Morgunblaðið - 12.09.2016, Blaðsíða 29
29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2016
RIFF | ALÞJÓÐLEG KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK | 2016
Ásdís Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
Kafað er ofan í ýmis áhugaverð mál-
efni í heimildarmyndunum fimmtán
sem sýndar verða á RIFF (Reykjavík
International Film Festival) sem
stendur yfir dagana 29. september til
9. október.
Myndirnar koma víða að úr heim-
inum og eru oftar en ekki um skrítna
afkima þjóðfélagsins.
Tiny: Líf Erin Blackwell (Tiny:
The Life of Erin Blackwell) er banda-
rísk heimildarmynd Martins Bell,
hins kunna leikstjóra og Íslands-
vinar. Í myndinni er fylgst með lífs-
hlaupi Erin „Tiny“ Blackwell í þrjátíu
ár. Fyrri mynd hans um Tiny,
Streetwise, var tilnefnd til Ósk-
arsverðlauna. Bell var kvæntur Mary
Ellen Mark, ljósmyndaranum heims-
fræga sem einnig myndaði Tiny, en
hún lést á síðasta ári. Bell hefur kvik-
myndað hérlendis og gerði myndina
Alexander um íslenskt barn.
Bræður (Brothers) frá Noregi í
leikstjórn Aslaugar Holm fjallar um
syni leikstjórans. Þar kvikmyndar
hún bræður á átta ára tímabili og er
niðurstaðan óvenju ljóðræn mynd.
Hún hræðist ekki að sýna hvernig
nærvera myndavélarinnar flækir fjöl-
skyldulífið. Myndin hefur hlotið verð-
laun sem besta heimildarmyndin á
Hot Dogs-heimildarmyndahátíðinni í
Kanada og fyrir bestu leikstjórn á
Amanda-verðlaununum í Noregi.
Bobby Sands: 66 dagar (Bobby
Sands: 66 days) er írsk-ensk heimild-
armynd um hungurverkfall írska lýð-
veldissinnans Bobby Sands árið 1981.
Hann lést eftir 66 daga hungurverk-
fall og olli straumhvörfum í sambandi
Bretlands og Írlands. Leikstjóri
myndarinnar, Brendan Byrne, hefur
hlotið fjölda verðlauna fyrir myndir
sínar á tuttugu ára ferli.
Pöddur (Bugs) eftir Andreas John-
sen er dönsk heimildarmynd sem
fjallar um skordýr sem fæðu. Sam-
einuðu þjóðirnar telja að æt skordýr
gætu verið lausn á hungursneyð en í
dag eru tveir milljarðar manna sem
neyta skordýra. Fylgst er með rækt-
un, eldamennsku og smökkun á skor-
dýrum víða um heim. Leikstjórinn er
þekktur fyrir myndir eins og Kidd
Life, A Kind of Paradise, og Murder,
Ai Weiwei - The Fake Case.
Uppklapp (Cheer Up) er finnsk-
kanadísk heimildarmynd eftir
Christy Garland. Þar er fylgst með
lífi táningsstúlkna í klappstýruliði
sem virðist alltaf lenda í neðsta sæti.
Myndin sýnir innri átök í lífi þessara
ungu kvenna. Myndin er þriðja mynd
leikstjórans en hún fékk mikið lof
gagnrýnenda fyrir mynd sína The
Bastard Sings the Sweetest Song.
Kafað í óvissuna (Diving into the
Unknown) er finnsk-norsk heimild-
armynd eftir Juan Reina. Segir þar af
ótrúlegri og ólöglegri svaðilför að
sækja lík finnskra kafara sem
drukknuðu árið 2014. Myndin er saga
um skilyrðislausan vinskap. Myndin
er fyrsta heimildarmynd leikstjórans
í fullri lengd.
Búðu til þitt eigið land (DIY Co-
untry) er frönsk-ensk heimildarmynd
um átökin á Krímskaga. Í tvö ár
fylgdist leikstjórinn Antony Butts
með byltingu og segir frá einfeldn-
ingslegri von uppreisnarmanna í upp-
hafi, til haturs og innbyrðis deilna.
Leikstjórinn er enskur heimild-
armyndagerðarmaður og vídeó-
fréttamaður. Hann var tökumaður
myndarinnar Pussy Riot: A Punk
Prayer sem tilnefnd var til Óskars-
verðlauna og vann Amnesty Int-
ernational-verðlaun.
Einn, tveir, þrír (One, two, three)
er heimildarmynd frá Armeníu eftir
Arman Yeritsyan. Í myndinni er tek-
in fyrir einangrun eldra fólks í höfuð-
borginni Yerevan. Fylgst er með
konu einni sem reynir að hjálpa ein-
mana eldra fólki og er stofnaður
danshópur sem samanstendur af
eldri mönnum og konum frá súpueld-
húsi í nágrenninu. Leikstjórinn, Yer-
itsyan, hefur leikstýrt fjölda auglýs-
inga og verðlauna-heimildarmynda,
þar á meðal Under the Open Sky,
The Last Tightrope Dancer in Ar-
menia og Hello Felini.
Lúxusbensín (Gasoline Deluxe)
nefnist þýsk heimildarmynd eftir Je-
remy JP Fekete, Marco Wilms og
Tuan Lam. Fjallar myndin um
skemmtikraftinn og tónlistarmann-
inn Freidrich Liechtenstein sem leit-
ar hamingjunnar á bensínstöðvum og
keyrir hann þvert yfir Evrópu í leit
að sérstökum og fallegum bens-
ínstöðvum. Fólkið sem verður á vegi
hans er einnig viðfangsefni mynd-
arinnar.
Herra Gaga (Mr. Gaga) er sam-
starfsverkefni nokkurra landa en
leikstjórinn, Tomer Heyman, er ísr-
aelskur. Myndin fjallar um ísraelskan
nútímadansara, danshöfund og list-
rænan stjórnanda danshóps, Ohad
Naharin. Hann er upphafsmaður hins
framsækna hreyfingartungumáls
Gaga sem er sívaxandi afl meðal
dansara og annarra. Heyman er einn
af þekktustu heimildarmyndaleik-
stjórum heims og hafa myndir hans
verið sýndar víða og unnið til fjölda
verðlauna.
Myndin mín um Vísindakirkjuna,
(My Scientology Movie) er þýsk-
bandarísk heimildarmynd eftir John
Dower. Myndin er afhjúpandi, fyndin
og fjarstæðukennd en svívirðilegir at-
burðir eru skoðaðir. Þetta er sjöunda
heimildarmynd Dower í fullri lengd.
Hann hefur verið tilnefndur til
BAFTA-verðlauna fyrir heimilda-
myndina A Year in Yellow.
Reif í Íran (Raving Iran) er sviss-
nesk mynd leikstjórans Susanne
Regina Meures. Teknóneðanjarð-
arsenan í Tehran er umfjöllunarefni
myndarinnar en þar er fylgst með
þeim Anoosh og Arash sem skipu-
leggja brjálað reif. Þeir enda í Sviss á
stórri teknóhátíð og verða þar að
gera upp við sig hvort sé mikilvæg-
ara, fjölskylda og vinir heimafyrir eða
tónlist, listræn tjáning og frelsi.
Myndin er fyrsta mynd leikstjórans í
fullri lengd.
Kynlífshofið (Sextemplet) er
finnsk-sænsk heimildarmynd sænska
leikstjórans Johan Palmgren. Þar er í
brennidepli kynlífsleikhús í Norrköp-
ing sem íbúar bæjarins eru ekki sátt-
ir við. Leikstjórinn hefur komið að
gerð tuttugu heimildarmynda fyrir
ýmsar norrænar sjónvarpsstöðvar.
Loforðið (The Promise, Das Ve-
sprechen) eftir Marcus Vetter. Þar er
fjallað um múra heims, sem aðskilja
manneskjur, og er fólk skoðað í nær-
mynd báðum megin við múrana.
Hatur (White Rage) er finnsk
mynd eftir leikstjórann Arto Halo-
nen. Þar er fjallað um fórnarlömb
eineltis og áfallastreituröskunar.
Myndir Halonen hafa hlotið fjölda al-
þjóðlegra viðurkenninga.
Pödduát, kynlífsleikhús og
klappstýrur í Finnlandi
15 nýjar heimildarmyndir á RIFF Umfjöllunarefnin fjölbreytt og áhugaverð
Lífshlaup Bandaríski heimildarmyndagerðarmaðurinn Martin Bell fylgdist með lífshlaupi Tiny í þrjátíu ár. Myndin
Tiny: Líf Erin Blackwell er önnur mynd Bell um hana en fyrri myndin, Streetwise, var tilnefnd til Óskarsverðlauna.
Gríma The Sex Temple segir frá
kynlífsleikhúsi í Norrköping.
EIÐURINN 5:40, 8, 10:20
KUBO 2D ÍSL.TAL 6
WAR DOGS 8, 10:25
HELL OR HIGH WATER 8
LEYNILÍF GÆLUDÝRA 2D ÍSL.TAL 5:50
JASON BOURNE 10:10
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til kl. 16 mánudaginn
19. september
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
Heimili & hönnun
fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 23. sept
Húsgögn og innréttingar, skrautmunir og fylgihlutir fyrir
heimilið, litir og lýsing ásamt mörgu öðru sem prýða má
heimilin með.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Atvinnublað
alla laugardaga
Sendu pöntun á augl@mbl.is eða
hafðu samband í síma 569-1100
Allar auglýsingar birtast bæði í
Mogganum og ámbl.is
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN
ÞÍN Á BESTA STAÐ?