Morgunblaðið - 27.08.2016, Side 64
64 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016
✝ Anny IreneÞorvaldsson
fæddist í Fredriks-
havn í Danmörku 6.
ágúst 1934. Hún
lést á heimili sínu í
Kaupmannahöfn
27. júlí 2016.
Foreldrar henn-
ar voru Christian
Christensen og Sør-
ine Louise Christ-
ensen. Þau eru bæði
látin. Börn þeirra voru 12 og eru
tvö enn á lífi, þau Jonna og Ole.
Anny giftist Vilhjálmi Þor-
valdssyni, f. 5. júní 1932, d. 28.
Ramo Tas, f. 6. maí 1955. 4) Lár-
us, f. 11. október 1960, eiginkona
hans er Vigdís Helgadóttir, f. 18.
júlí 1962, eiga þau fjögur börn og
tíu barnabörn. 5) Sørine Louise,
f. 27. maí 1975, eiginmaður
hennar er Þorgeir Snorrason, f.
13 janúar 1975, og eiga þau þrjú
börn.
Anny flutti ung til Stykkis-
hólms og bjó þar með manni sín-
um Vilhjálmi þar til hann dó.
Hún vann mikið og hélt áfram að
byggja hús þeirra á Laufásvegi 4
sem þau voru byrjuð á og kláraði
hún það eftir að Villi féll frá.
Anny var mikil fjölskyldukona
og hélt oft miklar veislur, síðast
70 manna veislu viku áður en
hún dó.
Útför Annyjar fer fram frá
Stykkishólmskirkju í dag, 27.
ágúst 2016, og hefst athöfnin
klukkan 14.
júní 1976. Eign-
uðust þau fimm
börn, þau eru: 1)
Pála Anna Lisa, f.
19. janúar 1956, eig-
inmaður hennar er
Hilmar Sveinsson, f.
4. júlí 1955, og eiga
þau einn son. 2)
Hildur Kristin, f. 25.
maí 1957, á hún tvö
börn úr fyrra hjóna-
bandi og þrjú
barnabörn, eiginmaður hennar
er Bjarne Kaare Larsen, f. 17.
maí 1961. 3) Bylgja Ýr, f. 14. jan-
úar 1959, eiginmaður hennar er
Elsku mamma mín, núna ertu
farin frá okkur. Ég er viss um að
margir hafa beðið þín, pabbi okk-
ar, systkini þín og fullt af vinum
og ættingjum.
Ætli þau hafi ekki tekið á móti
þér með gleði og veislu. Þú varst
allavega alltaf viss um að þau
væru að bíða eftir þér og þess
vegna varst þú aldrei hrædd.
Eftir stöndum við hér og
söknuðurinn er mikill, að hafa
þig ekki hjá okkur ennþá.
Þú hefur alltaf verið fyrir-
mynd mín. Þú hefur sýnt mér
réttu leiðina í lífinu og ég er svo
þakklát fyrir það.
Ef ég ætti að lýsa þér myndi
ég segja: hreinskilin, falleg,
smart, kvenleg, elskuleg, hress,
sportleg, hjálpsöm, sterk. List-
inn er langur og ég gæti haldið
endalaust áfram. Þú varst alveg
spes, og ég þekki engan sem
fannst þú ekki vera einstök kona,
og ég var svo heppin að eiga þig
sem móður.
Þrátt fyrir að þú hafir verið
mjög veik varstu svo sterk, þú
treystir á sjálfa þig og þær
ákvarðanir sem þú tókst í lífinu,
og þú gerðir það með kærleika.
Þú valdir að njóta lífsins lifandi.
Við fórum til Austurríkis, en
þangað hafði þig lengi langað að
fara.
Þar var sungið, dansað við So-
und of Music og hlegið mikið.
Þessi ferð er ógleymanleg.
Þetta sumar hefur verið mikil
sorg í hjarta okkar, því við viss-
um að við værum að fara að
missa þig, en það voru líka marg-
ar skemmtilegar og yndislegar
stundir, sem við getum minnst í
dag. Stundir sem koma ekki aft-
ur en ég mun geyma í hjarta
mínu og ég er svo þakklát fyrir
hverja einustu stund sem ég hef
átt með þér.
Nóttin sem þú fórst frá okkur
var ein sorglegasta stund í lífi
mínu, en líka ein sú fallegasta,
því á sama augnabliki og þú
fékkst englavængina þína, reis
sólin upp á himni og lýsti á okkur
öll og við vissum að núna hefðir
þú fengið frið.
Núna ertu orðin stjarna á næt-
urhimni okkar, sú fallegasta af
þeim öllum. Ég mun elska þig að
eilífu og mun aldrei gleyma þér.
Farðu vel með þig, þar til við
hittumst á ný.
Ástarkveðja, þín dóttir
Sørine.
Elsku amma.
Mikið rosalega sakna ég þín
mikið og finnst mér erfitt að
hugsa til þess að þú sért farin frá
okkur. Það var mjög erfitt að
heyra um veikindin þín um
páskana og það var mjög erfitt að
vera svona langt frá þér seinustu
dagana. En ég er endalaust
ánægð með að hafa komið til Kö-
ben í janúar í afmælið hennar
Pálu og þar áttum við margar
góðar stundir eins og alltaf þegar
við hittumst, ég á vídeó af þér að
dansa og þá varst þú svo hress og
ekki grunaði mann að eftir
nokkra mánuði yrðir þú farin frá
okkur. Ég á eftir að horfa á þetta
vídeó og hugsa til þín og hlæja
því það myndir þú vilja. Það var
rosalega erfitt að koma til þín í
júní og vita að þetta yrði síðasta
skiptið sem við myndum hittast
og ég er endalaust þakklát fyrir
þær stundir. Það var alltaf gam-
an að koma í heimsókn til þín í
Köben og tala nú ekki um góðu
kringlurnar og bollurnar sem þú
bakaðir. Það var mjög skrítið að
koma í íbúðina þína í júlí og engin
amma að taka á móti manni, það
var erfitt. En ég er svo þakklát
og ánægð með allar stundirnar
sem við áttum saman og fyrir all-
ar prjónapeysurnar sem þú hefur
gefið strákunum mínum og mun
ég geyma þær eins og gull og það
verður skrítið að fá engar peysur
frá Anný ömmu og geta ekki þef-
að af þeim því alltaf var svo góð
lyktin af þeim.
Elsku amma, ég get skrifað
endalaust en ætla að láta þetta
nægja og þakka þér fyrir allt og
veit að þú ert komin á betri stað.
Ég mun alltaf hugsa til þín og á
ég eftir að segja strákunum mín-
um sögur af þér dansandi uppi á
borðum og hvað þú varst alltaf
hress, mikið partídýr, yndisleg
og besta amma í heimi.
Ég er ánægð að hafa fengið að
vera nafna þín. Þín nafna,
Anný María og fjölskylda.
Í dag kveðjum við frá Stykk-
ishólmskirkju Anny Irena Þor-
valdsson, eða Anný hans Villa,
eins og hún var ávallt kölluð.
Anný andaðist 6. ágúst síðastlið-
inn eftir nokkurra vikna snörp
veikindi, baráttu við krabbamein
sem að lokum hafði yfirhöndina.
Vilhjálmur Þorvaldsson móð-
urbróðir okkar kynntist eigin-
konu sinni 1954, þegar hann
ásamt fleiri Hólmurum sótti tvo
báta til Danmerkur, fyrir frysti-
hús Sigurðar Ágústssonar.
Þarna féll hamingjan Villa í
skaut, Anný kom óhrædd til Ís-
lands með fiskibátnum. Elsku-
legi frændi okkar, hann Villi kom
með unnustu sína Anný til systur
sinnar Sæmu og þar voru þau um
tíma uns þau fengu leigt herbergi
í Hólminum.
Ég þá annað barn foreldra
minna, var heilluð af kátum og
glaðlegum bræðrum mömmu
þeim Jenna og Villa og þeir voru
daglegir gestir hjá Sæmu systur
sinni og Palla mági.
Hvað krakkinn var endalaust
hrifinn af þessum frændum sín-
um, ekki var það verra þegar
þeir bræður fundu sín konuefni,
Hrefnu og Anný.
Nú var skokkað á milli heim-
ila, þar sem bræðurnir bjuggu,
danska lærð alveg þokkalega og
fylgst með fjölskyldum þeirra.
Börn þeirra fæddust fimm hjá
öðrum, en sex hjá hinum, nóg að
gera alls staðar.
Hjá Anný og Villa stóð ham-
ingjan í aðeins í 22 ár, þá höfðu
þau bæði búið hér heima og í
Danmörku.
Árið 1976 féll Villi frændi
snögglega frá. Þá varð ekkjan
Anný að standa sig, sem hún
gerði svo sannarlega. Börnum
sínum kom hún til manns, dætr-
unum fjórum og einkasyni
þeirra. Öll mannvænleg börn
sem öll hafa staðið sig afburðavel
í lífinu og fjölgað ættinni, hér á
landi og líka í Danmörku.
Anný sýndi okkur ættingjum
sínum hér heim, einstaka elsku
og alúð þegar hún að lokum sett-
ist að í föðurlandi sínu ásamt
dætrunum fjórum, þá urðu ferðir
okkar tíðari til Danmerkur. En
sonur þeirra býr á Íslandi, landi
sem Anný elskaði.
Hún var ávallt trú og trygg
landinu sem hún tengdist svo
sterkum böndum. Á 75 ára og 80
ára afmælum Annýjar, fögnuðum
við með henni og stórfjölskyldu
hennar, í veislum sem við aldrei
munum gleyma.
Að leiðarlokum og á kveðju-
stundu, þökkum við okkar kæru
Anný vináttu, elsku og tryggð,
sem hún sýndi íslensku fjölskyld-
unni sinni. Vonum að við höfum
sýnt þér kærleika til baka, sem
þú áttir svo sannarlega skilið.
Börnum þínum vottum við
innilega samúð, vitum að þau
sýndu þér elsku og ást til hinstu
stundar.
Hvíl í friði, okkar kæra, hjá
ástvini þínum honum Villa.
Sesselja Pálsdóttir
og fjölskylda.
Það streyma fram margar
minningar nú þegar við kveðjum
elsku Anný, og ég er víst ekki ein
um það, svo margir hafa notið
gestrisni hennar og góðmennsku
í kóngsins Kaupmannahöfn. Allt-
af stóðu dyrnar opnar hjá Anný
fyrir Íslendinga og alla ættingja.
Anný fylgdi unnusta sínum yf-
ir hafið árið 1954 á litlum fiskibát
til Íslands aðeins tuttugu ára
gömul. Ég var þá tólf ára og mér
fannst þetta vera fallegt ástar-
ævintýri, og hún ótrúlega dugleg
að yfirgefa allt sitt fólk – já fyrir
ástina.
Eftir að eiginmaðurinn, Vil-
hjálmur Þorvaldsson, móður-
bróður minn, lést um aldur fram
lá leiðin aftur til Danmerkur en
Anný tók ástfóstri við Ísland og
hér vildi hún hafa sína hinstu
hvílu við hliðina á Villa sínum.
Stundin hér í dag í Stykkis-
hólmskirkju innsiglar tryggð An-
nýjar. Fjölskyldan var henni allt.
Ég votta ykkur samúð, kæra
frændfólk, og bið ykkur um að
halda vel utan um hvert annað
eins og Anný gerði. Blessuð sé
minning um góða og trygga
konu.
Þórhildur Pálsdóttir,
Stykkishólmi.
Anny Irene
Þorvaldsson
HINSTA KVEÐJA
Elsku besta amma í
heimi, þú varst alltaf til
staðar fyrir okkur á hverj-
um degi. Við elskum þig, og
söknum þín á hverjum degi,
þú komst alltaf í heimsókn,
og núna er svo skrítið að þú
ert ekki lengur hér. Þú
varst frábær amma og gull-
falleg kona, við munum allt-
af muna eftir þér og í hvert
skipti við horfum upp til
himna, munum við hugsa til
þín. Þú ert best. Anny
amma, hvíldu í friði engill.
Snorri Jónas, Frida Liv
og Lykke Björg.
Elsku afi minn
var góður maður.
Ég á óteljandi
góðar minningar um hann sem
ég varðveiti vel í hjarta mínu.
Afi gat hlustað, hann var ró-
legur og brosmildur og var allt-
af til í að keyra mig út um allt
eða hjálpa mér ef mig vantaði
eitthvað.
Maður lét sig alveg hafa það
að sitja í bíl með afa á 40 kíló-
metra hraða á Kringlumýrar-
brautinni, það var fljótlegra en
að taka strætó.
Afi sagði okkur líka sögur,
og er ein sérstaklega eftir-
minnileg sem hann sagði okkur
Styrkári, en hún var um það
hvernig hann fékk skalla. Í
stuttu máli sagt féll járnfata
beint ofan á hausinn á honum
þegar hann var úti á sjó og
fékk hann skalla eftir botninn á
fötunni.
Þessi skalli geymir óteljandi
kossa frá mér, en ég kyssti allt-
af á honum skallann.
Hann raulaði mikið og
hummaði lög, líka þegar hann
reykti pípuna sína. Ég sé hann
fyrir mér þjappa tóbakinu ofan
í pípuna með silfurlitaða kveikj-
aranum sínum.
Mér fannst alltaf jafn skrítið
Magnús Þorbergur
Jóhannsson
✝ Magnús Þor-bergur Jó-
hannsson fæddist 4.
september 1926.
Hann lést 17. ágúst
2016.
Útför Magnúsar
fór fram 26. ágúst
2016.
að hann skyldi ekki
brenna sig.
Afi var mikið hjá
okkur og við mikið
hjá honum. Hann
hafði ótrúlega þol-
inmæði gagnvart
okkur og hefur
tvisvar á allri
minni ævi hálf-
skammað mig. Í
annað skiptið setti
ég álpappír í ör-
bylgjuofninn og kveikti næstum
því í eldhúsinu heima í Höfða-
götu. Viðbrögðin hjá afa voru
snögg, honum brá, skammaði
mig pínu og tók svo utan um
mig. Í hitt skiptið ákvað ég að
þrífa allt heima hjá honum, þá
um 10 ára, ég endaði þrifin á að
þrífa pípuna hans vel og vand-
lega. Afi var ekki sérstaklega
glaður með þau þrif en bað mig
afsökunar á því að hafa hvæst á
mig um leið og hann var búinn
að því og sagði mér hvað ég
væri rosalega dugleg – bara að-
eins of dugleg í þetta skiptið.
Hann gat ekki horft á mig
leiða.
Ég er ótrúlega þakklát fyrir
að hafa fengið öll þessi ár með
afa. Ég þakka fyrir að hann
hafi fengið að hitta öll börnin
mín og að þau hafi fengið að
hitta hann.
Núna er afi kominn á betri
stað. Það er sárt að kveðja en
það hlýjar mér í hjartanu að
hugsa um að núna sé hann
kominn til ömmu.
Hvíldu í friði, elsku afi minn.
Þín
Katrín Magnea.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
BRYNDÍS DÓRA ÞORLEIFSDÓTTIR,
Mánatúni 2, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju
mánudaginn 29. ágúst klukkan 15.
Starfsfólki Sóltúns er þökkuð góð umönnun. Þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Líknarsjóð Oddfellowreglunnar.
.
Jón Þór Jóhannsson,
Þorleifur Þór Jónsson, Þórdís H. Pálsdóttir,
Stefanía Gyða Jónsdóttir, Benjamín Axel Árnason,
Jóhann Þór Jónsson, Þórunn Marinósdóttir,
Bergrún Svava Jónsdóttir, Ragnar Baldursson
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar,
ÁRNI SIGURJÓNSSON,
Vík í Mýrdal,
lést mánudaginn 22. ágúst á heimili sínu að
Hjallatúni í Vík.
Hann verður jarðsunginn frá Víkurkirkju
3. september klukkan 14. Blóm og kransar eru vinsamlegast
afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvinasjóð
Hjallatúns, kennitala: 430206-1410, bankareikningur:
317-13-300530.
.
Þorsteinn, Sigríður Dórothea, Sigurjón,
Hermann og Oddur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUÐRÚN S. VALGEIRSDÓTTIR,
Sundstræti 34,
Ísafirði,
lést 23. ágúst á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Ísafirði og verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn
3. september klukkan 14.
.
Sesselja M. Matthíasdóttir, Kristján Hilmarsson,
Ómar H. Matthíasson, Guðný Guðmundsdóttir,
Ingibjörg M. Matthíasdóttir, Jökull Jósefsson,
Auður K. Matthíasdóttir, A. Ómar Ásgeirsson,
Vilhjálmur V. Matthíasson, Ásdís B. Pálsdóttir,
Guðmundur F. Matthíasson, Júlía M. Jónsdóttir,
Kolbrún Matthíasdóttir, Erlendur H. Geirdal,
Guðrún S. Matthíasdóttir
og aðrir aðstandendur.
Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur og
unnusti,
SIGURBJÖRN ÞÓRISSON,
Bjarmalandi 12, Reykjavík,
lést að heimili sínu 21. ágúst. Jarðsungið
verður frá Bústaðakirkju föstudaginn 2.
september klukkan 15.
.
Þórir Rafn Halldórsson, Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir,
Svava Kristín Þórisdóttir, Hjörvar Högnason,
Eva Sólveig Þórisdóttir, Jónas Thorlacius,
Tinna Þórisdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson,
Þórir Rafn Þórisson,
Margrét Ósk Brynjólfsdóttir.