Morgunblaðið - 12.09.2016, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2016
Tækni í þína þágu
hitataekni.is
Bjóðum upp á fjölbreyttan
búnað svo sem loftræsingar,
hitakerfi, kælikerfi, rakakerfi
sem og stjórnbúnað
og stýringar.
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 - hitataekni@hitataekni.is
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Agnes stjórnar hér í skúrn-um og hún átti upptökinað þessu öllu saman. Húnvakti upp gamla drauga,
okkur Guðna,“ segir Svavar Sveins-
son og hlær þar sem hann situr við
spunarokk í bílskúr í Reykholti í
Biskupstungum. Skúrinn sá er í eigu
Guðna Lýðssonar, hins draugsins,
en hann situr við vefstól. Í skúrnum
með þeim eru tvær konur, sveit-
ungar þeirra, Eva Hillströms sem
spinnur þráð á hollenskan rokk og
Agnes Geirdal sem kembir ull.
Agnes gengst við því að hafa komið
handverkinu í bílskúrnum á lagg-
irnar, en allt var það ætlað til eins
dags, þegar hin árlega sveitahátíð
Tvær úr Tungunum var haldin í
Reykholti í sumar.
„Ég frétti af spunarokkinum
inni í stofu hjá Svavari og fékk að
skoða hann. Hann reyndist aðeins
laskaður og ég manaði Svavar til að
laga hann. Hann tók strax til við að
gera við hann og ég rak á eftir hon-
um, sagði að hann yrði að klára þetta
fyrir hátíðina. Svavar sagði mér að
Guðni ætti gamlan vefstól sundur-
tekinn í bílskúrnum hjá sér og ég fór
þess á leit við Guðna að hann kæmi
vefstólnum í stand, sem hann tók vel
í. Við náðum markmiðinu, að klára
viðgerðir fyrir hátíðina og sýna hér í
skúrnum hvernig unnið var á þessa
gripi í gamla daga,“ segir Agnes og
bætir við að uppátækið hafi vakið
mikla lukku. Og nú geti þau ekki
hætt, þau hittist öll fjögur í skúrnum
einu sinni í viku og kembi, spinni og
vefi.
Var til heimilisnota
Svavar er fæddur og uppalinn á
bænum Drumboddsstöðum og segist
hafa haldið spunarokkinum eftir
þegar þar var tekið til einhverju
sinni. Hann man vel eftir rokkinum
frá bernskudögum sínum.
„Ég vann töluvert á þennan
rokk þegar ég var unglingur, fyrir
meira en hálfri öld, en hann er smíð-
aður árið 1951 af Sigurjóni sem bjó á
bænum Forsæti í Villingaholts-
hreppi. Þetta er listasmíð og gripur-
inn hefur dugað vel. Foreldrar mínir
keyptu hann fyrst og fremst til
Vitum ekki hvar
þetta ævintýri endar
Þau segjast ekki geta hætt, það sé svo gaman að kemba, spinna og vefa, já og segja
sögur. Þau hafa dregið fram gömul verkfæri, spunarokk, vefstól, kamba og venju-
legan rokk og stunda nú hið forna handverk þar sem þau hittast einu sinni í viku
í bílskúr hjá öðrum draugnum sem vakinn var upp fyrir sveitahátíð í sumar. Góð-
ir draugar verða ekki svo glatt kveðnir niður, sem betur fer.
Ofið Þetta nuddast ef maður situr við, segir Guðni um þolinmæðisverkið.
Stúss Svavar lagaði spunarokkinn til gagns, hér skiptir hann um kefli.
Í þessari viku hefst ellefu vikna nám-
skeið í kvikmyndagerð og vídeólist í
Hinu húsinu sem ætlað er ungu fólki
á aldrinum 16 til 25 ára. Námskeiðið
hefst á miðvikudaginn 14. september.
Fyrirtækið Teenage Wasteland heldur
námskeiðið, en það hefur aðstöðu
bæði í Los Angeles og í Reykjavík.
Markmið þess er að bjóða upp á
heimspekilegan vettvang sem vekur
andagift fyrir ungt fólk þar sem það
getur komið sköpun sinni á fram-
færði til að tjá áhugamál sín, drauma,
ást, ótta og martraðir á jákvæðan og
öruggan hátt. Nánari upplýsingar
fást hjá hitthusid@hitthusid.is og í
síma 411 5500. Vert er að taka fram
að frístundakort er nýtanlegt fyrir
þetta námskeið.
Vefsíðan www.teenagewastelandofthearts.com
Skjáskot Úr myndbandi Yrsu Óskar um reglur um kossa.
Kvikmyndanámskeið fyrir 16-25
ára í Hinu húsinu hefst í vikunni
Línudansinn heldur velli, enda hefur
hann verið kenndur hér á landi í rúm
tuttugu ár. Nú er lag fyrir þá sem
langar að tileinka sér þennan hóp-
dans, því nú ætlar dansglaða starfs-
fólkið hjá Dans og jóga, sem er til
húsa í Valsheimilinu við Hlíðarenda,
að fara af stað með byrjenda-
námskeið í línudansi og hefst það á
morgun, þriðjudag, 13. september.
Námskeiðið stendur í 14 vikur, mætt
er einu sinni í viku og dansað í 50
mínútur. Einnig er boðið upp á nám-
skeið fyrir lengra komna en þeir geta
valið um að dansa fislétta dansa,
léttari dansa eða erfiðari dansa. Og
að sjálfsögðu eru öðru hverju haldin
skemmtileg böll. Línudans er góð lík-
amsrækt, frábær skemmtun og það
besta er að það er engin þörf á dans-
félaga. Nánari upplýsingar á vefsíð-
unni www.dansogjoga.is.
Endilega …
…skellið ykkur
í línudansinn
Morgunblaðið/Jim Smart
Flottar Þessar konur sýndu línudans á Menningarnótt árið 2005 á Ingólfstorgi.
Tónleikaröðin „Frjáls eins og fuglinn“
fer af stað í Fella- og Hólakirkju
næstkomandi miðvikudagskvöld, 14.
september, og verður áfram í allan
vetur. Þær sem verða með fyrstu
tónleikana nú á miðvikudag kl. 20 eru
þær Arnhildur Valgarðsdóttir píanó-
leikari og Særún Harðardóttir sópr-
an. Þær ætla að vera jafn frjálsar og
fuglinn í lagavali og bjóða upp á
ýmsilegt frá klassík yfir í dægurlög.
Má þar nefna söngperlur eftir Emil
Thoroddsen, Sigfús Halldórsson,
Oddgeir Kristjánsson, Friðrik Jóns-
son og Megas. Einnig ætla þær að
koma við í söngleikjunum Mary Popp-
ins og My fair lady svo eitthvað sé
nefnt.
Vert er að taka fram að enginn posi
er við inngang og því nauðsynlegt að
taka með sér seðla fyrir aðgangseyri.
Allir velkomnir til að eiga notalega
stund í kirkjunni og kaffi og konfekt
verður í lok tónleika.
Særún syngur Megas, Sigfús, Oddgeir og Mary Poppins
Frjálsar eins og fuglinn flytja
þær lög úr ýmsum áttum
Lagaval Sópran og píanóleikari Særún og Arnhildur fara sínar eigin leiðir.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Gersemar Móðir Svavars óf græna teppið en móðir Guðna óf hvíta teppið.