Morgunblaðið - 05.11.2016, Page 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2016
Dagur Ragnarsson og VignirVatnar Stefánsson sigr-uðu á alþjóðlegu ung-lingamóti sem fram fór í
Uppsölum í Svíþjóð „Uppsala young
champions“ og lauk á miðvikudaginn.
Þeir hlutu báðir 6½ vinning af níu
mögulegum en Dagur var ½ stigi ofar
og hreppti því gullverðlaunin. Mótið
var eins og nafnið bendir til skipað
ungum skákmönnum undir tvítugu
og voru keppendur 20 talsins þar af
16 Svíar, þrír Íslendingar en stiga-
hæsti keppandinn var frá Finnlandi.
Oliver Aron Jóhannesson var í loka-
umferðinni í færum til að lenda einn í
3. sæti en missti þráðinn í betri stöðu
og tapaði. Hann hlaut 5 vinninga og
varð í 8.-9 sæti. Íslands-tengingin
nær aðeins lengra þar sem einn af
skipuleggjendum mótsins var Guð-
mundur Sverrir Þór sem býr í Sví-
þjóð og er þekktur skákdómari.
Tefldar voru níu umferðir á sex dög-
um en tímamörk voru 90 30.
Dagur og Vignir Vatnar bættu
báðir duglega við stigatölu sína og á
næsta lista verður Vignir sem er að-
eins 13 ára væntanlega kominn með í
kringum 2.350 elo-stig.
Dagur náði forystunni snemma og
hélt henni allt til loka. Hann fór illa að
ráði sínu með gjörunnið tafl gegn Sví-
anum Martin Jogstad í 3. umferð en í
8. umferð slapp hann með skrekkinn í
tapaðri stöðu gegn Finnanum Toivo
Keinänen. Þessu var ekki ólíkt farið
með Vigni Vatnar sem oft komst í
’ann krappan og flýtti sér stundum of
mikið. Lokadaginn hefði hann getað
náð efsta sæti einn en missti unna
stöðu niður í jafntefli í fyrri skákinni
af tveimur sem tefldar voru þann dag.
Mótið er ágæt vísbending um
styrkleika okkar yngstu skákmanna
en sænskir skákmenn hafa alltaf ver-
ið þéttir fyrir. Ungir skákmenn eiga
það til að fyllast vonleysi þegar þeir
sitja andspænis mun stigahærri and-
stæðingi. Vænlegra til árangurs er að
líta á slíkt stigabil sem áskorun og
það gerði Vignir Vatnar þegar hann
mætti stigahæsta keppanda mótsins í
upphafi móts:
2. umferð:
Toivo Kainänen – Vignir Vatnar
Stefánsson
Enskur leikur
1. c4 e5 2. g3 h5!?
Hrauslega leikið í anda Ungverj-
ans Rapport. Finninn gerir enga til-
raun til að stöðva för h-peðsins.
3. Rc3 Rc6 4. Rf3 Bc5 5. d3 Rge7 6.
Bg2 d6 7. a3 a5 8. 0-0 Rg6 9. Hb1 h4
10. Bg5? f6 11. Bxh4 Bg4!
Biskupinn getur sig hvergi hrært á
h4 og svartur vinnur peðið til baka.
12. Re4 Bxf3 13. Bxf3 Rxh4 14.
gxh4 f5! 15. Rg5
Þvingað þar sem 15. Rxc5 er svar-
að með 15. … Dxh4! o.s.frv.
15. … Hxh4 16. Re6 De7 17. Bd5
Rd8 18. Rxc5 Dg5+ 19. Bg2 dxc5 20.
e3 Re6 21. Df3 Ke7 22. h3 Hah8 23.
Dg3 Df6 24. f4
Svartur er búinn að hlaða liðsafla
sínum á kóngsvænginn og hótaði
24. … f4 en þessi leikur gerir illt
verra.
24. … exf4 25. exf4 Dd4+ 26. Kh1
Rxf4 27. Hbe1+ Kf6!
Þarna stendur kóngurinn ágæt-
lega.
28. Hf3 Hxh3+
Einfaldara var sennilega 28. …
Hg4! en þetta vinnur líka.
29. Bxh3 Hxh3+ 30. Dxh3 Rxh3
31. Hxh3 Dxb2 32. Hhe3 Db6 33. He8
Dd6 34. H8e3 c6 35. Hb1 Dd4 36.
Hg3 f4 37. Hh3 Dd7 38. Kh2 g5 39.
Hg1 g4 40. Hh4 Kg5 41. Hh8 g3 42.
Kg2 Dxd3 43. Hg8+ Kf6 44. Hf8+
Ke7 45. Hxf4 Dd2+ 46. Kf3 Df2+
– og hvítur gafst upp.
Guðmundur fimmti á NM
Guðmundur Kjartansson vann í
lokaumferð Skákþings Norðurlanda
sem lauk í Finnlandi um síðustu
helgi. Guðmundur hlaut 5 vinninga af
níu mögulegum og endaði í 5. sæti.
Dagur og Vignir Vatnar unnu
„Uppsala young champions“
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Þann 11. september
síðastliðinn var farin
þriðja Maurer-ferð þar
sem fylgt var ferðaleið
Konrads Maurers í Ís-
landsferð hans árið
1858. Fyrsta ferðin,
2014, var farin um Suð-
urland, frá Arnarbæli í
Ölfusi að Skógum und-
ir Eyjafjöllum. Önnur
ferð, 2015, var um slóð-
ir Laxdælu, frá Fjarðarhorni í
Hrútafirði um Saurbæ, Skarðs-
strönd, Fellsströnd að Sauðafelli í
Dölum. Sú þriðja var aftur um Suð-
urland, frá Reykjavík, um Þingvelli,
Haukadal að Kaldaðarnesi í Flóa.
Margir hafa farið í allar þessar
ferðir og vilja komast í hverja ferð.
Nútíma-Íslendingar eru svo upp-
teknir af öllu sem þeim býðst og geta
þeirra og skyldur svo miklar að
margt þarf að gera í einu. Helst
þyrftu menn að hafa 36 klukku-
stundir í sólarhring til að njóta allra
þeirra lystisemda og tækifæra sem
bjóðast og hugur þeirra stendur til.
Margir eru erlendis, í veislum, á
skemmtunum, að passa barnabörn, í
vaktavinnu og svo framvegis. Þótt
tómstundir hafi aukist hefur fram-
boð á tómstundagamni aukist enn
meir. Það eru þó alltaf um 60 manns
sem leggja upp frá höfuðstöðvum
Ferðafélags Íslands í hvert skipti.
Áfangastaður allra
Fyrsti áfangi var að rótum Mos-
fellsheiðar fyrir ofan Miðdal, sem
var kunnur áfangastaður allra sem
riðu á Þingvöll frá Reykjavík fyrr á
öldum. Áður en akvegurinn til Þing-
valla var lagður yfir Mosfellsheiði
1890 fóru menn reiðgötur um Selja-
dal, sem er á milli Grímmannsfells
og Mosfellsheiðarinnar. Síðan ókum
við um Mosfellsdal til Þingvalla. Við
stöðvuðum rútubílinn á Hakinu og
gengum niður Al-
mannagjá til Þingvalla-
kirkju. Margir áratugir
eru síðan menn höfðu
gengið eða ekið þessa
leið.
Kristján Valur Ing-
ólfsson vígslubiskup
opnaði fyrir okkur
Þingvallakirkju og
rúmaðist allur hóp-
urinn vel í þessu litla
en snotra húsi. Hljóð-
burður í þessum litlu
íslensku timburkirkjum er frábær
og enginn svo raddlítill að hvert
hans orð heyrist ekki skýrt og
greinilega. Menn ættu að gera meira
af því að nota þessi ágætu hús til
fundarhalda.
Kristján Valur hóf með sinni góðu
og þjálfuðu rödd lestur 49 ára gam-
allar blaðagreinar úr Morg-
unblaðinu frá 11. ágúst 1967. Hún
var viðtal við dótturdóttur Konrads
Maurers, frú Wheitrauch, sem
þekkti afa sinn persónulega og hafði
búið á heimili hans. Í viðtalinu birt-
ust margar persónulegar lýsingar á
Maurer og heimilishaldi hans.
Haukdælir að fornu og nýju
Eftir góða, íslenska kjötsúpu á
Geysi komum við saman í Hauka-
dalskirkju. Þar hélt Bjarni Harð-
arson, fyrrverandi alþingismaður og
bókaútgefandi, frábæran fyrirlestur,
blaðalaust, um Haukadal og Hauk-
dæli að fornu og nýju. Einnig dældi
Bjarni fróðleik yfir ferðamenn með
hljóðnemann í rútunni á leiðinni.
Næsti áfangi var Skálholt en á
Í fótspor Maurers
Eftir Jóhann
J. Ólafsson
» Þó að ferðasaga
Maurers frá 1858
sé hryggjarstykkið í
þessum ferðum þá
fara þær langt út
fyrir ferð Maurers.
Jóhann J. Ólafsson
Ljósmynd/Sigurjón Pétursson
Seljalandsleið Greinarhöfundur fetar í fótspor Maurer um Mosfellsheiði.
u
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
22 pör í Gullsmára
Spilað var á 11 borðum (22 pör) í
Gullsmára mánudaginn 31. október.
Úrslit í N/S:
Guðm. Pálsson - Sveinn Símonarson 219
Þóður Jörundss. - Jörundur Þórðarson 216
Jónína Pálsd. - Þorleifur Þórarinss. 183
Gunnar Guðmss. - Sveinn Sveinsson 176
A/V:
Pétur Jósefss. - Ágúst Vilhelmsson 208
Reynir Bjarnason - Sigurður Gíslason 200
Gunnar Alexanderss. - Elís Helgason 199
Gunnar M. Hansson - Hjörtur Hanness. 183
Tólf borð hjá FEBR
Mánudaginn 31. október var spil-
að á 12 borðum hjá bridsdeild Félags
eldri borgara í Reykjavík.
Efstu pör í N/S:
Jón Þór Karlsson – Sturla Snæbjörnss. 268
Örn Isebarn – Örn Ingólfsson 249
Guðl. Bessason – Trausti Friðfinnsson 247
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 227
A/V:
Björn E. Péturss. – Helgi Hallgrímss. 270
Axel Lárusson – Hrólfur Guðmss. 267
Bjarni Guðnason – Guðm. K. Steinbach 241
Elín Guðmanns. – Friðgerður Benedikts.228
Félag eldri borgara í Rvík
Fimmtudaginn 3. nóvember var
spilað á 10 borðum hjá bridsdeild
Félags eldri borgara í Reykjavík.
Efstu pör í N/S
Helgi Samúelsson – Sigurjón Helgason 261
Guðl. Bessason – Trausti Friðfinnss. 254
Soffía Daníelsd. – Pétur Skarphéðinss. 238
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 237
A/V
Björn E. Pétursson – Helgi Hallgrss. 250
Óli Gíslason – Magnús Jónsson 234
Margrét Gunnarsd. – Vigdís Hallgrímsd.230
Friðrik Jónsson – Björn Svavarsson 221