Morgunblaðið - 05.11.2016, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 05.11.2016, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2016 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Neysla ávana-bindandilyfja er mun meiri á Íslandi en öðrum löndum á Norðurlöndum. Ólafur B. Ein- arsson, verkefnisstjóri lyfjamála hjá Embætti landlæknis, segir í viðtali í Morgunblaðinu í gær ástæðu til að hafa áhyggjur af þessu. „Íslendingar eru lang- hæstir í notkun örvandi lyfja eins og rítalíns og skyldra lyfja,“ segir Ólafur. „Við notuðum hlut- fallslega 260% meira af þeim en Svíar sem komu næstir.“ Eins og fram kemur í máli Ólafs hafa Íslendingar verið í efsta sæti í notkun verkjalyfja á Norðurlöndum frá 2013. Íslend- ingar eru einnig með efsta sætið í notkun örvandi lyfja, svefnlyfja og róandi lyfja, róandi og kvíða- stillandi lyfja og flogaveikilyfja. Þessi lyf eru öll ávanabindandi. Þessi staða er sláandi. Ekki dregur úr að á meðan notkun á lyfjum með ópíóðum hefur farið vaxandi hér á landi á meðan hún hefur dregist saman í Danmörku og Noregi. Ólafur segir að þeir, sem noti mest af þessum lyfjum, glími við erfið veikindi, en einnig neyti þeirra margir, sem glími við lyfjafíkn. Þeir fái lyfjunum ekki ávísað á sig. Það geri aðrir, sem síðan selji þau eða gefi. Lang- mest sé aukningin á parkódín forte. Erfitt er að átta sig á áhrifum þessarar lyfjaneyslu á heilsu. Hættulegast er þegar þessum lyfjum er blandað saman, til dæmis þegar samhliða eru tekin verkjalyf og róandi lyf. Sam- kvæmt gögnum Lyfjastofnunar fengu í fyrra yfir 8.000 Íslend- ingar slíkum lyfjum ávísað sam- tímis einhvern tíma ársins. Einar bendir á að ópíóíð-lyf komi oftast fyrir þegar grunur leikur á að lyfjaeitrun sé dán- arorsök. Ekki er útilokað að slík lyf hafi átt hlut að máli þótt önn- ur dánarorsök sé skráð. Dauðs- föll vegna lyfjaeitrana gætu því hæglega verið vanmetin. Þá getur fólk undir áhrifum lyfja valdið slysum á sér og öðr- um. Afleiðingar misnotkunar eru fleiri og allar valda þær álagi á heilbrigðiskerfið. Augljóst er að draga þarf úr ávísun ávanabindandi lyfja í heil- brigðiskerfinu. Það getur verið að til skamms tíma sé einfaldast að ráðast á vandann með lyfjum og oftast er það vissulega óhjá- kvæmilegt. Hins vegar verður að forðast að slíkar lausnir verði að reglu. Æ fleiri rannsóknir sýna að oft er hreyfing besta lækn- ingin. Reyndar er sagt að hreyf- ing geti verið ávanabindandi, en sá ávani veldur ekki skaða önd- vert við ávanabindandi lyfin. Þvert á móti. Engin ástæða er til meiri notkunar á ávanabindandi lyfj- um hér en á öðrum löndum á Norðurlöndum. Í þessu tilfelli er efsta sætið allt annað en eft- irsóknarvert. Í þessu tilfelli er efsta sætið allt ann- að en eftirsókn- arvert} Háskaleg þróun Innan Alþjóða-knattspyrnu- sambandsins, FIFA, ríkja spill- ing og glundroði. Það kemur þó ekki í veg fyrir að sam- bandið leggi öðrum línurnar og hafi í hótunum sé ekki farið eftir fyrirmælum þess. FIFA er í sárum vegna spill- ingar og fjármálahneyksla. Helstu valdamenn sambandsins hafa hrökklast frá eða liggja undir ámæli. Það á eftir að taka sambandið mörg ár að hreinsa til og byggja upp traust. Þegar FIFA lýsti yfir því í september að sérstakur hópur, sem unnið hefur gegn kyn- þáttahatri, hefði verið leystur upp vegna þess að verki hans væri lokið ráku menn upp stór augu og furðuðu sig á dóm- greindarleysi stjórnenda sam- bandsins. FIFA brást hins vegar hart við þegar knattspyrnusambönd Englands og Skotlands lýstu yfir því að landslið þeirra myndu í landsleikjum 11. nóv- ember vera með borða á erminni með mynd af draumsóleyjum til minningar um þá sem látið hafa líf sitt í styrjöldum í þágu þeirra. Hefð er fyrir því á Bret- landi að minnast þeirra, sem fallið hafa í styrj- öldum, þennan dag. Sagði FIFA að refsing lægi við því að vera með borðann. Gæti sam- bandið jafnvel brugðist við með því að taka stig af liðunum. Theresa May, forsætisráð- herra Bretlands, sagði að af- staða FIFA væri yfirgengileg. „Knattspyrnumenn okkar vilja heiðra þá sem létu lífið til að tryggja öryggi okkar,“ sagði hún og bætti við að þeir ættu að fá að gera það. Það væri skýrt að áður en FIFA segði öðrum fyrir verkum ætti sam- bandið að taka til í eigin ranni. Þetta væri kannski verjandi ef FIFA væri ekki gegnsýrt af spillingu. Knattspyrna er vissu- lega vinsælasta íþrótt heims, en það er ekki FIFA að þakka. Eftir að hafa gert sitt besta til að koma óorði á fót- boltann vill FIFA segja öðrum hvað er við hæfi} Siðapostuli í glerhúsi Í slenska krónan hefur styrkst mikið á síðustu misserum og hefur það leitt til þess að kaupmáttur hefur aukist verulega. Hefur það orðið til þess að glæða netverslun og fjölga verslunarferðum til útlanda en einnig valdið því að þeir sem selja innfluttar vörur af öllu tagi hafa í mörgum tilvikum átt þess kost að lækka hjá sér vöruverð með afgerandi hætti. Leiðir það til þess að fólk leyfir sér í auknum mæli að endurnýja bíla sína og stærri og dýr- ari raftæki. Afleiðingar þessa kunna í ein- hverjum tilvikum að birtast sem óeðlileg þensla í hagkerfinu. Þegar nánar er rýnt í stöðuna kemur hins vegar í ljós að sölu- vöxturinn á sér eðlilegar skýringar, ekki síst vegna þess að fólk hefur um nokkurra ára bil haldið að sér höndum en einnig vegna þess að hingað leggja sífellt fleiri ferðamenn leið sína og því eru mun fleiri á landinu á hverjum og einum tíma. Bílamarkaðurinn er dæmigerður fyrir þessa þróun. Eins og bent var á í Morgunblaðinu á fimmtudag er allt útlit fyrir að meðalaldur íslenska bílaflotans muni lækka á þessu ári og verður það í fyrsta sinn frá árinu 2007 sem það gerist. Margir hvá við þegar bent er á að bíla- flotinn er að meðaltali 12,7 ára. En nú hefur bílasalan glæðst og sífellt fleiri sjást á gljáfægðum og nýjum bílum. Salan er hins vegar ekki svo gríðarleg til Íslend- inga. Stór hluti nýrra bíla lendir í höndum erlendra ferðamanna, fyrir milligöngu bílaleiganna um landið, áður en þeir enda svo sem notaðir í höndum Íslendinga sem fjárfesta í bílum á hagstæð- ari kjörum en bílarnir bjóðast á nýir úr kass- anum. Og sömu sögu má segja um raftækin. Sannarlega eru mörg þeirra keypt inn á heimili Péturs og Páls en mörg þeirra fara einnig í að uppfylla þarfir ferðalanganna fyrrnefndu. Það þarf mörg sjónvörp á hótel landsins og í allar Airbnb-íbúðirnar sem einnig eru leigðar út í þeirri viðleitni að anna eftirspurn ferðaþjónustunnar. Flestir greiningaraðilar telja að krónan eigi enn eftir að styrkjast og heyrist víða að hún eigi að minnsta kosti um 10% „inni“á komandi misserum. Verði það reyndin munu flestir upplifa meiri kaupmátt þegar kemur að innfluttum vörum. Hins vegar hefur styrking krónunnar nú þegar haft neikvæð áhrif á margar útflutningsgreinar og frekari styrking gæti gert þeim enn erfiðara um vik í þeirri viðleitni að skapa verðmæti fyrir íslenskt þjóðarbú. Mikilvægt er að horfast í augu við þessa staðreynd þegar stefnumark- andi ákvarðanir eru teknar. Þar verður að horfa til langs tíma og það má ekki láta háværar raddir, sem sí- fellt eru í sókn eftir vinsældum, ráða för. Það er eitt mikilvægasta viðfangsefni samfélagsins á hverjum tíma að búa fyrirtækjum landsins, sem bæði skapa atvinnu og verðmæti, þau skilyrði að þau geti þrifist og keppt á sanngjörnum grundvelli við fyrirtæki í öðrum löndum. ses@mbl.is Stefán Einar Stefánsson Pistill Gott er að vera sterkur en ekki of STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Tilraun sem vísindamenn oglaxeldismenn standa samanað er ætlað að leiða í ljóshvort árangursríkt er að ala ófrjóan lax í kvíum við aðstæður hér á landi. Árangur af eldi ófrjórra laxa er borinn saman við frjóa laxa sem aldir eru upp við sömu að- stæður. Tilgangurinn er að athuga möguleikann á því að gera sjókvía- eldið umhverfisvænna en nú er. Tilraunir hafa verið gerðar í Noregi með eldi á ófrjóum (þrílitna) laxi og er notkun hans skilyrði við stækkun svokallaðra grænna leyfa í Norður-Noregi. Niðurstöður rann- sókna eru nokkuð misvísandi. Sumar benda til að áhrif geldingar séu lítil en aðrar að afföll verði meiri og fleiri fiskar verði vanskapaðir. Eins eru misvísandi niðurstöður um vaxtar- hraða. Rannsóknir hafa sýnt að ófrjói laxinn er viðkvæmari fyrir súrefnis- skorti og hærri sjávarhita. Þess vegna finnst eldismönnum spennandi að fá svör við því hvernig ófrjói lax- inn kemur út í kalda sjónum á Vest- fjörðum. Dregið úr slæmum áhrifum Landssamband fiskeldisstöðva stendur að tilrauninni í samvinnu við vísindamenn á Hafrannsóknastofnun og Háskólanum á Hólum. Einnig kemur Stofnfiskur að tilrauninni. Fyrirtækið mun framleiða hrogn fyr- ir verkefnið, en það hefur reynslu af framleiðslu ófrjórra laxahrogna fyrir laxeldisfyrirtæki í Noregi og víðar. Fiskeldisfyrirtækið Arctic Fish mun ala seiðin í seiðastöð í Tálknafirði og síðar í sjókvíum í Dýrafirði. Verið er að undirbúa hrogn sem verða klakin í byrjun næsta árs. Ef allt gengur að óskum ættu fyrstu ófrjóu laxaseiðin að verða tilbúin til útsetningar í sjó sumarið 2018. Þessi aðferð við að gelda líf- verur er þekkt. Hún er mikið notuð við eldi regnbogasilungs og bleikju og við framleiðslu á ávöxtum og grænmeti. Til dæmis er allur regn- bogasilungur sem hér er alinn þrí- litna. Agnar Steinarsson, sérfræð- ingur hjá Hafrannsóknastofnun, er verkefnisstjóri. Hann segir að til- gangurinn sé að reyna að koma í veg fyrir að lax sem sleppur úr eldis- kvíum og syndir upp í ár raski erfða- fræðilegu jafnvægi í viðkomandi á. Slíkt geti jafnvel orðið til þess að villtir stofnar hopi í samkeppni við eldisfisk. Óþarfi er að rifja upp að þetta hefur verið deilumál á milli eldismanna og annarra hagsmuna- aðila. Með því að kanna þessa mögu- leika sjá eldismenn tækifæri til að stunda atvinnu sína í meiri sátt við umhverfið. Rannsóknir benda til að ófrjói laxinn gangi síður upp í árnar en sá frjói. Ætti því að vera auðveldara að hreinsa hann úr ánum ef áhugi er á því. Valdimar Ingi Gunnarsson sjávarútvegsfræðingur bendir á að Norðmenn séu í auknum mæli farnir að senda kafara í árnar fyrir hrygn- ingu til að hreinsa eldislaxinn úr ánum. Það sé gert á kostnað þeirra fyrirtækja sem missi frá sér fisk. Þetta þurfi að gera á meðan árangur af eldi ófrjós lax sé ekki betri en raun ber vitni. Fjölmörgum spurningum um þessa möguleika er ósvarað, meðal annars siðferðilegum og markaðs- legum. Þetta tvennt hangir gjarnan saman. Ef neytendum finnst ekki verjandi að átt sé við lífveruna hafna þeir afurðinni. Ef mikið er af van- sköpuðum fiski í eldishópnum telst það heilbrigðisvandamál en hefur líka áhrif á tekjurnar því slíkur fisk- ur selst ekki við sama verði og fiskur sem ekki sér á. Athuga árangur af eldi ófrjórra laxa Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Sjókví Laxeldismenn sjá eldi á ófrjóum laxi sem hugsanlega leið til að draga úr gagnrýni annarra hagsmunaaðila á fiskeldið. „Þetta er þekkt aðferð, meðal annars í öðrum laxfiskum. Ég yrði hissa ef þetta myndi ekki virka í laxi,“ segir Theodór Kristjánsson, erfðafræðingur hjá Stofnfiski. Þar hafa verið framleidd þrílitna laxahrogn og seld til erlendra framleiðenda. Theodór segir að ýmsar að- ferðir séu notaðar til að fram- leiða geldan fisk. Stofnfiskur notar þrýstimeðferð snemma á hrognastigi. Það verður til þess að við frjóvgun er hluti af erfða- menginu lokaður inni í hrogn- unum. Þau verða þrílitna, standa á oddatölu, og fiskurinn verður því ófrjór. Gísli Jónsson, dýralæknir fisksjúkdóma hjá Matvæla- stofnun, tekur fram að þessi gelding teljist ekki erfðabreyt- ing sem er bönnuð víðast hvar. Á sumum svæðum séu gerðar kröfur um að aðeins megi nota geldfisk í eldi og þá sé þessi náttúrulega aðferð notuð. Þrír litningar en ekki tveir MEÐFERÐ HROGNA GERIR FISKINN ÓFRJÓAN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.