Morgunblaðið - 27.08.2016, Síða 73

Morgunblaðið - 27.08.2016, Síða 73
DÆGRADVÖL 73 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Ást við fyrstu sýn gæti átt sér stað í dag. Sýndu öðrum hvað á að gera og reyndu að taka frumkvæðið hvenær sem er. 20. apríl - 20. maí  Naut Dagurinn í dag er kjörinn til þess að gera við allt sem er bilað á heimilinu. En þú mátt hafa þig allan við að hafa yfirsýn yfir þetta allt saman. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú gætir orðið undir mikilli pressu í dag. Reyndu að gera þér grein fyrir að- stæðum hans og eðli málsins áður en þú bregst við. Hann versnar bara ef þú reynir að vera beggja vegna borðs. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú finnur til þrasgirni í samskiptum við foreldra og yfirboðara. Hann áttar sig á hvernig hann og makinn bæta hvor annan upp. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Gefðu þér tíma til þess að sinna vinum og vandamönnum; án þeirra værir þú ekki komin/n þangað þar sem þú ert. Láttu það eftir þér að skemmta þér í dag. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Forðastu að gagnrýna samstarfsfólk þitt í dag og sættu þig ekki við ósanngjarna gagnrýni frá þeim heldur. En nei er orðið sem breytir lífi þínu til hins betra, líkt og um töfra væri að ræða. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þér hefur tekist að vekja athygli á þér og þínum málstað. Haltu þínu striki og vertu viss um að allt gangi að óskum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú hefur tekist mikla ábyrgð á herðar og þarft á öllu þínu að halda til þess að komast af. Gefðu með opnum hug og hjarta því þá er tekið eins á móti. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Ógnvekjandi útlit framundan kall- ar fram sterk viðbrögð hjá þér – jafnvel kast sem sæmir 3ja ára barni. Nú er ekki rétti tím- inn til þess að ætla sér að komast til botns í einhverju. 22. des. - 19. janúar Steingeit Allgóðar aðstæður eru til að koma skikk á fjármálin í dag. Ef þú ert þögul/l og eftirtektarsamur, sérðu stuttu leiðina. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Nú er góður tími til að versla, fara í stuttar ferðir og ræða við kollega. Kafaðu djúpt og leitaðu að innblæstri, hvernig sem er, til þess að geta gert það sem þú þarft. 19. feb. - 20. mars Fiskar Samstarfsmaður mun koma þér til hjálpar þegar þú þarft á því að halda. Kannski væri ekki vitlaust að fara í leiðangur og kaupa sér ný föt og fylgihluti til að bæta ímyndina. Víkverji verður seint fullorðinn.Hann hefur sætt sig við það og ætlar ekki að hika við að skella sér á tónleika með Justin Bieber sem verða í Kórnum fljótlega. Víkverja finnst þetta frekar ung- lingalegt en ætlar að láta vaða. Hann er þegar farinn að hita upp og hlust- ar af miklum móð á poppgoðið og skammast sín ekkert fyrir það. x x x Víkverji vonar samt heitt og inni-lega að hann verði að minnsta kosti ekki í algjörum minnihluta á tónleikunum. Hann þykist samt vita að á tónleikana fjölmenni ungar stúlkur sem munu eflaust láta hressilega í sér heyra. Kannski slæst Víkverji í hópinn, hermir eftir þeim og þenur raddböndin. x x x Annars var Víkverji minnturharkalega á að hann er farinn að eldast fyrir stuttu. Þannig var mál með vexti að ungur drengur reif í spaðann á Víkverja þar sem hann sat makindalega í vinnunni og hlustaði á tónlist Biebersins algjörlega í eigin heimi. Drengurinn ungi sagðist vera gamall nemandi hans. Það passaði, Víkverji var umsjónarkennari og ís- lenskukennari á unglingastigi rétt fyrir og í miðju hruni. Víkverji varð hálfkvumsa yfir því að hann hefði kennt tilvonandi samstarfsmanni sínum fyrir nokkrum árum. Kannski er réttara að segja, kennt og ekki kennt því Víkverji hefur ekki hug- mynd um hverju hann náði að koma til skila og hvað síaðist inn en það skal látið liggja milli hluta. Það eina gáfulega sem Víkverja datt í hug að romsa út úr sér við drenginn var: „Djöfull ertu orðinn stór.“ Þetta var mögulega það hall- ærislegasta sem hægt er að segja við ungan mann sem er kominn yfir tug- ina tvo. Tekið skal fram að þegar Víkverji sá hann síðast var hann lítill hávær unglingur. Þannig var hann enn í huga Víkverja. Þessi kennsluár voru fyrir nokkr- um árum í minningu Víkverja en þau voru víst fyrir tæplega áratug. En eins og skáldið sagði: „Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér.“ víkverji@mbl.is Víkverji www.smyrilline.is Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is Taktu bílinn með til Færeyja og Danmerkur 2016 Færeyjar 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá 34.500 Danmörk 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá 74.500 Bókaðu snemma til aðtryggja þér pláss.Þegar orðið fullt ísumar ferðir í sumar. Bókaðu núna! Síðasta gáta var sem endranæreftir Guðmund Arnfinnsson: Löngum er hún lögð í sjá. Líka heiti gyðjunnar. Fylgja henni í flokknum á. Form á vörum sams konar. Harpa á Hjarðarfelli svarar: Línu oft menn leggja í sjá. Lína heiti gyðjunnar. Flokkslínunni fylgja á. Fatalína iðjunnar. Helgi R. Einarsson á þessa lausn: Nú þarf af raunsæi að rýna, rannsaka, skoða og brýna, útsjónarsemina’ að sýna, með semingi birtist þá lína. Guðrún Bjarnadóttir á „súrreal- íska lausn“: Leggja vill hún línu í sjó, Lína skáldagyðja, því lína flokks er ljúf en mjó og línuvarir biðja. Helgi Seljan leysir gátuna þannig: Línan góða fiskin löngum er. Línu Hlínarnafn kann ég að meta. Flokkslínunni ætíð fylgja ber flott sem lína varir orðið geta. Guðmundur skýrir gátuna svona: Á veiðum lína er lögð í sjá. Lína er heiti gyðjunnar. Fylgja línu flokksins á. Framleiða vörulínu má. Og síðan kemur limran: Kvað Ástþór við unnustu sína: „Ég ann þér svo heitt, Karólína, að háir það mér og allt að því er óskapleg kvöl og pína!“ Nýjum laugardegi fylgir ný gáta: Árla morguns upprisinn á sér lét ei standa, kokkaði gátu kokkurinn kekkjótta að vanda. Og gátan hljóðar svo: Yfir hæð á fold ég fer. Í fornöld þarna kappi bjó. Sveitarfélag heitir hér. Hygg ég vera birkiskóg. Pétur Stefánsson bendir á, að ým- islegt sé hægt að gera í Reykjavík: Í Reykjavík er dásamlegt að dvelja. Dolfallinn má eyða tíma á safni. Við Laugaveg má túristana telja, til að hafa eitthvað fyrir stafni. Á náttborðinu hjá mér eru ljóð- mæli Jóns Þorsteinssonar á Arn- arvatni. Þar yrkir hann „í orðastað manns um hest“. Kristján Karlsson fór oft með þessa stöku þegar vel lá á honum: Góði minn, þegar æfi er öll eigandans týndra vona um grjótið norðan við Herrans höll hlauptu þá með mig svona. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Lesið á milli línanna Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... ekki hægt að bæta. „VIÐ ÞURFUM MINNA GJAMM OG MEIRA GELT.“ „AUÐVITAÐ ER ÞAÐ HÆTTULEGT. ÉG VARÐ EKKI HERSHÖFÐINGI MEÐ ÞVÍ AÐ FORÐAST ÁHÆTTU.“ ÉG KANN VEL VIÐ ÞIG, GRETTIR. ÉG ÆTLA AÐ BAKA SMÁKÖKUR. OG ÉG ELSKA ÞIG! ÉG VERÐ GLÖÐ ÞEGAR TVEGGJA VIKNA REYNSLUTÍMA ÞESSARAR AXAR ER LOKIÐ... UMBOÐS- SKRIFSTOFA Auga þitt er lampi líkamans. þegar auga þitt er heilt, þá er allur líkami þinn bjartur en sé það spillt þá er og líkami þinn dimmur (Lúk. 11:33)
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.