Morgunblaðið - 27.08.2016, Síða 38

Morgunblaðið - 27.08.2016, Síða 38
Liturinn er sterkur og skær  Í fjöllum nærri Rangárbotnum hefur mosi náð að festa rætur í skriðum og skorningum fjalla. Þegar skúrir eða rigning ganga yfir sprettur þarna fram litasinfónínía með fallegum tónum.  Illasúla, sem líkist egypskum píramýda, speglast á fleti Álftavatns. Þeir sem ganga Lauga- veginn segja að afar fallegt sé að horfa úr Jökultungunum niður að vatninu með fjallið fremst. ÞJÓÐVEGURINN Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Syðra-Fjallabak heitir einu nafni leiðin sem hér greinir frá. Ekið er inn á hálendisveginn við Keldur á Rangárvöllum og þar svo farið norður á bóginn um lítt gróið land. Þetta er 90 kílómetra hringleið, norður fyrir Tindfjöll þar sem komið er niður í Fljótshlíðina. En byrjum við Keldur, en þar skammt ofan byggðar er Skógshraun, en örnefnið vitnar um að forðum tíð hafi þetta svæði verið viði vaxið. Nærtækt er að ætla að skógarnir hafi eyðst í eld gosum Heklu, sem hér blasir við í vestri. Foldgná og falleg á góðum degi. Ekið í árfarvegi Vegurinn inn á Fjallabak liggur um ása og hryggi – og gjarnan við hlíðar lágreista fjalla. Staðarheitin hér eru sum mjög eftirtektarverð. Á landakorti má sjá Hafrafell, Grasleysufjöll, Hrauntind, Skyggn- ishlíðar og -vatn, Launfitjarsand og Ljósá. Einnig Laufafell og sunnan þess er Hagafell. Milli þessara tveggja fjalla er Haga- fellskvísl, en þar á kafla liggur Fjallabaksleiðin eftir árfarvegi. Á stöku stað er reyndar hægt að aka eftir árbakkanum en oftar þó eftir miðri streymandi ánni svo allrar aðgæslu er þörf. Þegar blaðamaður var á þessum slóðum var sumri farið að halla og það gekk á með skúrum. Við slíkar andstæður fær landið nýjan svip. Liturinn á grænum mosanum, sem teygir sig upp eftir hlíðum fella og ása, verður sterkur og skær. Út- koman er eins og ljósmynd unnin í photoshop og jafnvel mætti leggja þetta að jöfnu við málverk eftir Tolla Morthens eða verk eftir Erró: klippimynd í kaosstíl. Fjórir Ferðafélagsskálar Eftir akstur um torfærurnar, um 50 kílómetra leið frá Keldum, er komið að Álftavatni. Í þessu umhverfi eru áberandi Stóra- Grænafell og Illasúla, sem í logn- inu speglaði sig í fallegu heið- arvatninu sem er í dal milli hárra fjalla. Norðan við vatnið standa reisulegar skálabyggingar Ferða- félags Íslands og þangað lá leið gönguhrólfa á Laugaveginum sem við sáum koma fram Jökultungur eftir göngu dagsins úr Land- mannalaugum eða Hrafntinnu- skeri. Laugavegsfarar eru að stærst- um hluta útlendingar, en eftir um- fjöllun til dæmis í National Geog- raphic hefur þessi leið komist á kort heimsvísunnar. Á góðum degi í sumar hafa um 200 manns á dag farið um þessa leið og er þá gist í Ferðafélagsskálunum fjórum sem þarna eru. Frá Álftavatni og fram í Fljótshlíð eru rúmir 40 kílómetr- ar. Jökulbland í blávatni Örstutt er milli Álftavatns- og Hvanngilsskála en algengt er að Laugavegsfólk gisti í öðrum hvor- um þeirra skála og næstu nótt í Emstrum og þrammi svo suður í Þórsmörk. Raunar hefur hver sinn háttinn á: margir ganga Laugaveg- inn á tveimur dögum eða jafnvel hlaupa á einum. Mikilvægt er þá að hafa hindranirnar í huga. Rétt sunnan við Hvanngil þurfa göng- Hekla Rangárbotnum Illasúla Helgafellskvísl Markarfljótsbrú Einheyrningur Laufafell Tindfjallajökull Fljótshlíð Emstruskáli Keldur Fjallabakshringur 1 2 3 4 5  Umhverfis Tindfjöll  Frá Keldum í Fljótshlíð  Málverk í landinu  Ekið í vatninu  Sjóðandi orka en landið í vernd  SJÁ SÍÐU 39 38 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016 Lengri og hlýrri sumur ráða því að Fjallabakssvæðið er orðið miklu grónara en áður. „Ég sé breytingar ár frá ári og þetta er allt annað land en þegar ég fór fyrst að flækj- ast um þessar slóðir, fyrir um fimm- tíu árum,“ segir Haraldur Magn- ússon, verktaki og skólabílstjóri á Hellu. Blaðamaður hitti Harald á sönd- unum norðan við Hattfell á Emstr- um í upphafi fimm daga hesta- ferðar um þessa slóðir. Fyrsta daginn reið vinahópurinn af Ein- hyrningsflötum í Hvanngil, þaðan á Hungurfit norðan Tindfjalla og þar var höfð tveggja nátta viðstaða. Síðasta daginn var svo riðið til vest- urs þvert yfir Hekluhraun að Svín- haga á Rangárvöllum, sem er einn hinna svonefndu Heklubæja. „Þetta er einstök leið og fyrir mér er þetta sumarið sjálft,“ segir Haraldur, sem fer aftur á fjöll eftir nokkra daga. Ætlar þá með fjall- mönnum að smala Rangárvallaaf- rétt; það er svæðið vestan við Eystri- Rangá ofan við Keldur inn að Vatnafjöllum. „Margir staðir þarna innfrá eru mér mjög kærir. Sérstaklega langar mig að tilgreina Hungurfit, þar sem ég á hlut í fjallaskála. Þar er ágæt aðstaða fyrir bæði menn og hross.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hestamaður Haraldur Magnússon og föruneyti hans. Hattfell í baksýn. Hestaferð er sumarið sjálft Í ferðum að Fjallabaki í fimmtíu ár Gott úrval af svefnsófum 2ja og 3ja sæta með eða án tungu. Opið virka daga 10 – 18 laugardaga 11 - 15 Strandgötu 24 – 220 Hafnarfjörður Sími 565 4100 - www.nyform.is Teg. Elsa 3 – 1 – 1 “TÍMALAUS CLASSIC” Teg. Antares 3 – 1 – 1 Teg. Cubo Teg. Como Teg. Pluto
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.