Morgunblaðið - 27.08.2016, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 27.08.2016, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016 H a u ku r 0 1 .1 6 Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is • Vinsælt hótel á einstökum stað í nálægð við höfuðborgarsvæðið. Velta eins og um hótel í höfuðborginni sé að ræða. • Bakarí með nokkra útsölustaði á höfuðborgarsvæðinu. Gefur ýmsa möguleika til þróunar. • Stöndug heildsöluverslun með sérhæfðar vörur fyrir byggingar- iðnaðinn í mjög góðu og stóru eigin húsnæði á besta stað í borginni. Velta 300 mkr. og afkoma góð. • Öflugt og vel tækjum búið fyrirtæki sem sér um ræstingu atvinnuhúsnæðis. • Bílaleiga með á annað hundrað bíla og fína aðstöðu. Sala mikil í gegn um eigin vefsíðu. Góð EBITDA. • Lítil vinsæl pizzakeðja á höfuðborgarsvæðinu. Miklir vaxtarmöguleikar. • Matvöruverslun á Austurlandi. Löng og góð rekstrarsaga. • Veitingastaður á Stór-Reykjavíkursvæðinu í eigin húsnæði sem leggur áherslu á hádegismat og er aðeins opinn að degi til. Tækifæri fyrir t.d. duglegan matreiðslumann að þróa frekar eftir eigin höfði. • Gott hótel miðsvæðis á Suðurlandi sem býður upp á mikla möguleika fyrir áhugasaman, nýjan eiganda. • Fasteignafélag með 27 nýjar stúdíóíbúðir í langtímaleigu. Góðar og stöðugar tekjur. Hagstætt verð. • Traust sérverslun með góða afkomu sem býður upp á allt í sambandi við rafmagnið. Velta 80 mkr. og góð afkoma. Guðni Halldórsson lögfræðingur, gudni@kontakt.is Þórarinn Arnar Sævarsson fasteignaráðgjafi, thorarinn@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hæstaréttarlögmaður, sigurdur@kontakt.is VIÐTAL Guðrún Vala Elísdóttir vala@simenntun.is Dawid og Agnieszka Dawbrowski komu til Íslands í október 2006 eins og fjölmargir aðrir Pólverjar á þeim tíma. Erindið var að sjálfsögðu að vinna hérlendis, en þau vissu ekki margt um landið áður en þau komu annað en að hér væri kalt. Dawid fékk vinnu í byggingariðn- aði og Agnieszka á leikskóla og þau settust að í Borgarnesi. Hér bjuggu þau í fimm ár en eru flutt aftur til Póllands, þar sem þau búa ásamt tveimur börnum sínum, Lukasz og Sosju, í bænum Tarnowskie Góry sem er rétt norðan við Katowice. Fréttaritari leit við hjá þeim í Pól- landi í sumar og forvitnaðist um líf þeirra eftir veruna á Íslandi. „Okkur líkaði vel að búa á Íslandi, fólkið þar er opið, hjálpsamt og af- slappað. Þar er minna stress en hér. Landslagið er auðvitað stórkostlegt og frábært að búa í svona mikilli ná- lægð við náttúruna. Auk þess er kynding húsa ódýr og heita vatnið er dásamlegt, sérstaklega líkaði okkur heitu pottarnir á Íslandi.“ Þau segjast þó aldrei alveg hafa vanist lyktinni af vatninu frekar en veðurfarinu. ,,Á Íslandi er of lítið sólskin og oft rok, og það er nú eiginlega vindurinn sem minnir okkur mest á Ísland. Svo var verð á ýmsum vörum alveg ótrú- lega hátt og okkur fannst innfluttir ávextir bragðast ólíkt því sem við átt- um að venjast. En auðvitað er það einstök reynsla að hafa búið á Íslandi og mjög jákvæð.“ Launin tvöfalt hærri á Íslandi Þau eru sammála um að lífsskil- yrðin hafi verið góð. „Launin á Ís- landi voru alveg tvöföld á við launin hér og möguleiki á að margfalda þau ef maður vann yfirvinnu, en eftir hrunið breyttist það og varð ekki mikið betra en í Póllandi. Hins vegar er velferðarkerfið mun betra á Ís- landi.“ Ásamt því að vinna fulla vinnu á leikskólanum og vinna aðra hvora helgi í Hyrnunni kenndi Agnieszka fimleika í Borgarnesi og var í fjar- námi við háskóla í Póllandi. Hún flaug út á á nokkurra vikna fresti á hverri önn til að taka próf og skila verkefnum og lauk á endanum meistaraprófi í bókhaldsfræðum. Da- wid spilaði og æfði knattspyrnu með Skallagrími og bæði lyftu þau lóðum í íþróttahúsinu. Það má því segja að þau hafi haft nóg að gera. En hvernig gekk þeim að læra ís- lensku? Agnieszka segist hafa lært talsvert í íslensku þegar hún vann á leikskólanum. „Ég tók nokkur íslenskunámskeið hjá Símenntunarmiðstöðinni á Vest- urlandi sem nýttust vel og ég tala ís- lensku ennþá ef ég fæ tækifæri til,“ segir hún, en Dawid fór á nokkur námskeið líka og vann með Íslend- ingum. „Í fótboltanum lærði ég alls konar týpísk fótboltaorð, en fæst annað situr eftir. Íslenskan er ólík okkar málumhverfi og það var ekki auðvelt að læra hana,“ segir Dawid. Heimþrá eftir fæðingu sonarins Eftir hrunið var eins og áður sagði ekki svo mikill munur lengur á laun- unum og þau fóru að velta því fyrir sér að fara aftur til Póllands. „Við hugsuðum um hvað við fengj- um út úr því að vera lengur, þetta snýst jú oftast um peninga, en tíminn líður hratt og við urðum að ákveða hvað við ætluðum með framtíð okkar og tryggja hana sem best. Við urðum að ákveða okkur og það var annað- hvort að setjast að á Íslandi eða snúa aftur heim. Það sem gerði útslagið var fæðing Lukaszar sonar okkar, en eftir að hann fæddist fengum við mikla heimþrá og söknuðum fjöl- skyldunnar heima. Við vildum að hann fengi að kynnast fólkinu sínu, og við vildum ekki heldur missa af ýmsum fjölskylduviðburðum enda mikil vegalengd frá Íslandi til Pól- lands. Þetta var ekki auðveld ákvörð- un, sérstaklega þegar maður er bú- inn að vera lengi og er orðinn hluti af samfélaginu eins og við vorum orðin í Borgarnesi.“ Þau fluttu heim til Póllands í októ- ber 2011 og höfðu þá búið á Íslandi í fimm ár. „Það var góður skóli að vera á Íslandi og okkur finnst við hafa styrkst við þá reynslu. Ef þú getur lært íslensku getur þú gert allt sem þú vilt,“ segja þau brosandi. „En það var alls ekki auðvelt að byrja að vinna á vinnustað þar sem enginn skilur málið þitt og maður skilur ekki mál samstarfsmannanna. Eins er erfitt að búa þar sem ríkir kolniða- myrkur á veturna, en við erum bara sterkari eftir þetta og margt er okk- ur auðveldara viðfangs núna.“ Margt hefur breyst í Póllandi „Okkur leið vel að koma til baka, að hitta alla aftur og hér eigum við heima,“ segja þau. Agnieszka fór að vinna við bókhald, en hún hafði eins og áður segir lokið háskólanámi. Dawid fékk vinnu sem verkefnastjóri hjá stóru fyrirtæki sem sér um ýms- ar tæknilausnir í stóriðju, og nýtir þar menntun sína í verkfræði. „Við höfum það nokkuð gott og eft- ir að yngra barnið okkar fæddist, hún Sosja, ákváðum við að byggja okkur hús með litlum garði þar sem börnin gætu leikið sér úti og við ræktað matjurtir til heimilisins. Það var fyrir tveimur árum og við erum enn að vinna við það allt saman.“ Þau hafa byggt húsið að mestu leyti sjálf ásamt hjálp frá föður Agnieszku. Þau segja að margt hafi breyst í Póllandi á síðustu árum. „Til dæmis má segja að hér hafi orðið nokkurs konar pólitískur jarð- skjálfti, ríkisstjórnin hefur of mikil völd og stjórnarandstaðan hefur ekki nægilega mörg atkvæði til að stoppa nein mál. Við vonum að eitthvað breytist til batnaðar fyrir hinn al- menna borgara en þangað til getum við að minnsta kosti glaðst yfir góðu gengi í pólska fótboltanum, en lands- liðið er orðið mjög sterkt alveg eins og íslenska liðið.“ Agnieszka og Dawid vilja koma til skila þakklæti af öllu hjarta til allra á Íslandi sem studdu þau og hjálpuðu þeim. „Við munum aldrei gleyma tímanum sem við áttum þar eða fólk- inu sem við kynntumst og erum þakklát fyrir þann tíma sem við átt- um saman, mikilvæga reynslu og menntun.“ Einstök reynsla og mjög jákvæð  Ung hjón fluttu aftur til Póllands eftir fimm ára dvöl í Borgarnesi  Góður skóli að vera á Íslandi  Lífsskilyrðin góð en of lítið sólskin og of mikið rok  Líður vel í Póllandi og hafa byggt þar hús Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir Pólland Hjónin Agnieszka og Dawid Dawbrowski við eldhúsborðið á heimili sínu í Póllandi, sem þau reistu eftir að hafa flutt aftur heim að lokinni dvöl á Íslandi frá 2006 til 2011. Bjuggu þau í Borgarnesi og rifja hér upp dvölina. Ánægð Börnin Sosja og Lukasz Dawbrowski glöð með „þjóðarrétt“ Íslend- inga, Prins póló. Lukasz fæddist á Íslandi en Sosja í Póllandi. Heimilið Húsið sem Dawid og Agnieszka reistu sér í bænum Tarnowskie Góry, rétt norðan við Katowice, eftir að hafa komið aftur heim til Póllands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.