Fréttablaðið - 10.11.2016, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 10.11.2016, Blaðsíða 26
Allt frá stofnun lýðveldisins árið 1944 hefur staðið til að fram færi heildarendur- skoðun stjórnarskrár Íslands. Frá þeim tíma hafa ýmsar veigamiklar breytingar verið gerðar, einkum á kosninga- og kjördæmaskipan, deildaskipan og störfum þingsins, svo og ákvæðum um grundvallar- réttindi. Enn hefur þó ekki orðið af þeirri endurskoðun sem óum- deilanlega var heitið við lýðveldis- stofnunina. Metnaðarfyllsta tilraunin til heildarendurskoðunar er án efa setning laga um Stjórnlagaþing árið 2010 og tillögur Stjórnlagaráðs sem kynntar voru á þeim grunni sumarið 2011. Frumvarp til nýrrar stjórnarskrár sem lagt var fram á grundvelli tillagna Stjórnlagaráðs haustið 2012 náði hins vegar ekki fram að ganga, sem kunnugt er. Þá leiddi vinna stjórnarskrárnefndar sem skipuð var síðla hausts 2013 og skipuð var fulltrúum tilnefndum af öllum þingflokkum ekki heldur til breytinga. Ekki þarf að orðlengja mikil- vægi þess að um stjórnarskrá lýð- veldisins ríki víðtæk sátt. Hávær krafa hefur um nokkurt skeið verið um heildarendurskoðun og í ráð- gefandi þjóðaratkvæðagreiðslu haustið 2012 samþykktu 64,2% þeirra sem greiddu atkvæði að til- lögur Stjórnlagaráðs yrðu lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá. Þrátt fyrir þetta verður ekki fram hjá því litið að umræða síðustu missera hefur einkennst af togstreitu milli þeirra sem telja að leggja eigi tillögur Stjórnlagaráðs til grundvallar, meira eða minna óbreyttar, og þeirra sem virðast vilja sem allra minnstar eða jafnvel engar breytingar. Við þessar aðstæður leggjum við eftirfarandi til: 1. Að Alþingi samþykki lang- tímaáætlun, t.d. 12 ár, um heildarendurskoðun stjórnar- skrárinnar, helst einróma, þar sem vísað væri til helstu efnis- legu forsendna endurskoðunar, svo sem frumvarps Stjórnlaga- ráðs og reynslunnar af gildandi reglum. 2. Að í ályktun Alþingis sé kveðið á um stofnun a.m.k. 30 manna Stjórnarskrárráðs sem í væri valið af handahófi (þó þannig að gætt væri að jöfnum hlutföllum kynja og kjördæma) úr hópi þeirra Íslendinga sem gæfu kost á sér til þessara starfa. Gera ætti ráð fyrir því að ráðið kæmi til fundar a.m.k. einu sinni á ári og skipun í ráðið væri tímabundin. 3. Að í ályktun Alþingis sé kveð- ið á um skipun stjórnarskrár- nefndar sem í eiga sæti a.m.k. fimm sérfræðingar á sviði stjórnlaga, stjórnmálafræði og/eða stjórnmálaheimspeki. Hlutverk nefndarinnar ætti að vera að undirbúa tillögur, eftir atvikum með aðstoð annarra sérfræðinga og/eða vinnuhópa, sem lagðar yrðu fyrir Stjórnar- skrárráð til nánari umfjöllunar, samþykktar, synjunar eða breytinga. Stjórnarskrárráð gæti einnig lagt fyrir nefndina að vinna tillögur um ákveðin efni eða sett henni markmið. Með því fyrirkomulagi sem hér er gerð tillaga um væri ekki haggað við reglum gildandi stjórnskipunar um breytingar á stjórnarskránni. Eftir sem áður væri það því í höndum ráð- herra og þingmanna að leggja fram formleg frumvörp til stjórnskipunar- laga fyrir Alþingi sem hefði, ásamt þjóðinni, lokaorðið um breytingar. Með þessu væri hins vegar orðinn til sjálfstæður ferill og nýtt samtal um heildarendurskoðun, með aðkomu almennings studds af sérfræðingum, sem gæti rofið núverandi þrátefli og varðað veginn til sáttar. Vegvísir að heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar Ágúst Þór Árnason sat í stjórnlaga- nefnd 2010-2011 Skúli Magnússon sat í stjórnlaga- nefnd 2010-2011 Viðræður um myndun næstu ríkisstjórnar eru hafnar. Það mun verða ljóst af málefna- samningnum, hvort komandi ríkis- stjórn endurspeglar væntingar um nýtt Ísland eða hvort verður um að ræða áframhald þess gamla. Allt frá hruni og fram að umliðnum kosn- ingum hefur þjóðin verið innbyrðis klofin. Til að sætta þjóðina og brúa gjána milli þjóðarinnar og, að hennar mati, rangsnúins samfélags- kerfis, þarf umbætur. Gömlu kerfis- flokkarnir náðu ekki meirihluta. Þeir munu því ólíklega geta haldið ótrauðir áfram með gömlu upp- skriftina. Misvægi atkvæða er þeim í hag. Sterk kosningastaða þeirra er m.a. misvæginu að þakka. Hver afstaða VG verður í þessum málum, verði þeim kippt um borð, er óljóst. Af ummælum sumra alþingismanna flokksins fyrir kosningar var ljóst að þar fóru einarðir stuðningsmenn búvörusamningsins. Fyrrverandi formaður VG hefur einnig haft lít- inn áhuga á jöfnun atkvæðisréttar. Málefnasamningurinn Með nýjum málefnasamningi koma skýr skilaboð. Það eru fáein mikilvæg mál sem tekið verður eftir hvernig ákveðin verða. Allt eru það mál sem við höfum deilt um lengi en verða þjóðinni að fótakefli meðan ekki nást þær málamiðlanir, sem gera þjóðina sátta að kalla. Jöfnun atkvæðavægis: Jafna verður vægi atkvæða milli kjördæma. Mis- vægi atkvæða eftir búsetu er mikið óréttlæti. Flestar vestrænar lýð- ræðisþjóðir hafa leyst það fyrir öld eða fjölmörgum áratugum síðan. Við búum við almennan en þó ekki jafnan kosningarrétt. Það er hneisa. Alþingi endurspeglar ekki þjóðina sem heild og lögin sem þaðan koma ekki heldur. Alþingi Íslendinga er því ekki þjóðþing í þess göfugustu merkingu. Þótt ekkert annað yrði gert í stjórnarskrármálinu en þetta, væri það góður áfangi. Auðlindagjald: Finna þarf sátt um greiðslu fyrir einkaafnot af sameigin- legum auðlindum þjóðarinnar. Mest brennur á sanngjörnum greiðslum fyrir afnot af sjávarauðlindinni, sem eru í einhverju eðlilegu samræmi við gjöfulleika hennar. Alþingi sam- þykkti metnaðarfull lög um verndun og stjórnun fiskveiða, sem gert hefur nýtingu auðlindarinnar mun arð- bærari en áður. Það eru einkum þessi lög sem eru grundvöllur hins mikla arðs sem fiskimiðin gefa. Sanngjarnt afgjald er ein af forsendum þess að geta endurreist heilbrigðiskerfi þjóðarinnar. Búvörusamningurinn: Fátt vegur þyngra í buddu almennings en mat- vöruverð. Verðlagning, framleiðsla og innflutningur matvöru skiptir afkomu almennings mestu máli. Lág laun má gera þolanlegri með lækkun framfærslukostnaðar. Núverandi landbúnaðarkerfi sóar miklum verðmætum, ekki hvað síst í mikilli offramleiðslu á lambakjöti; Kerfið er rándýrt. Það er ekki umhverfisvænt og heldur fjölda bænda við hokur. Finna þarf leið til að endurskoða búvörulögin þannig að við fáum heilbrigðan og sæmilega arðbæran landbúnað. Það yrði mikilvægt skref inn í væntanlegar kjaraviðræður. Heilbrigðismál: Endurreisn heil- brigðiskerfisins og bygging nýs Landspítala verður að vera for- gangsverkefni. Búið er að eyða allt of löngum tíma í deilur um stað- setningu hans, deilur sem litlu máli skipta og eru afar ófrjóar. Þær skila ekki niðurstöðum, því þær byggjast á persónulegum skoðunum. Þær þjóna deilu girni okkar meir en efn- inu sjálfu. Búið er að eyða löngum og dýrmætum tíma í undirbúning sem þyrfti að hefja að nýju verði ný stað- setning ákveðin. Það mun örugglega seinka verkefninu um árabil. Þjóðin vill og þarf nýjan spítala, sem fyrst. Fjármálakerfið: Mig rekur ekki minni til þess að nokkuð bitastætt hafi komið fram í kosningabarátt- unni um framtíðarskipan fjármála- kerfisins eftir að gjaldeyrishöftin hafa verið afnumin. Hér er þó á ferð feikna mikilvægt mál. Þrír stórir bankar sem, vegna smæðar íslenska hagkerfisins, verða að leita verkefna erlendis, gætu á ný vaxið hagkerfi okkar yfir höfuð eins og gerðist fyrir hrun. Þetta þarf að koma í veg fyrir. Í þessu samhengi er einkavæðing ekki gilt úrræði. Það myndi frekar ausa olíu á eldinn. Parísarsáttmálinn og umhverfis- mál: Ekki var gamla ríkisstjórnin afkastamikil þegar að umhverfis- málum kom. Lítið liggur fyrir um hvernig við ætlum að standa við skuldbindingar okkar í loftslags- málum. Verndun sjávarins, vatns- falla, votlendis og gróðurs verður að taka alvarlega og leggja fram sann- færandi aðgerðaáætlun um úrbætur. Þetta gæti orðið upphaf nýs sam- félagssáttmála, sem síðan yrði fyllt frekar út í. Hér vantar t.d bæði skóla- og fræðslumál sem og Evrópumál. Aðalatriðið er að hefjast handa. Nú gæti verið tækifærið. Gamla eða nýja Ísland Þröstur Ólafsson hagfræðingur Nú er rætt um að breyta því hvernig laun þingmanna, ráðherra og forseta lýðveld- isins eru ákvörðuð. Þessi umræða kemur í kjölfar úrskurðar kjararáðs frá 29. október síðastliðnum sem fól í sér 30 til 45% hækkun á launum þessara aðila. Í 10. gr. l.nr. 47/2006 er kveðið á um að ákvörðunum kjararáðs verði ekki skotið til annars stjórnvalds. Verði kjararáði á í messunni er það í höndum ráðsins sjálfs að lagfæra mistök eða láta hjá líða að lagfæra mistök. Tilraunir löggjafans til að taka fram fyrir hendur kjararáðs (eða forvera þess kjaranefndar og Kjaradóms) hafa sumar tekist og aðrar ekki. Ákvæði 10. gr. er líklega tilkomið vegna þess að kjararáð úrskurðar um laun dómara. Í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi eru laun þingmanna og ráðherra ákvörðuð af launanefndum sem þingið skipar svipað og gert er á Íslandi. Í Noregi er niðurstaðan lögð fyrir Stórþingið. Í Danmörku er það þingið sjálft sem ákvarðar laun þingmanna og ráðherra með lagasetningu. Í Danmörku hefur Folketinget breytt grunnlaunum með margra ára millibili. Þess á milli hefur þingfararkaup fylgt grunn- launahækkun á opinbera markaðn- um. Sú aðferð gafst ekki vel og í ár var tekin upp sú regla að taka einn- ig tillit til launaskriðs á opinbera markaðnum. Jafnframt var þing- fararkaupið hækkað verulega. Sú hækkun byggir á viðamikilli úttekt nefndar sem Folketinget setti niður árið 2014 og skilaði skýrslu í janúar 2016 (Vederlagskommisjonen). Launanefndirnar í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi fjalla aðeins um laun ráðherra og þingmanna. Þær fjalla ekki um laun hæstaréttardómara svo dæmi sé nefnt. Regluverkið á Íslandi líkist því regluverkinu í Svíþjóð og Finn- landi þar sem launanefndir lög- gjafans hafa síðasta orðið. Í Noregi og Danmörku hefur þingið aðkomu að launasetningunni, en byggir ákvarðanir sínar á niðurstöðum fastanefndar (Noregur) eða endur- skoðunarnefndar (Danmörk). Í öllum löndunum er vandað vel til vals á nefndarmönnum í þeim nefndum sem fjalla um þingfarar- kaup. Nefndar menn eru undan- tekningarlaust skipaðir af þjóð- þingunum. Forsenda virðist vera þekking á starfsemi þings og ríkis- stjórnar, auk þekkingar á vinnu- markaði og efnahagsmálum. Þá njóta allar nefndirnar aðstoðar hag- stofa viðkomandi landa. Eðlilegt er að hliðsjón sé höfð af aðferðum Norðurlandaþjóðanna við ákvörðun þingfararkaups verði ráðist í frekari breytingar á reglum þar að lútandi hér á landi. Reynsla Dana af því að festa grunnlaun í lög og búa til reiknireglu fyrir leiðréttingu virðist ekki vænleg sem fyrirmynd vegna þess hversu sveiflukenndur íslenskur vinnu- markaður er. Þingið kemst því vart hjá nefndarskipun. Spurningin er hvort nefndin skuli bera niðurstöð- ur sínar undir þingið eða þingnefnd (efnahags- og viðskiptanefnd og/ eða fjárlaganefnd). Ef kjararáð ber ákvarðanir um þingfararkaup undir þingið þá er eðlilegt að fela öðrum aðila að fjalla um launakjör dómara. Valkostirnir varðandi ákvörð- un þingfararkaups eru því tveir: a) óbreytt ástand (e.t.v. með form- legum kröfum um fagþekkingu Kjararáðsmeðlima); og b) að kjara- ráð þingmanna ákvarði laun þing- manna og beri ákvarðanir undir þingið og kjararáð dómara ákvarði laun dómara og sé sjálfstætt með sama hætti og kjararáð er nú. Kjararáðsraunir Þórólfur Matthíasson hagfræði- prófessor Allt frá hruni og fram að umliðnum kosningum hefur þjóðin verið innbyrðis klofin. Til að sætta þjóðina og brúa gjána milli þjóðar- innar og, að hennar mati, rangsnúins samfélagskerfis, þarf umbætur. Með þessu væri hins vegar orðinn til sjálfstæður ferill og nýtt samtal um heildar- endurskoðun, með aðkomu almennings studds af sér- fræðingum, sem gæti rofið núverandi þrátefli og varðað veginn til sáttar. 1 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U D A G U r26 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð I ð 1 0 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 0 8 0 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 3 D -D D E 4 1 B 3 D -D C A 8 1 B 3 D -D B 6 C 1 B 3 D -D A 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 8 0 s _ 9 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.