Morgunblaðið - 27.09.2016, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 7. S E P T E M B E R 2 0 1 6
Stofnað 1913 226. tölublað 104. árgangur
ÓTRÚLEG
LEIKNI Í LEIK,
SÖNG OG DANSI
FRUMKVÖÐLAR
Í MH
SÉRSTAKT
ANDRÚMSLOFT
Á TÓNLEIKUM
BÚA TIL TÖSKUR ÚR BÍLBELTUM 12 HOLLYWOOD BOWL 30BLÁI HNÖTTURINN 33
Formanns-
kjör í Fram-
sóknar-
flokknum fer
fram á flokks-
þingi í Há-
skólabíói
næsta sunnu-
dag. Þótt meiri-
hluti þingflokks
Framsóknarflokksins sé sagður
styðja Sigurð Inga Jóhannsson í
formennsku eru viðmælendur úr
röðum framsóknarmanna á því að
mjótt geti orðið á munum í kjöri
milli hans og Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar.
Um 900 framsóknarmenn eiga
seturétt á þinginu en ekki liggur
fyrir hversu margir þeirra munu
mæta til þingsins, sem stendur á
laugardag og sunnudag.
Staða frambjóðendanna í mis-
munandi kjördæmum er óljós en
Sigmundur Davíð er sagður njóta
yfirburðastuðnings í Norðaustur-
kjördæmi og Sigurður Ingi sömu-
leiðis í Suðurkjördæmi. Staða
Gunnars Braga í Norðvesturkjör-
dæmi er sögð hafa veikst. »4
Spenna í Framsókn-
arflokknum vegna
formannskjörs
Þrjú samverk-
andi atriði urðu
þess valdandi að
sjór komst í
sanddæluskipið
Perlu í Reykja-
víkurhöfn hinn
2. nóvember í
fyrra, með þeim
afleiðingum að
skipið sökk á
skömmum tíma.
Blöndunarloki var opinn og
sjór streymdi inn í lest skipsins.
Þá var opið niður í botntank und-
ir lest vegna viðgerða á tank-
þilfari. Loks var mannop í rými í
framskipi niður í sama botntank
opið.
Við þessar aðstæður fylltist
ekki einungis lestin heldur allt
framskipið af sjó og það sökk eft-
ir sjósetningu. » 6
Loki var opinn og
sjór streymdi inn
Perla sokkin
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Áætla má að nokkur þúsund er-
lendir ferðamenn fari í skipulagðar
norðurljósaferðir hér á landi á degi
hverjum, en fjöldi ferðaskrifstofa
og ferðaskipuleggjenda býður upp
á slíkar ferðir. Úrval ferðanna er
býsna fjölbreytt, t.d. er hægt að
skoða norðurljósin í jeppaferð, frá
hafi, af hálendinu, úr heitri laug
eða sameina norðurljósaskoðun og
heimsókn á veitingastað.
Talsmenn tveggja ferðaskrif-
stofa sem rætt er við í Morgun-
blaðinu í dag segja að talsvert sé
um að erlendir ferðamenn komi
hingað í þeim tilgangi einum að sjá
norðurljósin. Norðurljósaferðir eru
helst skipulagðar á tímabilinu októ-
ber til mars vegna birtuskilyrð-
anna, en undanfarið hefur norður-
ljósasýn verið með eindæmum góð
og farið hefur verið í þessar ferðir
síðan í ágúst.
Veðurstofa Íslands spáir fyrir um
virkni norðurljósa á grundvelli veð-
urs, skýjafars og styrks truflana á
segulsviði jarðar, en í kvöld og ann-
að kvöld er spáð talsverðri virkni
ljósanna. »10
Þúsundir á dag í norðurljósaskoðun
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Ljósin heilla marga Norðurljósaferðir eru afar vinsælar hjá erlendum
ferðamönnum og þær eru helst skipulagðar á tímabilinu október til mars.
Ljósadýrð er spáð næstu daga Norðurljósin eru oft ástæða Íslandsferðar
Í aðgerðaáætlun fyrir Vestfirði
er m.a. lagt til að miðstöð fisk-
eldis verði staðsett á Vestfjörðum.
„Sú þekking sem verður til í
kringum nýja atvinnugrein eins
og fiskeldið á að vera þar sem
þungamiðjan er,“ segir Pétur G.
Markan, sveitarstjóri í Súðavík og
formaður Fjórðungssambands
Vestfirðinga, um þessa tillögu.
Hann kveðst telja auðveldara
og raunhæfara til að styrkja
byggðirnar að staðsetja nýjar
stofnanir úti á landi í stað þess að
flytja þangað rótgrónar ríkis-
stofnanir. Pétur segir samgöngur
vera afar mikilvægar, ekki síst
fyrir þá uppbyggingu sem sé fyrir
dyrum. » 18
Nýjar frekar en rót-
grónar ríkisstofnanir
Sjávarútvegssýning verður opnuð í Laugardals-
höll á morgun. Stórir og smáir sýningargripir
streymdu inn í Höllina í gær, en um helgina voru
þyngstu hlutirnir fluttir inn í sýningarhallirnar
tvær. Uppsetning var í fullum gangi í gær og
veltu starfsmenn Curio í Hafnarfirði vöngum
yfir því hvernig best væri að standa að málum.
Um 25 manns starfa hjá fyrirtækinu og fram-
leiðir það vinnslutæki fyrir sjávarútveginn.
Morgunblaðið/Eggert
Undirbúa sjávarútvegssýningu í Laugardalshöll
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Gera má ráð fyrir að Íslendingar eyði
um hálfum milljarði í miðakaup á jóla-
tónleika í ár. Um 25 jólatónleikar hafa
þegar verið auglýstir fyrir komandi
aðventu. Stærstir þeirra eru Jólatón-
leikar Baggalúts, Jólagestir Björg-
vins og Jól með Sissel. Um 28.000
manns munu sækja þá þrenna og má
áætla að miðasala af þeim nemi um
250 milljónum króna.
Jólatónleikahaldið hefur undið upp
á sig undanfarin ár að sögn Ísleifs
Þórhallssonar hjá Senu. Hann er
samt ekki á því að sprengja sé í tón-
leikahaldi í ár; magnið sé svipað og í
fyrra.
Tilkoma tónleikhússins Hörpu hef-
ur líklega þó nokkuð mikið að segja
um fjölda jólatónleika að sögn Ísleifs.
„Bara að Harpa sé til staðar ýtir und-
ir framboðið, þessi fína aðstaða og
flottu salir ýta listamönnum út í að
halda tónleika.“ Ísleifur segir að hann
sjái ekki fyrir sér að jólatónleika-
markaðurinn breytist mikið úr þessu.
„Ég held að markaðurinn eins og
hann er núna sé sterkur. Það eru fleiri
og fleiri að taka þátt í þessu og flest er
að ganga ágætlega. Það verður aldrei
uppselt á allt en það þarf ekki að vera
uppselt til að hlutirnir gangi og endar
nái saman. Fólk er líka hrifið af því að
hafa þetta úrval.“
Viðmælendur Morgunblaðsins
voru sammála um að góð aðsókn á
jólatónleika tengdist sterkum hefðum
Íslendinga á aðventunni.
500 milljónir í jólatónleika
Mikið framboð af jólatónleikum á aðventunni Hátt í þrjátíu þúsund manns
sækja þrenna stærstu tónleikana Fólk hrifið af úrvalinu Sterkur markaður
Jólatónleikar
» Harpa er vinsælust, haldnir
tólf jólatónleikar í desember.
» Stærstu tónleikarnir í ár eru
Baggalútur, Sissel Kyrkjebø og
Jólagestir Björgvins Halldórs-
sonar.
» Baggalútur heldur sautján
tónleika í stóra sal Háskólabíós.
MTónlist kemur okkur í jóla... »14