Morgunblaðið - 27.08.2016, Síða 48
48 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016
Sjóðfélagafundur
um sameiningarmál
Stafir lífeyrissjóður boðar til sjóðfélagafundar, til þess að kynna
fyrirhugaða sameiningu við Sameinaða lífeyrissjóðinn,
þriðjudaginn 30. ágúst 2016 kl. 17 á GrandHóteli Reykjavík.
Allir sjóðfélagar velkomnir!
Stjórn Stafa lífeyrissjóðs
Nýr framkvæmdastjóri forsetafram-
boðs Donalds Trump, forsetaefnis
Repúblikanaflokksins, er skráður á
kjörskrá í Flórída þrátt fyrir að hann
búi ekki þar. Virðist sem um brot á
kosningalögum sé að ræða.
Stephen Bannon, sem var ráðinn
framkvæmdastjóri framboðs
Trumps í síðustu viku, hefur skráð
lögheimilið sitt í hús í Flórída sem
hefur lengi staðið autt, hafa rann-
sóknir The Guardian leitt í ljós. Sam-
kvæmt kosningalögum Flórída þurfa
þeir sem skrá sig á kjörskrá þar að
vera búsettir í ríkinu og gæti það
varðað allt að fimm ára fangelsisvist
að gefa upp rangar upplýsingar til
kjörskrár.
The Guardian hefur eftir heimild-
armönnum sínum að húsið hafi stað-
ið autt síðan fyrrverandi eiginkona
Bannons flutti þaðan út fyrr á árinu.
Þau hafa verið
skilin í sjö ár.
Heimildir blaðs-
ins herma einnig
að Bannon hafi
aldrei búið í hús-
inu. Flórída verð-
ur líklega lykilríki
og gæti ráðið
miklu í baráttu
Trump við
Hillary Clinton
um forsetaembættið.
Í kosningabaráttu sinni hefur
Trump haldið því fram að víðtæk
kosningasvik eigi sér stað hjá minni-
hlutahópum og á svæðum þar sem
Demókrataflokkurinn hefur meira
fylgi. Trump hefur áður ýjað að því
að kosningasvik demókrata gætu
jafnvel komið í veg fyrir að hann hafi
sigur úr kosningunum.
Mögulegt brot á
kosningalögum
Donald
Trump
Banni gegn búrkíní-sundfatnaði sem sett var á í
bænum Villeneuve-Loubet í Frakklandi var vikið
til hliðar af æðsta stjórnsýsludómstóli Frakk-
lands. Í röksemdum dómstólsins segir að bannið
sé alvarlegt og brjóti bersýnilega gegn grund-
vallarréttindum, svo sem trúfrelsi. Stjórnvöld
hafa ekki leyfi til að skerða frelsi einstaklingins
án þess að sanna að almannahagsmunir krefjist
þess.
Líklegt er að öll búrkíníbönn í bæjarfélögum
Frakklands verði afturkölluð, en dómstóllinn
mun taka endanlega ákvörðun um lögmæti
bannsins síðar. Þó hafa margir bæjarstjórar í
Frakklandi lýst því yfir að bannið muni standa
þrátt fyrir niðurstöðu dómsins í gær.
Fólk sem hefur verið sektað vegna reglunnar
getur kallað eftir endurgreiðslu að sögn lög-
fræðings fyrir utan réttarsalinn.
AFP
Bannað Búrkíní-sundfatnaðurinn var bannaður í ýmsum frönskum bæjum, meðal annars Villeneuve-Loubet. Æðsti stjórnsýsludómstóll Frakklands vísaði
banni bæjarins hins vegar frá í gær. Niðurstaðan kann að setja fordæmi fyrir aðra bæi Frakklands sem hafa lagt bann við búrkíní.
Búrkíníbannið afturkallað í Frakklandi
Jóhannes Tómasson
johannes@mbl.is
Þúsundir uppreisnarmanna og
óbreyttra borgara yfirgáfu sýr-
lenska bæinn Daraya eftir fjögurra
ára umsátur sýrlenska hersins.
Samningar náðust á milli ríkis-
stjórnar Bashar al-Assads forseta og
andspyrnuhreyfingarinnar í bænum.
Daraya er nálægt höfuðborginni Da-
mascus og var meðal fyrstu bæja
sem gerðu uppreisn gegn stjórn As-
sads.
„Þetta er erfiðasti tíminn, allir
gráta, ungir sem aldnir,“ sagði einn
uppreisnarmannanna við AFP, en
íbúar Daraya kveðja vini sína og
heimili. „Mæður eru að kveðja písl-
arvottana í gröfum sínum.“
Tilkynnt var um rýmingu bæjar-
ins síðastliðinn fimmtudag á SANA,
ríkisfréttastofnun Sýrlands. Í til-
kynningunni sagði að sjö hundruð
vopnaðir menn myndu yfirgefa
Daraya með vopnin sín og halda til
borgarinnar Idlib, sem lýtur stjórn
andspyrnuhreyfingarinnar. Upp-
reisnarmönnunum var gerð sú-
skylda að láta annan vopnabúnað í
hendur sýrlenska hersins. Einnig
verða 4.000 óbreyttir borgarar að yf-
irgefa bæinn og verða sendir til Da-
mascus.
Bærinn lagður í rúst
Ákveðið var að rýma bæinn sökum
versnandi aðstæðna. „Það er ekki
lengur hægt að búa í bænum, hann
hefur verið lagður í rúst,“ sagði áð-
urnefndi uppreisnarmaðurinn.
Daraya hefur verið sem birting-
artákn uppreisnarinnar sem hófst í
formi saklausra mótmæla gegn
stjórn Assads og varð að stríði sem
hefur kostað yfir 290 þúsund manns
lífið.
Sýrlenska ríkisstjórnin hefur
margsinnis þvingað uppreisnarmenn
til þess að gera brottflutningssam-
komulag eftir löng umsátur.
Tyrkir flækja málin
Innrás tyrkneska hersins í Norð-
ur-Sýrland í því skyni að berjast
gegn Ríki íslams og Kúrdum hefur
flækt deilurnar enn frekar.
Binali Yidirim, forsætisráðherra
Tyrklands, þvertekur fyrir ásakanir
um að heraðgerðir Tyrklands í Sýr-
landi snúist gegn Kúrdum frekar en-
Ríki íslams. „Þeir sem segja þetta
vita annaðhvort ekkert um heiminn,
eða það er vinna þeirra að segja
lygasögur.“
Yfirgefa Daraya eftir fjög-
urra ára umsátur hersins
Samkomulag milli ríkisstjórnar Sýrlands og andspyrnuhreyfingarinnar
AFP
Flutningar Íbúar fluttir úr Daraya.
Dómari í Suður-
Afríku hafnaði
áfrýjun saksókn-
ara á dómi yfir
hlauparanum
Oscar Pistorius.
Ákæruvaldið
taldi refsinguna
of væga, en Pist-
orius afplánar nú
sex ára dóm fyrir að hafa myrt
kærustu sína, Reevu Steenkamp, á
heimili þeirra.
Enn getur saksóknari áfrýjað til
æðsta áfrýjunardómstóls landsins
til að fara fram á þyngri refsingu.
Refsing Pistorius var ákveðin í júlí.
Var meðal annars litið til þess að
Pistorius segist hafa talið sig verið
að skjóta innbrotsþjóf við ákvörðun
refsingarinnar. Hámarksrefsingin
sem hann hefði hlotið var fimmtán
ára fangelsi.
SUÐUR-AFRÍKA
Áfrýjun á refsingu
Pistorius hafnað
Maður í Toronto
er í gæsluvarð-
haldi eftir lásbo-
gaárás sem varð
þremur að bana.
Lögreglumenn
fóru á vettvang
eftir að tilkynn-
ing barst um
stunguárás.
Tvær manneskjur voru þegar látn-
ar og lá sú þriðja særð. Lést hann
síðar af sárum sínum. Fórnarlömb-
in voru tveir karlmenn og ein
kona.
Kom í ljós að fórnarlömbin hlutu
ekki sár sín af stungum, heldur
lásbogaörvum og lá lásbogi
skammt frá. Að sögn lögreglufull-
trúa er ásetningurinn enn óljós.
KANADA
3 látin eftir lásbo-
gaárás í Toronto
Rodolfo Illanes,
aðstoðarmaður
innanríkisráð-
herra Bólivíu,
var barinn til
bana af námu-
mönnum í verk-
falli í fyrradag.
Illanes var
rænt ásamt líf-
verði sínum við vegartálma í fyrra-
dag.
Námumennirnir voru tilbúnir að
sleppa Illanes ef samið yrði um ný
lög sem gæfu þeim m.a. rétt til að
vinna fyrir einkafyrirtæki. Samn-
ingaviðræður mistókust og var Illa-
nes barinn til bana.
BÓLIVÍA
Barinn til bana af
námumönnum