Morgunblaðið - 05.11.2016, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2016
Veldu margverðlaunuð finnsk gæðadekk sem eru sérstaklega
hönnuð fyrir krefjandi aðstæður norðlægra slóða
ein öruggustu dekk sem völ er á
ítrekað valin bestu dekkin í gæðakönnunum
breitt úrval nagla-, vetrar- og heilsársdekkja
eigum dekk fyrir fólksbíla, jeppa og sendibíla
Skoðaðu dekkjaleitarvélina á MAX1.is
MAX1 býður 20% afslátt af hágæða Nokian dekkjum og hluti söluágóða
rennur til Krabbameinsfélagsins.
SENDUM UM ALLT LAND
Flutningur með Flytjanda
500 kr. hvert dekk
Bíldshöfða 5a, Reykjavík
Jafnaseli 6, Reykjavík
Dalshrauni 5, Hafnarfirði
(Knarrarvogi 2, Reykjavík
Ath. ekki dekkjaþjónusta)
Aðalnúmer:
515 7190
Opið:
Virka daga kl. 8-17
Laugardaga: sjá MAX1.is
Fáðu 20% afslátt af
NOKIAN dekkjum og styrktu
Bleiku slaufuna um leið
Tónlist Kristinn Örn Kristinsson píanóleikari og Egill Árni Pálsson söngvari unnu náið saman við gerð plötunnar
Leiðslu þar sem íslenskum sönglögum eftir marga af þekktari lagahöfundum landsins er gert hátt undir höfði.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Ég sakna þess helst aðgeta ekki lengur séð fyrirmér alfarið með söng,“segir Egill Árni Pálsson
söngvari en hann flutti heim frá
Þýskalandi árið 2012.
Menntaður í rekstri tölvukerfa
og söng segir hann lífið á Íslandi alls
ekki slæmt en vill þó sjá örlítið meiri
stuðning við tónlistarmenn hér á
landi.
Egill segist ekki láta það trufla
sig að erfiðara sé að lifa alfarið á
söng á Íslandi enda í góðu starfi hjá
Advania og nýbúinn að ljúka við tök-
ur á nýrri plötu.
„Platan nefnist Leiðsla í höfuðið
á ljóði eftir Þorstein Vilhjálm Gísla-
son og Sigvaldi Kaldalón gerði lag
eftir,“ segir Egill en um er að ræða
plötu með íslenskum sönglögum.
„Þetta er aðeins íslensk tónlist,
og mun að mestu innihalda fallegu
ballöðurnar úr hópi íslenskra söng-
laga. Við eigum ótrúlegt safn laga
sem hafa ekki verið gefin út lengi og
mér fannst kominn tími að gera
plötu sem þessa.“
Egill segir lögin vera í hefð-
bundnum búningi og finna megi lög
á plötunni sem allir ættu að þekkja
og jafnvel geta sungið með ef svo
ber undir.
„Það eru nokkur vel þekkt lög á
plötunni eins og Hamraborgin, Rós-
in og Draumalandið og svo eru líka
minna þekkt lög en allt eftir þekkta
höfunda á borð við Sigvalda Kalda-
lóns og Árna Thorsteinsson. Það
hefur bara ekki verið gerður íslensk-
ur sönglagadiskur lengi svo það var
af nægu að taka.“
Fjármagnað á netinu
Fjöldi fyrirtækja og verkefna
hafa fjármagnað sig með svokallaðri
hópfjármögnun en Egill leitaði ein-
mitt þeirra leiðar til að fjármagna
nýju plötuna sína.
„Ég ætlaði að gera þetta allt
saman sjálfur fyrst en svo kom í ljós
að þetta er dýrara en ég taldi. Það
var m.a. þess vegna sem ég setti
verkefnið inn á Karolinafund,“ segir
Egill en búið er að safna nokkuð upp
í útgáfuna þar.
„Þetta er mjög sniðug leið til að
fjármagna verkefni og margir tón-
listamenn eru að nýta sér hóp-
fjármögnunarsíðar til að koma verk-
efnum sínum af stað. Í raun ertu að
selja plötuna eða verkið fyrirfram og
hefur þannig betri hugmynd um
upplag og eigin kostnað við útgáf-
una.“
Sungið í verkum heima og úti
Egill lauk söngprófi frá Söng-
skólanum í Reykjavík árið 2008 og
setti þá stefnuna út þar sem hann
vildi reyna fyrir sér.
„Leið mín lá fyrst til Berlínar
þar sem ég bjó og starfaði sem óp-
erusöngvari. Ég tók síðan þátt í og
vann til verðlauna í keppnum eins og
Kammeroper Schloss Rheinsberg
og Oper Schloss Laubach. Í kjölfarið
bauðst mér svo að taka þátt í við-
burðum eins og Classic Open Air í
Berlin ásamt sópransöngkonunni
Lucia Aliberti, Gala tónleikum í
Mercedes World í Berlín og Das
Lied von der Erde í Frankfurt og
Berlín. Ég var svo fastráðinn við
Gerhardt-Hauptmann Óperuhúsið í
Görlitz árið 2010.“
Meðal hlutverka sem Egill hef-
ur tekist á við eru t.d: Tamino (Die
Zauberflöte), Caramello og Herzog
(Eine Nacht in Venedig), Rodolfo
(La boheme), Luzio (Das Liebesver-
bot), Bobby (Besuch der Alten
Dame), Duka di Mantua (Rigoletto),
Governor/Vanderdendur/Prince Ra-
gotski (Candide), Alfred (Die Fle-
dermaus), Adam (Der Vogelhändler)
og fleiri.
„Ég hef tekið að mér marg-
vísleg hlutverk og einnig unnið við
söngkennslu en eftir að ég kom heim
frá Þýskalandi hef ég sungið á
tvennum tónleikum með Kiri te Ka-
nawa í Háskólabíói, tvenna hádeg-
istónleika í Íslensku óperunni, upp-
setningu NorðurÓp á Eugene
Onegin, hádegistónleika í Hafn-
arborg, tók þátt í frumflutningi ís-
lensku óperunnar „Skáldið og bisk-
upsdóttirin“ eftir Alexöndru
Chernyshova og fleira.“
Leiðsla kemur út 26. nóvember
og verður Egill með útgáfutónleika í
Salnum í Kópavogi sama dag.
Sönglög í
hefðbundn-
um búningi
Söngvarinn Egill Árn Pálsson er að gefa út íslenska
sönglagaplötu með lögum eftir marga af þekktustu
lagahöfundum Íslands. Platan sem nefnist Leiðsla
kemur út laugardaginn 26. nóvember.
Söguhringur kvenna er vettvangur
fyrir konur sem vilja skiptast á sög-
um, segja frá reynslu sinni og fræð-
ast um aðra menningarheima. Þema
haustsins eru lífssögur, þvert á
tungumál, menningarheima, kyn-
slóðir og tjáningarform. Sagðar eru
sögur frá ólíkum tímum og stöðum
og fjölbreyttum frásagnaraðferðum
er beitt.
Nóvemberstefnumót Söguhrings-
ins er kl. 12.30 til 15.30 í dag, laug-
ardag 5. nóvember, í Borgarbóka-
safninu Spönginni. Leiðbeinendur
eru Anna Valdís Kro og Beatriz Portu-
gal og ætla þær að huga að því hvern-
ig konur miðla lífssögum sínum
áfram til næstu kynslóðar.
Söguhringur kvenna er samvinnu-
verkefni Borgarbókasafnsins og W.O-
.M.E.N. á Íslandi. Í þetta sinn er sögu-
hringurinn í samstarfi við Ós
Pressuna, fjölmála skáldafélag á Ís-
landi. Allar konur velkomnar og börn
líka. Þátttaka er ókeypis.
Söguhringur kvenna
Lífssögum
miðlað áfram
Félagsskapur Söguhringur kvenna
er opinn öllum konum sem vilja deila
hugmyndum sínum og njóta samveru.
Dagskrá Tónlistardaga Dómkirkj-
unnar, sem hófust í lok síðasta
mánaðar, lýkur með Mater Dei-
tónleikum Dómkórsins kl. 20 sunnu-
dagskvöldið 6. nóvember í Seltjarn-
arneskirkju
Á tónleikunum verða frumflutt ný
verk sérstaklega samin fyrir kórinn
eftir Báru Grímsdóttur, Friðrik Mar-
grétar-Guðmundsson og Gylfa
Gudjohnsen sem öll syngja með
kórnum. Einnig eru á efnisskránni
tónverk eftir Önnu S. Þorvalds-
dóttur, Eric Whitacre, Ériks Eše-
nvalds, Ola Gjeilo og Trond Kverno.
Stjórnandi er Kári Þormar.
Mater Dei-tónleikar Dómkórsins
Frumflutningur á kórverkum
Morgunblaðið/Ómar
Tónlistardagar Tónlistardagar Dómkirkjunnar fara fram í 34. skiptið.