Morgunblaðið - 27.08.2016, Síða 70
70 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016
Ákvað að snúa sér
að sínu eigin lífi
Auður Styrkárs-dóttir er aðljúka störfum
sem forstöðumaður
Kvennasögusafns Ís-
lands eftir að hafa
verið fimmtán ár þar
í forsvari. Í fyrra var
haldið upp á stór
tímamót í sögu
kvenna en þá voru
liðin 100 ár frá því að
þær fengu kosninga-
rétt.
„Ég var formaður
afmælisnefndar og
bæði skipulagningin
af hálfu nefndarinnar
og að veita upplýs-
ingar fyrir hönd
safnsins var mjög um-
fangsmikið þetta ár,
sem betur fer, og það
var bara mjög gleði-
legt.
Ég er nú ung ennþá en ákvað að hætta í vinnunni þegar heilsan
og geðið væru enn í góðu lagi og snúa mér að mínu eigin lífi. Það
er aðallega þrennt sem ég ætla að gera. Í fyrsta lagi að lesa bæk-
ur. Ég hef alltaf verið mikill lestrarhestur og hef alltaf séð mjög
eftir að fara frá bókunum mínum til vinnu og nú ætla ég að lesa
rosalega.
Í öðru lagi er ég búin að skrá mig í nám í ritlist við Háskóla Ís-
lands. Ég hef verið skrifandi alla ævi, mest þó fræðilegs eðlis, en
það er alltaf hægt að bæta sig og hver veit nema ég snúi mér að
annars konar skrifum. Allavega hlakka ég mikið til námsins.
Í þriðja lagi ætla ég að leggja meiri rækt við gítarinn minn. Ég
hef verið í óformlegu gítarnámi undir mjög góðri handleiðslu
Hannesar Þ. Guðrúnarsonar og hann er svo elskulegur að vilja
hafa mig áfram. Ég lærði sem ung manneskja á gítar en lagði
hann síðan á hilluna. En fyrir nokkrum árum rakst ég á hann í
geymslunni og það kviknaði löngun að prófa aftur. Þetta er sem
sagt klassíkur gítarleikur, ekki eitthvert gutl, heldur alvörustöff!“
Eiginmaður Auðar er Svanur Kristjánsson, prófessor við Há-
skóla Íslands. „Við eigum þrjú börn saman, Kára, Halldór og Her-
dísi og svo er ég svo lánsöm að vera líka stjúpmóðir Heiðars
Inga.“
65 ára Auður Styrkársdóttir.
Auður Styrkársdóttir er 65 ára í dag
H
elgi Jóhannesson
fæddist 27. ágúst 1956
á Akureyri og ólst þar
upp. „Ég var sjö sum-
ur í sveit á Ytra-Hóli í
Fnjóskadal, lærði þar að vinna og
verða sjálfstæður hjá góðu fólki sem
er mér kært.“
Náms- og starfsferill
Helgi tók vélstjórapróf 4. stig, frá
Vélskóla Íslands 1977, sveinsbréf í
vélvirkjun frá Vélsmiðjunni Atla hf.
1981, er stúdent frá Tækniskóla Ís-
lands 1982, véltæknifræðingur – BSc.
frá Odense Teknikum 1985 og véla-
verkfræðingur – MSc. frá Aalborg
Universitet 1987. „Ég hef sótt mér
endurmenntun gegnum fjölda nám-
skeiða sérstaklega varðandi mark-
aðsmál, stjórnun og rekstur, meðal
annars stjórnendanámið, „Stjórn-
endur framtíðarinnar hjá IMG árið
2004.“ Helgi nam einnig vátrygginga-
lögfræði við Háskólann í Reykjavík,
2008-2009.
Helgi var fyrsti vélstjóri og yfirvél-
stjóri á togurum, mest hjá ÚA, 1977-
1980, deildarstjóri tæknideildar hjá
Sláturfélagi Suðurlands, 1987-1996,
forstöðumaður Atvinnumálaskrif-
stofu Akureyrarbæjar, 1996-1997,
framkvæmdastjóri kjötiðnaðarsviðs
KEA, 1997-2000, framkvæmdastjóri
Norðlenska ehf., 2000-2001, fram-
kvæmdastjóri Norðurmjólkur ehf.,
2001-2007, umdæmisstjóri Vátrygg-
ingafélags Íslands á Norðurlandi
2007-2012. Helgi hefur verið forstjóri
Norðurorku hf. frá apríl 2012.
Áhugamál
„Það helsta um mig er að við hjónin
eigum bát á Akureyri og erum dugleg
við að veiða í matinn sem og að rækta
okkar eigin kartöflur og kál. Við
Helgi Jóhannesson, forstjóri Norðurorku – 60 ára
Fjölskyldan Helgi og Stefanía ásamt börnum sínum. Myndin er tekin í tilefni nýstúdents Helgu Þóru.
Lærði að verða sjálf-
stæður í sveitinni
Dannebrogordenen Helgi að taka
við Danska riddarakrossinum.
Gullbrúðkaup eiga á morgun,
hjónin Ingibjörg Sólveig Kolka
Bergsteinsdóttir, þroskaþjálfi
og húsfreyja, og Jón Bjarna-
son fyrrv. bóndi, skólameistari,
alþingismaður og ráðherra.
Ingibjörg Sólveig er fædd á
Blönduósi og ólst þar upp
fyrstu árin heima hjá afa sín-
um og ömmu, Páli Kolka lækni
og frú Guðbjörgu. Jón er fædd-
ur í Asparvík á Ströndum en
ólst upp í Bjarnarhöfn á
Snæfellsnesi.
Þau Ingibjörg og Jón giftu sig í
Bjarnarhafnarkirkju 28. ágúst
1966 og búa nú í Reykjavík.
Þau Ingibjörg og Jón verða að
heiman.
Árnað heilla
Gullbrúðkaup
Frá vinstri: Ingibjörg Kolka, Laufey Erla, Katrín Kolka, sem lést 2011, Ingibjörg, Jón,
Páll, Ásgeir og Páll Valdimar Kolka. Barnabörnin eru orðin níu.
Ingibjörg og Jón á trúlofunardaginn 14. ágúst 1965.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Skeifunni 8 | Kringlunni | Sími 588 0640 | casa.is
FALLEG hönnun
fyrir útskriftina
POV kertastjakar
Hönnun: Note Design Studio
Verð frá 6.500,- Ýmsir litir
MENU