Morgunblaðið - 12.09.2016, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2016
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AFSLÁTTUR
25%
KOMDU NÚNA!
TEMPUR-DAGAR
TEMPUR® HYBRID HEILSUDÝNAN
Frumlegasta hönnun TEMPUR til þessa!
QUICKREFRESH™ ÁKLÆÐI
Rennilás gerir það afar einfalt er að taka
QuickRefresh áklæðið af dýnunni og þvo.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Umhverfis- og auðlindaráðherra hef-
ur ákveðið að leyft verði að veiða
rjúpur í tólf daga í haust. Þeir
skiptast á fjórar
helgar, þrjá daga
hverja helgi, frá
28. október n.k. til
20. nóvember.
Leyfileg heildar-
veiði er 40.000
rjúpur. Sölubann
gildir áfram.
Veiðimenn eru
hvattir til að veiða
ekki nema 5-6
fugla hver.
Verndarsvæði rjúpna verður áfram á
Suðvesturlandi. Ákvörðun ráðherra
er í samræmi við ráðgjöf Náttúru-
fræðistofnunar Íslands (NÍ) frá 6.
september sl.
Umhverfisstofnun (UST) sendi
ráðuneytinu tillögur um fyrirkomu-
lag rjúpnaveiða 7. september sl. UST
mælti m.a. með því að veiðifyrir-
komulag rjúpu yrði ótímabundið.
Varpstofn rjúpu færi ekki undir
90.000 fugla. Færi stofninn undir þau
mörk yrðu veiðar ekki heimilaðar
fyrr en metinn varpstofn mældist yf-
ir 100.000 fuglum. Þá vildi UST að
leyft yrði að veiða í 18 daga eða um
sex þriggja daga helgar, þ.e. tvær
síðustu helgarnar í október og fjórar
í nóvember.
Dúa J. Landmark, formanni Skot-
veiðifélags Íslands (Skotvís), finnst
að NÍ hafi seilst inn á verksvið Um-
hverfisstofnunar varðandi ráðlegg-
ingar um veiðistjórnun. „Okkur hefði
þótt eðlilegt að ráðherra tæki mark á
tillögum frá stofnun sem heyrir undir
hennar ráðuneyti og fer með veiði-
stjórnunarhlutverkið,“ sagði Dúi.
„Það virðist að ráðherrann líti svo á
að það sé meira að marka tillögur
sem koma frá Náttúrufræðistofnun
en frá Umhverfisstofnun og vinnu-
hópi UST sem m.a. Skotvís og Fugla-
vernd sátu í. Við í Skotvís erum ekki
sátt við þessi vinnubrögð og finnst að
þau þarfnist endurskoðunar.“
Dúi sagði að í ljós hefði komið að
UST og NÍ notuðust ekki við sömu
viðmið um hvað væru sjálfbærar
veiðar. „Það þykir okkur mjög sér-
kennilegt,“ sagði Dúi.
UST skipaði vinnuhóp í mars 2016
til að leggja á ráðin um fyrirkomulag
rjúpnaveiða í framtíðinni. Auk UST
var NÍ, Skotvís og Fuglavernd boðið
í hópinn sem mótaði tillögur um fyr-
irkomulag rjúpnaveiða. Dúi sagði að
fjölgun veiðidaga úr 12 í 18 hefði ekki
aukið veiðiálag á rjúpuna.
„Sölubannið sem sett var á rjúpur
gerði að verkum að magn- og at-
vinnuveiðar hurfu. Tölur hjá UST
sýna að það skiptir ekki máli fyrir
veiðiálag hvort það er leyft að veiða í
69 daga, eins og einu sinni var, eða í 9
daga. Sportveiðimenn fara ekkert
oftar til veiða. Þeir veiða í 3-4 daga og
ná í þær rjúpur sem þeir þurfa fyrir
sig,“ sagði Dúi.
Hann sagði að hefðu menn úr fleiri
dögum að velja væri síður farið á fjöll
í tvísýnni veðurspá. Einnig minnkaði
það álag á veiðislóð þegar veiðarnar
dreifðust á fleiri daga. Fáir veiðidag-
ar ykju álag á fuglinn og rýrðu gæði
þeirrar náttúruupplifunar að ganga
til rjúpna.
Ráðherra hunsaði ráð UST
Umhverfisstofnun ráðlagði rjúpnaveiðar í 18 daga að höfðu samráði við Skotvís,
Náttúrufræðistofnun og Fuglavernd Formaður Skotvís ósáttur við 12 veiðidaga
Dúi J.
Landmark
Morgunblaðið/Golli
Rjúpnaveiðar Þúsundir íslenskra veiðimanna ganga til rjúpna á hverju
hausti, þegar leyft er að veiða. Flestir fara 3-4 daga til rjúpna.
Kristján Johannessen
khj@mbl.is
„Það skapast alltaf vandræði þeg-
ar loka þarf götum. Og fólk er
margt ósátt við þetta,“ segir Árni
Friðleifsson, varðstjóri hjá
umferðardeild lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu, og vísar til
þeirra miklu lokana sem beindust
gegn akandi umferð í Reykjavík
á meðan hjólreiðaviðburðurinn
Tour of Reykjavík stóð yfir í
gær.
Var m.a. lokað fyrir umferð á
gömlu Hringbraut, Sæbraut,
Kringlumýrarbraut, Suðurlands-
braut, Réttarholtsvegi, Bústaða-
vegi, Lækjargötu og Tryggva-
götu.
„Þetta voru náttúrulega mjög
umfangsmiklar lokanir og í raun
er verið að skera bæinn algerlega
í tvennt. Fólk komst því illa um
og þá sérstaklega í miðbænum,“
segir Árni og bendir á að lok-
anirnar hafi staðið yfir frá klukk-
an 8 til 13. „Við munum funda
með skipuleggjendum og fara yf-
ir þetta. Með betra skipulagi
hefði t.a.m. verið hægt að opna
miðbæinn miklu fyrr.“
„Hefði mátt fara betur“
Anna Lilja Sigurðardóttir er
upplýsingafulltrúi Íþróttabanda-
lags Reykjavíkur, sem hélt utan
um viðburðinn. Hún segir hjól-
reiðafólk hafa verið ánægt með
uppátækið, en um 700 manns
tóku þátt. „Það hefur verið mikil
gleði hérna,“ segir Anna Lilja.
Spurð hvort hún hafi orðið vör
við óánægju með lokanir svarar
hún: „Við höfum heyrt óánægju-
raddir með lokanirnar. Það var
s.s. við því að búast, en það er
margt sem hefði mátt gera betur
í þeim efnum. Þetta er í fyrsta
sinn sem við höldum viðburðinn
og þó að við höfum reynslu af
viðburðahaldi er þessi að mörgu
leyti öðruvísi. Það skal alveg við-
urkennast að þetta hefði mátt
fara betur.“
Þrír hjólreiðamenn voru fluttir
á sjúkrahús eftir að hafa slasast í
keppninni, en einn þeirra hlaut
talsvert höfuðhögg þegar hann
féll af hjóli sínu við Nesjavelli.
Margir ósáttir við lokanir
Helstu götum Reykjavíkur lokað vegna hjólreiða
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reiðhjólafólk Um 700 manns tóku þátt í viðburðinum Tour of Reykjavík og á lokasprettinum var hart tekist á.
Engir fundir
voru í kjaradeilu
Félags grunn-
skólakennara og
sveitarfélaganna
um helgina. Ólaf-
ur Loftsson, for-
maður Félags
grunnskólakenn-
ara, sagði ólíklegt
að viðræður yrðu
alveg á næstunni.
„Nú þurfum við að setjast niður
og hugsa allt upp á nýtt,“ sagði Ólaf-
ur. Hann taldi líklegt að sú vinna
stæði næstu 2-3 vikurnar að minnsta
kosti.
Grunnskólakennarar hafa ekki
ákveðið neinar aðgerðir til að þrýsta
á viðsemjendur sína. Ólafur sagði að
ef gripið yrði til slíkra aðgerða
þyrftu þær að eiga sér langan að-
draganda. „Það þyrfti heilmargt að
gerast áður en gripið yrði til að-
gerða. Við erum ekkert komin þang-
að,“ sagði Ólafur. Sem kunnugt er
hafa grunnskólakennarar nýverið
fellt kjarasamning í tvígang, síðast
5. september sl. gudni@mbl.is
Kennarar
ráða ráð-
um sínum
Ólafur
Loftsson
Ekki fundað með
grunnskólakennurum
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
„Ég held að húsið sé algjörlega búið
að sanna sig,“ segir Ármann Kr.
Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs-
bæjar, eftir tvenna vel heppnaða
tónleika Justins Bieber í Kórnum í
Kópavogi. „Allt skipulag gekk mjög
vel upp. Við lokuðum fullmikið fyrri
daginn og breyttum skipulaginu í
framhaldinu. Fífuhvammsveginum
var haldið opnum þá, þannig að
seinni daginn náðum við að leysa
þessar stíflur sem mynduðust fyrri
daginn.
Fólk streymdi í strætisvagnana
mjög kerfisbundið. Fyrri daginn var
búið að tæma húsið á 13 mínútum.
Síðasti maður í strætó var kominn
upp í einni klukkustund og sex mín-
útum eftir að tónleikunum lauk.
Þetta gekk líka allt upp tæknilega
séð. Skiptingin á gólfinu í svæði er
vel heppnuð. Loftræstikerfið virkar
frábærlega. Við vorum búin að átta
okkur á því á Timberlake-tónleikun-
um. Þetta er öflugt kerfi, það er aldr-
ei heitt þarna. Við erum ánægð,“
segir Ármann.
Ánægja í Kópavog-
inum með tónleikana
Skipulagið í kringum Bieber gekk upp
Morgunblaðið/Ófeigur
Bieber Ekkert vesen í Kórnum.