Morgunblaðið - 12.09.2016, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 12.09.2016, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2016 ✝ Guðlaug, eðaLilla Fúsa, fæddist á Brekku, á Eyrum við Seyð- isfjörð 9. apríl 1940. Hún lést á Sjúkrahúsi Seyð- isfjarðar 4. sept- ember 2016. Foreldrar henn- ar voru Vigfús Ei- ríksson Jónsson mótoristi, f. 1. des- ember 1903, d. 2. ágúst 1980, og Sigríður Jónsdóttir verka- kona, f. 15. mars 1917, d. 24. febrúar 2008. Lilla var elst fimm systkina. Á eftir henni komu Jón Grétar, Borghildur, Ólafur og Gunnar Árni. Hún hóf sambúð árið 1959 með Gunnari N. Ragnarssyni húsasmíðameistara, f. 18. jan- úar 1940. Börn þeirra eru 1. Ragnheiður Gunnarsdóttir, f. 14. janúar 1959. 2. Hjördís Gunnarsdóttir, f. 14. desember 1962, eiginmaður hennar Mikkel Christensen, börn, Nina og Anna. 3) Sigfús Gunn- arsson, f. 20. maí 1965, eig- inkona hans Lilja Björk Ívars- dóttir, börn, Guðlaug, Sindri, Daði og Dóra. 4. Rúnar Gunn- arsson, f. 8. september 1971, eiginkona hans Rikki Lee Gunnarsson, börn, Nikulás Stefán og Eloise Rakel. 5) Gunnar Gunn- arsson, f. 2. októ- ber 1973. 6) Gyða Gunnarsdóttir, f. 6. júní, 1978, unn- usti hennar Mark Newbold, barn Kolfreyja Rose. Lilla var lengi starfsmaður í þvottahúsi Sjúkra- húss Seyð- isfjarðar, fyrstu árin sem vinnufélagi móður sinnar. Hún söng í Kirkjukór Seyð- isfjarðar og söngkórnum Bjarma. Hún var með í Kven- félagi Seyðisfjarðar, í stjórn Tónlistarfélags Seyðisfjarðar og hjálpaði mikið til við bún- ingagerð hjá Leikfélaginu. Lilla var einnig með í Skóg- ræktarfélaginu og Félagi eldri borgara, þar sem hún var for- maður síðustu árin. Lilla var ötul við að aðstoða í Viljanum, Íþróttafélagi fatl- aðra, á Seyðisfirði og í fjölda- mörg ár studdi hún SOS Barnaþorp. Hugur hennar var hjá þeim, sem minnst máttu sín. Lilla elskaði söng, tónlist, ferðalög, gleði og gaman með fjölskyldu jafnt sem vinum. Útför hennar fór fram frá Seyðisfjarðarkirkju 11. sept- ember 2016. „Mamma mín er besta mamma í heimi,“ segja börnin oft. En málið er að mamma mín var besta mamma í heimi. Við vorum nú kannski ekki alltaf sammála um allt, henni fannst ég stundum ógurleg fýlu- brók sem unglingur og mér fannst voða leiðinlegt að búa úti á landi og eiga svona „gamla“ mömmu. Það rann hins vegar upp fyrir mér þegar árin liðu að ég væri ekki sú sem ég er í dag ef ekki hefði verið fyrir að hafa búið í litla fallega Seyðisfirði og hafa átt þessa „háöldruðu“ foreldra. Mamma prentaði ómeðvituð þau góðu gildi í mann sem hún fór eftir alla tíð. Fara vel með náttúruna, vera góður við þá sem minna mega sín, ávallt vera kurt- eis við eldra fólk og þar fram eft- ir götunum. Minningarnar veltast um í höfðinu og maður veit ekki hverj- ar maður á að velja. Oftar en ekki, ef ég var að vit- leysast eitthvað, átti mamma til að horfa á mig og segja „hvaðan kemur þú eiginlega, stundum efast ég um að þú komir frá mér?“ Eins og hún gæti eitthvað neitað því að eiga mig, því ekki nóg með að hafa erft hennar go- od looks (heyrt óendanlega oft að ég liti út, alveg eins og mamma mín) heldur var hún barasta stundum svolítið skemmtilega skrítin líka. Ekki man ég t.d. til þess að aðrar mömmur drifu krakkana sína í smá Óla Skans dans inni á miðju eldhúsgólfi. Svo ekki á maður langt að sækja það. Mér þykir einna vænst um að hugsa til þess þegar verið var að horfa á sjónvarpið og ég sat á sófabakinu fyrir aftan mömmu, ég þurfti endalaust að vera í hár- greiðsluleik og ekki greiddi mað- ur pabba sínum! Mamma fékk því nýja hárgreiðslu á hverju kvöldi og hvert skipti sagði hún „æ, ekki greiða of fast … þú mátt ekki slíta þessi fáu hárstrý af mér“. En alltaf fékk ég samt að greiða henni. Slaufur, spennur og tilheyrandi … hún var voða fín. Einnig það að skríða upp í mömmu og pabba ból (jafnvel langt fram eftir aldri). Hlýjan og öryggið sem fylgdi því að kúra hjá mömmu sinni var ómetanlegt og óbætanlegt. Að geta gert hana stolta með því að verða stúdent, útskrifast úr háskólanum og nú síðast að gera hana að ömmu í síðasta skiptið yljar mér um hjartaræt- urnar. Hún Lilla Fúsa var stolt kona og ekki mikið fyrir að biðja um hjálp og á því örlaði allt þar til undir lokin. Ekki mátti ónáða blessað starfsfólkið á spítalanum of mikið. En því ber þakklæti og afskaplega fallegar kveðjur fyrir að passa svona vel upp á hana. En nú er mamma farin og hef- ur fengið frið. Minningarnar verða ekki fleiri. Þetta var snöggur og erfiður endir á langri og viðburðaríkri ævi. Nú getur elsku mamma mín gert allt sem hana langaði til að geta gert, hoppað, hlaupið og skellt sér í kollhnís án þess að hugsa sig tvisvar um. Kannski skellir hún sér loksins í garð- yrkjuskóla hvar sem hún er, eða kannski situr hún barasta með góðu fólki, sem nú þegar hefur kvatt okkur og syngur, talar og hlær hátt og dátt. Elsku mamma, sofðu vel. Litlan þín, Gyða, Mark og Kolfreyja Rose. Elsku mamma er ekki hjá okkur lengur. Hún hefur fengið frið og er farin að hitta ömmu Siggu og afa Fúsa. Í gegnum tíðina hefur mamma upplifað margt skemmtilegt, en yfir henni sveif alltaf lítið dökkt ský. Hún fæddist með beinbrota- sjúkdóm og hún brotnaði af minnsta tilefni. Öll hennar brot leyfðu henni ekki að njóta sín, eins og hún allra helst vildi. Mamma hafði líka miklar áhyggjur af okkur hinum, sem fengum sama sjúkdóm með okk- ur. En henni tókst kannski að að- vara okkur nóg, svo við höfum passað betur upp á okkur. Fyrir rúmu ári brotnaði mamma í ferð sinni til Noregs. Það var mikið áfall fyrir hana, hún varð aldrei sú sama eftir það. Ég minnist mömmu með gleði og ást. Minnist þess þegar hún kom inn að vekja okkur, og ég var fljótust á fætur, og fékk þannig mömmu út af fyrir mig í eldhúsinu yfir morgunmatnum. Það voru góðar stundir og gott spjall sem við fengum þar. Ég minnist þegar farið var af stað með nesti og nýja skó, í lengri og styttri ferðir. Mömmunestið var það besta í heimi. Ég minnist allrar spilamennskunnar með mömmu og pabba, bæði hérna heima og heima í Danmörku, það var mikið hlegið og spjallað. Ég minnist þess hversu stolt mamma var þegar ég fékk stúd- entshúfuna mína. Ég minnist hversu glöð mamma var þegar ég varð kennari. Ég minnist þess hversu leið hún var yfir að hafa ekki öll börnin sín í næstu húsum á Seyðisfirði. Ég minnist hversu vel hún tók á móti Mikkel, og hvað hún elskaði litlu kínversku ömmustelpurnar sínar. Ég minn- ist hversu ánægð hún var yfir að brotasjúkdómurinn færi ekki áfram frá mér. Mamma, Lilla, amma Lilla, við elskum þig og komum til að sakna þín mikið. Kær kveðja frá Mikkel, Nínu, Önnu og Hjördísi þinni. Hjördís Gunnarsdóttir. Guðlaug Stefanía Vigfúsdóttir ✝ Magnús Þor-mar Hilm- arsson fæddist 17. apríl 1951 á Siglu- firði og ólst þar upp. Hann lést á líknardeild Land- spítalans 4. sept- ember 2016. Foreldrar hans voru Hilmar Jóns- son, f. 8. október. 1914, d. 16. ágúst 1954, og Magnea Þorláksdóttir, f. 12. apríl 1913, d. 14. maí 1975. Alsystkini Magnúsar voru: Guðný Ásdís Hilmarsdóttir. f. 1936. d. 28. október 2004. Jón- mundur Hilmarsson, f. 17. jan- úar 1942, d. 14. apríl 2016. Hálfsystkini samfeðra eru: Hilmar Hilmarsson. f. 20. maí 1949. og Sigurlína Hilm- arsdóttir. f. 19. apríl 1954 Börn Magnúsar og Hafdísar Helgadóttur eru: Hrönn Magn- úsardóttir, f. 27. desember 1975, og Magnea Magnúsardóttir, f. 26. mars 1982. Synir Hafdísar Helgadóttur og fóstursynir Magnúsar eru Helgi Örn Bjarnason, f. 22. júlí 1971, og Máni Snær Hafdísarson, f. 11. mars 1990. Eftirlifandi eig- inkona Magnúsar er Hafdís Arn- ardóttir, f. 21. mars 1961. Börn Hafdís- ar og stjúpbörn Magnúsar eru: Hörður Valgarðs- son, f. 1. nóvember 1980, og Sesselja Magnúsdóttir, f. 14. desember 1981. Afabörn Magnúsar eru; Veig- ar Tjörvi, Kormákur Hrafn og Birnir Fróði Magneu og Ósk- arsbörn. Hafdís Njála Hrann- ardóttir. Sara Sóley og Axel Hrafn Sesselju og Ómarsbörn. Magnús lærði offsetprentun á Siglufirði en vann lengst af sem fasteignasali og rak og átti Skeifuna fasteignamiðlun frá árinu 1985 ásamt Eysteini Sig- urðssyni. Útför Magnúsar fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 12. sept- ember 2016, og hefst athöfnin kl. 13. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Alúðarþakkir fyrir allar góðu samverustundirnar. Þín tengda- dóttir, Harpa Hrund. Kæri vinur, þegar ég sit og er að skrifa þér hrannast upp minn- ingarnar um góðan vin. Á síðustu rúmum 20 árum höfum við verið duglegir að ferðast saman innan- og utanlands. Það var gaman að vera með þér þegar eitthvað stóð til. Þú elskaðir að skemmta þér með vinum, borða góðan mat og lifa kvöldið í botn. Við höfum nú brallað ýmislegt í þessum ferðum okkar ásamt mök- um okkar. Ferðin sem við fórum með Martin til Montreux, þrír saman, haustið 2010 á Freddie Mercury-helgi, gleymist seint enda höfum við talað um þessa daga sem heilaga í lífi okkar. Ótrú- leg ferð sem aðeins vinir gátu farið saman í og upplifað svo sterkt. Það gerðist eitthvað þarna, þetta var eins og leiksvið sérhannað fyr- ir okkur. Við vorum alls staðar þar sem hlutirnir voru að gerast, hitt- um fólk, hlustuðum á tónlist, mat- ur og drykkir. Lífið var yndislegt! Þú varst frábær kokkur og gaman að sjá áhuga þinn á að gera góðan mat. Þú vildir búa til góða kvöldstund með fólki og gera allt með glans, vera góður gestgjafi. Það var gott að vera boðinn heim til ykkar. Alltaf hlýjar og góðar móttökur. Eftir að þú veiktist, Maggi minn, eyddum við ófáum stundum saman heima hjá þér, fórum út að borða eða töluðum saman í síma. Í byrjun veikindanna var baráttu- þrekið mikið, en það fór þverrandi síðustu mánuðina. Við áttum hreinskilnar og góðar samræður síðustu mánuðina. Þú stóðst þig eins og hetja í þínum veikindum. Á svona stundum er maður hugsi yf- ir hvernig lífið er, því stundum fara hlutirnir ekki eins og maður hefur skipulagt eða eins og okkar maður, John Lennon, sagði: „Life is what happens to you, while you’re busy making other plans.“ Ég veit að ég á eftir að sakna þín, en minningarnar eiga eftir að ylja mér um ókomna framtíð. Það var mikil reynsla fyrir mig að ganga í gegnum þetta allt með þér. Þú varst æðrulaus fram til síðustu stundar, en hafðir áhyggj- ur af því að fara frá fjölskyldunni og Hafdísi þinni. Þú varst stoltur af fjölskyldu þinni, börnum og barnabörnum og talaðir oft um þau með blik í auga. Þú og Hafdís voruð samhent hjón og var hún kletturinn þinn í þínum veikindum. Ég og Guðrún óskum þess að góður Guð megi styrkja alla fjöl- skylduna þína og vini á þessari sorgarstundu. Það var frábært að kynnast þér og forréttindi að vera vinur þinn. Sigurður Sigurgeirsson. Kær vinur hefur kvatt eftir harða baráttu við illvígan sjúk- dóm. Undanfarnir mánuðir hafa verið langir og strangir og má segja að gengið hafi á með dimm- um éljum í lífi Magnúsar þrátt fyr- ir sólríkt sumar. Lífslöngun hans var þó afar sterk og átti hann sér þann draum að við færum saman í utanlandsferð í lok september. Sú samvera var tilhlökkunarefni en því miður entist honum ekki þrek til að af því yrði. Í stað þeirrar ferðar yljum við okkur við minn- ingar um samverustundir liðinna ára sem kalla fram bros og ljúf- sára tilfinningar. Við minnumst sumarferða með þeim hjónum, Hafdísi og honum, um Dali og Hrútafjörð, jeppaferða um hálendið, ferð til Tyrklands, gönguferða og samverustunda í sumarbústaðnum. Að ógleymdum matarklúbbi þar sem skilaboðin gengu á milli í bundnu máli og einnig þorrahópnum „Sviðnum vöngum“. Við undirbúning sam- verustunda naut Magnús sín vel. Hann átti létt með að setja saman vísur og af tónlist hafði hann mikið yndi, valdi af kostgæfni það sem við átti hverju sinni. Ógleymanleg var ferðin til London þar sem hann dreif okkur á þrenna tón- leika, hvern öðrum betri. Svo gerðum við matarinnkaup í Har- rods, slógum upp veislu og áttum enn eitt dásamlegt kvöld saman. Það átti við Magnús. Fasteignasala var starf Magn- úsar í áratugi og var hann alltaf boðinn og búinn að gefa góð ráð og hjálpa vinum sínum sem stóðu í húsnæðiskaupum. Ekki gekk allt upp í lífi hans frekar en hjá öðrum og þá sagði hann gjarnan glott- andi: „Maður hefur nú komið á Hofsós fyrr.“ Æskustöðvarnar á Siglufirði voru Magnúsi kærar og hafði hann orð á því hve vænt honum þótti um að geta heimsótt staðinn í sumar. Við kveðjum nú góðan vin með sáran söknuð í hjarta. Hafdísi, sem annaðist hann til hinstu stundar, sendum við samúðar- kveðjur sem og börnum þeirra og fjölskyldu. Finnur og Gunnhildur. Okkar heittelskaði besti perlu- vinur er farinn, örugglega að hitta Freddie Mercury. Hann var ekki bara besti vinur okkar, heldur einnig besti ferðafélagi okkar ásamt Hafdísi vinkonu. Taíland á fílsbaki 50 ára, tónleikar með Moody Blues í London, frumskóg- arferð um Mexíkó, Krít og Santor- ini, aftur til London og til Taílands á milli flóðbylgna, Tyrklands, í Miðjarðarhafssiglingu og til Spán- ar 60 ára, og nú síðast í Vatnsholt, 65 ára ferð, sem við erum þakklát að hafa verið með í. Frábæru sumarbústaðaþorra- ferðirnar okkar, bæði með Finni og Gunnhildi og Einari og Ragn- heiði. Fengum við nafnið Sviðnir vangar eftir drengileg úrslit. Þetta var flottur hópur og hvernig sem það má nú vera þá var alltaf hægt að toppa síðustu ferð að skemmtilegheitum. Elsku Magnús, takk fyrir geggjaða, flotta geisladiskasafnið sem þið Hafdís stóðuð fyrir, fyrir hverja bústaðaferð. Þá var hlegið dátt, sungið, dansað og Finnur þandi nikkuna af sinni frábæru snilld. Magnús var mjög hagmæltur og notaði hvert tækifæri til að gera tugi vísna um viðkomandi tækifæri til að gleðja okkur og græta. Það var ógleymanleg sigling sem þið Maggarnir fóruð í, í seinni Taílandsferðinni okkar. Þið leigð- uð sportbát og áhöfn og fóruð á túnfiskveiðar og fenguð rosaflott- an afla og gáfuð skipsverjum hann. Þeir æptu „túna, túna“, svo ánægðir með hinn mikla afla sem þeim var gefinn. Maggi minn kom úr ferðinni eins og flottur karfi. Jú, það borgar sig að hafa sólar- vörnina bara í vasanum, þar gagnast hún vel. Magnús minn, þú varst alltaf svo fljótur að verða brúnn en þarna varstu náfölur í samanburði við vin þinn. Þá var mikið hlegið. Magnús og Hafdís höfðu yndi af að bjóða í gourmet-matarboð sem voru glæsileg. Hann hafði svo gaman af að útbúa veislumat. Eitt sinn er við komum í slíkt boð var tekið á móti okkur með glæsileg- um, flott fram bornum kokkteil. Magnús var mjög montinn með sig, Friðgeir kokkur á Hótel Holti hafði verið að aðstoða hann í eld- húsinu. Segir svo rígmontinn við okkur, „þið getið ekki ímyndað ykkur hvað þið fái í forrétt“. Svar- aði ég að bragði, „það er bara tvennt sem ég borða ekki og það eru ostrur og heitar ansjósur“. Forrétturinn reyndist vera hvítvínslegnar ostrur sem ég átti mjög erfitt með að kyngja. Þá sagði vinkona mín, „fáðu þér endi- lega meira hvítvín, þá verður skárra að kyngja þeim“. Magnús hafði jú farið í Kola- portið og keypt mikið af ostrum og var búinn að fylla frystinn af líka þessum fína veislumat. Við náðum að kveðja þig, elsku vinur, stuttu áður en við fórum til Spánar, sem er okkur ómetanlegt. Elsku Hafdís vinkona og fjöl- skylda, við erum hjá ykkur í hjarta okkar. Takk fyrir allt og allt, elsku vin- ur. Þínir vinir, Maggi Arne og Margrét Kolbeins. Magnús Þormar Hilmarsson  Fleiri minningargreinar um Guðlaugu Stefaníu Vif- gúsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.  Fleiri minningargreinar um Magnús Þormar Hilm- arsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Móðir okkar, DÝRLEIF FINNSDÓTTIR frá Skriðuseli í Aðaldal, er látin. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund fyrir góða umönnun og hlýju. . Hallfríður Bjarnadóttir, Finnur Valdimar Bjarnason, Tryggvi Bjarnason og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, EIRÍKUR SMITH FINNBOGASON listmálari, Klukkubergi 9, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu föstudaginn 9. september. . Bryndís Sigurðardóttir, Smári Eiríksson, Tinna Smáradóttir, Brynja Jónsdóttir, Kolfinna Ósk Andradóttir, Jón Axel Björnsson, Birna Lísa Jensdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.