Morgunblaðið - 27.08.2016, Qupperneq 42
42 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Ég hef alltaf haft gaman af því að
taka ljósmyndir og grúska í göml-
um myndum. Það getur verið gam-
an að ferðast aftur í fortíðina,“ seg-
ir Karl G. Smith, sem kominn er á
eftirlaun eftir að hafa starfa í
Seðlabankanum í 56 ár. Karl ólst
upp í Reykjavík en býr nú í Kópa-
vogi.
Hann bjó lengi á Skólavörðuholt-
inu á sínum yngri árum og segist
eiga margar góðar og skemmti-
legar minningar frá uppvextinum
þar. Árið 1969 fékk hann góða
myndavél og hélt þá áfram að taka
fjölda mynda af mannlífinu og hús-
um borgarinnar. Eftir að hann
hætti störfum í bankanum hefur
meiri tími gefist til að skoða
myndasafnið og rifja upp eldri tíð.
Segist Karl hafa gert töluvert af því
að setja gamlar myndir m.a. inn á
ljósmyndavef á Facebook, og þær
hafi vakið talsverða athygli. Þá hef-
ur hann einnig teiknað eftir göml-
um ljósmyndum.
Stundum tekur hann upp gamla
ljósmynd úr safninu og fer með
hana á vettvang
til að ná nýrri
mynd frá sama
sjónarhorni, 40-
50 árum síðar.
Þetta hefur hann
m.a. gert á
Frakkastíg og
Hverfisgötu en
götumyndin þar
hefur tekið mikl-
um breytingum á
undanförnum árum.
„Ég sakna gamla tímans en borg-
in þróast og það er ekki alltaf hægt
að standa í vegi fyrir breytingum,“
segir Karl en viðurkennir að turn-
arnir við Skúlagötu séu ekki fal-
legir. Þeir skerði að auki útsýnið af
Skólavörðuholtinu út á sundin blá.
„Þetta eru sviplaus glerhýsi hlið
við hlið. Eitthvað varð þó að gera
við svæðið. Götumyndin var ekki
falleg áður, þarna blöstu við kofar
og braggar á Sláturfélagsreitnum.
Kannski er þetta bara eðlileg þró-
un,“ segir hann um breytingarnar á
Skúlagötu.
Karl er jákvæðari gagnvart
breytingum á Hverfisgötunni, þær
hafi verið til mikilla bóta.
Ljósmyndir/Karl G. Smith
Frakkastígur 1971 Karl tók þessa mynd ofarlega á Frakkastígnum. Konan á gangstígnum vinstra megin er amma
Karls, Soffía Sigurðardóttir, sem bjó í 62 ár á Skólavörðustígnum, á leið í bæinn með poka í hvorri hendi.
Hverfisgata 2014 Fyrir tveimur árum, þegar búið var að rífa nokkur hús við Hverfisgötu, var
götumyndin svona frá danska sendiráðinu áður en nýtt hótel tók að rísa hröðum skrefum.
Frakkastígur 2016 Svona er útsýnið niður Frakkastíginn í dag, þar sem
umdeildur turn við Skúlagötu blasir við og skyggir á sýnina á sundin blá.
Hverfisgata 2016 Canopy Hilton hótelið risið á Hljómalindarreitnum, milli Hverfisgötu og
Laugavegar. Karl var þarna á ferð í sumar þegar gatnaframkvæmdir stóðu hvað hæst.
Fangar breytta
borgarmynd
Götumynd og útsýni hefur breyst
töluvert á Hverfisgötu og Frakkastíg
Karl G.
Smith
www.fr.is
FRÍTT VERÐMAT
ENGAR SKULDBINDINGAR
HRINGDU NÚNA
820 8081
sylvia@fr.is
Sylvía G. Walthersdóttir
Löggiltur fasteignasali
Salvör Davíðsdóttir
Nemi til lögg.fasteignasala
Brynjólfur Þorkellsson
Sölufulltrúi
Sjöfn Ólafsdóttir
Skrifstofa