Morgunblaðið - 05.11.2016, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 05.11.2016, Blaðsíða 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2016 Sigurður Gunn-steinsson, áfengis- ogvímuefnaráðgjafi hjá SÁÁ, verður 75 ára á morg- un, 6. nóvember. „Síðustu árin hef ég unn- ið á Sjúkrahúsinu Vogi við áfengis- og vímuefnaráðgjöf og kennslu og handleiðslu í þeim fræðum. Áður var ég forstöðumaður og dag- skrárstjóri á Vík á Kjal- arnesi og enn fyrr for- stöðumaður endurhæfingarheimilisins á Sogni í 12 ár.“ Sigurður fékk fyrstur manna löggildingu sem áfengis- og vímuefnaráð- gjafi. Hann hóf störf hjá SÁÁ á fyrsta starfsári sam- takanna, 1978, og hefur líka setið í stjórn SÁÁ árum saman. „Ég fór í sumarháskóla í áfengis- og vímuefna- meðferð í Johnson Institute í Minnesota sumarið 1979, hef sótt fjöldann allan af ráðstefnum erlendis, mest í Bandaríkj- unum og fékk Fulbright-styrk til að starfa á stóru geðsjúkrahúsi í Atlanta í Georgíu 1982. Ég hef fylgst vel með þróun, vexti og framförum á þessu sviði. Þær eru einstaklega miklar og ekki síst hér á landi. Það eru fáar vímuefnastofnanir sem hafa náð að lifa af í öll þessi ár en hér höf- um við náð að byggja þetta upp jafnt og þétt. Þetta hefur tommast áfram með seiglunni.“ Sigurður er þekktur langhlaupari og annar tveggja Íslendinga sem fyrstir luku keppni á heimsmeistaramótinu í 100 km hlaupi: „Ég fór að hlaupa 1995, orðinn fimmtugur, og hef hlaupið yfir 50 maraþon og fjögur 100 km hlaup. Ég held mér enn í formi og passa vel upp á líkamlega heilsu.“ Sigurður er fæddur og uppalinn í Kleppsholtinu í Reykjavík og býr enn á þeim slóðum ásamt eiginkonu sinni, Guðmundu Jóhanns- dóttur. Þau hjón eiga samtals 49 afkomendur. „Á afmælisdaginn verð ég rólegur heima hjá mér og geri ekki neitt en líklega koma krakkarnir í heimsókn.“ Áfengisráðgjafinn Sigurður. Sigurður Gunnsteinsson er 75 ára á morgun Maraþonmaður og áfengisráðgjafi G uðrún Hallgrímsdóttir fæddist í Reykjavík 5.11. 1941 og ólst þar upp á Lokastígnum: „Ég komst í einstakan skóla lífsins í þrjú sumur, hjá Árna Árnasyni, móðurbróður mínum, og hans kjarnakonu, Hrefnu Kristjáns- dóttur, í Stóra-Klofa í Landsveit.“ Guðrún var í Austurbæjarbarna- skóla, Lindargötuskóla, lauk stúd- entsprófi frá MR 1961 og las íslensk- ar bókmenntir við HÍ, nam mat- vælaverkfræði við Humboldt Uni- versität í Berlin 1963-68, stundaði framhaldsnám í heilbrigðiseftirliti í Rostock 1968-69, lauk kennslurétt- indanámi frá HÍ 1994 og leiðsögu- mannaprófi 2004. Guðrún var forstöðumaður Rann- sóknastofu Búvörudeildar SÍS 1969- 77, vann við uppbyggingu Kjöt- vinnslustöðvar Sambandsins í Reykjavík og sláturhúsa um allt land og hafði eftirlit með fram- leiðslu. Hún var Industrial Officer við UNIDO (Iðnþróunarstofnun Sþ í Vínarborg) 1977-79, deildarstjóri í iðnaðarráðuneytinu 1979-85, for- stöðumaður hjá Ríkismati sjávaraf- urða 1985-90, sérfræðingur í sjáv- arútvegsráðuneyti 1990-92, verk- efnisstjóri verkefnis um gæðastjórn- un í matvælaiðnaði 1994-95, verk- efnisstjóri á fræðsludeild Iðntækni- stofnunar 1995-2004, starfaði við ráðgjöf í matvælaiðnaði og var leið- sögumaður 2004-2010. Guðrún hefur kennt efnafræði, matvælafræði, gæðastjórnun og um- hverfisstjórnun við ýmsa skóla og á fjölda námskeiða og samið námsefni á sviði sjávarútvegs, um slátrun, meðhöndlun kjöts, ávaxta og græn- metis og um gæðastjórnun. Hún hef- ur verið félagi í Reykjavíkur Aka- demíunni frá 2004 og haft vinnuað- stöðu þar, m.a. ritað og haldið fyrir- lestra um íslenska matarhefð, nýt- ingu þangs og þara og annarra hlunninda, lífræna ræktun og sjálf- bærar fiskveiðar. Guðrún var stjórnarformaður Sölustofnunar lagmetis 1972-75, for- maður stjórnar Þróunarsjóðs lag- metislagmetis 1980-83, stjórn- arformaður Iðntæknistofnunar Íslands 1980 -84, sat í stjórn Hús- næðisstofnunar Íslands 1983-87, for- maður Fræðsluráðs sjávarútvegsins 1989-93, sat í skólanefnd FB 1990- 94, í stjórn Vottunarstofunnar Túns 1994-2014 og var formaður vott- unarnefndar fyrir lífrænar afurðir 1996-2014, átti sæti í vottunarnefnd Túns fyrir sjálfbærar fiskveiðar 2010-2014, var stofnandi félagsins Matur – saga – menning og sat í stjórn 2008-2011, í stjórn Ólafsdals- Guðrún Hallgrímsdóttir matvælaverkfræðingur – 75 ára Rauðsokkur Guðrún ásamt öðrum Rauðsokkum sem skrifuðu bókina, Á rauðum sokkum. Myndin var tekin 2012. Frumkvöðull í röðum kvenverkfræðinga Mæðgurnar Á botni Hálslóns. Reykjavík Sig- urborg Kristófers- dóttir fæddist 14. maí 2016 kl. 20.28. Hún vó 2.448 g og var 46 cm löng. Foreldrar hennar eru Hólmfrídur Helgadóttir og Kristófer R. Magn- ússon. Nýir borgarar Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einnmánuð. Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.