Morgunblaðið - 27.08.2016, Side 51

Morgunblaðið - 27.08.2016, Side 51
51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016 Tignarlegur tindur Öræfajökull er flottur á að líta úr lofti með tilkomumiklum sprungum. Hvannadalshnjúkur, hæsti tindur hér á landi, 2.110 metra hár, skagar tignarlega upp í loftið. RAX Oft á tíðum er erfitt að átta sig á því hvert af kornunum það er sem endanlega fyllir mælinn, þau eru þarna, taka pláss hvert fyrir sig og leggja þannig öll að mörkum til þess að meira komist ekki fyr- ir. Ég er hins vegar ekki í nokkrum vafa um hvað það var sem gerði það að verkum að nú finnst mér mælirinn fullur og nóg komið af Bjarna Bene- diktssyni og legg hér með til að honum verði fundið hlutverk utan stjórnmála þar sem orðheldni skipt- ir ekki máli eða litið er á skort á henni sem mannkost. Þetta byrjaði með undirskrifta- söfnun til stuðnings heilbrigðiskerf- inu. Fyrstu viðbrögð Bjarna við henni voru að segja að krafan um 11% af vergri landsframleiðslu til heilbrigðismála væri óraunhæf vegna þess að hún kallaði á um fjörutíu milljarða króna viðbót. Þeg- ar ljóst varð að söfnunin gengi þokkalega og yrði líklega sú stærsta í sögu þjóðarinnar fór afstaða Bjarna, sem og annarra stjórnmála- leiðtoga til söfnunarinnar, að mild- ast. Bjarni fór meira að segja að setja hana í samhengi við það þegar íhaldsmenn í Bretlandi gerðu skoð- anakönnun sem sýndi þeim fram á að fólkið í landinu vildi ekki að skattar yrðu lækkaðir heldur að hlúð yrði að innviðum samfélagsins. Með því að virða þann vilja fólksins unnu þeir mikla kosningasigra. Bjarni fór í viðtöl við Morgunblaðið og í Sprengisand og sagði að hann liti svo á að hlutverk ríkisins væri að hlúa að þeim sem minna mættu sín og hann myndi sjá til þess að velferðarkerfið, og þá sérstaklega heilbrigðiskerfið, hlyti stærri sneið af ríkiskökunni. Ég átti nokkur samtöl við Bjarna þar sem hann tók undir þá skoðun að mikilvægt væri að minnka greiðsluþátttöku sjúk- linga í kostnaði við heilbrigðisþjón- ustu og auka yrði fjárframlög til heilbrigðiskerfisins til muna. Ég er ekki í nokkrum minnsta vafa um að Bjarni meinti hvert orð af því sem hann sagði við mig. Hann er skýr, hann kemur vel fyrir, er með góða nærveru og er skemmtilegur og hann vill hlut lítilmagnans í íslensku samfélagi meiri en hann er í dag. Hausinn er í lagi en hjartað í honum er hins vegar illa haldið af meinsemd af þeirri gerð sem verður hvorki meðhöndluð á Landspítalanum né á einkareknu sjúkrahúsi, sem verður örugglega ekki starfrækt í Mosfellsbæ eða annars staðar á Íslandi. Það er nefnilega ginnungagap milli þess sem höfuðið segir honum að sé rétt og þess sem hjartað knýr hann til þess að gera. Á fimmtudaginn í síðustu viku var samþykkt þingsályktunartilaga, sem Bjarni lagði fram til stuðnings við fimm ára áætlun um ríkisfjár- mál. Sú áætlun gengur þvert á yf- irlýstan vilja hans til þess að hlúa að þeim sem minna mega sín, styrkja velferðarkerfið og þá sér- staklega að bæta heilbrigðiskerfið. Þegar Bjarni var gagnrýndur fyrir þetta svaraði hann því til að menn ættu ekki að hafa áhyggjur af áætl- uninni, það mætti alltaf breyta henni eftir kosningar. Þetta svar má túlka á að minnsta kosti tvo máta, annars vegar að Bjarni líti svo á að þann stuðning við velferð- arkerfið, sem hann treysti sér ekki til að leggja til undir þrýstingi fyrir kosningar, muni hann leggja til eftir kosningar, þegar þrýstingurinn sé ekki lengur til staðar. Mér finnst ekki líklegt að hann trúi þessu sjálf- ur. Hin túlkunin er mun líklegri í ljósi þess að Bjarni treysti sér ekki til að standa við orð sín um stuðn- ing við velferðarkerfið og er sú að hann reikni með því að eftir kosn- ingar muni aðrir en hann fara með ríkisfjármálin og hljóti að breyta fimm ára áætluninni í samræmi við sín hjartans mál. Það er búið að bögglast töluvert fyrir brjóstinu á mér að finna skýr- ingu á því hvers vegna fimm ára áætlun ríkisfjármála hunsar al- gjörlega þá skoðun Bjarna að við eigum að hlúa betur að velferðar- kerfinu og endurreisa heilbrigðis- kerfið. Þetta eru skoðanir sem ég veit að hann aðhyllist af heilum hug. Það sem meira er, hann gerir sér fyllilega grein fyrir því að þokkaleg útkoma fyrir flokk hans í kosning- unum í haust er háð því að fólkið í landinu trúi því að ríkisstjórn með þátttöku hans yki stuðning við vel- ferðarkerfið. Þegar ég var kominn í þrot í leit minni að skýringu mundi ég allt í einu eftir sögunni af sporð- drekanum og froskinum: Það var einu sinni sporðdreki sem kom að á og vildi komast yfir en sporðdrekar kunna hvorki að synda né fljúga. Hann vék sér því að froski, sem sat á árbakkanum, og bað hann að ferja sig yfir. Froskurinn sagðist myndu gera það ef hann lofaði að stinga hann ekki. Sporðdrekinn féllst á það en engu að síður stakk hann froskinn þegar þeir voru í miðri ánni. „Hvernig stendur á því að þú ger- ir þetta?“ spurði froskurinn. „Nú drukknum við báðir.“ „Af því að það er í samræmi við eðli mitt,“ svaraði sporðdrekinn. Það er bara þannig að það er ekki í samræmi við eðli Bjarna sem for- manns Sjálfstæðisflokksins að hlúa að velferðarkerfinu, án tillits til skoðana hans og yfirlýsts vilja. Silf- ur er þungur málmur og þungir málmar eru hættulegir heilanum og heilinn er það líffæri þar sem eðli manna verður til. Þegar menn til- heyra fjölskyldu þar sem börn hafa fæðst með silfurskeið í munni í tvær kynslóðir er hætta á því að þeim sé eðlilegara að vera kóngulóin sem situr í miðjum vefnum sem tengir saman viðskipti og stjórnmál en að hlúa að almúganum í landinu. Eðlið er nefnilega oftast viljanum yfir- sterkara. Þess vegna hljótum við að koma Bjarna út af þingi við kosn- ingarnar í haust og með því bjarga honum frá þeim sársauka sem hlýst af árekstri vilja og eðlis en fyrst og fremst kæmum við þannig í veg fyr- ir að stjórn landsins lendi aftur í höndunum á mönnum sem er ekk- ert að marka. Eftir Kára Stefánsson »Ég er ekki í nokkr- um minnsta vafa um að Bjarni meinti hvert orð af því sem hann sagði við mig. Kári Stefánsson Höfundur er forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Ekki að marka eitt einasta orð Hugði ég kynslóð eitt sinn alið geta íslenska þjóð, sem kynni gott að meta og hefði til þess hug að þrá og fagna hrynjandi sinnar tungu, óðs og sagna. (Úr ljóðinu Árni Magnússon eftir Davíð Stefánsson.) Vestur á Melum hafa landsmenn á síðustu árum mátt horfa ofan í gríð- arlegan húsgrunn, sem verið hefur áminning um hvort tveggja í senn efna- hagshrunið hér á landi og forgangsröð- unina í kjölfar þess. Úr þessum grunni mun rísa Hús íslenskunnar, í námunda við Þjóðarbókhlöðu, Þjóðminjasafn og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur. Í Húsi íslenskunnar verður heimahöfn þeirra fræðimanna sem gleggst rann- saka móðurmál okkar og allan þann arf sem fólginn er í fornum ritum. Starf- semi Stofnunar Árna Magnússonar í ís- lenskum fræðum er nú dreifð um borg- ina og víðast í óhentugu húsnæði en í húsinu nýja munu handritin loks eign- ast samastað við hæfi, í húsi sem verð- ur sérhannað til að varðveita og sýna þær gersemar allar. Handritasafn Árna Magnússonar er á varðveisluskrá UNESCO yfir Minni heimsins, enda er litið á handritin sem sameiginlegan arf mannkyns. Því fylgir mikil ábyrgð að varðveita slíkt fágæti, og gera reglulega til góða eins og forn- gripir þarfnast. En jafnframt ber að gera handritin sýnileg almenningi, jafnt heimamönnum sem þeim fjölda erlendra ferðamanna er sækir okkur heim ár hvert. Rannsóknir sýna ein- mitt að menning okkar, forn og ný, er eitt það helsta sem hingað dregur ferðalanga. Það er enginn efi í huga okkar sem þetta ritum að vegleg og nú- tímaleg handritasýning í Húsi íslensk- unnar verður segull sem mun laða fjölda fólks í húsið, á öllum árstímum. Af þeim sökum er það ekki nauðsynin ein sem hvetur til þess að húsið sé full- gert sem fyrst, heldur er það af- skaplega skynsamleg fjárfesting sem styrkir innviði ferðamennskunnar og skilar sér vafalítið fljótt aftur í ríkis- kassann. Við það bætist síðan full- nægjan og stoltið yfir því að geta loks- ins deilt handritaarfinum á sæmandi hátt með umheiminum. Það gladdi velunnara Árnastofn- unar mikið þegar ríkisstjórnarflokk- arnir opinberuðu fjármálaáætlun sína til næstu ára og í ljós kom að gert var ráð fyrir því að hið langþráða Hús ís- lenskunnar yrði reist á fremur skömmum tíma. Við vitum hins vegar vel að áætlanir einstakra stjórnmála- flokka geta auðveldlega raskast í takt við breytingar í hinu pólitíska lands- lagi. Nú eru alþingiskosningar fram- undan í haust og enginn veit hverjir skipa munu næstu ríkisstjórn. Af þeim sökum langar okkur að beina þeirri ósk til allra stjórnmálaafla að þau hefji Hús íslenskunnar yfir dægurþras stjórnmálanna og sameinist um það þvert á flokka að reisa húsið á Mel- unum úr gryfjunni eins hratt og auðið er og búa það þannig úr garði að starf- semi stofnunarinnar geti dafnað og að handritin okkar eignist þar þá heim- ilisfestu sem þeim hæfir. Fólk mun fjölmenna á staðinn til að líta á og sækja þrótt í þær ómetanlegu gersem- ar sem okkur Íslendingum hefur verið falið að gæta og vinna með, þannig að heimurinn allur fái notið þeirra með okkur. Eftir Sigurð Svavarsson og Þórarin Eldjárn »Rannsóknir sýna einmitt að menning okkar, forn og ný, er eitt það helsta sem hingað dregur ferðalanga. Sigurður Svavarsson Höfundar sitja í stjórn Vina Árnastofnunar. Hús íslenskunnar – heimili handritanna Þórarinn Eldjárn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.