Morgunblaðið - 12.09.2016, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.09.2016, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2016 Saltkaup ehf | Cuxhavengata 1 | 220 Hafnarfjörður Sími 560 4300 | www.saltkaup.is | saltkaup@saltkaup.is Jólin nálgast, ekki falla á tíma Kíktu á heimasíðunawww.saltkaup.is Auglýstu fyrirtækið á ódýran hátt ... Áprentaðir burðarpokar fyrir fyrirtæki Hafðu samband við sölumann fyrir frekari upplýsingar Vegna mikillar sölu vantar okkur fasteignir á höfuðborgarsvæðinu, á söluskrá. Ef þú ert í söluhugleiðingum, endilega hafðu samband sem fyrst, í síma 5334200 eða : arsalir@arsalir.is Ef þú vilt selja, kaupa eða leigja fasteign, hafðu samband í síma 533-4200 eða arsalir@arsalir.is Ágæti fasteigna eigandi ! Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali Örugg og traust þjónusta í fasteignaviðskiptum í áratugi. FRÉTTASKÝRING Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Í byrjun mánaðarins bað suður-kór- eski skipaflutningarisinn Hanjin Shipping Co. dómstóla í Bandaríkj- unum og víðar um að veita fyrirtæk- inu greiðslustöðvun. Er Hanjin stærsta skipaflutningafyrirtæki Suður-Kóreu og sjöunda stærsta gámaflutningafyrirtæki heims. Greiðslustöðvuninni er ætlað að koma í veg fyrir að lánveitendur geti tekið skip fyrirtækisins eignarnámi. Lægð á markaði Hinn 31. ágúst lýsti Hanjin yfir gjaldþroti í Seúl. Daginn áður hafði Þróunarbanki Kóreu (e. Korea Development Bank) hafnað tillögu Hanjin um uppstokkun á rekstrin- um, en bankinn hafði um langt skeið haldið fyrirtækinu á lífi með lánveit- ingum. Gjaldþrot Hanjin myndi verða stærsta gjaldþrot skipa- flutningafyrirtækis til þessa að sögn Wall Street Journal. Að því er Bloomberg greinir frá hefur rekstur Hanjin farið versnandi vegna niðursveiflu í alþjóðaviðskipt- um sem hefur orðið til þess að fram- boð á skipaflutningum er langt um- fram eftirspurn, sem síðan leitt hefur til mikillar verðlækkunar. Hafa tekjur Hanjin minnkað á með- an skuldir hafa hrannast upp. Gjaldþrot Hanjin hristi upp í skipaflutningaheiminum og hækkaði verðið á gámaflutningum töluvert þegar í ljós kom að starfsemi félags- ins myndi stöðvast. Segir WSJ að í sumum tilvikum hafi kostnaðurinn við gámaflutninga hækkað um allt að 40%. Sérfræðingar segja óljóst hvort hækkunin muni ganga til baka á næstunni. Í flota Hanjin er 141 skip og myndaðist mikill flöskuháls í flutn- ingum þegar fyrirtækið varð gjald- þrota. Hafa sum skip félagsins þurft að bíða svo dögum skiptir úti á sjó. Var þeim meinað að leggjast að upp- skipunarhöfnum þar eð fyrirtækið gat ekki borgað hafnar- og lestunar- gjöld. Dómstólar í Seúl og Banda- ríkjunum gáfu á föstudag leyfi til að greiða fyrir losun gáma úr skipum sem voru á leið til bandarískra hafna og um helgina var unnið að því að tæma fyrstu skipin. Reuters segir að í vikutíma hafi um 14 milljarða dala virði af varningi setið fast um borð í skipum Hanjin víðs vegar um heim- inn. Reynt að létta á þrýstingnum Suðurkóresk stjórnvöld sögðust á laugardag ætla að vinna með Hanjin og kröfuhöfum til að leysa úr vand- anum. Verða níu skip fengin til að sinna flutningum í Suðaustur-Asíu til að létta á þeirri truflun sem vænta má í skipaflutningum á svæðinu. Blo- omberg segir ekki hafa verið gefið upp hvaða fyrirtæki eigi skipin sem fengin verði á svæðið, en gjaldþrotið gæti truflað rekstur suður-kóreskra útflutningsfyrirtækja sem hafa reitt sig mjög á þjónustu Hanjin. Þá kemur gjaldþrot Hanjin á versta tíma enda umfang gámaflutn- inga með mesta móti í aðdraganda jóla og þarf að koma varningi til kaupenda og í hillur verslana með hraði. AFP Kippur Mynd úr safni af skipi Hanjin við bryggju í Singapúr.Verð á gámaflutningum hefur í sumum tilvikum hækk- að um 40% eftir að Hanjin bað um greiðslustöðvun. Truflun gæti orðið á sjóflutningum til og frá SA-Asíu. Byrjað að leysa úr risagjaldþroti Hanjin  14 milljarða dala virði af varningi situr fast í gámaskipum Þróunin á bandarískum hlutabréfa- markaði var allt annað en jákvæð á föstudag. Dow Jones-vísitalan lækk- aði um nærri 400 stig eða 2,1%, S&P 500 lækkaði um 2,5% og Nasdaq- vísitalan um 2,5%. Er þetta mesta lækkun á einum degi síðan 24. júní þegar stóru bandarísku vísitölurnar þrjár lækkuðu um 3,4%, 3,6% og 4,1%. Yfir vikuna nam lækkunin 2,2% fyrir Dow Jones, 2,4% fyrir S&P 500 og 2,4% í tilviki Nasdaq. Að sögn FT hefur Dow Jones-vísitalan ekki lækkað svona mikið á einni viku síð- an í janúar, og leita þarf sjö mánuði aftur í tímann til að finna viðlíka vikulækkun hjá S&P 500. Að sögn markaðsfréttavefsins MarketWatch áttu ummæli Eric Rosengren, stjórnanda seðlabank- ans í Boston, sinn þátt í lækkuninni. Rosengren á sæti í vaxtaákvörðun- arnefnd seðlabanka Bandaríkjanna, en hann lét hafa eftir sér á föstudag að vegna jákvæðrar þróunar í bandaríska hagkerfinu kynni bank- inn að hækka stýrivexti á ný. Í lok dags bentu markaðsgrein- endur meðal annars á að hlutabréfa- markaðurinn eigi það til að vera óró- legur þegar hlutabréfaverð er í hæstu hæðum eins og nú, og geti hvers kyns slæmar fréttir, eins og ummæli Rosengren, framkallað stærri söluhrinu en tilefni til. Asísk áhrif í London Breska FTSE 100 vísitalan lækk- aði sömuleiðis á föstudag, og lauk deginum 1,2% lægri. Lækkunin yfir vikuna nam 1,7% sem er mesta viku- lækkun síðan í maí. Þótti þróunin á breska markaðinum á föstudag með- al annars litast af kjarnorkuvopnatil- raun Norður-Kóreu, lítilli verðbólgu í Kína og þeirri ákvörðun seðlabanka Evrópu á fimmtudag að bíða með frekari aðgerðir til að örva hagkerfi álfunnar. ai@mbl.is Neikvæð þróun á hluta- bréfamörkuðum vestanhafs AFP Skjálfti Fjárfestar vestanhafs virð- ast órólegir vegna stýrivaxtamála. Bandaríska neytendaverndarstofan (e. Consumer Financial Protection Bureau, CFPB) hefur sektað bank- ann Wells Fargo um samtals 190 milljónir dala. Er þetta hæsta sekt sem stofnunin hefur lagt á nokkurt fyrirtæki frá því hún var sett á lagg- irnar árið 2011. Sektin jafngildir tæplega 22 millj- örðum króna sem er þó innan við 1% af hagnaði bankans á síðasta ári. Óumbeðnir reikningar Komst CFPB að þeirri niðurstöðu að bankinn hefði gerst sekur um ýmiss konar óleyfilega starfshætti. Gerðust starfsmenn Wells Fargo þannig uppvísir að því að opna um tvær milljónir nýrra banka- og greiðslukortareikninga fyrir við- skiptavini bankans án þeirra vit- undar. Með þessu tókst starfs- mönnum að fullnægja sölu- markmiðum Wells Fargo en bankinn gat rukkað viðskiptavini um ýmsar þóknanir vegna reikning- anna. Þegar upp komst um málið var um 5.300 starfsmönum bankans sagt upp störfum. Berkshire Hathaway, fjárfest- ingafyrirtæki Warren Buffett, er í hópi stærstu hluthafa Wells Fargo með nærri 10% eignarhlut. Sjálfur á Buffett persónulega um 100 millj- óna dala virði af hlutabréfum bank- ans að sögn CNN. Er markaðsvirði Wells Fargo nú um 250 milljarðar dala sem gerir bankann þann verð- mætasta í Bandaríkjunum. Fréttir af sektinni urðu til þess að hlutabréf Wells Fargo lækkuðu um 2,4% á föstudag. Var það í takt við lækkun S&P 500 sem þykir benda til að fjárfestar hafi ekki miklar áhyggjur af sektinni. ai@mbl.is AFP Dropi Sektin er há en aðeins lítið brot af hagnaði Wells Fargo. Wells Fargo gert að greiða metsekt  Stofnuðu óum- beðna reikninga Lars Løkke Rasmussen, for- sætisráðherra Danmerkur, hvetur leiðtoga Evrópusam- bandsríkjanna til að tryggja að útganga Bret- lands úr ESB veiti landinu ekki samkeppnisforskot á þau aðild- arríki sem eftir sitja. Í viðtali við Bloomberg segir Rasmussen að Evrópusambandið „verði að gæta þess mjög að sá aðili sem er á för- um fái ekki sérstakt samkeppn- isforskot á leið sinni út“. Ráðherrann sagði alla sem að málinu koma vilja að útganga Breta færi friðsamlega fram „en þegar við föllumst á að leiðir muni skilja – og í þessu tilviki er það að- eins annar aðilinn sem vill fara – þá þurfum við fyrst af öllu að gæta okkar eigin hagsmuna“. Bætti Rasmussen við að mark- miðið ætti að vera að halda innri markaði ESB óbreyttum og að við- halda eins nánu sambandi milli Bretlands og ESB og völ væri á. Útganga Bretlands verður með- al umræðuefna á fundi leiðtoga ESB-ríkjanna sem fram fer í Brat- islava næsta laugardag. Verður fundurinn sá fyrsti síðan 1973 þar sem Bretland mun ekki eiga full- trúa. ai@mbl.is Bretar fái ekki forskot með útgöngu Lars Løkke Rasmussen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.