Morgunblaðið - 12.09.2016, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 12.09.2016, Blaðsíða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2016 Leiðtogi Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, var afslappaður áður en fyrstu tölur komu úr prófkjörinu í Suðvesturkjördæmi og tók mynd af sér með öðrum frambjóðendum. Árni Sæberg Um árabil hefur al- mannatryggingakerfið verið til endurskoð- unar. Á síðasta kjör- tímabili í nefnd undir formennsku Árna Gunnarssonar og á þessu kjörtímabili í nefnd undir for- mennsku Péturs heit- ins Blöndal og síðar Þorsteins Sæmunds- sonar. Í nefndunum áttu sæti fulltrúar stjórnmálaflokka, vinnu- markaðarins og hagsmunaaðila, þar á meðal Landssambands eldri borgara. Í nefndarstarfinu hefur náðst bærileg samstaða um umbætur í lífeyrismálum eldri borgara sem endurspeglast í frumvarpi sem Eygló Harðardóttir Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur lagt fram og mælt fyrir á Alþingi. Meðal þeirra sem ályktað hafa um frumvarpið er Öldrunarráð Ís- lands sem segir: „Öldrunarráð fagnar framkomnu frumvarpi um breytingu á almannatryggingum. Í frumvarpinu felast mikilvægar breytingar í auknum réttindum eldra fólks og sjálfsákvörð- unarrétti eldra fólks, einkum þeg- ar kemur að starfs- lokum. Öldrunarráð hvetur Alþingi til að vinnu við frumvarpið ljúki á þessu þingi og það verði að lögum.“ Samstarfsnefnd um málefni aldraðra sem hefur einnig fjallað um frumvarpið, hvet- ur til lögfestingar þess og segir eftirfar- andi atriði vega þyngst: · Lífeyriskerfi al- mannatrygginga er einfaldað til muna með því að sameina grunnlíf- eyri, tekjutryggingu og fram- færsluuppbót í einn ellilífeyri. · Bundinn er endir á að skerð- ingar geti verið 100% sem nefnt hefur verið króna á móti krónu. Þess í stað er lagt til að skerð- ingar verði aldrei meiri en 45% hvort sem um er að ræða lífeyr- issjóðstekjur, atvinnutekjur eða fjármagnstekjur og að einstakling- urinn haldi alltaf eftir 55% af tekjum sínum.  Valkostum aldraðra er fjölgað og sveigjanleiki aukinn. Annars vegar er lagt til að einstaklingar geti hafið lífeyristöku frá 65 ára aldri eða frestað lífeyristöku til 80 ára aldurs. Hins vegar að ein- staklingur geti verið í hlutastarfi og tekið hlutalífeyri. Báðar þessar breytingar gefa fólki nýja mögu- leika til að skipuleggja líf sitt.  Tillögurnar miða að því að samræma réttindakerfi almennra lífeyrissjóða og almannatrygginga en það er mikilvægt til að hver einstaklingur geti með einföldum hætti notið réttinda sinna í báðum kerfum.  Lífeyrisaldur verði hækkaður í skrefum frá 67 ára aldri til 70 ára aldurs á 24 árum en slík breyting er í takt við hærri lífaldur og betra heilsufar landsmanna. Einstakir hópar kunna þó á sértækum úr- ræðum að halda til dæmis vegna slits eða erfiðisvinnu. Í umsögn um frumvarpið sem Landssambands eldri borgara sendi Velferðarráðuneytinu 29. júlí sl. segir m.a. að það hafi jafnan tekið þátt í því endurskoð- unarstarfi á almannatryggingum sem fram hafi farið. Sérstaklega er minnt á bókun Landssambands eldri borgara með skýrslu Péturs- nefndarinnar í mars 2016 en þar segir m.a.:  Landssamband eldri borgara tekur heilshugar undir það mark- mið endurskoðunarinnar að fækka bótaflokkum, einfalda kerfi al- mannatrygginga og gera það skilj- anlegra fyrir notendur.  Við í Landssambandinu hefð- um viljað sjá lægri skerðing- arprósentu en 45% og höfum lagt fram tillögu um það og vitnað til þess að í nágrannlöndum okkar er skerðing vegna annarra tekna ým- ist engin sbr. atvinnutekjur lífeyr- isþega hjá Norðmönnum, eða 30% eftir frítekjumark atvinnutekna, eins og hjá Dönum. Við leggjum til að með batnandi efnahag landsins verði unnið að því að lækka skerðingarákvæði á líf- eyrisgreiðslum í áföngum á næstu árum. Tillögurnar gera einnig ráð fyrir að hækka lífeyristökualdur í 70 ár á 24 árum og það höfum við samþykkt. Jafnframt að starfs- aldur og lífeyristaka verði sveigj- anlegri m.a. að hægt verði að taka 50% lífeyri og stunda 50% vinnu. Þá taki hinn geymdi lífeyrir hækk- un mánaðarlega samkvæmt trygg- ingafræðilegu mati, allt að 80 ára aldri lífeyrisþegans. Einnig hefur því verið beint til samtaka op- inberra starfsmanna og stjórn- valda að hækka starfsaldur op- inberra starfsmanna í 75 ár. Landssamband eldri borgara væntir þess að við umfjöllun um frumvarpið muni Velferðarnefnd Alþingis skoða sérstaklega hvernig mögulegt sé að bæta kjör þeirra sem eiga lakan eða engan lífeyr- isrétt og hvort ekki sé réttlátt að innleiða frítekjumark til að bæta hag eldri borgara. Nýlega lét Óli Björn Kárason varaþingmaður og fulltrúi fjár- málaráðuneytisins í Pétursnefnd- inni þau orð falla í blaðagrein að „enginn þingmaður getur vikið sér undan því að ganga hreint til verks og afgreiða breytingar á lög- um um almannatryggingar áður en efnt er til kosninga“. Það eru orð að sönnu og Landsamband eldri borgara leggur höfuðáherslu á að það frumvarp sem nú hefur verið lagt fram um breytingar á lögum um almannatryggingar verði lög- fest á því alþingi sem nú starfar og það taki gildi 1. janúar 2017, enda endurspeglast í frumvarpinu umræða síðustu ára um aðkallandi framfarir í lífeyrismálum eldri borgara. Eftir Hauk Ingi- bergsson »Enginn þingmaður getur vikist undan því að ganga hreint til verks og afgreiða breyt- ingar á lögum um al- mannatryggingar áður en efnt er til kosninga. Haukur Ingibergsson Höfundur er formaður Lands- sambands eldri borgara. Uppfærum lífeyriskerfi eldri borgara 1.1. 2017

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.