Morgunblaðið - 12.09.2016, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2016
Farþegar sem héldu til Rómar á
þriðjudaginn með flugfélaginu
WOW air þurftu að búa við fata-
skort í dágóðan tíma vegna þess að
ferðatöskur skiluðu sér ekki á
áfangastað. Mistök á tveimur flug-
völlum urðu til þess að sumir hafa
eytt hálfu fríinu í sömu fötunum.
Mbl.is hafði samband við farþega
sem var einn af þeim síðustu sem
fengu töskurnar afhentar. Hann
sótti þær á flugvöllinn í gær, fjórum
dögum eftir brottför. Hann fer aft-
ur til Íslands á morgun. Farþeginn
sagði að 40 töskur hefðu ekki kom-
ist á leiðarenda. Síðan hefðu far-
þegar fengið þær upplýsingar
nokkrum dögum síðar að 32 töskur
hefðu komist til Rómar, en átta
töskur orðið eftir. Hann segir flug-
félagið ekkert frumkvæði hafa haft
að því að upplýsa farþega.
Svanhvít Friðriksdóttir, upplýs-
ingafulltrúi WOW air, sagði að
ástæða þessa væri mistök á Kefla-
víkurflugvelli og flugvellinum í
Genf í Sviss, en þangað var farið
með töskurnar frá Íslandi.
Töskurnar
skiluðu sér
seint
Í sömu fötunum í
Róm í marga daga
WOW Farþegar félagsins í Róm
biðu lengi eftir ferðatöskum sínum.
Hæstiréttur hefur fallist á kröfu
eigenda lands Reykjahlíðar í Mý-
vatnssveit um að dómkvaddir verði
matsmenn til að meta jarðhitasvæði
þeirra og jarðhitaréttindi Lands-
virkjunar og ríkisins við Kröflu og
Bjarnarflag.
Ríkið keypti fyrir mörgum árum
jarðhitaréttindi við Bjarnarflag og
á Kröflusvæðinu og seldi þau
seinna til Landsvirkjunar. Landeig-
endur Reykjahlíðar eiga jarðhita-
réttindi utan við afmarkað svæði
Landsvirkjunar og vilja nýta það
eða fá greiðslur fyrir nýtingu þess.
Þeir telja að jarðhitageymirinn sé
sameiginlegur og vilja fá mat á það
hvort réttindi þeirra verði aðskilin
frá réttindum Landsvirkjunar. Sé
það ekki hægt, eins og þeir telja lík-
legast, eigi að meta hvernig hag-
kvæmast sé að hagnýta réttindin og
hver réttur hvers og eins þá væri.
Hagkvæmni nýtingar metin
Hluti landeigenda Reykjahlíðar
óskaði eftir tilnefningu dóm-
kvaddra matsmanna, eins og þeir
töldu sig eiga rétt á samkvæmt
samningum og landslögum.
Héraðsdómur Norðurlands úr-
skurðaði að matið mætti fara fram
að hluta. Kröfurnar voru þær að ef
ekki væri hægt að aðskilja nýt-
inguna yrði metið hvernig hag-
kvæmast væri að hagnýta jarð-
hitaréttindin og hver væri
hlutfallslegur réttur sérhvers eig-
anda jarðhitaréttindanna. Héraðs-
dómur heimilaði ekki að spurningin
um hagkvæmni hagnýtingarinnar
yrði lögð fyrir matsmennina en
Hæstiréttur taldi rétt að leggja all-
ar spurningarnar fyrir. Hæstirétt-
ur vísaði til ákvæða laga um að við
ágreining um nýtingu auðlindar
skuli afla mats um hvernig hag-
kvæmast væri að nýta hana og hver
væri hlutfallslegur réttur hvers og
eins.
Þessu til stuðnings vísaði Hæsti-
réttur til þess að hlutfallslegur rétt-
ur hvers og eins yrði ekki metinn
nema fyrir lægi hvernig hagkvæm-
ast væri að nýta réttindin.
helgi@mbl.is
Fá mat á jarðhitaréttinum á Kröflusvæðinu
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Bjarnarflag Ríkið keypti jarð-
hitaréttindin og seldi Landsvirkjun.
Landeigendur vildu láta meta hvort réttindi þeirra verði aðskilin frá réttindum Landsvirkjunar
Sigurður Ingi Jó-
hannsson for-
sætisráðherra
hélt af stað í gær í
opinbera heim-
sókn til Dan-
merkur í boði
Lars Løkke
Rasmussen for-
sætisráðherra
Danmerkur.
Forsætisráð-
herra mun í heimsókninni eiga fundi
með Rasmussen og eiga einkasamtal
við Margréti Danadrottningu ásamt
því að funda með þingforseta danska
þingsins.
Jafnframt mun forsætisráðherra
heimsækja Kaupmannahafnarhá-
skóla, Árnasafn og Jónshús og hitta
Íslendinga búsetta í Danmörku.
Heimsókninni lýkur miðvikudag-
inn, 13. september.
Forsætisráð-
herra til
Danmerkur
Sigurður Ingi
Jóhannsson