Morgunblaðið - 27.08.2016, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016
Skoðaðu húsið nánar á fasteignavef mbl.is
og fáðu söluyfirlitið sent sjálfkrafa.
Síminn okkar er 515 4500 og netfangið
nyhofn@nyhofnfasteignir.is
Löggiltir fasteignasalar | Lárus Ómarsson og Þórður H. Sveinsson
Nýhöfn faste ignasa la ı Borgar túni 25 ı 105 Reyk jav ík ı S ími 515 4500 ı www.nýhöfn. i s
Fallegt einbýli á besta stað
Vesturgata 41 I 101 Reykjavík
Vesturgata 41 er fallegt einbýlishús í hjarta borgarinnar. Húsið, sem er um 390 fermetrar,
hefur verið mikið endurnýjað en í því eru tvær íbúðir með samtals 14 herbergjum.
Mjög skemmtilegur 60 fermetra sólpallur er á annarri hæð með flottu útsýni.
Þetta er einstakt tækifæri til að eignast þessa fallegu fasteign
á eignalóð í miðbæ Reykjavíkur. Sérinnkeyrsla er meðfram
húsinu og einkabílastæði á lóðinni aftan við húsið.
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Nú hafa forystumenn ríkisstjórnar-
innar og forseti Alþingis kunngjört
að yfirstandandi Alþingi, 145. löggjaf-
arþingið, verði framlengt um óákveð-
inn tíma en til stóð að því lyki 2. sept-
ember nk. Kosningar til Alþingis eru
áformaðar 29. október.
Af ummælum nokkurra þing-
manna stjórnarandstöðunnar má
ætla að þessi ákvörðun hafi komið
þeim á óvart. Reyndar hafði Morg-
unblaðið birt frétt um þessar fyr-
irætlanir 10. ágúst sl. og nokkrir
miðlar tóku þá frétt upp. Þá upplýstu
Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni
Benediktsson á Alþingi í fyrradag að
þeir hefðu í viðræðum við forystu-
menn stjórnarandstöðuflokkanna í
sumar kynnt áformin. „Á fundi með
formönnum flokkanna sem ég og
fjármálaráðherra áttum í aðdraganda
þingsins kynntum við þær hug-
myndir að fresta samkomudegi
þingsins, halda áfram þingstörfum
fram í september, hugsanlega út
september og lengur ef þurfa þykir
með þeirri niðurstöðu að kjósa í lok
október,“ sagði forsætisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir, þingmaður
Vinstri grænna, brást illa við þessum
tíðindum á Alþingi í fyrradag og
sagði m.a: „Hér hefur verið unnið vel
en á sama tíma gerist það núna í
óundirbúnum fyrirspurnatíma að
hæstv. forsætisráðherra, sem er for-
ustumaður framkvæmdavaldsins,
lætur eins og starfsáætlun Alþingis
sé einskis virði, sé ekki pappírsins
virði. Hann kemur hingað inn og til-
kynnir Alþingi það og forseta þar á
meðal að til standi að funda hér ein-
hverjum vikum saman eftir að starfs-
áætlun Alþingis er lokið. Þetta er
ótækt. Þetta er hegðun fram-
kvæmdavaldsins sem er á kostnað
virðingar Alþingis. Ég legg áherslu á
að við gætum mjög vel að þessu þeg-
ar við hittumst hér á eftir að þetta er
ótækt. Alþingi þarf að gæta að virð-
ingu sinni og gera framkvæmdavald-
inu mjög ljóst að starfsáætlun Al-
þingis er pappír sem skiptir máli.“ Og
Össur Skarphéðinsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, sagði við sama
tækifæri að forsætisráðherra væri
„að þvæla málum fram yfir áætluð
þinglok til þess að geta tafið kosn-
ingabaráttuna, til þess að koma í veg
fyrir það að kosningabaráttan geti
hafist.“
Þingrofið í mars 2009
En spólum nú nokkur ár aftur í
tímann eða til 13. mars 2009. Þann
dag las Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra ríkisstjórnar Samfylk-
ingar og Vinstri grænna forsetabréf
um þingrof og að kosningar skuli fara
fram 25. apríl það ár. Jóhanna sagði í
ræðu sinni að það væri sjálfstæð
ákvörðun hvenær fundum Alþingis
yrði frestað fyrir kosningar. Síðan
sagði Jóhanna: „Nær öll þau mál sem
ríkisstjórnin leggur áherslu á að fá
afgreidd hafa nú verið lögð fram.
Fyrir liggur að stjórnmálaflokkar
hafa mismunandi sýn á hversu lengi
þingið á að starfa á þessu vori og
hvaða mál séu brýnust. Ég legg
áherslu á að öll brýn mál þarf að af-
greiða áður en þingi verður frestað.
Þar er m.a. um að ræða mál sem
varða stuðning við heimilin í landinu
og atvinnulífið og endurreisn fjár-
málakerfisins, auk frumvarps til laga
um breytingar á kosningalögum og
stjórnarskipunarlögum sem flutt eru
af fulltrúum fjögurra flokka. Listi yfir
þau mál sem ólokið er hefur verið
kynntur formönnum stjórnmála-
flokka og jafnframt var þeim greint
frá því að ef til vill gætu örfá mál
bæst á þann lista. Ég vil undirstrika
að þessi mál eru öll afar mikilvæg og
þeim þarf að ljúka. Því er mikilvægt
að þing starfi þangað til þau eru orðin
að lögum.“
Við sama tækifæri sagði Geir H.
Haarde, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, sem var í stjórnarandstöðu, að
flokkurinn gerði athugasemdir við
þau áform ríkisstjórnarinnar að ætl-
unin væri að þingið starfaði jafnvel
vikum saman eftir að tilkynning hefði
verið lesin upp á Alþingi um þingrof
og kosningar. Það væri óeðlilegt.
„Hins vegar er það ekki þannig að
þingið geti ekki setið eins og nú er
ráðgert að það geri. Þingið hefur
heimildir til þess. Lögfræðilega er
það leyfilegt en pólitískt er það ekki
eðlilegt vegna þess að gera verður
ráð fyrir því að frambjóðendur til Al-
þingis, stjórnmálaflokkarnir og allir
aðrir sem láta sig þau mál varða hafi
eðlilegan undirbúningstíma í aðdrag-
anda kosninga. Kjósendur eiga líka
rétt á því. Núna er tími prófkjara og
forvala í flokkunum, lands- fundir eru
fram undan í þremur eða fjórum
stjórnmálaflokkum og ekki er hægt
að bjóða upp á það að þingið sé hér að
störfum meðan slíkar samkomur eru
að störfum. Það er líka ástæðulaust,
virðulegi forseti, vegna þess að hægt
er að ljúka þingstörfum á mjög stutt-
um tíma ef vilji er fyrir hendi,“ sagði
Geir m.a.
Örstutt kosningabarátta
Reyndin varð sú Alþingi starfaði
fram til 17. apríl, þ.e. í meira en mán-
uð fram yfir útgáfu þingrofsboðskap-
ar. Þingstörfum var því frestað að-
eins rúmri viku fyrir kjördag 25. apríl
2009.
Aðdragandinn að kosningunum nú
er því svipaður og vorið 2009. For-
ystumenn ríkistjórnarflokkanna vilja
lengja þingið til að klára brýn mál en
stjórnarandstaðan telur það óþarft.
Það sem hefur breyst er að það hafa
orðið hlutverkaskipti milli flokkanna
á Alþingi.
Skipt um hlutverk á Alþingi
Stjórnarandstaðan bregst illa við áformum um að framlengja starfsáætlun Alþingis Þessir sömu
flokkar töldu brýnt að lengja þingið í aðdraganda kosninganna 2009 Brýnt að klára mikilvæg mál
Morgunblaðið/Golli
Umræður á Alþingi 2009 Jóhanna Sigurðardóttir sat kankvís í stóli for-
sætisráðherra í þingsölum þegar Geir H. Haarde flutti ræðu sína.
Það var heitt í kolunum í þingsal
þegar fundum Alþingis var frestað
17. apríl 2009 eins og sjá má í end-
ursögn af ræðu Bjarna Benedikts-
sonar á vef Alþingis.
„Virðulegi forseti. Meginatriði
málsins er þetta: Ástandið í dag er
verra en það var þegar ríkis-
stjórnin tók við. Það er alveg rétt
hjá hæstv. fjármálaráðherra, það
hefði verið betra að nýta tímann til
að bæta ástandið fram að kosn-
ingum. Það er nákvæmlega það
sem við sögðum í lok janúar þegar
ríkisstjórnin sprakk: Nú þarf að
grípa til aðgerða til að bæta
ástandið. Niðurstaðan af þessum
leiðangri minnihlutastjórnarinnar
er sú að ástandið hefur versnað
þannig að tímanum hefur verið illa
varið og það er meginatriði máls-
ins. Tímanum í þinginu hefur m.a.
verið varið (LB: Í málþóf.) í að setja
ný met. [Háreysti í þingsal.] Virðu-
legi forseti. Það hafa verið sett
met hérna, hvert metið á fætur
öðru. (Gripið fram í: Í málþófi.) Sá
sem á Íslandsmetið í málþófi
(Gripið fram í.) situr hér sem
hæstv. forsætisráðherra. Það met
verður aldrei slegið. [Háreysti í
þingsal.] Virðulegi forseti. (Forseti
hringir.)
(Forseti (GuðbH): Forseti biður
hv. þingmenn að gefa ræðumanni
tækifæri til að flytja mál sitt.)
Virðulegi for-
seti. Tímanum
hefur verið illa
varið í að reyna
að keyra hér í
gegn mál í
ágreiningi sem
þjóðin bíður ekki
eftir. Þjóðin bíður
eftir lausnum
fyrir fyrirtæki og
heimili. Ríkisstjórnin hefur þess í
stað ákveðið að verja tímanum í að
setja ný met. Fjöldi næturfunda
dag eftir dag, (Gripið fram í.) ný
met á því sviði. (Gripið fram í.)
Nýtt met (Gripið fram í: Leyfa
sjálfstæðismönnum …) í fjölda
daga sem líður frá lokum þing-
halds til kosninga. Og það átti líka
að rjúfa 50 ára hefð (Gripið fram
í.) hvað það snertir að gera ekki
breytingar á stjórnarskránni nema
að höfðu samráði við alla flokka.
Þetta er það sem ríkisstjórnin hef-
ur verið að gera, þess vegna hefð-
um við betur gengið til kosninga
strax (Forseti hringir.) (Gripið fram
í: Nú?) í stað þess að gera ástand-
ið verra en … [Háreysti í þingsal.] “
Jóhanna Sigurðardóttir svaraði
Bjarna og sagði m.a.: „Virðulegi
forseti. Ég veit hreinlega ekki í
hvaða veröld hv. þm. Bjarni Bene-
diktsson lifir eða hvar hann hefur
haldið sig frá 1. febrúar.“
„Háreysti í þingsal“
HEITT Í KOLUNUM VIÐ ÞINGFRESTUN 2009
Bjarni í umræðum
í þinginu 2009.