Fréttablaðið - 10.11.2016, Page 67

Fréttablaðið - 10.11.2016, Page 67
Sellóið verður í hávegum haft í Hörpunni í kvöld en sellóleikarinn Andreas Brantelid heldur þar tónleika. FréttABlAðið/GVA Félag íslenskra landslagsarkitekta sem standa að þessu málþingi um ferðamannastaði, en á því verða skoðaðir þessir staði út frá sjónar- horni meðal annars hönnuða, fræðslufulltrúa, verkefnastjóra, ferðamanns, leiðsögumanns og bæjarstjóra. Markmið mál- þingsins er að hvetja til umræðu um hönnun ferðamannastaða í víðu samhengi. Tveir hollenskir arkitektar flytja erindi auk ótal margra annarra. Þátttökugjald er 7.000 krónur og hægt er að skrá sig á tix.is. Viðburðir Hvað? Alþjóðadagur Háskóla Íslands Hvenær? 12.00 Hvar? Háskólatorg, Háskóla Íslands Gestum gefst kostur á að kynna sér skiptinám, nám á eigin vegum, starfsnám og kennara- og starfs- mannaskipti. Þá býðst þeim að ræða við erlenda skiptinema, fyrrverandi skiptinema, full- trúa sendiráða og ræðisskrifstofa og fulltrúa fjölmargra íslenskra stofnana og félaga. Á Háskólatorgi verður mikið um að vera. Salsa Iceland stígur dans, hljómsveitin Belleville kallar fram franska stemningu, veglegt happdrætti verður í boði, alþjóðlegt matar- og drykkjasmakk og fleira. Val- gerður Anna Einarsdóttir kynnir dagskrá. Hvað? Opnun hermiseturs Hjúkrunar- fræðideildar Hvenær? 16.00 Hvar? Eirberg, Eiríksgötu Kennsluaðstaða í heilbrigðis- vísindum í Háskóla Íslands hefur verið stórbætt með tilkomu Færniseturs í Eirbergi. Færni setrið er um 300 m2 að stærð og búið fullkomnum tækjabúnaði, meðal annars tölvustýrðum sýndar- sjúklingum, fjölda hlutherma, auk margvíslegra möguleika til gagn- virkrar kennslu með fullkomnum tækjabúnaði. Hvað? Pop-up markaður vefverslana Hvenær? 17.00 Hvar? Háskólabíó, Hagatorgi Nokkrar vefverslanir munu birt- ast í efnisheimum og selja vörur sínar í Háskólabíói. Í boði verða léttar veitingar og fá 25 fyrstu gjafapoka. Hvað? Friðarfundur: SGI mannúðar- og friðarsamtök búddista Hvenær? 20.00 Hvar? Hafnarhús, Tryggvagötu Næstkomandi fimmtudagskvöld hefjast vikulegir Friðarfundir í Listasafni Reykjavíkur, en þeir verða haldnir í sex skipti. Þeir tengjast sýningadagskrá haustsins í Hafnarhúsi þar sem listamenn fjalla um frið, stríð og afleiðingar þess. Á Friðarfundum kynna ólík samtök áherslur sínar í friðar- og mannúðarmálum og er fyrsta kvöldið tileinkað SGI á Íslandi. Eyrún Ósk Jónsdóttir mun fjalla um friðarheimspeki SGI, friðar- og mannúðarsamtaka búddista. Hún mun ræða um hugmyndina um helgi lífsins í kenningum búddismans, um að friður hefst á jákvæðri umbreytingu í hjarta einstaklingsins og að leiðin að þessu marki eru einlægar sam- ræður. Í kjölfar erindisins munu fundarstjórar stýra umræðum um frið. Fullkomnaðu augnablikið með ljúffengri sælkeraköku. – Láttu það eftir þér! H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 1 6- 04 29 Katy Perry mætti og hélt ræðu í kosn- ingagleðskap Hillary Clinton aðfara- nótt miðvikudags þegar kosningar í Bandaríkjunum voru í algleymingi. Perry hefur lengi stutt Hillary og að sama skapi hefur Hillary verið dugleg að fá tónlistarmenn með sér í lið í kosningabaráttunni svo að það var kannski ekki óvænt að Katy stigi í pontu þetta kvöld. Í ræðunni viðurkenndi hún að fjöl- skylda sín væri ekki stuðningsfólk Hillary, enda harðir stuðningsmenn Repúblikanaflokksins auk þess að vera sannkristnir íhaldsmenn. Eftir að hafa sagt salnum frá því að foreldrar hennar hefðu kosið Donald Trump sagði Perry: „En vitið þið hvað? Við munum öll sitja saman á þakkargjörðarhátíðinni og það er akkúrat á þessu augnabliki sem við þurfum að muna að við elskum öll foreldra okkar og að við elskum öll börnin okkar.“ Þarna var farið að verða ljóst að Hillary mundi ekki vinna kosning- arnar og stemmingin því ekki góð, en spurning hvort að Katy Perry hafi náð að sefa sorg stuðningsmanna Hillary. – sþh Katy Perry viðurkennir að foreldrar hennar kusu Trump Katy Perry reynir að stappa stálinu í stuðningsmenn Hillary Clinton. M e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 55F i M M T U D A g U R 1 0 . n ó V e M B e R 2 0 1 6 1 0 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 0 8 0 s _ P 0 7 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 3 D -E 2 D 4 1 B 3 D -E 1 9 8 1 B 3 D -E 0 5 C 1 B 3 D -D F 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 8 0 s _ 9 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.