Morgunblaðið - 05.11.2016, Page 1

Morgunblaðið - 05.11.2016, Page 1
Hjartað varðeftir í Svíþjóð Upplífg-andi á Airwaves 6. NÓVEMBER 2016SUNNUDAGUR Heitt eða kalt? Hildur KristínStefánsdóttirsegir sérstakastemningu mynd-ast kringumAirwaves 2 Sérheiminn ísvarthvítuInga Sæland, formaður Flokksfólksins, er ánægð meðkosningabaráttuna og segirvegferð flokksins rétt að byrja 18 Hvenær er rétt að notakulda og hvenær hita viðbólgum og meiðslum 28 L A U G A R D A G U R 5. N Ó V E M B E R 2 0 1 6 Stofnað 1913  260. tölublað  104. árgangur  SPRENGING Í UNGLINGASTARFI Í FJALLABYGGÐ FRUMFLUTN- INGUR Á KÓR- TÓNLEIKUM SCHOLA CANTORUM 49HÉÐINSFJARÐARGÖNG 18 hluti af ÞÚ ÞARFT um helgar Fá en stór lykilverkefni  Stjórnarmyndun gæti orðið flókin  Bjarni Benediktsson segir betur ganga að ræða við aðra formenn  Spennustigið hafi lækkað  Aðrir formenn ræðast við eins konar samnefnari um lykilmál sem skipti grundvallaratriði en taka önnur mál, sem skipti minna máli, út fyrir sviga þannig að hver þing- flokkur eða einstakir þingmenn flytji slík mál á Alþingi án þess að um stjórnarfrumvörp verði að ræða. Þannig geti ólíkir þingmeirihlutar myndast á Alþingi um einstök mál án þess að þingmeirihluti nýrrar ríkisstjórnar verði í hættu. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði við Morgunblaðið í gærkvöldi að sér fyndist spennustigið hafa lækkað og betur gengi að ræða við formenn annarra flokka nú en strax eftir kosningar. Ekki undir einum komið „Það sjá allir að við þurfum sam- starf og samstarfsvilja til þess að geta myndað ríkisstjórn. Framhald- ið er ekki alfarið undir mér einum komið, heldur formönnum annarra flokka líka,“ sagði Bjarni, sem hefur ekki tekið ákvörðun um hverja hann boðar til fyrsta viðræðufundar um stjórnarmyndun, né hvenær. Formenn annarra flokka ræddust við í síma í gær en formlegir fundir fóru ekki fram. Voru þeir á fundum með sínum þingmönnum. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Þegar þykir ljóst að erfitt og flókið verður að semja um myndun nýrrar ríkisstjórnar, undir forsæti Bjarna Benediktssonar. Þingmenn sem rætt var við í gær eru sammála um að allir flokkar, hverjir sem það verða, sem munu mynda nýja rík- isstjórn verði að gefa eitthvað eftir af stefnumálum sínum. Nást verði MStjórnarmyndun »2, 4 og 17 Klambratún, einn stærsti almenningsgarður í Reykjavík, setur svip sinn á Hlíðahverfið og hef- ur svæðið lengi verið vinsælt meðal borgarbúa sem njóta vilja náttúru og umhverfis. Túnið er, eins og ljósmyndari komst að, einnig þægilegur staður til þess að slaka á í kerru í vetrarsólinni. Morgunblaðið/Golli Kuldagalli og kerrur í vetrarsólinni í Reykjavík Þegar hjartaþeginn Ingi Þór Ás- geirsson gekkst undir 18 klukku- stunda langa hjartaskiptiaðgerð á Sahlgrenska-sjúkrahúsinu í Gauta- borg í fyrrahaust náði ungur maður að lauma sér inn á skurðstofuna og vera viðstaddur aðgerðina án þess að hafa nokkurn rétt til þess. Málið var litið mjög alvarlegum augum innan sænska heilbrigðiskerfisins enda er sjúkrahúsið leiðandi í Evr- ópu þegar kemur að slíkum aðgerð- um. Fór ítarleg rannsókn fram í kjölfarið. Maðurinn hafði um nokkurt skeið þóst vera læknanemi og myndað persónuleg tengsl við Inga Þór og fjölskyldu hans. „Hann hafði náð að svindla sér þarna inn og var með skilríki; hann var með pappíra, bréf og vitneskju. Hann var nógu klár til að plata nokkra af bestu hjarta- skurðlæknum í heimi til að fá að vera viðstaddur 18 klukkustunda hjartaskiptiaðgerð,“ segir Guðrún Brynjólfsdóttir, móðir Inga Þórs, um atburðarásina. Fjölskyldan hefur þó fyrirgefið manninum og ákvað að leggja ekki fram kæru. Ítarlegt viðtal er við Inga Þór og foreldra hans í sunnudagsblaði Morgunblaðsins þar sem þau lýsa sjúkrasögu Inga Þórs. Laumaðist inn í hjarta- skurðaðgerð  Ungur maður villti á sér heimildir Aðgerð Ingi Þór lengst til hægri og læknaneminn meinti fyrir miðju. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Bandarísk stjórnvöld hafa tilkynnt að Flugstöð Leifs Eiríkssonar sé komin á lista yfir flugvelli þar sem mögulegt er að taka upp bandaríska toll- og vegabréfaskoðun. Verði heimildin nýtt mun allt eftirlit sem jafnan hefur farið fram við komu til Bandaríkj- anna, fara fram á Keflavíkurflugvelli. Gæti þessi breyting leitt til meiri þæginda varðandi vegabréfa- og toll- eftirlit fyrir farþega sem fara um Keflavíkurflugvöll á leið sinni til Bandaríkjanna. Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, segir ákvörðun bandarískra stjórnvalda mikla viðurkenningu fyrir flugvöllinn. „Þetta er yfir- lýsing um að stjórnvöld í Bandaríkjunum treysti mjög vel því eftirliti sem hér er viðhaft. Verði af þessu munu ferðamenn sem fara um Kefla- víkurflugvöll í raun fljúga til Banda- ríkjanna eins og þeir séu í innanlands- flugi. Það mun stytta mjög þann tíma sem fólk þarf að verja á bandarískum flugvöllum eftir lendingu,“ segir hann. Nú muni íslensk og bandarísk stjórnvöld, í samráði við Isavia, hefja athugun á því hvort þetta fyrirkomu- lag henti á flugvellinum. „Það er nauðsynlegt að skoða fram- tíðaráform okkar út frá þessum möguleika og verði hann að veruleika er ljóst að við þurfum að laga þá að- stöðu sem við hyggjumst byggja upp að þeim kröfum sem heimildinni fylgja,“ segir Björn Óli. Aðeins einn flugvöllur í Evrópu hefur viðlíka heimild í dag, en það er alþjóðaflugvöllurinn í Dublin. Þar starfa bandarískir tollverðir sem hafa búsetu á Írlandi og vænta má þess að svipað fyrirkomulag verði uppi hér, komi til þess að heimildin verði nýtt. Margir flugvellir í Evrópu hafa í hyggju að sækjast eftir heimild af þessu tagi og þannig verður þetta fyrirkomulag meðal annars tekið upp á Arlanda-flugvelli í Svíþjóð á árinu 2018. Heimildin felur ekki í sér skuld- bindingu af hálfu íslenskra yfirvalda. „Það mun taka töluverðan tíma að fara yfir þetta mál og það er ljóst að ef af þessu verður munu stjórnvöld hér heima og í Bandaríkjunum þurfa að undirrita sérstakan milliríkjasamn- ing varðandi eftirlitið,“ segir Björn Óli. Auðvelda ferðir til Bandaríkjanna  Keflavíkurflugvöllur á lista sem opnar fyrir þægilegra vegabréfa- og tolleftirlit  Örfáir flugvellir í heiminum njóta slíks trausts hjá bandarískum stjórnvöldum Björn Óli Hauksson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.