Fréttablaðið - 10.11.2016, Blaðsíða 67
Sellóið verður í hávegum haft í
Hörpunni í kvöld en sellóleikarinn
Andreas Brantelid heldur þar tónleika.
FréttABlAðið/GVA
Félag íslenskra landslagsarkitekta
sem standa að þessu málþingi um
ferðamannastaði, en á því verða
skoðaðir þessir staði út frá sjónar-
horni meðal annars hönnuða,
fræðslufulltrúa, verkefnastjóra,
ferðamanns, leiðsögumanns
og bæjarstjóra. Markmið mál-
þingsins er að hvetja til umræðu
um hönnun ferðamannastaða í
víðu samhengi. Tveir hollenskir
arkitektar flytja erindi auk ótal
margra annarra. Þátttökugjald er
7.000 krónur og hægt er að skrá
sig á tix.is.
Viðburðir
Hvað? Alþjóðadagur Háskóla Íslands
Hvenær? 12.00
Hvar? Háskólatorg, Háskóla Íslands
Gestum gefst kostur á að kynna
sér skiptinám, nám á eigin vegum,
starfsnám og kennara- og starfs-
mannaskipti. Þá býðst þeim að
ræða við erlenda skiptinema,
fyrrverandi skiptinema, full-
trúa sendiráða og ræðisskrifstofa
og fulltrúa fjölmargra íslenskra
stofnana og félaga. Á Háskólatorgi
verður mikið um að vera. Salsa
Iceland stígur dans, hljómsveitin
Belleville kallar fram franska
stemningu, veglegt happdrætti
verður í boði, alþjóðlegt matar-
og drykkjasmakk og fleira. Val-
gerður Anna Einarsdóttir kynnir
dagskrá.
Hvað? Opnun hermiseturs Hjúkrunar-
fræðideildar
Hvenær? 16.00
Hvar? Eirberg, Eiríksgötu
Kennsluaðstaða í heilbrigðis-
vísindum í Háskóla Íslands hefur
verið stórbætt með tilkomu
Færniseturs í Eirbergi. Færni setrið
er um 300 m2 að stærð og búið
fullkomnum tækjabúnaði, meðal
annars tölvustýrðum sýndar-
sjúklingum, fjölda hlutherma, auk
margvíslegra möguleika til gagn-
virkrar kennslu með fullkomnum
tækjabúnaði.
Hvað? Pop-up markaður vefverslana
Hvenær? 17.00
Hvar? Háskólabíó, Hagatorgi
Nokkrar vefverslanir munu birt-
ast í efnisheimum og selja vörur
sínar í Háskólabíói. Í boði verða
léttar veitingar og fá 25 fyrstu
gjafapoka.
Hvað? Friðarfundur: SGI mannúðar- og
friðarsamtök búddista
Hvenær? 20.00
Hvar? Hafnarhús, Tryggvagötu
Næstkomandi fimmtudagskvöld
hefjast vikulegir Friðarfundir í
Listasafni Reykjavíkur, en þeir
verða haldnir í sex skipti. Þeir
tengjast sýningadagskrá haustsins
í Hafnarhúsi þar sem listamenn
fjalla um frið, stríð og afleiðingar
þess. Á Friðarfundum kynna ólík
samtök áherslur sínar í friðar- og
mannúðarmálum og er fyrsta
kvöldið tileinkað SGI á Íslandi.
Eyrún Ósk Jónsdóttir mun fjalla
um friðarheimspeki SGI, friðar-
og mannúðarsamtaka búddista.
Hún mun ræða um hugmyndina
um helgi lífsins í kenningum
búddismans, um að friður hefst
á jákvæðri umbreytingu í hjarta
einstaklingsins og að leiðin að
þessu marki eru einlægar sam-
ræður. Í kjölfar erindisins munu
fundarstjórar stýra umræðum um
frið.
Fullkomnaðu augnablikið með ljúffengri sælkeraköku.
– Láttu það eftir þér!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
1
6-
04
29
Katy Perry mætti og hélt ræðu í kosn-
ingagleðskap Hillary Clinton aðfara-
nótt miðvikudags þegar kosningar í
Bandaríkjunum voru í algleymingi.
Perry hefur lengi stutt Hillary og
að sama skapi hefur Hillary verið
dugleg að fá tónlistarmenn með sér
í lið í kosningabaráttunni svo að það
var kannski ekki óvænt að Katy stigi
í pontu þetta kvöld.
Í ræðunni viðurkenndi hún að fjöl-
skylda sín væri ekki stuðningsfólk
Hillary, enda harðir stuðningsmenn
Repúblikanaflokksins auk þess að
vera sannkristnir íhaldsmenn.
Eftir að hafa sagt salnum frá því að
foreldrar hennar hefðu kosið Donald
Trump sagði Perry: „En vitið þið
hvað? Við munum öll sitja saman
á þakkargjörðarhátíðinni og það er
akkúrat á þessu augnabliki sem við
þurfum að muna að við elskum öll
foreldra okkar og að við elskum öll
börnin okkar.“
Þarna var farið að verða ljóst að
Hillary mundi ekki vinna kosning-
arnar og stemmingin því ekki góð,
en spurning hvort að Katy Perry hafi
náð að sefa sorg stuðningsmanna
Hillary. – sþh
Katy Perry viðurkennir að foreldrar hennar kusu Trump
Katy Perry reynir að stappa stálinu í stuðningsmenn Hillary Clinton.
M e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 55F i M M T U D A g U R 1 0 . n ó V e M B e R 2 0 1 6
1
0
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
3
D
-E
2
D
4
1
B
3
D
-E
1
9
8
1
B
3
D
-E
0
5
C
1
B
3
D
-D
F
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
8
0
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K