Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.11.2016, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 10.11.2016, Qupperneq 24
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Sara McMahon sara@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Halldór Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@frettabladid.is Ég hef starfað sem kennari í grunnskóla allan minn starfsaldur. Ég er fagmaður og á að baki sex ára háskólanám ásamt fjölmörgum lengri og styttri námskeiðum. Ég hef mikinn metnað fyrir hönd grunnskólans og mér finnst mjög mikilvægt að öll börn fái vandaða, vel undirbúna kennslu sem hæfir getu og áhugasviði. Slíkt gerist ekki af sjálfu sér. Það liggur mikil fagmennska, alúð og samstarf að baki hverri vandaðri kennslustund. Svipast eftir öðrum störfum Á næstu þremur árum mun stór hópur samkennara minna fara á eftirlaun. Yngra fólkið er nú þegar að svipast eftir öðrum störfum sem eru betur launuð og njóta meiri virðingar í samfélaginu. Aðsókn í kenn- aranám hefur dregist mjög saman og aðeins hluti þess hóps sem útskrifast leggur fyrir sig kennslu. Mér líður eins og bónda sem hefur unnið af alúð á býli sínu einungis til að sjá það leggjast í eyði að starfsævinni lokinni. Skólastarf í höndum leiðbeinenda er ekki vönduð kennsla og ekki unnið af fagmennsku. Framtíð íslenskra grunnskóla verður fagleg eyðimörk innan fárra ára. Ég er sorgmædd og flestir kollegar mínir eru það líka. Og við erum öskureið. Ábyrgðin er stjórnvalda En ábyrgðin er ekki okkar. Ábyrgðin er stjórnvalda sem hafa skorið niður inn að beini og nú er ekkert lengur til að skera. Ef þú berð hag barna þinna og barnabarna fyrir brjósti ættir þú líka að vera sorg- mædd/mæddur. Deildu þessum texta ef þér er ekki sama. Láttu þessa vitneskju berast um samfélagið. Láttu í þér heyra. Samningarnir sem nú verða gerðir snúast ekki um krónur og aura til þeirra sem nú eru í kennarastarfi. Þeir snúast um sjálfsvirðingu okkar og framtíð skóla- kerfisins og framtíð barnanna okkar. Fjöregg þjóðar- innar. Hvernig skóla viltu fyrir börnin þín og barnabörn? Framtíð íslenskra grunnskóla verður fagleg eyðimörk innan fárra ára. Kristín Arnardóttir sérkennariTil leigu Austurvegur 69, Selfossi Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignasölu Lögmanna Suðurlandi. Sími: 480 2900 Allar nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 480 2900, steindor@log eða 863 2900. www.log.is Skútabraut 5, Úthlíð, Bláskógabyggð Um er að ræða snyrtilegan 52,7 fm sumarbústað með útigeymslu og stórri timburverönd með skjólveggjum.Mjög víðsýnt er frá húsinu. Húsið hefur verið töluvert endurnýjað. Tvö svefnherbergi. Eldhús og stofa er opið í eitt. Heitt vatn komið að húsi. Búið er að teikna gestahús og greiða gjöld af því. Húsið stendur á 4.456 fm leigulóð með nýjum 25 ára samningi í Úthlíð með frábæru útsýni, Hekla og Suðurland blasir við. Galtastaðir, Flóahreppi Vel staðsett, snyrtileg góð hestajörð með ágætum húsakosti. Jörðin er um 88,1 ha. og er land jarðarinnar gróið og grasgefið, þar af er ræktað land um 16,0 ha. Húsakostur er mikið endurnýjað 204,9 fm íbúðarhús á tveimur hæðum. Fimm svefnherbergi. Nýinnréttað eldhús og bað- herbergi. Nýlega innréttað stórt hesthús fyrir 25 hross og 25 trippi auk hlöðu sem nýtist sem reiðskemma. Gerði eru við húsið.Landið er afstúkað í nokkur hólf og er m.a. ágæt stóðhestagirðing. Staðsetning um klukkustundar akstur frá Reykjavík. Verð 90,0 milljónir. Um er að ræða atvinnuhúsnæði sem er í heildina 1.501,4 fm að stærð. Að innan er húsið með einum stórum sal, lagersvæði, kaffistofu og salernis aðstöðu. Í stóra salnum, sem er allur með linoleum dúk á gólfi, eru hillur og tveir afgreiðslukassar. Á bakvið húsið er stór innkeyrsluhurð inná lagerinn. Nóg er af bílastæðum og frábær staðsetning. Húsnæðið hýsti áður verslun Rúmfatalagersins. Langtímaleiga í boði. Tilboð óskast í leigu Hallgrímur Óskarsson, löggiltur fasteignasali Uppgjafartónn Uppgjafartónn virtist kominn í Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, þegar hann ræddi við fjölmiðlamenn um stöðuna í stjórnarmyndunar- viðræðunum áður en hann hitti þingflokkinn í Valhöll í gær. Segir hann að viðræður verði að hefjast fyrir vikulok ellegar verði að viðurkennast að ekki takist að mynda stjórn. Það kann því að styttast í að Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, fái boltann til sín. Hins vegar er fullkomlega óljóst hvort henni verði nokkuð betur ágengt, enda alls ekki víst að VG treysti sér í stjórn þar sem byggja þarf á trausti Pírata. Kerfiskerlingu hafnað Niðurstöður forsetakosning- anna í Bandaríkjunum virðast koma flestum í opna skjöldu. Skoðanakannanir höfðu bent til þess að Hillary Clinton hefði betur. Menn hafa velt því fyrir sér hvort niðurstaðan þýði að öfgaskoðunum, sem Trump hefur vissulega haldið á lofti, sé að vaxa fylgi. Vonandi ekki. Hin skýringin er sú að Banda- ríkjamenn séu með kosning- unni að hafna kerfiskörlum og -kerlingum. Það væri þá í takt við þróunina hér á Fróni. Þar sem nýjum og frísklegum fram- boðum vex fiskur um hrygg á kostnað gömlu kerfisflokk- anna. jonhakon@frettabladid.is Það sem er sorglegast er að banda- ríska þjóðin hefur kosið mann sem virðist hvorki hafa skap- höfn né hæfileika til að gegna forsetaemb- ættinu. Verstra martröð margra varð að veruleika í gær þegar Donald Trump var kjörinn for-seti Bandaríkjanna. Kjör hans er ekkert minna en harmleikur fyrir bandarísku þjóðina eins og hún leggur sig og alla þá sem vilja standa vörð um mannréttindi, sanngirni og mannúð í samfélögum manna víða um heim. Hvers vegna sigraði fordómafullur trúður í forseta- kosningunum vestanhafs? Við því eru ekki einföld svör en ástæður vinsælda Trumps eiga ekki síst rætur í mikl- um ójöfnuði sem hefur fengið að grafa um sig í Banda- ríkjunum. Mikill auður hefur safnast saman í borgunum á austur- og vesturströndinni meðan millistéttin hefur þurrkast út í mið- og suðurríkjum Bandaríkjanna. Stórir hópar bandarískra kjósenda eru líka búnir að fá nóg af sérfræðingum úr röðum hagfræðinga, lögfræðinga og fjölmiðlafólks úr fínum háskólum sem telja sig vita betur og telja sig fallna til að hafa vit fyrir öðrum. Í þessu sam- bandi voru nákvæmlega sömu kraftar að verki vestan- hafs og í Brexit-atkvæðagreiðslunni í Bretlandi í júní, þegar meirihluti þeirra sem greiddu atkvæði kaus Bret- land út úr Evrópusambandinu. Venjulegt fólk vildi senda skilaboð: „Við treystum ykkur ekki. Þið vitið ekki betur.“ Þetta fólk upplifir sig svikið og útundan í samfélaginu. Það treystir betur samtölum við móður sína og eigin brjóstviti en áliti sérfræðinga og dómsdagsspám þeirra. Það sem er sorglegast er að bandaríska þjóðin hefur kosið mann sem virðist hvorki hafa skaphöfn né hæfileika til að gegna forsetaembættinu. Það er líka áhyggjuefni fyrir lýðræðið að svo virðist sem menn geti komist upp með að segja tóma vitleysu svo lengi sem hún hljómar vel í eyrum kjósenda. Trump fór stöðugt með fleipur í baráttunni og afvegaleiddi fólk. Fjölmiðlar vestanhafs bera mikla ábyrgð. Frá fyrsta degi fékk Trump að vaða uppi með glannalegum yfirlýsingum og fékk þannig ókeypis útsendingartíma hjá sjónvarps- stöðvum sem eru uppteknari af áhorfstölum en því hlut- verki að segja sannar, réttar fréttir og vera varðhundar almennings í lýðræðisþjóðfélagi. Ljóst er að kjör Trumps mun hafa í för með sér stór- tækar breytingar ef hann stendur við yfirlýsingar sínar úr kosningabaráttunni. Hann er á móti fríverslunar- samningi Kyrrahafsþjóða (TPP) og vill endurskoða NAFTA, fríverslunarsamning Bandaríkjanna við Kanada og Mexíkó. Hann vill endurskoða samkomulag við Íran um kjarnorkuvopn, hefur efasemdir um samstarf Bandaríkjanna við aðildarríki Atlantshafsbandalagsins, sem hann telur ekki borga nóg til samstarfsins og hefur gefið í skyn að hann vilji nánara samband Banda- ríkjanna og Rússlands. Á sama tíma virðist þekking hans á öllum þessum málum vera yfirborðsleg, lítil eða engin. Þá hefur hann sagt að hlýnun jarðar sé blekking, fyrirbæri fundið upp af Kínverjum til að gera banda- rísk fyrirtæki minna samkeppnishæf. Þá veit enginn hvaða áhrif áform hans um múr á landamæri Banda- ríkjanna og Mexíkó og yfirlýsingar hans um brottvísun 11 milljóna ólöglegra innflytjenda frá Bandaríkjunum munu hafa. Að þessu sögðu er raunveruleg ástæða til að hafa áhyggjur. Sigur trúðsins 1 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U D A G U r24 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð I ð SKOÐUN 1 0 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 0 8 0 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 3 D -C A 2 4 1 B 3 D -C 8 E 8 1 B 3 D -C 7 A C 1 B 3 D -C 6 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 8 0 s _ 9 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.