Morgunblaðið - 12.09.2016, Side 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2016
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is HEYRNARSTÖ‹IN
Enn snjallara heyrnartæki
Beltone Legend
Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.
Beltone Legend gengur með iPhone 6s og eldri gerðum, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
™
Ókeypis
heyrnarmælingsíðan 2004
Vöruhús veitingamannsins
allt á einum stað
Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | Sími 595 6200 | bakoisberg.is
Opið virka daga kl. 8.30-16.30
Bandaríkjamenn minntust í gær at-
burðanna 11. september 2001 þeg-
ar hryðjuverkamenn rændu fjórum
farþegaflugvélum og flugu þremur
þeirra á World Trade Center í New
York og Pentagon-bygginguna í
Washington. Fjórða vélin hrapaði á
engi í Shanksville í Pennsylvaníu.
Alls létu hátt í 3.000 manns lífið í
þessum voðaverkum.
Barack Obama Bandaríkjaforseti
var viðstaddur athöfnina sem fram
fór við varnarmálaráðuneytið,
Pentagon. Þar sagði hann m.a. að
fjölbreytni bandarísku þjóðarinnar
væri einn helsti styrkur landsins.
Athygli vakti að Hillary Clinton,
forsetaefni demókrata, þurfti
snemma að yfirgefa athöfnina í
New York, en hún er sögð hafa
fengið skyndilegt hitaslag. AFP
15 ár liðin
frá voða-
verkunum
Afganskar hersveitir sækja nú í átt
að sveitum talibana sem umkringt
hafa Tarinkot, höfuðborg héraðsins
Uruzgan í Afganistan. Bandarískar
orrustuflugvélar veita þeim mikla
aðstoð í formi loftárása.
Fréttaveita AFP segir frá því að
vopnaðar sveitir talibana hafi fyrir
helgi gert harða árás á Tarinkot í
þeirri von að leggja borgina undir
sig. Var m.a. hart barist við helstu
stjórnsýslubyggingar. Nokkrum
klukkustundum eftir að átökin hóf-
ust tókst öryggissveitum hins vegar
að brjóta talibana á bak aftur.
Seint í gærkvöldi hófu hersveitir
sókn í átt að talibönum og er mark-
miðið að hrekja vígamenn frá borg-
inni. „Tugir talibana eru látnir eftir
sókn hersins, lögreglu og sérsveita,“
hefur AFP eftir talsmanni héraðsins.
Þá hafa einnig 13 lögreglumenn ver-
ið drepnir og minnst 20 særst í átök-
unum við talibana, að sögn AFP.
Orrustuflugvélar Bandaríkjahers
og afganska flughersins hafa veitt
hermönnum á jörðu niðri aðstoð.
Almennir borgarar hafa sumir
þurft að flýja heimili sín vegna átak-
anna og eru margir nú án húsaskjóls.
AFP
Afganistan Hart var barist í borginni þegar talibanar gerðu þar árás.
Sótt gegn sveitum
talibana við Tarinkot
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Minnst 62 týndu lífi, þeirra á meðal
eru 13 konur og 13 börn, í loftárás
sem gerð var á borgina Idlib í
norðurhluta Sýrlands um helgina.
Fréttaveita AFP greinir frá því að
sprengjur hafi fallið víðs vegar um
borgina, m.a. á vinsælan útimarkað,
en Idlib er á valdi uppreisnarsveita.
Seint á föstudag sl. greindu utan-
ríkisráðherrar Bandaríkjanna og
Rússlands frá fyrirhuguðu vopnahléi
sem hefjast á í Sýrlandi við sólsetur í
dag. Að sögn AFP kann árásin að
hafa áhrif á afstöðu leiðtoga upp-
reisnarsveita til vopnahlésins.
Hafa litla trú á vopnahléinu
Loftárásir voru einnig gerðar á
Aleppo, stærstu borg Sýrlands, um
helgina og hafa minnst 12 almennir
borgarar fundist þar látnir.
„Við vonumst eftir vopnahléi svo
að almennir borgarar fái hvíld.
Sprengjur falla hér nótt og dag, fólk
er skotið á færi og það er setið um
borgir,“ segir Abu Abdullah, íbúi í
austurhluta Aleppo, í samtali við
AFP. „Fólk hefur misst alla trú.“
Þeir almennu borgarar sem
fréttamenn AFP ræddu við vegna
fyrirhugaðs vopnahlés eru flestir
vonlitlir um að það muni halda, en
vopnahlé milli stríðandi fylkinga í
Sýrlandi rann seinast út í sandinn í
febrúar á þessu ári.
„Sýrlenska þjóðin, hvort sem hún
býr á svæðum sem stjórnvöld ráða
yfir eða uppreisnarmenn, hefur
misst trú á báðum fylkingum,“ segir
Safwan Badawi, íbúi í austurhluta
Aleppo. Félagi hans sem einnig var
spurður álits hló að fyrirhuguðu
vopnahléi og sagði það „brandara“.
Í síðasta mánuði hófu Tyrkir um-
fangsmikinn hernað gegn Ríki ísl-
ams og vopnuðum hópum Kúrda í
Sýrlandi. Recep Tayyip Erdogan
Tyrklandsforseti segir það skyldu
sína að tryggja að vígamenn geti
ekki framkvæmt árásir í Tyrklandi.
„Það er skylda okkar gagnvart
þjóðinni að þurrka út Daesh [Ríki
íslams] í Sýrlandi og koma því á
þann stað að það geti ekki fram-
kvæmt árásir í okkar landi.“
Fjölmargir létust í loftárásum
Sprengjum var varpað á borgirnar Idlib og Aleppo í Sýrlandi Árásirnar gætu
haft neikvæð áhrif á fyrirhugað vopnahlé Almenningur í Sýrlandi virðist vonlítill
AFP
Á lífi Þessi hópur fólks komst lífs af er loftárás var gerð á Idlib um helgina.
Franska lög-
reglan hefur
handtekið 15 ára
gamlan pilt sem
sagður er hafa
skipulagt voða-
verk þar í landi.
Fréttaveita
AFP greinir frá
því að táning-
urinn hafi verið
handtekinn í
austurhluta Parísar og er hann
sagður hafa bein tengsl við ísl-
amista. Hefur hann m.a. verið í
samskiptum við öfgamann sem
tengist vígamönnunum ungu sem í
júlí sl. myrtu prest á hrottafenginn
hátt í kirkju nærri Rúðuborg.
Manuel Valls, forsætisráðherra
Frakklands, segir lögregluna nú
hafa upplýsingar um 15.000 ein-
staklinga sem sagðir eru aðhyllast
öfgastefnu í Frakklandi. Eru þeir
nokkru fleiri en talið var í fyrstu.
Þá eru nú um 700 franskir ríkis-
borgarar sem berjast við hlið víga-
manna Ríkis íslams á átakasvæðum
í Sýrlandi og Írak.
FRAKKLAND
Ungur íslamisti
tekinn höndum
Lögreglumaður
horfir yfir París.