Morgunblaðið - 05.11.2016, Qupperneq 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2016
✝ Gerður Bene-diktsdóttir
fæddist í Garði í Að-
aldal 20. janúar
1920 og ólst upp á
Höskuldsstöðum í
Reykjadal. Hún lést
á Heilbrigðis-
stofnun Norður-
lands, Húsavík, 27.
október 2016.
Foreldrar henn-
ar voru Anna Jóns-
dóttir, f. 1891, d. 1995, og Bene-
dikt Baldvinsson, f. 1884, d.
1969. Systkini hennar, börn
Benedikts og Matthildar Hall-
dórsdóttur, voru Baldvin, f.
1915, d. 1916, Guðný, f. 1917, d.
2007, Halldór, f. 1919, d. 1958,
Skafti, f. 1925, og Hólmfríður, f.
1928.
Gerður giftist Jóhannesi
Kristjánssyni pípulagn-
ingameistara 1952. Jóhannes var
fæddur 1901 og lést 1956. Sonur
þeirra er Ingólfur Ásgeir, pró-
fessor við Háskóla Íslands, f.
Gerður Bin, f. 2002, og Ólöf
Kristín Lin, f. 2004, grunn-
skólanemar.
Eiginkona Þorláks er Ingunn
Guðbjörnsdóttir, skólaliði við
Reykjahlíðarskóla, fædd 1967.
Börn þeirra eru Magnús Þorri
Jónsson matreiðslumaður, f.
1987, dóttir hans er Milly Magn-
úsdóttir Jensen, f. 2013; Jón Ás-
geir húsasmiður, f. 1989, sam-
býliskona Perla Dögg Eyþórs-
dóttir, sjúkraliði og
snyrtifræðingur, f. 1992; og
Hulda María háskólanemi, f.
1994.
Gerður bjó á Höskuldsstöðum
til ársins 1952, á Akureyri til
1958 og á Skútustöðum í Mý-
vatnssveit til dauðadags, þar sem
fjölskyldan stundaði búskap með
kindur og kýr til ársins 1988.
Auk barnaskólanáms stundaði
Gerður nám í Húsmæðraskólan-
um á Laugum veturinn 1939-
1940. Gerður vann langan vinnu-
dag við heimilisstörf og bústörf.
Hún stundaði hannyrðir alla ævi
og var á síðustu árum og til
dauðadags virkur félagi í Dyngj-
unni, félagi handverksfólks í Mý-
vatnssveit.
Útför hennar fer fram frá
Skútustaðakirkju í dag, 5. nóv-
ember 2016, klukkan 11.
1954. Eiginkona
hans er Auður Páls-
dóttir, lektor við
Háskóla Íslands, f.
1965. Börn hennar
og stjúpbörn Ingólfs
eru Páll Ágúst Þór-
arinsson háskóla-
nemi, f. 1995, og
Bjargey Þóra Þór-
arinsdóttir mennta-
skólanemi, f. 1998.
Gerður giftist
Jóni Þorlákssyni bónda á Skútu-
stöðum í Mývatnssveit 1958. Jón
var fæddur 1912 og lést 1996.
Börn þeirra eru Arnfríður Anna
Jónsdóttir húsfreyja, f. 1959, og
Þorlákur Páll, vélamaður hjá
Landgræðslunni, f. 1962. Sonur
Arnfríðar er Jón Bergmann Mar-
onsson eðlisfræðingur, f. 1981.
Sambýliskona Jóns Bergmanns
er Emma Shannon vefari, f.
1979. Eiginmaður Arnfríðar er
Örnólfur Jóhannes Ólafsson,
sóknarprestur á Skútustöðum, f.
1955. Dætur þeirra eru Dóróthea
Í dag lít ég til baka með
hjarta fyllt sorg en líka þakk-
læti. Borin er til grafar tengda-
móðir mín og fyrirmynd á
margan hátt.
Ég kynntist Gerði fyrst þeg-
ar ég heimsótti fjölskyldu Ing-
ólfs á Skútustöðum fyrir um
átta árum síðan. Þar birtist
fjölskyldunni á Skútustöðum
konan sem hafði lokkað Ingólf
suður yfir heiðar svo hann
varði minni tíma austur í Mý-
vatnssveit en áður. Fyrst um
sinn spurði Gerður mig frétta
af sjálfri mér og mínum börn-
um, forvitnaðist svo um fjöl-
skyldu mína. Smám saman upp-
lýsti hún mig um ættar- og
vinatengsl fjölskyldu minnar í
sveitunum í kring enda Gerður
glögg og mjög ættfróð. Síðar
fór hún að læða að mér ýmsu
um son sinn sem henni fannst
mikilvægt að ég vissi og flest af
því sagði hún mér brosleit á
svip. Þetta voru hlutir eins og
að hann væri ekki vanur að
skipuleggja fjölmennar veislur,
hann væri þrjóskur ef sá væri á
honum gállinn, hann væri ein-
staklega blíður og góður og
stundum færi hann ekki ein-
földustu leið í verklegum við-
fangsefnum. Svo kímdi hún svo
skemmtilega og bætti gjarnan
við að ég væri líklega búin að
átta mig á þessu.
Gerður var glögg kona, hrein
og bein og fylgdist vel með
gangi mála. Hún var iðin og
gjarnan með prjóna eða bók
sér við hönd. Þá var hún þol-
inmóð og úrræðagóð og skipti
þá engu hvort um var að ræða
einhvers konar handavinnu eða
samskipti fólks. Eru mér sér-
staklega minnisstæð orð henn-
ar um að líklega væri alltaf
best að mæta fólki með blíðu,
en vera samt staðfastur.
Það er sárt að kveðja Gerði,
konu sem ávallt fylgdi birta
sem við hin höfum svo ríkulega
fengið að njóta. Hennar mun ég
sárt sakna.
Um leið og ég þakka fyrir
þann tíma sem ég fékk að vera
samferða Gerði í lífinu bið ég
Guð að blessa alla fjölskylduna
og veita henni styrk sinn og
kraft.
Auður Pálsdóttir.
Mig langar að setja á blað
örfá minningabrot tengd
frænku minni, Gerði Benedikts-
dóttur. Mæður okkar voru syst-
ur, uppaldar að Höskuldsstöð-
um í Reykjadal. Þar ólst
Gerður einnig upp með móður
sinni, Olgeiri móðurbróður og
öðrum skyldmennum. Þar man
ég fyrst eftir henni er ég sem
barn kom í heimsóknir með
móður minni. Á hestbaki með
Gerði er ein af fyrstu bernsku-
minningum mínum. Við tví-
menntum en reiðtúrnum lauk
með því að við duttum af baki
og afleiðingarmar þær að ég
rankaði ekki aftur við mér fyrr
en inni í stofu. Ótaldar eru
berjaferðirnar í Höskuldsstaði
en þar er mikið berjaland.
Veiðiferðir voru farnar á Vest-
mannsvatn, dregið fyrir silung.
Fyrir barn á Húsavík var
það ævintýri líkast að ferðast
til Akureyrar um miðja síðustu
öld. Þar bjó Gerður nokkur ár
með fyrri manni sínum, Jó-
hannesi Kristjánssyni, sem lést
langt um aldur fram, og móður
sinni sem flutti með henni
þangað. Þau Jóhannes eignuð-
ust soninn Ingólf Ásgeir og
bjuggu fyrst í gamla Höepfner-
húsinu . Ég fór í margar heim-
sóknir þangað og síðar á Eyr-
arlandsveginn þar sem litla
fjölskyldan bjó eftir að Jóhann-
es lést. Eftirminnilegur er flat-
kökubakstur þeirra mæðgna,
brauðið var selt í verslanir.
Eftir sex ár á Akureyri flutti
Gerður í Skútustaði í Mývatns-
sveit og tók saman við bóndann
þar, Jón Þorláksson. Þar hefur
frænka mín búið síðan í nær 60
ár, seinni árin með móður sinni
Önnu eftir að Jón lést og börn
þeirra Arnfríður og Þorlákur
svo og Ingólfur fluttu að heim-
an. Anna varð 104 ára, alla tíð
ótrúlega frísk og stálminnug.
Það var alltaf gaman að
koma til Gerðar, hún var líka
stálminnug og mundi allt, gam-
alt og nýtt, var skrafhreifin,
prjónaði og las. Prjónaskapur
hennar var einstakur, einkum
eru vettlingarnir símunstraðir
og fagrir eins og listaverk vel
þekktir enda seldir í Dyngj-
unni, handverkshúsi, þar sem
hún var félagi og tók þar vaktir
fram á síðustu ár. Hún var
heilsuhraust, varð varla mis-
dægurt fyrr en síðustu dagana,
en þurfti þó hin síðari ár að
fara til Reykjavíkur til augn-
læknis.
Heimilið var fallegt og
handavinnan hennar áberandi.
Gerður barst ekki mikið á og
ferðaðist ekki víða, fór aldrei til
útlanda ef frá er talin ein ferð
út í Hrísey eins og hún orðaði
það sjálf! En hún hafði
ákveðnar skoðanir á mönnum
og málefnum, ekki síst um-
hverfismálum, þó hún væri ekki
stöðugt að flíka þeim en gat
svarað skýrt og skorinort fyrir
sig. Fyrirsögn í viðtali við
Morgunblaðið sl. sumar lýsir
vel nægjusemi hennar og við-
horfum. Þar sagði: „Fólki líður
ekkert betur þó það eignist allt
sem það langar í.“ Hún var
ótrúlega snögg í hreyfingum og
fljót í förum allt til hins síðasta.
Við sátum nýlega saman við
jarðarför í Skútustaðakirkju og
vildi hún endilega að ég liti að-
eins inn hjá sér áður en við
færum í erfidrykkju í Skjól-
brekku. Létt á fæti hljóp hún
yfir hlaðið frá kirkjunni og
heim í eldhús og varð langt á
undan mér þennan stutta spöl.
Minningabrotin eru mörg en
verða ekki fleiri talin upp hér,
þau munu lifa með öllum sem
þekktu þessa mætu og einstöku
konu. Við Vigga vottum öllum
aðstandendum innilegustu sam-
úð.
Guðmundur Bjarnason.
Látin er góða vina mín,
Gerður Benediktsdóttir hús-
freyja á Skútustöðum í Mý-
vatnssveit.
Kynni okkar Gerðar hófust
er dóttir mín, Auður, og sonur
hennar, Ingólfur Ásgeir, urðu
par og síðan hjón. Við Gerður
vorum góðar stöllur, töluðum
saman í síma um heima og
geima, en sérstaklega um
elskulega fjölskyldu okkar sem
er okkur svo kær.
Hún Gerður var yndisleg
amma og börnunum hennar
Auðar minnar reyndist hún hin
besta amma. Fyrir það er ég
þakklát.
Gerður var mikil hannyrða-
kona og voru til dæmis vett-
lingarnir hennar þekktir um
allt land. Hún var einstaklega
dugleg og vel á sig komin mið-
að við háan aldur. Hún tók
virkan þátt í samfélaginu og
vann til dæmis í Dyngjunni
sem selur handverk úr sveit-
inni.
Það er gott að vera á Skútu-
stöðum og fékk ég að njóta
þess síðastliðið vor. Það voru
góðir dagar.
Nú er húsfreyjan á Skútu-
stöðum horfin til æðri heima og
eftir stendur stórt tóm hjá
þeim systkinum, Ingólfi, Fríðu
og Þorláki, og fjölskyldum
þeirra. Fallega minningu um
yndislega móður, ömmu og
tengdamóður eiga þau öll í
hjarta sínu.
Ég og fjölskylda mín þökk-
um Gerði fyrir góða vináttu.
Megi Guð blessa börnin hennar
og fjölskyldur þeirra.
Ég kveð Gerði með kærleika.
Hrafnhildur Magnúsdóttir.
Gerður Benediktsdóttir var
einstök kona.
Kynni okkar af Gerði voru
með áratuga millibili, Halldór
kynntist henni er hann var
barn í sveit í presthúsi á Skútu-
stöðum, að Skútustöðum flutt-
ist Gerður 1957 er hún giftist
Jóni Þorlákssyni bónda og síð-
ar var Halldór í sveit hjá þeim
hjónum.
Er við rugluðum saman reyt-
um lá beinast við að drífa kær-
ustuna norður og kynna fyrir
Gerði, það var árið 1998.
Ég minnist þess er við höfð-
um setið um stund í eldhúsinu
hjá Gerði og drukkið besta
uppáhelling, þá spyr ég um sal-
ernið og Gerður svaraði snöggt
„niður stigann og í austur“. Þar
sem ég stóð í neðsta þrepinu
vissi ég ekkert hvert ég átti að
fara, en þar með átti Gerður
hlut í hjarta mínu.
Með okkur tókst góð vinátta.
Öll sumur fórum við norður og
nutum gestrisni Gerðar, svo
voru það þorrablótin þau urðu
fastur liður.
Gerður var listakona í hönd-
unum, prjónaði fallegustu vett-
lingana, prjónaði dúkkur,
saumaði leðurskó og prjónaði í
þá leppa.
Íslenskur heimilismatur
fannst henni bestur, bestu kjöt-
súpuna og brúnu sósurnar
ásamt lambakjöti, helst af vet-
urgömlu, reiddi hún fram í
notalega eldhúsinu.
Gerður ræktaði sitt græn-
meti og kartöflur þar til í sum-
ar.
Berjamór var ómissandi og
voru hrærðu bláberin, sem hún
gerði, lostæti, best þóttu henni
aðalbláberin í hlíðinni hjá
frænda sínum í Hólkoti.
Gerður var mjög fróð og vel
lesin, hafði áhuga á því sem að
var að gerast hverju sinni og
mannlífinu í sveitinni og tók
virkan þátt í því, var aldurs-
forseti á síðasta þorrablóti.
Fimmtudagar voru fimleik-
arnir, eins og hún kallaði leik-
fimina fyrir eldri borgarana.
Gerður var félagi í hand-
verkshúsinu Dyngjunni og
hafði ánægju af þeim stundum
er hún vann þar, nú síðast í lok
sumars.
Gerður steig fyrst upp í flug-
vél fyrir um tíu árum, aldrei fór
hún til útlanda og var það val,
heima var best.
Hinsvegar naut hún þess að
hlusta á ferðasögur samferða-
fólks og fjölskyldu og safnaði
póstkortunum sem hún fékk
send úr öllum heimsálfum.
Gerður var gestrisin og tók
einstaklega vel á móti fólki.
Samband Gerðar við börnin
sín öll var einstaklega fallegt
og til fyrirmyndar. Okkar fjöl-
skyldum og vinum tók hún opn-
um örmum.
Okkar bestu stundir voru í
eldhúsinu hennar með rjúkandi
uppáhelling, nokkrir kaplar
lagðir og spjallað um heima og
geima.
Margar sögur sagði hún okk-
ur, hún hafði svo sannarlega lif-
að tímana tvenna, mestu við-
brigðin er hún flutti í
Mývatnssveit var rafmagns-
leysið, hún hafði búið um tíma
á Akureyri þar sem var raf-
magn, sem kom frá Laxárvirkj-
un en í sveitina kom það ekki
fyrr en 1962.
Minnug var hún fram á síð-
asta dag, fór teinrétt í baki eins
og hún var alltaf, í fótsnyrtingu
föstudaginn áður en hún lést og
kvaddi þennan heim fimm dög-
um síðar.
Það er ekki nokkur vafi að
Gerður hafði mikil áhrif á okk-
ur og það að við byggðum hús í
Mývatnssveit.
Við erum Gerði ævinlega
þakklát fyrir vináttu, hlýhug og
allar ómetanlegu stundirnar
sem við áttum saman.
Við munum sárt sakna Gerð-
ar, mikið erum við þakklát fyrir
að hafa eignast slíkan vin.
Fjölskyldu Gerðar sendum
við okkar innilegustu samúðar-
kveðjur
Björg Jónasdóttir,
Halldór Þorlákur
Sigurðsson,
Kálfaströnd I.
Gerður
Benediktsdóttir
✝ ÞorvaldurBenediktsson
fæddist í Keflavík
29. september 1943.
Hann lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á
Akureyri 5. nóv-
ember 2015.
Foreldrar hans
voru Benedikt Jóns-
son Þórarinsson,
lögreglustjóri í
Keflavík, f. 25. jan-
úar 1921 í Keflavík, d. 16. janúar
1983, og Hanna Amalía Lilja Jó-
hannesdóttir verkakona, f. 8.
ágúst 1923 í Hafnarfirði, d. 23.
desember 1989. Systkini Þor-
valdar eru Benedikt R. Benediks-
son, f. 1948, Kristín Benedikts-
dóttir, f. 1957, d. 2002, Sigrún I.
Benediktsdóttir, f. 1959, Krist-
leifur Lárusson, f. 1959, og Guð-
mundur Guðmundsson, f. 1962.
Þorvaldur var vélstjóri að
mennt og starfaði
við það megnið af
ævi sinni. Eftirlif-
andi eiginkona
hans er Lilja Rósa
Ólafsdóttir, f. 26.
júní 1947. Þau giftu
sig 16. júní 1990.
Lilja Rósa á tvær
dætur.
Börn Þorvaldar
eru: 1) Eðalrein
Magðalena, fædd 1.
ágúst 1966, móðir hennar var
Auður Árnadóttir. Eðalrein á
fjórar dætur og sex barnabörn
og er gift Hafliða R. Jónssyni. 2)
Marteinn Helgi, fæddur 27. júní
1967, móðir hans er Hulda Cat-
hinca Guðmundsdóttir. Marteinn
á þrjú börn og tvö barnabörn og
er kvæntur Guðbjörgu S. Har-
aldsdóttur.
Útför Þorvaldar fór fram í
kyrrþey 13. nóvember 2015.
Elsku hjartans eiginmaður
minn lést á lyfjadeild Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri 5. nóv-
ember 2015. Ég vil þakka alla
veitta aðstoð og hlýju.
Í dag er ár síðan þú sofnaðir og
fórst til Jesú Krists. Það er mikil
náð að eiga Jesú Krist í lífi okkar.
Drottinn var og er alltaf með
okkur. Þetta er búið að vera erfitt
ár og ég sakna þín sárt, en við
eigum yndisleg börn og stóra
fjölskyldu sem hefur haldið svo
vel utan um mig, þau öll eru klett-
arnir í lífi mínu núna. Á trúlof-
unardaginn okkar 24. maí feng-
um við litla langömmu og -afa
stelpu sem fékk nafnið Elínrós
Mía. Ég elska þig innilega og
sakna þín sárt.
Guð veiti þér hvíld og frið.
Ó, þá náð að eiga Jesú
einkavin í hverri þraut.
Ó, þá heill að halla mega
höfði sínu’ í Drottins skaut.
Ó, það slys því hnossi’ að hafna,
hvílíkt fár á þinni braut,
ef þú blindur vilt ei varpa
von og sorg í Drottins skaut.
(Matthías Jochumsson)
Hvíl í friði, elsku vinur. Þín
elskandi eiginkona,
Lilja Rósa Ólafsdóttir.
Elsku hetjan mín, nú lygnir þú aftur
augum
gakktu inn í ljósið, ekkert særir þig
meir.
Nú er bardaginn búinn, hvíldin komin
er.
Þegar rökkrið kemur yfir finn ég fyrir
kulda,
því sumarið er liðið það er komið
haust.
Er ég horfi út um gluggann kemur ekki
sól,
ég finn tárin mín falla eins og á
septembernótt.
Elsku hetjan mín,
ekki berjast of mikið því tíminn
þinn er liðinn.
Er ég horfi upp í skýin brosir þú til
mín.
Ég finn hlýju í hjarta því þú ert hjá mér.
Þetta ljóð er tileinkað þér,
elsku afi, því þú hafðir alltaf trú á
mér
Elísabet Cathinca
Marteinsdóttir
Þorvaldur
Benediktsson
Þauvoru ljósá leiðumokkar
Dagskrá við kertaljós
í minningu ástvina
sunnudaginn 6. nóvember 2016 í Fossvogskirkju
Kl. 14:00 Hugvekja, Sr. Auður Inga Einarsdóttir
María Jónsdóttir soprano og
Jón Sigurðsson píanóleikari
Kl. 14:30 Hugvekja, Sr. Auður Inga Einarsdóttir
María Jónsdóttir soprano og
Jón Sigurðsson píanóleikari
Kl. 15:00 Hugvekja, Snævar Jón Andrésson
guðfræðinemi
Leikið af hljómdiskum
Kl. 15:30 Hugvekja, Snævar Jón Andrésson
guðfræðinemi
Leikið af hljómdiskum
Aðgangur er ókeypis og fólki frjálst að koma og fara að vild.
Hjálparstarf kirkjunnar verður með kertasölu.
Kirkjugarðarnir í Reykjavík verða opnir til kl. 21:00.
Samstarf prófastsdæmanna í Reykjavík og Kirkjugarðanna.
R
E
Y
K
J A
V
ÍK
URPRÓF
A
ST
S
D
Æ
M
A
K
IR
KJUGARÐA
R