Morgunblaðið - 05.11.2016, Side 32
32 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2016
BOÐSKORT
Ársalir- fasteignamiðlun kynna með stolti samstarf
sitt við Euromarina sem er öflugt og traust
byggingarfyrirtæki á Spáni.
Þér/ykkur er boðið á kynningu laugardaginn 5. nóvember
nk. á Grand Hótel Hvammi milli kl. 13 og 17. Þar verða
fulltrúar þeirra ásamt okkur.
Upplagt tækifæri til að skoða kynningar efni um glæsi-
legar fasteignir af ýmsum stærðum og gerðum og fá
upplýsingar um öll þau atriði er tengjast því að kaupa og
eiga fasteign á Spáni.
Við verðum einnig með kynningu 6. nóvember á
skrifstofu Ársala að Engjateigi 5, milli kl. 13 og 17.
Verið velkomin
AKURINN kristið samfélag | Samkoma í Nú-
palind 1 6. nóv. kl. 14. Ræðumaður Árni Hilm-
arsson. Kaffi á eftir.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta á allra
heilagra messu kl. 11 þar sem látinna er
minnst. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédik-
ar og þjónar fyrir altari. Kór Árbæjarkirkju syng-
ur undir stjórn Krisztinu Kalló Szklenár. Öllum
gefst kostur á að tendra kertaljós í minningu
látinna ástvina. Sunnudagaskólinn er á sama
tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Bryndísar Evu
og Ingibjargar.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Séra
Sigurður Jónsson sóknarprestur prédikar og
þjónar fyrir altari. Benjamín Hrafn Böðvarsson
og Sigfús Jónasson guðfræðinemar annast
samverustund sunnudagaskólans. Kammer-
kór Áskirkju syngur, organisti Magnús Ragn-
arsson. Kaffisopi í Ási eftir messu.
ÁSTJARNARKIRKJA | Sunnudagaskóli kl.
11. Þar verður fjólublár dagur. Allir koma í ein-
hverju fjólubláu eða koma með eitthvað fjólu-
blátt.
Elvis-messa kl. 20 í Haukaheimilinu. Sérstakur
gestur verður Bjarni Arason. Kór Ástjarnarkirkju
syngur. Hljómsveit kirkjunnar annast undirleik
undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar. Prest-
ur er sr. Kjartan Jónsson.
BESSASTAÐAKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Lærisveinar HANS leika undir söng
og sr. Stefán Már, Margrét djákni og Sigrún Ósk
leiða stundina ásamt Bjarti Loga organista.
BORGARPRESTAKALL | Messa í Borgarnes-
kirkju kl. 11. Látinna minnst. Organisti Stein-
unn Árnadóttir. Prestur Þorbjörn Hlynur Árna-
son. Hádegishressing og samvera í
safnaðarheimilinu að athöfn lokinni.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Prestur sr. Þórhallur Heim-
isson. Ræðuefni dagsins: Eilífðarvonin. Organ-
isti Örn Magnússon. Kór kirkjunnar leiðir söng.
Fermingarbörn aðstoða ásamt messuhóp IV.
Kaffi í safnaðarheimilinu eftir stundina. Kór-
andakt og ljóðalestur kl. 20. Sigurður Skúlason
velur og les ljóð. Kór kirkjunnar syngur undir
stjórn Arnar Magnússonar. Sr. Þórhallur Heim-
isson fer með bæn.
DIGRANESKIRKJA | Sunnudaginn kl. 11 er
messa og sunnudagaskóli. Prestur er séra
Gunnar Sigurjónsson. Ávextir andans leiða
safnaðarsöng. Veitingar í safnaðarsal að lok-
inni messu.
DÓMKIRKJAN | Hátíðarmessa kl. 11. Agnes
M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, prédikar,
séra Sveinn Valgeirsson, séra Hjálmar Jóns-
son, Karl Sigurbjörnsson biskup og séra Sól-
veig Lára Guðmundsdóttir vígslubiskup þjóna.
Dómkórinn syngur undir stjórn Kára Þormar.
Ritningarlestrana lesa Elísa Schram og Marinó
Þorsteinsson. Upphafsbænina les Ástbjörn Eg-
ilsson. Barnastarfið á kirkjuloftinu á sama
tíma. Messukaffi, minni á bílastæðin gengt
Þórshamri.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl.
10.30. Gospelmessa kl. 20. Liljurnar syngja.
Kórstjóri Kristín Ragnhildur Sigurðardóttir.
Tryggvi Hermannsson við flygilinn. Sóknar-
prestur leiðir stundina og prédikar. Messuþjón-
ar lesa ritningarlestra og bænir. Meðhjálpari
Ásta Sigfúsdóttir. Kaffisopi eftir messuna. Jól í
skókassa - Móttaka í kirkjunni lau. 5. nóv. kl.
11-14 og í safnaðarstarfinu í vikunni.
FELLA- og Hólakirkja | Messa kl. 11 á allra-
heilagramessu. Sr. Guðmundur Karl Ágústs-
son og sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson prédika
og þjóna fyrir altari. Á allraheilagramessu minn-
umst við látinna og tendruð verða kertaljós í
minningu látinna ástvina. Arnhildur Valgarðs-
dóttir organisti stýrir söng og leikur á orgel.
Á sama tíma er sunnudagaskólinn í umsjá Pét-
urs og félaga.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli
kl. 11. Kvöldmessa kl. 20. Kirkjugestum gefst
kostur á því að tendra kertaljós í minningu lát-
inna ástvina. Kór og hljómsveit kirkjunnar leiða
sönginn undir stjórn Arnar Arnarsonar. Erna
Blöndal syngur einsöng.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Allra heilagra
messa kl. 14. Aðstandendum og öllum þeim
sem misst hafa er boðið að koma og eiga frið-
sæla, íhugunar-, bæna- og minningastund í
okkar fagra helgidómi.
Hjörtur Magni Jóhannsson safnaðarprestur
prédikar og þjónar fyrir altari. Gunnar Gunn-
arsson organisti leiðir tónlistina ásamt Söng-
hópnum við Tjörnina.
GARÐAKIRKJA | Látinna verður minnst í sam-
eiginlegri guðsþjónustu Bessastaða- og Garða-
sóknar kl. 14. Lára Björnsdóttir, fv. félagsmála-
stjóri, flytur hugleiðingu. Prestarnir Jóna Hrönn
Bolladóttir, Friðrik J. Hjartar og Stefán Már
Gunnlaugsson þjóna ásamt djáknunum Mar-
gréti Gunnarsdóttur og Helgu Björk Jónsdóttur.
Tónlist flytja Bjartur Logi Guðnason, Jóhanna
Ósk Valsdóttir, Davíð Sigurgeirsson og Jó-
hanna Guðrún Jónsdóttir. Hátíðin er í tilefni
allra heilagra messu!
GLERÁRKIRKJA | Allra heilagra messa kl.
11. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Kór
Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars
Väljaots.
GRAFARVOGSKIRKJA | Allra heilagra
messa. Guðsþjónusta kl. 14. Við minnumst
þeirra sem látist hafa á árinu og bjóðum þeim
sérstaklega sem misst hafa ástvini sína á
árinu sem og eldri borgurum safnaðarins.
Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar og þjónar
fyrir altari ásamt sr. Guðrúnu Karls Helgudótt-
ur. Kór kirkjunnar syngur. Organisti: Hákon
Leifsson. Karlakór Grafarvogs syngur. Stjórn-
andi: Íris Erlingsdóttir. Eftir messu verður kaffi-
sala, framlög renna í Líknarsjóð. Sunnudaga-
skóli kl. 11. Umsjón: Þóra Björg.
GRAFARVOGUR - kirkjuselið í Spöng |
Guðsþjónusta kl. 13. Séra Sigurður Grétar
Helgason prédikar og þjónar fyrir altari. Kór
kirkjunnar syngur. Organisti er Hákon Leifsson.
Sunnudagaskóli á sama tíma. Umsjón hefur
Matthías Guðmundsson. Undirleikari er Stefán
Birkisson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10 og
bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11 . Um-
sjón hafa Silvía og Ásta Lóa. Messa kl. 11. Lát-
inna ástvina minnst. Altarisganga. Samskot til
ABC. Messuhópur þjónar. Félagar í kirkjukór
Grensáskirkju syngja. Organisti er Ásta Har-
aldsdóttir. Prestur sr. Ólafur Jóhannsson.
Í messunni verður sérstök bæna- og minning-
arstund. Þar gefst aðstandendum tækifæri til
að kveikja á bænakertum í minningu látinna
ástvina. Hversdagsmessa á fimmtudag kl.
18.10 með Þorvaldi Halldórssyni.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Fjöl-
skyldumessa (afa og ömmu messa) kl. 11.
Prestur sr. Karl V. Matthíason. Barnakór Guð-
ríðarkirkju syngur undir stjórn Ásbjargar Jóns-
dóttur. Ásbjörg samdi lag fyrir börnin um afa og
ömmu, sem verður frumflutt í messunni. Allra
heilagra messa kl. 17. Prestur sr. Karl V. Matt-
híasson. Vorboðinn syngur undir stjórn Hrannar
Helgadóttur. Sigríður Rósa Snorradóttir, nemi
úr Söngskólanum í Reykjavík, syngur í mess-
unni. Kaffisopi eftir messu. Meðhjálpari Guðný
Aradóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Allra heilagra messa,
látinna minnst. Kveikt á kertum til minningar
um látna ástvini. Prestur sr. Jón Helgi Þórarins-
son. Organisti Guðmundur Sigurðsson. Félagar
úr Barbörukórnum syngja. Söngur, gleði og
gaman í sunnudagskólanum. Kaffsopi og djús
á eftir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Fræðslumorgunn kl.
10. Dr. Sigurður Pálsson segir frá hugmyndum
um kirkjuna, undirtektum, gagnrýni og viðtök-
um. Messa og barnastarf kl. 11. Susan John-
son, biskup lúthersku kirkjunnar í Kanada, pré-
dikar. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og dr.
Sigurður Árni Þórðarson þjóna fyrir altari. Hópur
messuþjóna og fermingarbörn aðstoða. Fé-
lagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Org-
anisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón
barnastarfs Inga Harðardóttir. Tónleikar Schola
cantorum kl. 17. Requiem-sálumessa.
HÁTEIGSKIRKJA | Í messunni kl. 11 verður
kveikt á kertum í minningu látinna ástvina og
barn borið til skírnar. Börnin hafa sitt leikhorn á
meðan og eftir messu, laust fyrir kl. 12 er boð-
ið upp á súpu og síðan sunnudagaskóla í
umsjá Karenar og Jóhönnu. Prestur er sr. María
Ágústsdóttir, organisti Kári Allansson og fé-
lagar úr kór Háteigskirkju leiða söng. Samskot
nóvembermánaðar renna til Kristniboðssam-
bandsins.
HJALLAKIRKJA í Ölfusi | Messa kl. 14.
Fermingarbörn lesa texta. Yngri kór Grunn-
skóla Þorlákshafnar syngur undir stjórn Gests
Áskelssonar og Sigþrúðar Harðardóttur. Kór
Þorlákskirkju syngur undir stjórn organistans
Miklosar Dalmay. Guðmundur S. Brynjólfsson
les guðspjall. Sóknarprestur segir frá þessum
merka sögustað. Rúta frá Þorlákskirkju
(13.30) fyrir kóra og þá sem vilja. Foreldrar
hvattir til að mæta. Ölfusingar og nærsveita-
menn, sýnið þessum forna merkisstað virðingu
og látið sjá ykkur.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl. 11.
Allra heilagra messa, minningarstund um þá
sem fallið hafa frá. Organisti og kór flytja fal-
lega tónlist í bland við ritningar- og ljóðalestra.
Sr. Kristín Pálsdóttir leiðir stundina. Guðný Ein-
arsdóttir organisti stjórnar tónlistarflutningi
ásamt kór kirkjunnar. Kaffisopi eftir messu.
Sunnudagaskóli kl. 11 í salnum niðri í umsjón
Markúsar og Heiðbjartar.
hjallakirkja.is
HRAFNISTA | Reykjavík. Guðsþjónusta kl. 14
í samkomusalnum Helgafelli. Félagar úr
Kammerkór Áskirkju syngja. Ritningarlestra les
Kristín Guðjónsdóttir. Sr. Svanhildur Blöndal
prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er
Magnús Ragnarsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Fjölskyldumessa kl.
11, sr. Eva Björk, Systa, Helga, Jóhanna, Rebbi
og Vaka skjaldbaka taka vel á móti kirkjugest-
um. Allra heilagra messa kl. 20 í samstarfi við
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Nöfn þeirra
sem hafa látist frá allra heilagra messu á síð-
asta ári lesin. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir
stjórn Arnórs oranista. Sr. Erla þjónar. Kvöld-
kaffi að lokinni messu í boði starfsfólks HSS
og Keflavíkurkirkju. Kyrrðarstund alla miðviku-
daga kl. 12.
KIRKJA heyrnarlausra | Messa kl. 14. Tákn-
málskórinn leiðir söng. Prestur sr. Brynja Vigdís
Þorsteinsdóttir. Molasopi eftir messu.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta á allra
heilagra messu kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson
sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt Ástu Ágústsdóttur djákna. Kór Kópa-
vogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.
Tónlist flutt frá kl. 10.30. Beðið verður sér-
staklega fyrir þeim sem sóknarprestur hefur
jarðsungið sl. ár. Eftir guðsþjónustu verður
kaffi í safnaðarheimilinu Borgum þar sem Ásta
Ágústsdóttir djákni flytur erindi um sorg og
sorgarviðbrögð. Sunnudagaskólinn hefst kl. 11
í Borgum.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Jó-
hanna Gísladóttir þjónar. Organisti er Árni Heið-
ar Karlsson. Verðlaunakórinn Graduale Nobili
leiðir söng og tekur lagið fyrir kirkjugesti.
Messuþjónar aðstoða við helgihaldið. Sunnu-
dagaskólinn er á sínum stað á sama tíma.
Snævar og Sara taka á móti börnum á öllum
aldri. Kaffi, djús og ávextir eftir stundina.
Haustbasar Kvenfélags Langholtssóknar hefst
að messu lokinni í safnaðarheimili. Mikið um
fallega muni, hlutavelta, veitingasala og köku-
basar.
LÁGAFELLSKIRKJA | Bæna- og minningar-
stund kl. 11. Öllum gefinn kostur á að kveikja á
minningar- og bænaljósi. Vorboðarnir sjá um
sönginn í þessari guðsþjónustu. Organisti er
Hrönn Helgadóttir. Umsjón hafa sr. Arndís Linn
og Rut G. Magnúsdóttir djákni.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
kl. 11. Messa kl. 20. Kór Lindakirkju syngur
undir stjórn Óskars Einarssonar. Sóley Herborg
Skúladóttir guðfræðinemi prédikar, sr. Guð-
mundur Karl Brynjarsson þjónar fyrir altari.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Sameiginlegt upphaf. Drengjakór Reykjavíkur
syngur. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðar-
söng. Stjórnandi og organisti Steingrímur Þór-
hallsson. Prestur Skúli S. Ólafsson. Umsjón
með barnastarfinu hafa þau Stefanía, Katrín
og Ari. Samfélag og kaffimoli eftir messu.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Samvera aldraðra
kl. 14 (6. nóvember).
Sr. Pétur þjónar fyrir altari. Ólöf Bjarnadóttir
trúarbragðafræðingur flytjur hugvekjuna.
Söngvarar úr Söngskóla Sigurðar Dements
syngja við undirleik Árna Heiðars Karlssonar.
Viðurgerningur í safnaðarheimili í boði stjórnar
eftir samveruna í kirkjunni.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 14 í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60, 3.
hæð. Ræðumaður sr. Kjartan Jónsson. Túlkað
á ensku. Barnastarf.
SELFOSSKIRKJA | Messa 6. nóvember kl.
11. Prestur Axel Árnason Njarðvík, Kirkjukórinn
syngur, organisti er Edit A. Molnár.
Sunnudagaskóli á sama tíma, umsjón Jóhanna
Ýr Jóhannsdóttir. Súpa og brauð í safnaðar-
heimilinu á eftir.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Biblíusaga, söngur, brúður og nýr límmiði.
Ávaxtahressing í lokin og mynd til að lita.
Kvöldguðsþjónusta kl. 20 á allra heilagra
messu, sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar. Tóm-
as Guðni Eggertsson leikur á orgel og Kór
Seljakirkju syngur. Kvöldhressing að messu
lokinni.
SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorg-
unn kl. 10. Spítalinn okkar - hvers vegna? Anna
Stefánsdóttir, formaður samtakanna Spítalinn
okkar, talar. Messa og sunnudagaskóli kl. 11.
Látinna ástvina minnst. Sr. Bjarni Þór Bjarna-
son þjónar. Glúmur Gylfason leikur á orgelið.
Leiðtogar sjá um sunnudagaskólann. Félagar
úr Kammerkórnum syngja. Kaffiveitingar og
samfélag eftir messu.
STÓRA-Núpskirkja | Messa 6. nóvember kl.
14. Látinna minnst. Kirkjukór Hruna- og Hrepp-
hólasóknar kemur í heimsókn til nágranna-
sóknarinnar og mun leiða sönginn undir stjórn
Stefáns Þorleifssonar.
VÍDALÍNSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11 í samstarfi við íþróttafélagið Stjörnuna.
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar ásamt fræð-
urum sunnudagaskólans. Stúlkur úr fimleika-
félaginu leika listir sínar. Barnakór Vídalíns-
kirkju syngur undir stjórn Jóhönnu Guðrúnar
Jónsdóttur og Davíðs Sigurgeirssonar. Andrea
Sif Pétursdóttir flytur ávarp. Kaffi, djús og
kanelsnúðar í messukaffinu.
VÍÐIDALSTUNGUKIRKJA | Messa sunnudag
kl. 14. Allra heilagra messa, látinna minnst.
Organisti Elinborg Sigurgeirsdóttir, prestur sr.
Guðni Þór Ólafsson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Guðsþjón-
usta kl. 11. Látinna minnst. Kór Víðistaða-
sóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guð-
mundsdóttur. Prestur sr. Bragi J. Ingibergsson.
Sunnudagaskólinn kl. 11.
Fjölbreytt dagskrá fyrir börn í suðursal kirkjunn-
ar. María og Bryndís leiða stundina. Kaffi, djús
og kex að guðsþjónustum loknum.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Messa (altaris-
ganga) kl. 11. Allra heilagra messa. Látinna
minnst. Sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir
altari. Kór kirkjunnar leiðir söng við undirleik
Stefáns Helga Kristinssonar. Meðhjálpari Pét-
ur R. Guðmundsson. Sunnudagaskóli kl. 11 í
umsjá Heiðars og Péturs. Kaffi, djús og kökur
að skóla loknum.
Njarðvíkurkirkja (Innri-Njarðvík).
Messa og sunnudagaskóli í Ytri-Njarðvíkur-
kirkju kl. 11.
ÞORLÁKSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11.
Hafdís og félagar.
Morgunblaðið/Sigurður ÆgissonKaupangskirkja í Eyjafirði.
ORÐ DAGSINS:
Jesús prédikar um sælu.
(Matt. 5)