Morgunblaðið - 05.11.2016, Page 11
Morgunblaðið/RAX
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Jörðin Fell í Suðursveit ásamt
austurströnd Jökulsárlóns á Breiða-
merkursandi var slegin hæstbjóð-
anda hjá sýslumanninum á Suður-
landi í gær. Söluferlið hefur staðið
yfir í sex mánuði og á þessum úr-
slitadegi buðu einn landeigandi og sá
sem átti næsthæsta boðið áður til
skiptis þannig að kaupverðið hækk-
aði um 350 milljónir króna.
Uppboðið hjá sýslumanni var til
slita á sameign. Áður hafði verið afl-
að matsgerðar sem sýndi að ekki
væri fært að skipta jörðinni öðruvísi
en með sölu.
Jörðin var slegin Fögrusölum ehf.,
sem er dótturfélag Thule Invest-
ments, fyrir 1.520 milljónir kr. Við
lok uppboðsfrests var fyrirtæki
Skúla G. Sigfússonar með hæsta boð,
1.170 milljónir. Á þessum lokafundi
gafst tilboðsgjöfum kostur á að
hækka tilboð sín og einstakir land-
eigendur gátu sömuleiðis boðið bet-
ur. Sú hringekja fór af stað í gær.
Fögrusalir og stærsti einstaki land-
eigandinn, Einar Björn Einarsson,
sem rekur Ferðaþjónustuna Jökuls-
árlóni, buðu til skiptis þangað til Ein-
ar hætti þegar hann var kominn í
1.510 milljónir kr.
Meirihluti vildi selja
Áður en sýslumaður tók afstöðu til
hæsta tilboðsins kannaði hann vilja
fulltrúa viðstaddra landeigenda.
Meginhluti þeirra, eigendur um 90%
jarðarinnar, vildu að boðinu yrði
tekið. Eigendurnir sem óskuðu eftir
uppboðinu fannst verðið enn of lágt
og lýstu sig mótfallna því að salan
yrði samþykkt. Þeir hafa frest fram
til klukkan 12 næstkomandi föstudag
til að afturkalla uppboðsbeiðnina. Ef
þeir gera það fer málið aftur á byrj-
unarreit. Aðrir landeigendur gætu
óskað uppboðs að nýju en það tekur
aðminnsta kosti ár til viðbótar að fá
niðurstöðu í því. Sölulaun ríkisins og
annar útlagður kostnaður við upp-
boðið er vel á annan tug milljóna kr.
Þar fyrir utan er verulegur lögfræði-
kostnaður landeigendanna sjálfra.
Á sama tíma á föstudag rennur út
frestur ríkisins til að neyta forkaups-
réttar síns að eigninni. Fulltrúar
ríkisins hafa fylgst með söluferlinu
og eiga að vera búnir að fá upplýs-
ingar um niðurstöðuna.
Fulltrúi minna bátafyrirtækisins
við Jökulsárlón, Icelagoon, lét bóka
mótmæli við sölunni. Taldi unnt að
slíta sameigninni með öðrum hætti.
Einar Björn sagðist í samtali við
mbl.is ekki vera svekktur yfir því að
hafa ekki fengið jörðina. Taldi hann
málinu lokið af sinni hálfu.
Þarf að greiða fjórðung
Ef uppboðið verður ekki afturkall-
að og ríkið neytir ekki forkaupsrétt-
ar á föstudag verður samið við
Fögrusali um kaup á jörðinni. Þann
dag þarf fyrirtækið að greiða fjórð-
ung kaupverðs því til staðfestingar.
Standi fyrirtækið ekki við boðið
verður gengið til samninga við næst-
bjóðanda, Einar Björn Einarsson.
Tilboðin hækkuðu um
350 milljónir króna
Buðu til skiptis í Fell Ríkið gæti neytt forkaupsréttar
Jökulsárlón Keppst hefur verið um jörðina Fell og austurströnd Jökulsárlóns. Uppboð fór fram í gær.
Opið 10-16 í dag
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
20% afsláttur
af öllum kjólum
í dag - Str. 36-56
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2016
Vertu upplýstur!
blattafram.is
SUMUM LEYNDARMÁLUM
Á EKKI Að ÞAGA YFIR.
GEYMIR ÞÚ MÖRG SLÍK?
HVAÐ MEÐ
KYNFERÐISOFBELDI?
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Fylgist með okkur á faceboock
Kringlunni
Sími 568 4900
Komið og skoðið úrvalið
Kjóll
24.990,-
Kjóll
29.990,-
Margar
gerðir og
stærðir af
KJÓLUM
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið Facebook.laxdal.is
GERRY WEBER
TILBOÐSDAGAR
20%
afsláttur
Skúli Magnússon, formaður
Dómarafélags Íslands, átti fund með
Lilju Alfreðsdóttur utanríkisráð-
herra í gær þar sem mál dómara í
Tyrklandi voru rædd. Að sögn Skúla
var niðurstaða fundarins að haft yrði
samband við sendiherra Tyrklands á
Íslandi og honum gerð grein fyrir
hversu alvarlegum augum dómara-
félagið og stjórnvöld á Íslandi litu á
hreinsanir í dómskerfi Tyrklands.
Á fundinum kom einnig fram að
bréf sem utanríkisráðuneytinu var
afhent í lok ágúst frá Dómarafélag-
inu hefði strax verið tekið til greina
að hálfu yfirvalda. Bréfið hefði stutt
yfirlýsingar Íslands á vettvangi Evr-
ópuráðsins og Sameinuðu þjóðanna í
málefnum Tyrklands. Skúli segir
þetta mál flókið og erfitt sé að beita
sér gagnvart ríki eins og Tyrklandi.
Ástandið virðist síst fara batnandi og
ekki liggi fyrir nein réttarhöld yfir
þeim dómurum sem teknir voru
höndum eftir valdaránstilraunina í
júlí í sumar. Allt bendi til þess að
þeir muni aldrei koma aftur til starfa
og yfirvöld þar í landi séu að endur-
nýja dómarastéttina í heild sinni.
Vilja styðja við
dómara í Tyrklandi
Dómarar funduðu með ráðherra
Skúli
Magnússon
Lilja
Alfreðsdóttir
Héraðsdómur Reykjaness hefur úr-
skurðað þrjá karla og eina konu í
vikulangt gæsluvarðhald á grund-
velli rannsóknarhagsmuna að
kröfu lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu.
Fólkið var handtekið í tengslum
við rannsókn á eldsvoða í snyrti-
stofu í Hafnarfirði. Eldur kom upp í
húsi að Dalshrauni aðfaranótt 1.
nóvember sl. og hefur rannsókn
leitt í ljós að menn komu þar að á
bifhjóli og hentu sprengieldi eða
tívolíbombu inn um rúðu. Mikill
eldur braust út sem olli miklum
skemmdum á húsnæðinu.
Fjórir í gæsluvarð-
hald vegna íkveikju