Morgunblaðið - 12.09.2016, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2016
VALENCIA
8. október í 4 nætur
Netverð á mann frá kr. 57.950 m.v. 2 fullorðna í
herbergi.
Holiday
Inn
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
irá
sk
ilja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
Frá kr.
57.950
m/morgunmat
Helgarferð til
ÁÐUR KR.
79.900
NÚ KR.
39.950FL
UG
SÆ
TIFY
RI
R2 1
áflugsæti
m/gistingu
Anna Lilja Þórisdóttir
Jón Birgir Eiríksson
Nú liggur fyrir hverjir muni skipa
efstu sætin á 31 framboðslista víða
um land fyrir alþingiskosningarnar
í haust og er ýmist um að ræða
niðurstöður prófkjara eða annars
konar val á lista. Samkvæmt því
munu konur leiða níu lista og karlar
22. Af þeim níu
listum sem konur
munu leiða eru
átta lagðir fram í
Reykjavíkur-
kjördæmunum
tveimur.
21 kona og tíu
karlar eru í öðru
sæti á framboðs-
lista, tíu konur og
20 karlar eru í 3.
sæti, en á einum
listanum hefur einungis verið skip-
að í tvö efstu sætin.
Niðurstöður prófkjara Sjálf-
stæðisflokksins í Suður- og Suðvest-
urkjördæmi lágu fyrir á laugardag
og einnig niðurstaða í flokksvali
Samfylkingar í Reykjavík, Suð-
vestur- og Norðvesturkjördæmi.
Dræm kosning þingkvenna
Talsverða athygli vakti um
helgina hversu fáar konur verma
efstu sæti á listum sjálfstæðis-
manna í þessum tveimur kjör-
dæmum, en efsta konan í Suð-
vesturkjördæmi varð Bryndís
Haraldsdóttir í fimmta sæti og í
Suðurkjördæmi varð Ragnheiður
Elín Árnadóttir, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, hlutskörpust
kvenna. Hún endaði í fjórða sæti og
tilkynnti í kjölfarið að hún hygðist
hætta þátttöku í stjórnmálum.
Aðrar sitjandi þingkonur fengu
dræma kosningu. Unnur Brá Kon-
ráðsdóttir endaði í fimmta sæti eftir
að hafa sóst eftir öðru sæti og Elín
Hirst náði ekki einu af sex efstu
sætunum í Suðvesturkjördæmi, en
hún sóttist eftir öðru til þriðja sæti.
Valgerður Gunnarsdóttir, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokks í Norðaustur-
kjördæmi, féll niður um sæti eftir
að kosið var á kjördæmaþingi
flokksins þar um þarsíðustu helgi.
Sóttist hún eftir öðru sæti en endaði
í því þriðja.
Landssamband sjálfstæðiskvenna
og Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna í
Reykjavík, hafa ályktað um listana
og gagnrýnt þá fyrir að þar séu fáar
konur í efstu sætum. Krafa er uppi
um að þeir verði endurskoðaðir.
Í flokksvali Samfylkingarinnar í
Norðvesturkjördæmi endaði Ólína
Þorvarðardóttir, þingmaður flokks-
ins, í þriðja sæti, en hún sóttist eftir
forystusæti. Ákvað hún að hafna
sætinu og segja skilið við stjórn-
málin. Valgerður Bjarnadóttir,
þingmaður flokksins, endaði í fjórða
sæti en sóttist eftir fyrsta eða öðru
sæti.
Ekki jafnræði í dómi kjósenda
Stefanía Óskarsdóttir stjórnmála-
fræðingur segir að mögulega hafi
það haft áhrif að dómur kjósenda sé
misjafn í afstöðu sinni til karla og
kvenna. Umræðan sé þó ekki ný af
nálinni hvað Sjálfstæðisflokkinn
varðar.
„Það má benda á að niðurstöður
rannsókna á ýmsum sviðum þjóð-
félagsins sýna að önnur viðmið eru
notuð um konur en karla um
frammistöðu og hæfni og að karlar
hafi ágætis forskot á konur,“ segir
hún en bætir við að frambjóðendur
þurfi að hafa fyrir því að ná í at-
kvæði og vekja athygli á sér á kjör-
tímabilinu.
„Einhverjir benda á að það sé
erfiðara fyrir konur að komast að í
fjölmiðlum en karla. Ragnheiður El-
ín er ráðherra og hefur því verið
talsvert í fjölmiðlum. Unnur Brá er
formaður nefndar og sem slíkur bar
svolítið á henni líka,“ segir Stefanía.
Erfitt geti verið að vera almennur
þingmaður í stjórnarmeirihluta og
að frambjóðendum hafi tekist mis-
vel að mynda sér sérstöðu á kjör-
tímabilinu.
„Það er erfitt að fara fram með
mál til að vekja athygli á sér sem
einstaklingur. Maður er að bakka
upp meirihlutann,“ segir hún.
Spurð hvort líklegt sé að list-
unum verði breytt til að tryggja
jafnt kynjahlutfall segir Stefanía að
það geti reynst flókið mál, vand-
meðfarið sé að breyta listunum
afturvirkt.
Fullmótaðir listar á næstunni
Framboðslistar Pírata í öllum
kjördæmunum sex liggja nú fyrir
og er það eini flokkurinn sem hefur
birt alla lista. Prófkjör Sjálfstæðis-
flokksins hefur verið haldið í öllum
kjördæmum en eingöngu liggur fyr-
ir hverjir munu skipa efstu sætin,
einn listi Framsóknarflokksins hef-
ur verið birtur og fyrir liggur hverj-
ir verða í efstu sætunum í tveimur
kjördæmum til viðbótar,
Vinstri græn hafa birt tvo fram-
boðslista og í dag verða tillögur
uppstillingarnefndar að listum VG í
Reykjavíkurkjördæmunum lagðar
fyrir félagsfund. Dögun hefur til-
kynnt um skipan í fimm efstu sætin
í báðum Reykjavíkurkjördæm-
unum, efstu sætin á listum Samfylk-
ingar liggja fyrir í fimm kjör-
dæmum, Björt framtíð hefur kynnt
sex efstu frambjóðendur í öllum
kjördæmum og Viðreisn hefur til-
kynnt þrjú efstu sætin í einu kjör-
dæmi og mun í dag kynna fullskip-
aða lista í öllum kjördæmum.
Fáar konur í efstu sætum
Ein kona leiðir lista utan Reykjavíkurkjördæmanna Reyndum þingkonum
var hafnað um helgina Segir verk karla og kvenna metin á mismunandi hátt
Hlutfall kvenna í 1. sæti þeirra lista sem nú eru komnir fram
Karlar og konur sem leiða þá fram-
boðslista sem nú eru komnir fram:
100
80
60
40
20
0
33%
17%
50%
20%
0%
50%
33%
0%
Stefanía
Óskarsdóttir
„Ég held að það
sé orðið þannig
hjá okkur að
þessi kynjakvóti,
hann er farinn að
bitna frekar á
konum. Það þarf
að færa þær til
þannig að ég
held að hann hafi
skilað þeim ár-
angri sem ætlað
var,“ segir Valgerður Bjarnadóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar.
Hún skipaði 2. sætið á lista Sam-
fylkingarinnar í Reykjavíkur-
kjördæmi norður í síðustu kosning-
um, sóttist eftir 1. sæti núna en
hafnaði í fimmta eftir flokksvalið á
laugardaginn. „Ef ég á að komast á
þing þá er mjög á brattann að
sækja,“ segir hún. Össur Skarphéð-
insson hlaut 1. sætið í flokksvalinu í
Reykjavík og Árni Páll Árnason var
í 1. sæti í flokksvalinu í Suðvest-
urkjördæmi.
Kynjakvóti er farinn
að bitna á konum
Valgerður
Bjarnadóttir
„Mér sýnist á
öllu að það sé
kannski að
koma að ein-
hverju uppgjöri,
ég átta mig ekki
alveg á því,“
segir Sigrún
Magnúsdóttir,
umhverfis- og
auð-
lindaráðherra,
og vísar í máli sínu til þeirrar
stöðu sem nú er uppi meðal for-
ystu Framsóknarflokksins. Hún
segir núverandi formann og vara-
formann flokksins báða vera
„stórkostlega menn“.
Uppgjör virðist í
uppsiglingu
Sigrún
Magnúsdóttir
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Ágúst Beaumont, ritari Pírata á
Vesturlandi, sem átti sæti í kjör-
dæmisráði Norðvesturkjördæmis,
segist hafa mistúlkað orð Birgittu
Jónsdóttur í símtali þeirra, en hann
sagði Birgittu hafa reynt að hafa
áhrif á uppröðun á lista flokksins í
Norðvesturkjördæmi.
Þetta var niðurstaða fundar sem
Ágúst átti við Birgittu á laugardag
en Ágúst mun þó draga sig út úr
stjórnmálunum að svo stöddu.
Spurður hvers vegna hann hafi
ákveðið að draga sig í hlé segist
hann þurfa á hvíld að halda og
hyggjast einbeita sér að sveitar-
stjórnarmálum í heimabyggð sinni,
Borgarbyggð.
Hann stendur þó við gagnrýni
sína á kosningastjóra Pírata, Jó-
hann Kristjánsson, sem hann segir
ekki fylgja gildum Pírata.
„Persónulega finnst mér hann
vera vanhæfur sem kosningastjóri
fyrir Pírata vegna þess að hann
verður að vera með þessi gildi okk-
ar á lofti þótt hann sé að vinna að
kosningabaráttu,“ segir Ágúst.
Hyggst skrá sig úr flokknum
Hafsteinn Sverrisson, fyrrver-
andi varaformaður Pírata í Norð-
vesturkjördæmi, sem varð í þriðja
sæti í prófkjörinu í kjördæminu,
heldur sig við frásögn sína af
ónefndu forystufólki í flokknum
auk Birgittu. Hann hefur sagt sig
frá trúnaðarstörfum í flokknum og
hyggst skrá sig úr honum.
Hafsteinn fékk símtal frá ónefnd-
um varamanni í framkvæmdaráði
Pírata en sjálfur vill hann þó ekki
nafngreina þá sem stóðu að því að
koma Gunnari Ingiberg Guðmunds-
syni, fyrrverandi gjaldkera Pírata,
ofar á listann.
„Það sem er sagt við mig í símtali
er: „Hafsteinn minn, ert þú tilbúinn
að víkja úr þriðja sæti til að koma
Gunnari Ingiberg ofar?“ segir Haf-
steinn. „Við erum búin að eiga
miklar umræður um þetta. Við
reyndum eins og við gátum að fá þá
sem báru ábyrgð á þessari fram-
kvæmd að stíga fram og bera
ábyrgð á sínum gjörðum. Það koma
bara útúrsnúningar, falsheit og
lygar. Ég hef síðan verið sakaður
um rógburð,“ segir hann.
Meinaður aðgangur að samráði
Hafsteinn segir að stuttu eftir
fund Ágústs og Birgittu í fyrradag
hafi honum verið meinaður að-
gangur að lokuðum hópi Pírata á
Facebook, „Samráði Pírata“, án
þess að skýringar fylgdu.
Lilja Magnúsdóttir, sem sat í
kjördæmisráði Pírata í Norðvestur-
kjördæmi, sendi tilkynningu til fjöl-
miðla fyrir helgi, þar sem hún sak-
aði Birgittu Jónsdóttur um að hafa
hvatt frambjóðendur í efstu sætum
lista kjördæmisins til að víkja úr
sætum sínum. Hún hefði síðar beitt
sér fyrir því að listanum yrði hafn-
að þegar hann var borinn upp til
samþykktar á landsvísu.
Mistúlkaði samtal við Birgittu
Heldur til streitu gagnrýni á kosningastjóra Pírata
Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og innanríkisráðherra,
segir niðurstöðuna vonbrigði fyrir konur. Útkoman sé þó ekki lýsandi fyr-
ir öll kjördæmi Sjálfstæðisflokksins. Hún sagðist ekki útiloka að blönduð
leið uppstillingar og prófkjörs gæti orðið raunin í framtíðinni.
„Það á alls ekki að líta svo á að prófkjör séu hin eina rétta leið, ég er
alls ekki sammála því. Þau hafa ótvíræða kosti, sérstaklega þegar um er
að ræða oddvitaslag eða slag um sæti, en í öðrum tilvikum hafa þau mjög
skýra galla,“ sagði hún.
Ólöf sagði að kjördæmin réðu því hvernig gengið væri frá framboðs-
listum. Nú væri það verkefni næst á dagskrá. Ólöf kvaðst telja mikilvægt
að framboðslistar Sjálfstæðisflokksins endurspegluðu þá miklu breidd
sem væri í flokknum, konur og karla, unga og aldna og fólk með ólíka
reynslu. Það hlyti að vera leiðarljósið.
Listar endurspegli breiddina
ÓLÖF NORDAL, VARAFORMAÐUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Alþingiskosningar 2016
Sveinbjörn
Eyjólfsson,
forstöðumaður
nautastöðvar
Bændasamtaka
Íslands, gefur
kost á sér til emb-
ættis formanns
Framsókn-
arflokksins, en
sitjandi formaður
er Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi
forsætisráðherra. Formannskjör fer
fram á flokksþingi Framsóknar sem
boðað er dagana 1.-2. október.
Fari annar öflugur einstaklingur
fram gegn sitjandi formanni segist
Sveinbjörn ætla að draga sig í hlé.
Býður sig fram gegn
sitjandi formanni
Sveinbjörn
Eyjólfsson