Morgunblaðið - 27.08.2016, Síða 77
MENNING 77
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016
Upptökumaðurinn og hljóðverk-
fræðingurinn (e. audio engineer)
Rudy Van Gelder dó á heimili sínu á
fimmtudaginn, 91 árs gamall.
Gelder hefur verið talinn einn
færasti hljóðmaður síns tíma og er
m.a. sagður hafa skilgreint hljóð-
bragð á djassplötum á árunum 1950
til 1980. Sjálfur lagði hann mikið
upp úr því að vera verkfræðingur,
ekki framleiðandi. Hann stjórnaði
ekki upptökum, réð ekki tónlistar-
menn til sín né kom að efnisvali en
hann hafði lokaorðið þegar kom að
því hvernig hljómur hverrar plötu
var.
Á áttunda áratugnum starfaði
hann fyrir CTI records en fáar út-
gáfur hafa verið áhrifameiri í djass-
heiminum.
Andlát Verkfræðingurinn Rudy Van Gel-
der var goðsögn í hljómplötugeiranum.
Rudy Van Gelder
látinn 91 árs
Taylor Swift mætir ekki á VMA-
verðlaunin í ár en tónlistarhátíðin
fer fram á sunnudag. Swift var ekki
tilnefnd til verðlauna í ár en segir
það ekki ástæðu fjarveru sinnar.
Rapparinn Kanye West verður
með atriði á hátíðinni og fær frjáls-
ar hendur til að gera það sem hann
vill. Talið er að það skýri fjarveru
Swift en það hefur andað köldu
milli hennar og Kanye West.
AFP
Söngur Taylor Swift heiðrar gesti VMA
ekki með nærveru sinni í ár.
Swift ekki á VMA
Fyrsta breiðskífa
tónlistarmanns-
ins Unnars Gísla
Sigmundssonar
eða Júníusar
Meyvant leit
dagsins ljós
föstudaginn 8.
júlí Í tilefni af því
verður efnt til út-
gáfutónleika í
Háskólabíói í kvöld. Breiðskífan
heitir Floating Harmonies en það
er einnig óopinbert heiti grunn-
hljómsveitar Júníusar. Á undan
Júníus Meyvant í kvöld spilar von-
arstjarnan Axel Flóvent ásamt
hljómsveit. Axel hefur verið að
gera góða hluti undanfarið. Tón-
leikarnir hefjast klukkan 21 í kvöld
en miðasala fer m.a. fram á netinu.
Útgáfutónleikar í
Háskólabíói í kvöld
Júníus Meyvant
Myndlistarmaðurinn Gunnar Kr.
opnar myndlistarsýningu sína
Formsins vegna á Akureyravöku í
dag, laugardag, klukkan 15:00 og
er sýningin í Listasafninu á Akur-
eyri.
Í tilkynningu um sýningu Gunn-
ars segir að myndlist hans ein-
kennist af slagkrafti og þunga sem
birtist með fjölbreyttum hætti.
„Hann hafi t.d. teiknað biksvart-
ar blýsólir og logskorið stálblóm.
Undanfarin misseri hefur Gunnar
notað fislétt og viðkvæmt hráefni
til myndgerðar – pappír – sem
hann mótar, sker, litar og raðar
saman uns tilætluðum áhrifum er
náð. Í spennunni milli formrænnar
tjáningar listamannsins annars
vegar og hráefnisins sem hann
notar hins vegar er feiknaleg
orka. Verk Gunnars Kr. líkjast um
margt náttúrunni sjálfri; þau eru
sterk, form endurtaka sig og feg-
urðin ríkir – þótt hún sé á stund-
um ógnvekjandi. Kröftug en þó
viðkvæm,“ segir enn fremur í til-
kynningunni.
Fagnar 30 árum
í myndlistinni
Myndlistarferill Gunnars Kr.
spannar þrjátíu ár og hefur hann
komið víða við. Á fjölmörgum sýn-
ingum hefur hann sýnt málverk,
skúlptúra, teikningar og vatns-
litamyndir. Gunnar býr og starfar
að list sinni á Akureyri. Sýning-
arstjóri er Joris Rademaker.
Í tilefni sýningarinnar kemur út
sýningarskrá með textum eftir
Hlyn Hallsson og Joris Radema-
ker og ljóðum eftir Aðalstein Svan
Sigfússon.
Listasafnið verður opið til kl. 22
á opnunardegi sýningarinnar en
sýningin er opin daglega kl. 10-17
út ágúst en eftir það kl. 12-17
þriðjudaga til sunnudaga og er að-
gangur ókeypis. Þeir sem vilja
kynnast list Gunnars Kr. enn bet-
ur geta sótt leiðsögn um sýningar
Listasafnsins á fimmtudögum kl.
12.15-12.45.
Sýningaropnun á Akureyravöku
List Verk eftir Gunnar Kr.
Vertu upplýstur!
blattafram.is
VIÐ HÖFUM TÆKIFÆRI
TIL AÐ KOMA Í VEG FYRIR
ATBURÐ SEM FELUR Í SÉR
OFBELDI.
NOTUM VIÐ TÆKIFÆRIN? Laugavegi 29 • sími 552 4320 • www.brynja.is • verslun@brynja.is • verzluninbrynja.is
Opið virka daga frá 9-18 og laugardaga frá 10-16
Verkfærin fyrir skólana og
handverksfólkið fást hjá okkur
Slípivél osm 100,
kr. 44.150
Auðveldar þér verkin,
pússar þar sem þú átt
erfitt með að ná til.
Tenging fyrir ryksugu -
heilnæmara loft.
6 mismunandi kefli
fylgja með.
Bandsög Basa 1,
kr. 53.700
Sögunarhæð 100 mm
Sögunarbreidd 195 mm
Þykktarhefill/afréttari
WoodStar pt 85,
kr. 72.000
Afréttari 737 x 210 mm
Þykktarhefill
120 x 204 mm
Tifsög deco-flex,
kr. 39.700
Tekur bæði blöð með
takka og án.
Barki fyrir bora
o.þ.h. fylgir.
Fræsari hf 50
kr. 64.970
Borð 610x360 mm
Stiglaus hraði
8000-24000 sn/mín
1500 W
Slípivél BD7500
kr. 22.900
25 mm belti
125 mm skífa
Rennibekkur dm 460t
kr. 73.400
Bil milli odda 457 mm
hæð yfir stöngum 152 mm
Slípivél bts 800
kr. 45. 190
100 mm belti
150 mm skífa
Scheppach Combi 6,
kr. 232.300
Fimm aðgerða sambyggð
vél. Þykktarhefill, afréttari,
sög, fræsari og tappabor.
Tenging fyrir spónsugu.