Morgunblaðið - 27.08.2016, Page 71
ÍSLENDINGAR 71
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016
förum einnig í veiði með vinafólki. Ég
á gamalt mótorhjól sem notað er yfir
sumarið, en samt sparlega. Við erum
einnig dugleg á skíðum, flestar helgar
yfir vetrartímann er farið á skíði. Við
eigum sumarhús í Borgarfirði þar
sem við náum m.a. að hitta eldri börn-
in og þeirra fjölskyldur sem búa á
suðurhluta landsins. Eigum síðan
sumarhús í Vaðlaheiðinni gegnt
Akureyri með systkinum mínum, í
landi sem foreldrar okkar eignuðust
og gróðursettu í, allt frá 1959.
Við erum enn í miklum tengslum
við Danmörku eftir námsárin fimm í
landinu á sínum tíma og ég hef verið
danskur konsúll á Akureyri/Norður-
landi frá 2001 sem tengir mikið. Það
má segja að við höldum aldrei svo
veislu að ekki sé boðið upp á
„Gammel dansk“. Við erum dugleg í
útivist, s.s. hlaup á sumrin, syndum
og hjólum, höfum alltaf mikið umleik-
is og mikið að gera. Það má kannski
segja að um margt erum við hálf-
gerðir bændur, alltaf að brasa saman
við að byggja og bæta enda tel ég mig
vera vélstjóra af gamla skólanum
sem getur flest.
Við höfum alltaf verið dugleg að
ferðast, ekki síst árin erlendis. Nú er
það oft til að reyna að slappa af en
verður þó oftar en ekki að einhvers
konar fjallaferðum af þokkalegri
erfiðleikagráðu.
Börnin okkar hafa oft sagt að það
versta sem fyrir gæti komið væri að
við hefðum ekki nóg að brasa og að
við byggjum og breytum til að hafa
nóg að gera en ekki vegna annarra
þarfa. Annars má segja að lífið snúist
að miklu um fjölskylduna, sem er
stór, samverustundir og samhjálp.“
Fjölskylda
Kona Helga er Stefanía Sigmunds-
dóttir, f. 9.6. 1958, tæknifulltrúi hjá
Akureyrarbæ. Hún er dóttir Sig-
mundar Magnússonar, fyrrv. um-
dæmisstjóra Vinnueftirlitsins á Akur-
eyri og Guðrúnar Kristjánsdóttur
húsmóður, sem bæði eru látin.
Börn Helga og Stefaníu: Anna
Kristín, f. 5.11. 1977, leikskólastjóri,
maður hennar er Smári Sigurbjörns-
son og eiga þau þrjú börn; Magnús
Gunnar, f. 14.11. 1980, viðskiptastjóri,
kvæntur Sigrúnu Lóu Svansdóttur
og eiga þau fjóra syni; Jónína Björg,
f. 14.8. 1989, myndlistarmaður í sam-
búð með Magnúsi Jóni Magnússyni
og á hann tvo syni, og Helga Þóra, f.
18.11. 1991, háskólanemi, í sambúð
með Hallgrími Gíslasyni og eiga þau
eina dóttur.
Systkini Helga: Hermundur
Jóhannesson, f. 24.9. 1951, bílstjóri á
Akureyri, kvæntur Þórunni Gunn-
arsdóttur og eiga þau þrjú börn;
Friðný Jóhannesdóttir, f. 5.8. 1953,
læknir í Reykjavík og á hún einn son;
Guðrún Jóhannesdóttir, f. 11.7. 1960,
kennari á Akureyri og á hún einn son;
Hjalti Jóhannesson, f. 1.11. 1962, sér-
fræðingur hjá RHA, kvæntur Fjólu
Helgadóttur kennara og eiga þau tvo
syni; Lilja Sigurlína Jóhannesdóttir,
f. 28.4. 1966, læknaritari, gift Unnari
Jónssyni og eiga þau þrjú börn.
Foreldrar Helga eru Jóhannes
Gunnar Hermundarson, f. 6.3. 1925,
d. 24.02. 2010, líkkistusmiður á Akur-
eyri og k.h. Anna Hermannsdóttir, f.
12.8. 1927, húsmóðir, bús. á Akureyri.
Úr frændgarði Helga Jóhannessonar
Helgi
Jóhannesson
Þórunn Gunnarsdóttir
húsfreyja í Heiðarhöfn, f.
á Völlum í Þistilfirði
Óli Jóhannes Jónsson
bóndi í Heiðarhöfn á Langa-
nesi, f. á Valþjófsstöðum í
Núpasveit, N-Þing.
Friðný Óladóttir
húsfreyja á Bakka við Húsavík
Hermann Stefánsson
bóndi á Bakka við Húsavík
Anna Hermannsdóttir
húsmóðir á Akureyri
Jónína S. Jónasdóttir
húsfreyja á Kaldbak, f. á Krossi
í Ljósavatnsskarði, S-Þing.
Stefán Guðmundsson
bóndi á Kaldbak við
Húsavík, f. á Nolli
Auður Jóhannesdóttir
húsfreyja á Ísafirði
Sesselja Jóhannesdóttir
húsfreyja í Neskaupstað
Björn
Jóhannesson
bóndi á Nolli
Snæbjörn
Björnsson
bóndi á Nolli
Björn Snæbjörnsson
formaður Einingar-
Iðju á Akureyri
Matthías Bjarnason
ráðherra
Jóhannes Stefánsson
frkvstj. Samvinnu-
félags útgerðarmanna
í Neskaupstað
Gunnar Hermannsson
arkitekt í París
Óli Hermannsson
lögfræðingur og þýðandi í Rvík
Jóhannes Guðmundsson
bóndi á Nolli,
Grýtubakkahr., f. á Nolli
Guðbjörg Björnsdóttir
húsfr. á Nolli, f. í Pálsgerði í
Grýtubakkahr., S-Þing.
Hermundur Jóhannesson
trésmiður á Akureyri
Guðrún H. Guðmundsdóttir
húsfreyja á Akureyri
Jóhannes Hermundarson
líkkistusmiður á Akureyri
Kristín Friðriksdóttir
húsfr. á Tannarnesi, f. í
Keflavík úti af Súgandaf.
Guðmundur M. Sveinsson
bóndi á Tannarnesi í Önundar-
firði, f. á Hesti í Önundarf.
Finnur Magnússon fæddist 27.ágúst 1781 í Skálholti. FaðirFinns var Magnús Ólafsson
lögmaður úr Svefneyjum og föður-
bróðir Finns var Eggert Ólafsson
náttúrufræðingur og skáld. Móðir
Finns var Ragnheiður dóttir Finns
Jónssonar biskups.
Finnur var í fóstri hjá Hannesi
biskupi Finnssyni móðurbróður sín-
um og nam hjá honum skólavísindi
og fór síðan til náms í Kaupmanna-
höfn. Finnur sneri til Íslands þegar
faðir hans lést og árið 1806 var hann
settur málafærslumaður við lands-
yfirréttinn í Reykjavík og var í því
starfi þangað til Jörundur hunda-
dagakonungur svipti hann embætti.
Finnur fór þá til Kaupmannahafnar
en þegar Jörundur var hrakinn frá
völdum tók hann aftur við embætti
sínu. Árið 1812 fór hann aftur til
Kaupmannahafnar.
Finnur varð prófessor og for-
stöðumaður leyndarskjalasafnsins í
Kaupmannahöfn. Hann var etatsráð
en það er tignarheiti án embættis.
Finnur gegndi oft stöðu forseta eða
varaforseta Kh. deildar Hins ísl.
bókmenntafélags, hann var varafor-
seti Fornfræðafélagsins og fulltrúi
Íslands á stéttaþingum. Hann var í
miklu áliti meðal samtíðarmanna
sinna og segir Benedikt Gröndal
hann hafa verið frægan um öll lönd
og hafa ekið með Alexander Hum-
boldt og Jakob Grimm þegar þeir
komu til Kaupmannahafnar.
Finnur rannsakaði það sem hann
taldi rúnir í Runamo í Blekinge í Sví-
þjóð. Honum hugkvæmdist að lesa
þær afturábak gegnum spegil og gat
þannig lesið vísu. Hann skrifaði 750
blaðsíðna rit um rúnirnar í Runamo,
en fékk mikla gagnrýni fyrir það
verk og varð honum til aðhláturs-
efnis. Jarðvísindamenn telja að rist-
urnar í Runamo séu jökulrákir.
Finnur kvæntist 6.11. 1821 Nikol-
ínu Barböru Frydensberg, dóttur
landfógeta en þau skildu 1836. Grön-
dal segir að Finni „létu betur vís-
indalegar rannsóknir og bókagrufl
heldur en það praktíska líf“.
Finnur lést á aðfangadag 1847.
Merkir Íslendingar
Finnur
Magnússon
Laugardagur
95 ára
Hrefna Gísladóttir
Jóhanna Þórarinsdóttir
90 ára
Guðveig Bjarnadóttir
Hjálmar A. Stefánsson
Valborg Sigurðardóttir
85 ára
Þórdís Guðmundsdóttir
80 ára
Ásta Margrét Hávarðard.
Birkir Baldursson
Guðrún Magnúsdóttir
Gunnar Jónsson
Hanna Stefanía Friðriksd.
75 ára
Ágúst F. Friðgeirsson
Guðmundína S. Þorláksd.
Guðný Sigurðardóttir
Óttar Snædal Guðmundss.
Ragnheiður Haraldsdóttir
70 ára
Anna Þóra Karlsdóttir
Guðríður E. Guðmundsd.
Henný Tryggvadóttir
Jón Hilmar Davíðsson
Jón Stefánsson
Pétur Einarsson
Ragnar Jóhannsson
Sigrún Kristjánsdóttir
Þórarinn B. Steingrímsson
60 ára
Alfreð Erlingsson
Álfhildur Ólafsdóttir
Ársæll Magnússon
Dalé Rumseviciené
Erlendur Björnsson
Guðmundur Guðmundsson
Helgi Jóhannesson
Jón Atli Brynjólfsson
Jurijs Zablockis
Margrét Hafdís Hauksdóttir
Ófeigur Sigurðsson
Stefanía Hjartardóttir
Steinar Björgvinsson
50 ára
Axel Hafsteinn Gíslason
Bjarni Rósberg Sigurðsson
Gudrun Anna Fjeldsted
Guðný Ingibjörg Grímsd.
Guðrún Guðfinnsdóttir
Inga Arna Heimisdóttir
Ingólfur Samúelsson
Jóhanna Guðný Halldórsd.
Jóhannes Ólason
Margrét Kristín Magnúsd.
Óskar Skúlason
Rongrat Puttharat
Sigurbjörg Sigmundsdóttir
Sigþór Heiðar Hrafnsson
Stefán Ævar Rögnvaldsson
Svetlana Jasiene
Tína Gná Róbertsdóttir
Valdís Axfjörð Snorradóttir
Þyri Edda Bentsdóttir
40 ára
Bálint László Nacsa
Eiríkur Daníel Kristinsson
Guðmunda Katrín Karlsd.
Hafsteinn Hafsteinsson
Inga Sigrún Ingvadóttir
Ingimar Óskarsson
Ingólfur Jóhannesson
Slawomir Cheda
Soffía Stórá Pálsdóttir
Svanhildur Heiða Gíslad.
Þórhildur Sif Jónsdóttir
30 ára
Andri Guðlaugsson
Arnór Davíð Pétursson
Atli Þorvaldsson
Greig Michael Stock
Grétar Óskarsson
Jose Javier M. Palencia
Karitas Þórarinsdóttir
Kristine Balta
Margrét Hannesdóttir
Martins Ozols
Ragnhildur Haraldsdóttir
Sóley Einarsdóttir
Steinar Sæmundsson
Sveinn Haukur Albertsson
Sævald Páll Hallgrímsson
Þórhildur Kristjánsdóttir
Sunnudagur
95 ára
Anna Sveinbjörnsdóttir
85 ára
Sigríður M. Sigurðardóttir
80 ára
Guðbjörg Þórisdóttir
75 ára
Sólveig B. Eyjólfsdóttir
70 ára
Arnar Arngrímsson
Elísa Þorsteinsdóttir
Erla Hafdís Sigurðardóttir
Gunnar Gunnarsson
Hildur Sigurðardóttir
Hlíf Sigurðardóttir
Kristín Ólafía Gunnarsdóttir
Skjöldur Gunnarsson
Zuheng Li
Þuríður Gísladóttir
60 ára
Berglind Hilmarsdóttir
Guðmunda Hrönn Óskarsd.
Gunnar Ágúst Gunnarsson
Gyða Martha Ingvadóttir
Halldór Hjalti Kristinsson
Helga Eiðsdóttir
Jóhannes Jóhannesson
Margrét Guðrún Andrésd.
Þorsteinn Karlsson
Þuríður Pétursdóttir
50 ára
Benedikt Hermannsson
Einar Steinþór Jónsson
Eiríkur Örn Baldursson
Elínborg Þorsteinsdóttir
Inga Bára Gunnlaugsdóttir
Ingvar Sigurðsson
Ingvar Þór Ólafsson
Jónína Gróa Gísladóttir
Kristinn Valberg Jónsson
Ljúdmíla N.. Stsjígoleva
Ólafur Friðrik Eiríksson
Óli Arelíus Einarsson
Petra Björk Arnardóttir
Pétur Hrafnsson
Þóra Jónína Björgvinsdóttir
Þórdís Klara Bridde
40 ára
Einar Ben Þorsteinsson
Elín Hilmarsdóttir
Guðbjörg Elín Þrastardóttir
Guðmunda R. Guðbjörnsd.
Helga Björk Jónsdóttir
Helgi Þorsteinsson
Jacek Daniel Krekiewicz
Jóhann Hjalti Þorsteinsson
Mariusz Okurowski
María Skúladóttir
Páll R. Mikael Kristjánsson
Sigríður Hrefna Pálsdóttir
30 ára
Davíð Andri Jakobsson
Esther Ösp Valdimarsdóttir
Hermann Geir Karlsson
Hrafn Hjartarson
Kristín Agnes Landmark
Laimis Trusovas
Malgorzata Okurowska
Mathias Vieweger
Nói Christiansen
Paul-Daniel Iordache
Rebekka Unnarsdóttir
Rúnar Grímsson
Sandra Melberg Pálsdóttir
Sveinbjörn Þorsteinsson
Þórunn Þórsdóttir
Til hamingju með daginn