Morgunblaðið - 05.11.2016, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2016
BAKSVIÐ
Sigurður Ægisson
sae@sae.is
Í Fjallabyggð hafa orðið miklar
breytingar á fræðslu-, íþrótta- og
tómstundamálum eftir opnun Héð-
insfjarðarganganna 2. október árið
2010, en sem kunnugt er varð það
sveitarfélag til 11. júní 2006 við sam-
einingu Ólafsfjarðarbæjar og Siglu-
fjarðarkaupstaðar.
Grunn-, leik- og tónskólar voru
sameinaðir, sem og nokkur íþrótta-
félög, og einnig var opnaður nýr
menntaskóli á Ólafsfirði haustið 2010,
MTR, sem hefur getið sér afar gott
orð, var t.a.m. valinn Stofnun ársins
2016 af SFR - stéttarfélagi í almanna-
þjónustu. Og í lok ágústmánaðar varð
til enn einn tónskólinn, þegar Tón-
skóli Fjallabyggðar sameinaðist þeim
á Dalvík svo að úr varð Tónlistarskól-
inn á Tröllaskaga, TAT, með starfs-
stöðvar á öllum þremur stöðunum.
Þrátt fyrir allar breytingarnar og
raskið blómstra staðirnir og unga
fólkið sýnir því meiri áhuga en áður
að búa í heimabyggð, eins og fram
kom í skýrslu Ástu Júlíu Aðalsteins-
dóttur í fyrra, sem bar yfirskriftina
Ungt fólk í Fjallabyggð og var hluti
af stærrra verkefni sem nefndist
Samgöngubætur og byggðaþróun:
Félagsleg, efnahagsleg og menning-
arleg áhrif Héðinsfjarðarganga. Sú
rannsókn hófst árið 2008 og var henni
ætlað að meta jákvæð og neikvæð
áhrif Héðinsfjarðarganganna á Mið-
Norðurlandi. Unglingar í Fjalla-
byggð eru þar sagðir mun líklegir til
að vilja búa áfram í heimabyggð sinni
en jafnaldrar þeirra í öðrum byggðar-
kjörnum af svipaðri stærð.
Smástrákar af báðum kynjum
Eitt af því sem stendur 13-17 ára
unglingum í Fjallabyggð til boða, fyr-
ir utan hefðbundnar íþróttaæfingar
og tómstundir, sem mikill fjöldi sæk-
ir, er það sem Björgunarsveitin
Strákar á Siglufirði hefur verið með
um árabil en hefur aldrei verið vin-
sælla en einmitt núna.
„Já, við erum með 23 krakka í ung-
lingadeildinni Smástrákum, reyndar
af báðum kynjum þrátt fyrir nafnið,
og bæði úr Ólafsfirði og Siglufirði, því
Björgunarsveitin Tindar í Ólafsfirði
er ekki með unglingastarf, einungis
Björgunarsveitin Strákar. Þess
vegna buðum við austurbæingum að
vera með okkur, enda er þetta eitt
sveitarfélag og bara eðlilegt og sjálf-
sagt að leyfa öllum á þeirra reki sem
vilja að koma hingað til að ná sér í
fræðslu og reynslu,“ segir Magnús
Magnússon, sem er einn þeirra sem
veita starfinu forstöðu. Hin eru
Gunnar Örn Óskarsson, Hilmar Sím-
onarson, Ragnar Már Hansson, Unn-
ur María Unnarsdóttir og Sara Þor-
steinsdóttir. „Við hittumst einu sinni í
viku, nánar tiltekið á þriðjudags-
kvöldum, og þá eru kennd grunn-
atriði í fyrstu hjálp, leitartækni,
fjallamennsku, hnútum og ýmsu
öðru, þ.e.a.s. grunnatriðunum í að
verða björgunarmaður.“ Að sögn
Magnúsar er verið að frá september
og fram í miðjan júní, og skotist í
óvissuferð á einhverjum af seinustu
fundunum á vorin, þar sem gjarnan
er reynt að brjóta þetta upp, gera
eitthvað öðruvísi.
„Við fórum fórum t.d. í rafting og
paintball síðast, borðuðum eitthvað
gott og tókum svo keilu og bíóferð í
lokin á Akureyri. Þátttökugjöld eru
engin, það eina sem þarf að borga er í
óvissuferðina og svo 2.500 krónur í
hettupeysu merkta Smástrákum, en
það er vara sem kostar töluvert meira
ella,“ segir hann.
Strákar líka í örum vexti
Magnús hefur verið umsjónar-
maður í átta ár og ýmsir komið til að-
stoðar með honum. „Ég byrjaði með
sex unglinga en fyrir 4-5 árum varð
sprenging í þátttökunni, eftir að
starfið varð þéttara og við sýnilegri.
Við erum ekki að fá mikið til okkar
krakka sem eru í knattspyrnu, enda
svo mikið um æfingar þar, að svona
myndi einfaldlega rekast á eða yrði
hreinlega of mikið fyrir þá krakka,
heldur eru þetta unglingar sem eru
lítið eða ekki í öðru íþrótta- og tóm-
stundastarfi, nema þá badminton,
sem er afar vinsælt hér í Siglufirði og
búið að vera áratugum saman. Þann-
ig að þetta er svona viðbót við þetta
öfluga félagsstarf sem er hérna í
sveitarfélaginu, beggja vegna. Það
hefur líka verið að fjölga í Strákum,
það hefur verið að koma fólk inn og
prufa, bæði kyn, sem er mjög já-
kvætt, svo að við horfum björtum
augum til framtíðarinnar hvað þetta
og annað varðar.“
Í alvörusveitina, Stráka, komast
unglingarnir við 18 ára aldurinn. Þar
eru um 20 starfandi núna. Formaður
er Jón Hrólfur Baldursson. „Björg-
unarsveitin Strákar er líka einu sinni
í viku með starf, vinnukvöld, á
fimmtudögum, og svo erum við með
ýmsa smærri hópa, t.a.m. bílahóp,
sleðahóp, fjallahóp, bátahóp og fleiri
og það er æft þegar mönnum hentar,
þ.e.a.s. þegar flestir geta mætt.“
Stefnir í metumferð um göngin
Í ágústmánuði síðastliðnum jókst
umferð um Héðinsfjarðargöng um
4% miðað við sama mánuð í fyrra.
Hefur umferðin aukist um tæp 12%
frá áramótum miðað við sama tímabil
í fyrra. Stefnir í metumferð um Héð-
insfjarðargöngin nú í ár og að heild-
arökutækjafjöldi verði 250-260 þús-
und. Meðalumferð á dag stefnir því í
um 710 ökutæki á sólarhring.
Unglingastarfið í blóma
Áhrif Héðinsfjarðarganga á æskulýðinn í Fjallabyggð jákvæð Margt er í boði á fræðslu-, íþrótta-
og tómstundasviði Sprenging hefur orðið í unglingadeild Björgunarsveitarinnar Stráka
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Mikill áhugi Unglingarnir sem mættir voru þriðjudagskvöldið 25. október voru tilbúnir í að nema eitthvað gagnlegt í björgunarfræðunum.
Kennslustund Gestur Hansson, fjallagarpur og snjóaeftirlitsmaður Veður-
stofu Íslands á Siglufirði, var með fræðslu um ýmsar gerðir af hnútum.
Árlega hefur ritið Vísbending
metið fjárhagslegan styrk ís-
lenskra sveitarfélaga og tekið
heildarniðurstöðurnar saman.
Úttektin byggir á ársreikn-
ingum þeirra og er farið ræki-
lega yfir skuldir, tekjur, íbúa-
fjölda, eignir og grunnrekstur,
bæði A-hluta og B-hluta í efna-
hagsreikningi þeirra.
Sveitarfélögunum eru gefnar
einkunnir eftir nokkrum þátt-
um eða forsendum sem leiða
til þess að það sveitarfélag
sem skorar hæst fær útnefn-
inguna Draumasveitarfélagið.
Fjallabyggð lenti þetta árið í
3. sæti með einkunnina 7.5, en
var í fyrra í 6. sæti með 7.1
stig.
„Niðurstaðan verður að telj-
ast afar ánægjuleg og sýnir að
rekstur Fjallabyggðar er mjög
traustur,“ segir í frétt á heima-
síðu sveitarfélagsins.
Fjallabyggð
upp í 3. sæti
DRAUMASVEITARFÉLAGIÐ
Sogavegi við Réttarholtsveg
Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Einkarekið apótek
Ráðgjöf og þjálfun
nolta.is