Fréttablaðið - 10.11.2016, Side 63
Hvað ef og hefði
Leikverkið Elska – ástarsögur
Norðlendinga verður frumsýnt
á morgun, 11. nóvember, í Hofi
á Akureyri. Jenný Lára Arnórs-
dóttir er annar tveggja leikenda á
sviðinu og upphafsmaður að sýn-
ingunni því árið 2013 flutti hún
forleik að þessu stykki. Nú hefur
hún fengið til liðs við sig Jóhann
Axel Ingólfsson leikara sem einn-
ig sér um tónlistina, Agnesi Wild
leikstjóra og Evu Björgu Harðar-
dóttur búningahönnuð.
„Þetta er eiginlega nýtt verk,“
segir Jenný Lára. „Skemmtilegt
heimildarverk sem yljar fólki um
hjartarætur.“ Hún segir leikhóp-
inn hafa í sumar og haust hafa
safnað saman raunverulegum
ástarsögum para víða af Norð-
austurlandi. „Handritið er unnið
orðrétt upp úr viðtölum sem tekin
voru við pör og tónlist notuð til
að magna sögurnar upp. Þetta er
því sýning sem er sprottin upp
úr okkar umhverfi á norðurhjara
veraldar.“
Við sem vinnum í þessu erum
öll trúlofuð eða gift og notum
setningar úr okkar samböndum
inn á milli. Okkur langar líka að
fá setningar frá áhorfendum og
skrifa þær niður þannig að þeir
fá að vera smá þátttakendur í sýn-
ingunni.“
Sýningar verða einungis á
morgun og laugardag, 11. og 12.
nóvember, og hefjast klukkan 20
bæði kvöldin. – gun
Heimildarverk sem yljar fólki um hjartarætur
Jenný Lára og Jóhann Ágúst á einni af fyrstu æfingunum á Elska.
www.forlagid.i s | Bókabúð Forlagsins | F isk islóð 39
Pétur Gunnarsson er hér persónulegri
en áður – og lýsir ekki aðeins fyrstu
skrefum sínum inn á ritvöllinn heldur líka
viðkvæmum mótunarárum þegar sjálfs-
vitundin tekur heljarstökk, hormónarnir
fara á flug og allir strengir titra.
Hlý bók
um ástina og galdur hversdagsleikans
lesandanum tækifæri til þess að
njóta til fulls hvernig íslenskan
leikur í höndum Þórarins. Stíllinn
er afdráttarlaus og laus við allar
óþarfar krúsidúllur, hrein og bein
frásögn af fólki, minningum þess,
væntingum og draumum. Fyrir
vikið verða aukapersónur þátt-
anna kannski helst til litlausar og
óeftirminnilegar en það má líka líta
svo á sem það sé með vilja gert að
halda kjarna hverrar aðalpersónu í
skörpum fókus út í gegnum hvern
og einn þátt.
Helsti vandi verksins í heild sinni
er að þættirnir eru helst til misjafnir
að styrkleika. Í þremur, þó einkum
tveimur, síðustu þáttunum er eins
og reikað sé af spori heildarmynd-
arinnar. Persóna skáldsins virðist
dragast inn í þættina með þeim
afleiðingum að þessi almenni og
hversdagslegi tónn rjátlast aðeins af
heildarmyndinni og er það miður.
Þátturinn Ólán klárað, er líkast til
skýrasta dæmið um þetta, enda
efni og efnistök í hrópandi ósam-
ræmi við það sem tekist er á við
í öðrum þáttum bókarinnar. Hið
sama má segja um lokaþátt bókar-
innar, Ósagt best, sem þrátt fyrir að
vera tilfinningarík og sterk frásögn
á einhvern veginn ekki alveg heima
þarna á meðal þessara léttari þátta.
Frásagnargleði og færni Þórarins
nýtur sín nefnilega best þegar hann
tekur sér stöðu sögumannsins í
fermingarveislunni eða við kaffi-
borðið fjarri því lífi sem sagt er frá.
Frásögn hans og stíll nýtur sín best
í knöppum einfaldleika í sögum á
borð við Jónatan, um miðbik þátt-
anna.
„Þannig var því háttað með Jónat-
an Vilhelmsson að hann var árang-
ursheftur eða árangursblindur, naut
aldrei neins sem áunnist hafði. Ekk-
ert dugði honum alveg og aldrei gat
honum fundist neitt vera nema rétt
í áttina.“ (Bls. 45)
Einmitt þarna, í hugmyndum
og nálgun á borð við þá sem hér
er vísað til, finnur lesandi líka ólg-
andi en í senn lúmskan og hlýlegan
húmorinn. Þessa sagnagleði og
leiftrandi húmor sem einkennir svo
margt af því besta sem er að finna í
höfundar verki Þórarins.
Magnús Guðmundsson
Niðurstaða: Skemmtilegir, en
helst til missterkir, þættir Þórarins
reynast góð lesning.
Okkur langar líka
að fá setningar frá
áhOrfendum Og skrifa þær
niður þannig að þeir fá að
vera smá þátttakendur í
sýningunni.
M e N N i N g ∙ F r É t t a B L a ð i ð 51F i M M t u D a g u r 1 0 . N ó v e M B e r 2 0 1 6
1
0
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
3
D
-B
B
5
4
1
B
3
D
-B
A
1
8
1
B
3
D
-B
8
D
C
1
B
3
D
-B
7
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
8
0
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K