Fréttablaðið - 10.11.2016, Blaðsíða 2
Veður
Hæg sunnanátt og úrkomulítið í dag, en
hvessir og fer að rigna vestan til seinni
partinn. Hiti 1 til 6 stig. sjá síðu 46
Með barnavagninn í þingsal
SKÍÐI
22. des. í 7 nætur
Netverð á mann frá kr.129.295 m.v. 2 fullorðna og
2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr.149.395
m.v. 2 fullorðna í herbergi.
Skihotel
Speiereck
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
Frá kr.
129.295
m/hálfu fæði
Jólaferð
Allt að
20.000 kr.
afsláttur á mann
„Mér finnst að í þessari viku þá
þurfi annaðhvort að setja af stað
einhverjar viðræður eða horfast
í augu við það að menn ná þessu
ekki saman,“ sagði Bjarni Bene-
diktsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins. Hann fundaði með þing-
flokki Sjálfstæðisflokksins í Valhöll
í gær um framgang viðræðna. Átta
dagar eru nú liðnir frá því að Bjarni
fékk stjórnarmyndunarumboð frá
forsetanum.
Frá þeim tíma hefur hann rætt við
forystumenn annarra stjórnmála-
flokka á Alþingi, án þess að til eigin-
legra viðræðna hafi komið. „Ég get
svo sem sagt að í þessum samtölum
sem ég hef átt við formenn ann-
arra flokka þá hafa línurnar verið
að skýrast. En það er eftir sem áður
staðan að það er ekki alveg auðsótt
að mynda ríkisstjórn,“ segir hann.
Hann segist aldrei hafa útilokað
þann möguleika að hann næði
ekki að mynda stjórn. „Ég hef alltaf
sagt að þetta væri krefjandi. Ég hef
bundið vonir við þann tón sem
hefur verið sleginn af mörgum að
menn vilji vinna með þá niðurstöðu
sem við fengum í kosningunum, að
það sé ákall um það að menn sýni
samstarfsvilja. En mér finnst menn
hafa gert fullmikið af því í næsta
orði að útiloka ýmsa valkosti. Og
það þrengir stöðuna mjög mikið,“
segir Bjarni.
Enn er möguleiki á meirihluta-
samstarfi milli Sjálfstæðisflokksins,
Viðreisnar og Bjartrar framtíðar,
með eins manns meirihluta. „Það er
auðvitað ekki bara það að sú ríkis-
stjórn væri með tæpan meirihluta
en menn verða líka að ná saman
málefnalega. Af þeim samtölum
sem hafa átt sér stað eru vissulega
margir snertifletir en alls ekki sjálf-
gefið að menn nái saman um megin-
áherslur.“
Hvorki Óttarr Proppé, formaður
Bjartrar framtíðar, né Benedikt
Jóhannesson, formaður Viðreisnar,
sögðu að fyrirhugaðir væru fundir
um stjórnarmyndunarviðræður
með þeim þegar Fréttablaðið náði
tali af þeim eftir hádegi í gær.
Engin takmörk eru fyrir því
hversu langan tíma stjórnarmynd-
unarviðræður mega taka og hefur
tímalengd þeirra verið mjög mis-
munandi. Allt frá árinu 1991 hefur
gengið nokkuð snurðulaust fyrir sig
að mynda ríkisstjórn. Allar stjórnir
frá þeim tíma hafa verið myndaðar
af tveimur stjórnmálaflokkum. Sá
möguleiki er ekki fyrir hendi núna.
jonhakon@frettabladid.is
Viðræður þurfa að
hefjast fyrir vikulok
Formaður Sjálfstæðisflokksins segir mögulegt að hann nái ekki að mynda
stjórn. Stjórnarmyndunarviðræður þurfi að hefjast fyrir vikulok. Formenn
flokka geri of mikið af því að útiloka valkosti í stjórnarmyndunarviðræðum.
Á þessari stundu er ekkert víst að Bjarni Benediktsson muni hefja stjórnarmyndunar-
viðræður. Hann segir snúið að mynda stjórn eftir kosningarnar. FréttaBlaðið/VilHelm
Mér finnst menn
hafa gert fullmikið
af því í næsta orði að útiloka
ýmsa valkosti. Og það
þrengir stöðuna mjög mikið.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins
samfélag 168 af þeim 201 sem
sóttu um hæli á Íslandi í október
voru frá Evrópu. Þar af var rúmur
helmingur frá Makedóníu og að
miklu leyti fjölskyldur. Næst-
flestir voru frá Albaníu, fjörutíu
talsins. Þá sóttu átján Georgíu-
menn um hæli. Umdeilt er hvort
Georgía tilheyri Evrópu en ef
georgískir umsækjendur eru ekki
taldir með eru evrópskir hælis-
leitendur 150.
136 hælisleitendanna eru full-
orðnir karlmenn. 23 konur sóttu
um hæli og 42 börn, þar af þrjú
sem eru fylgdarlaus.
Ekkert lát virðist vera á fjölg-
un umsækjenda. Tæplega sjö-
tíu komu til landsins í fyrstu
viku nóvembermánaðar. Fjöldi
umsókna á árinu er því kominn
yfir 800 en til samanburðar höfðu
tæplega 300 umsóknir borist á
sama tímabili á síðasta ári.
Niðurstaða fékkst í samtals 107
umsóknum í október en Útlend-
ingastofnun segist aldrei hafa
afgreitt jafn margar umsóknir
í einum mánuði. Þá voru 25
mál afgreidd með ákvörðun
um endursendingu á grund-
velli Dyflinnarreglugerðarinnar,
fjórum umsækjendum var hafnað
þar sem þeir höfðu þegar fengið
vernd annars staðar og sextán
drógu umsóknir sínar til baka.
Fjórtán málum lauk með
ákvörðun um veitingu verndar,
viðbótarverndar eða dvalarleyfis
af mannúðarástæðum. Þar af voru
fjórir umsækjenda frá Íran og
jafnmargir frá Marokkó og Níg-
eríu. – þea
Hælisleit-
endur flestir
frá Evrópu
201
sótti um hæli, þar af voru169
frá Evrópu.
Í gær var haldið nýliðanámskeið á Alþingi fyrir nýja þingmenn. Þrjátíu og einn nýr þingmaður tekur sæti á Alþingi og aldrei hafa fleiri konur
verið kjörnar á þing. Þingmenn voru meðal annars fræddir um kaup kjör og mannasiði í þingsal. Eva Pandora Baldursdóttir, þingmaður Pírata,
er einn nýliðanna sem taka sæti á Alþingi. Með Evu í för á námskeiðinu í gær var tveggja mánaða gömul dóttir hennar. FréttaBlaðið/VilHelm
sýrland Loftárás bandalags herja
Kúrda og Araba í Sýrlandi, sem nýtur
stuðnings Bandaríkjahers, felldi
að minnsta kosti tuttugu almenna
borgara í smábæ norðan við borgina
Raqqa. Borgin hefur verið kölluð
höfuðborg Daish, hryðjuverkasam-
takanna sem kenna sig við íslamskt
ríki. Frá þessu greinir BBC og hefur
eftir mannúðarsamtökum í landinu.
Á meðal þeirra sem féllu voru sex
konur og eitt barn.
John Dorrian, einn talsmanna
bandalagsins, staðfesti árásina. „Nán-
ari upplýsinga er þörf til þess að skera
úr um hvort almennir borgarar hafi
fallið í árásinni,“ sagði hann við BBC.
Annar talsmaður sagði allar fregnir
af mannfalli almennra borgara áróð-
ur runninn undan rifjum Daish. Stór-
sókn hernaðarbandalagsins stendur
nú yfir og er vonast til að ná borginni
úr höndum Daish sem fyrst. – þea
Tuttugu féllu
í loftárás
nærri Raqqa
1 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 f I m m T u d a g u r2 f r é T T I r ∙ f r é T T a b l a ð I ð
1
0
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
3
D
-A
C
8
4
1
B
3
D
-A
B
4
8
1
B
3
D
-A
A
0
C
1
B
3
D
-A
8
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
0
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K