum.
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
S
igurður Andrés og Jón
Sigurður, eða Siggi og
Nonni eins og þeir eru
ávallt kallaðir, starfa báð-
ir sem fimleikaþjálfarar
og -dómarar, hafa báðir átt sæti í ís-
lenska fimleikalandsliðinu og vinna
báðir hjá fimleikadeild Ármanns.
Siggi stundar auk þess nám við Fjöl-
brautaskólann í Ármúla og Nonni
stundar nám í vélaverkfræði við Há-
skóla Íslands og djasspíanónám í
FÍH. „Svo vinn ég líka á bar. Það er
svolítið mikið að gera hjá mér núna
en ég get ekki verið án fimleikanna,“
segir Nonni.
„Fimleikarnir hafa alltaf verið
til staðar og munu alltaf vera til
staðar, þó að allt hitt hverfi,“ segir
Siggi, sem hefur æft fimleika frá 10
ára aldri. „Ég byrjaði frekar seint,
miðað við aðra fimleikamenn.“ Ár-
angurinn lætur hins vegar ekki á sér
standa, en Sigurður er Íslandsmeist-
ari í stökki og á tvíslá í áhaldafim-
leikum karla. Nonni hefur æft fim-
leika frá fimm ára aldri og er ríkj-
andi Íslandsmeistari í fjölþraut
karla. „Það eru öll áhöldin saman-
lagt, það er gólf, bogahestur, hring-
ir, stökk, tvíslá og svifrá,“ segir
Nonni, sem er einnig Íslandsmeist-
ari í hringjum og á gólfi í einstökum
áhöldum.
Áhugi eftir Ólympíuleika
Fimleikar virðast kannski ekki
vera íþrótt fyrir alla við fyrstu sýn
en Nonni og Siggi segja hiklaust að
allir geti stundað fimleika. Þess
vegna ætla þeir að bjóða upp á full-
orðinsfimleika í vetur, það er nám-
skeið í fimleikum fyrir 18 ára og
eldri. Þeir segja að áhuginn sé til
staðar, sérstaklega svona stuttu eft-
ir Ólympíuleikana. „Það er greini-
legt að fólk hefur verið að horfa og
við viljum nýta tækifærið og halda
áhuganum við,“ segir Nonni. „Ég
veit að margt fólk langaði að fara í
fimleika þegar það var yngra en fór
aldrei og langar að prófa núna,“ seg-
ir Siggi. „Eða kannski fólk sem
hætti snemma og langar að prófa
aftur,“ segir Nonni. Námskeiðið er
samt sem áður fyrir alla, hvort sem
þeir hafa reynslu úr fimleikaheim-
inum eða ekki. „Við kennum öllum.
Stefnan er ekki að þjálfa fólk fyrir
keppni, heldur er það að mæta fyrir
sig. Þetta er frábær líkamsrækt,“
segir Siggi.
Fullorðinsfimleikar hafa verið
kenndir nokkrum sinnum í gegnum
tíðina í Ármanni. Uppruna nám-
skeiðsins, að minnsta kosti hjá Ár-
manni, má rekja til áhugasamra fim-
leikamæðra fyrir nokkrum árum.
„Þetta byrjaði þannig að mömm-
urnar sem fylgdust með börnum sín-
um á æfingum langaði að prófa sjálf-
ar og höfðu samband við einn
þjálfarann, sem tók vel í þessa hug-
mynd.“
Hraði, hlaup og hin ýmsu stökk
einkenna fimleika og eflaust hræð-
ast margir að steypa sér í fimleika-
gryfjuna. Nonni og Siggi segja að
óþarfi sé að hræðast æfingarnar en
ákveðinn ótti sé þó eðlilegur fylgi-
fiskur fimleika. „Við þekkjum það al-
veg sjálfir frá því að við vorum litlir
að það er ótti í fimleikum, en við er-
um með heimsklassa aðstöðu,“ segir
Nonni. „Við látum fólk ekki gera
neitt sem það er ekki tilbúið í. Það er
aðalreglan í fimleikum að þú fram-
kvæmir ekki æfingar nema að þú
sért með fullkomna stjórn á þeim,“
segir Siggi.
Kúnst að kunna að detta
Námskeiðið er mjög fjölbreytt.
„Við erum að þjálfa vöðva sem fólk
hefur yfirleitt lítið notað,“ segir
Nonni. Þeir segja að námskeiðið sé
fyrst og fremst til að koma til móts
við áhuga fólks og forvitni. „Við er-
um ekki að stefna á Ólympíuleikana
en ég veit um marga sem eru komnir
með leið á hefðbundinni líkamsrækt
og vilja auka þrek og liðleika á sama
tíma og þeir gera eitthvað flott, eins
og til dæmis eitthvað sem þeir sáu í
sjónvarpinu,“ segir Siggi. „Ég hef
einnig heyrt að fólk vilji koma í fim-
leikana til að læra að detta,“ bætir
hann við. „Að detta snýst um við-
brögð og rýmisgreind. Maður dettur
oft á hverjum degi í fimleikum,“ seg-
ir Nonni. Er námskeiðið þá tilvalið
fyrir klaufa? „Já, það má kannski
segja það,“ segir Nonni og hlær. „En
ég hef einnig heyrt frá öðru íþrótta-
fólki að það sé gagnlegt að læra að
detta. Hér er allavega nóg af dýnum
þannig að enginn ætti að meiða sig,“
segir Siggi.
Félagarnir eru báðir vanir að
þjálfa börn, en ætli það sé einhver
munur á að þjálfa þau og fullorðna?
„Já, fullorðnir eru viðkvæmari en
börnin, líkamlega, en þeir skilja
fyrirmæli betur,“ segir Nonni. „Full-
orðnir hlaupa líka ekki eins mikið út
um allt og krakkarnir,“ segir Siggi
og hlær.
Námskeiðið er kennt þrisvar í
viku, einn og hálfan tíma í senn.
Nánari upplýsingar má nálgast hjá
Íþróttafélagi Ármanns eða hafa
beint samband við Nonna eða Sigga
á Facebook. Fyrsta æfing verður 5.
september og er hún opin öllum.
„Það er aldrei of seint að byrja, fim-
leikar eru fyrir alla,“ segir Siggi.
Strákarnir leyna á sér
Siggi og Nonni leggja sjálfir
mikla áherslu á áhaldafimleika. „Það
er held ég eina íþróttin þar sem karl-
ar og konur eru ekki að gera sömu
hlutina. Karlarnir eru með sex áhöld
en konurnar með fjögur. Bara tvö af
þessum áhöldum eru sameiginleg,
gólf og stökk. „Þetta er sitt hvor
íþróttin í rauninni. Hvernig við ætl-
um að tækla það í vetur mun bara
koma í ljós. En ef stelpurnar vilja
prófa strákaáhöldin, til dæmis boga-
hestinn, og öfugt munum við auðvit-
að kenna þeim það,“ segir Siggi.
Félagarnir munu einnig vinna
að sínum eigin markmiðum í vetur,
en Nonni er með háleitt en raunhæft
fjögurra ára markmið. „Ég komst
ekki á Ólympíuleikana í Ríó þannig
að ég ætla að reyna mitt besta til að
komast til Tókýó 2020.“ Þeir eru
sammála um að karlafimleikar séu á
mikilli uppleið hér á landi, þótt
meira sé fjallað um kvennafimleik-
ana þessa stundina. „Eðlilega
kannski, þar sem núna komst ís-
lensk fimleikakona í fyrsta skipti á
Ólympíuleikana og kvennalands-
liðið hefur verið að gera góða
hluti, en við strákarnir leynum á
okkur,“ segir Siggi að lokum áður
en þeir félagarnir halda saman á
tveggja tíma áhaldafimleika-
æfingu. Að henni lokinni er svo
komið að jafn langri loftfimleika-
æfingu.
Fimleikarnir verða alltaf til staðar
Fimleikar spila stórt hlutverk í lífi Jóns Sigurðar Gunnarssonar og Sigurðar Andrésar Sigurðarsonar. Jón er Íslandsmeistari í fjölþraut
karla og Sigurður er Íslandsmeistari í stökki og á tvíslá. Vinirnir hafa einnig nýtt fimleikahæfileikana í að sýna listir sínar með Sirkus
Íslands og í haust ætla þeir að dreifa gleðinni enn frekar með því að bjóða upp á námskeið í fullorðinsfimleikum.
Morgunblaðið/Þórður
Leikni Sigurður Andrés hefur stundað fimleika frá 10
ára aldri og er Íslandsmeistari í stökki og á tvíslá.
Siggi og Nonni segja fimleikagrunninn vera góðan grunn fyrir
hinar og þessar íþróttir. Þeir bjuggust þó ekki við að enda
báðir í sirkus, hvað þá á Íslandi. „Sirkus Íslands hefur æft í
Ármanni frá 2007. Ég prófaði nokkrum sinnum að kasta
boltum og datt inn í þetta,“ segir Siggi.
Nonni hefur sýnt með sirkusnum í tvö ár. „Fimleikar og
sirkus spila saman. Cirque du soleil eru að auglýsa á stór-
mótum eftir fimleikafólki. Það er til dæmis ein úr Cirque du
soleil að kenna okkur, sem er mjög spennandi. Þetta er
ákveðin list, fimleikar heita jú artistic gymnastics eða gym-
nastique artistique,“ segir Nonni með óaðfinnanlegum
frönskum framburði.
Frá gólfinu yfir í sirkus
SIRKUS ÍSLANDS
List Siggi á vor-
sýningu Ármanns.
Aðventudýrð í Veróna
4. - 11. desember
Njóttu aðventunnar á Ítalíu. Yndisleg ferð til rómantísku
borgarinnar Verona að vetrarlagi. Skoðaðir verða
ýmsir fallegir staðir í nágrenni borgarinnar og endað á
klassískum jólamarkaði í München í Þýskalandi. Einstök
aðventuferð, jólastemmning og fagrir staðir.
Verð: 199.900 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sp
ör
eh
f.