Morgunblaðið - 12.09.2016, Síða 1
Á meðan borgarbörnin eru farin í skólann hafa
mörg sveitabörnin upplifað fjör og ærsl enda eru
réttir víða um land. Þar leggja allir hönd á plóg,
ungir sem aldnir. Mikil rigning var um helgina í
Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu þar sem þessi
mynd var tekin.
Réttir í úrhellisrigningu í Víðidal í Húnavatnssýslu
Morgunblaðið/Eggert
M Á N U D A G U R 1 2. S E P T E M B E R 2 0 1 6
Stofnað 1913 213. tölublað 104. árgangur
BÓK UM KVEÐ-
SKAP Á 17. ÖLD
VEKUR ATHYGLI
GAMAN AÐ
KEMBA, VEFA
OG SPINNA
TITILLINN
BLASIR VIÐ
FH-INGUM
DRAUGAR 12 KNATTSPYRNA ÍÞRÓTTIRRANNSÓKNIR 26
Anna Lilja Þórisdóttir
Jón Birgir Eiríksson
Konur eru í efsta sæti í níu af 31
framboðslista sem kynntur hefur
verið fyrir alþingiskosningarnar í
haust. Átta af þessum listum eru í
Reykjavíkurkjördæmunum og einn
er í Norðvesturkjördæmi.
Í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins
sem haldin voru í Suður- og Suð-
vesturkjördæmum um helgina voru
karlar í efstu þremur og fjórum sæt-
unum.
Ólöf Nordal, innanríkisráðherra
og varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, segir að niðurstaðan sé von-
brigði fyrir konur. Hún bendir þó á
að líta þurfi heildstætt á stöðu mála
og líta einnig til úrslitanna í báðum
Reykjavíkurkjördæmunum og í
Norðvesturkjördæmi, þar sem kon-
um vegnaði mun betur. Hún segir
það skipta máli að konur sem bjóði
sig fram sækist eftir efstu sætum í
prófkjörum og hvetja þurfi konur til
þess, en kjördæmin ráði því hvernig
gengið sé frá framboðslistum.
Stefanía Óskarsdóttir stjórnmála-
fræðingur segir að rannsóknir sýni
að önnur viðmið séu notuð um konur
en karla hvað varði mat á frammi-
stöðu og hæfni.
Vonbrigði fyrir konur
Innanríkisráðherra segir mikilvægt að framboðslistar endurspegli breidd
Konur leiða innan við þriðjung þeirra framboðslista sem núna liggja fyrir
MFáar konur í efstu sætum »4
Konur og karlar
» Píratar hafa kynnt lista í öll-
um kjördæmum og þar eru
kynjahlutföll í 1. sætum jöfn.
» Björt framtíð hefur kynnt
sex efstu frambjóðendur í öll-
um kjördæmum. Þar er hlutfall
kvenna í 1. sæti 33%.
Lýta- og húðlæknar hafa um nokkurt
skeið farið fram á það við Embætti
landlæknis að settar verði skýrari
reglur um hver megi veita meðferð
með fylliefnum sem m.a. er sprautað í
andlit fólks til að draga úr hrukkum.
Viðmælendur Morgunblaðsins
segjast þekkja dæmi þess að verið sé
að veita meðferð sem þessa í heima-
húsum og segir dr. Bolli Bjarnason,
húð- og kynsjúkdómalæknir, að sífellt
fleiri aðilar án læknismenntunar
bjóði upp á þessar meðferðir.
Samkvæmt upplýsingum frá Emb-
ætti landlæknis eru engar reglur í
gildi um hver megi veita þessa með-
ferð og hjá Lyfjastofnun fengust þær
upplýsingar að engar takmarkanir
væru á innflutningi á húðfyllingar-
efnum og að þau væru ekki skilgreind
sem lyf, heldur snyrtivara. Hægt er
að kaupa húðfyllingarefni á ýmsum
vefsíðum, m.a. á kínversku vefsíðunni
AliExpress.
Guðrún Þorláksdóttir hjúkrunar-
fræðingur er vottaður meðferðaraðili
á þessu sviði. Hún segist sammála
þeirri gagnrýni lækna sem beinist
gegn réttindalausu fólki án heil-
brigðismenntunar. »10
Meðferðir
í heima-
húsum
Húðfyllingarefni Engar reglur eru
um hver megi veita meðferðina en
því vilja læknar breyta.
Læknar vilja reglur
um húðfyllingarefni
Jón Margeir Sverrisson úr Fjölni
var grátlega nálægt verðlaunasæti
í flokki S14 í 200 metra skriðsundi á
Ólympíumótinu í Ríó, Paralympics,
í gærkvöldi. Jón synti vel og var ná-
lægt besta tíma sínum en það dugði
ekki til þess að ná verðlaunum.
Fyrir fram var búist við því að
mikil barátta yrði á milli Jóns Mar-
geirs, Daniels Fox frá Ástralíu eins
og í London 2012 og Bretans Thom-
as Hamers, sem komið hefur sterk-
ur upp síðustu árin. Sú varð raunin
nema hvað þessir þrír börðust um
annað og þriðja sætið. Sú barátta
var ansi jöfn og Jón var rétt á eftir
þeim í síðustu ferðinni. Jón hafði
byrjað af krafti og var fyrstur eftir
fyrstu ferðina en var orðinn fjórði
eftir aðra ferðina af fjórum.
Wai Lok Tang frá Hong Kong
kom á óvart og sigraði á nýju Para-
lympics-meti. » Íþróttir
Jón Margeir missti naumlega af
verðlaunum í Ríó eftir tvísýna baráttu
Ljósmynd/Sverrir Gíslason
Ríó Jón Margeir Sverrisson í sundlauginni
í Ríó de Janeiro í gærkvöld.
„Á sjöunda
hundrað eru
skráðir félags-
menn og það
mættu á fjórða
hundrað á fundinn.
Það er öflugt.
Ég vona einlæg-
lega að fólk sem
studdi Kristínu
taki þátt í um-
ræðunni áfram,“
segir María Helga Guðmundsdóttir,
jarðfræðingur, þýðandi og nýkjör-
inn formaður Samtakanna 78, en í
kosningunum til formanns embætt-
isins í gær kusu 184 hana en 152
Kristínu Sævarsdóttur. »6
Meirihluti fé-
lagsmanna mætti
María Helga
Guðmundsdóttir
Leiðsögumenn með hreindýra-
veiðum hafa áhyggjur af sjúkdómi
sem leggst á júgur hreinkúa á veiði-
svæði 2. Það nær m.a. yfir Fljóts-
dalshrepp og hluta Fljótsdalshér-
aðs. Á svæðinu er t.d. griðland
hreindýranna við Snæfell og Vest-
uröræfi. Leiðsögumennirnir óttast
að sjúkdómurinn geti haft áhrif á
viðkomu dýranna á næstu árum.
Sigurður Aðalsteinsson leið-
sögumaður sagði að meirihlutinn af
kúm sem felldar hefðu verið á
svæðinu í haust hefði verið sýktur.
Reimar S. Ásgeirsson leiðsögu-
maður varð fyrst var við sýkinguna
í fyrstu kúnum sem felldar voru nú
í ágúst. Hann lét strax vita og skil-
aði júgrunum til Umhverfisstofn-
unar. Jóhann G. Gunnarsson, sér-
fræðingur hjá UST, sagði að
Matvælastofnun hefði fengið sýnin
til rannsóknar. »6
Óttast áhrif sýkingar í júgrum hreinkúa á
viðkomu hreindýranna á næstu árum
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Sýking Sum júgrin eru svo illa farin að
ljóst er að kýrnar verða ekki mylkar.