Morgunblaðið - 05.11.2016, Síða 52
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 310. DAGUR ÁRSINS 2016
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 888 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Herinn rannsakar dularfullt píp
2. Var ekkert leyndarmál
3. Geirmundur sýknaður
4. „Fóru í rúmið með skrímsli“
Chrissie Telma Guðmundsdóttir
fiðluleikari, sem hefur nýlokið fram-
haldsnámi í Bandaríkjunum, kemur
fram á tónleikum í röðinni Velkomin
heim í Hörpuhorni Hörpu í dag. Hefur
hún leik kl. 17 og eru allir velkomnir.
Chrissie Telma býður
til tónleika í Hörpu
Djasstríóið Hot
Eskimos kemur
fram á Tíbrár-
tónleikum í Saln-
um í Kópavogi í
kvöld, laugardag,
klukkan 20. Tríóið
skipa þeir Karl Ol-
geirsson, Jón
Rafnsson og
Kristinn Snær Agnarsson. Tríóið hef-
ur að markmiði að ná poppinu til
baka því djass var popptónlist síns
tíma. Leikur það meðal annars lög
eftir Jónsa, Björk, Bubba og Megas.
Djassa upp ýmsar
popp- og rokkperlur
Hljómsveit skipuð landskunnum
djassmönnum kemur fram á tón-
leikum í Edinborgarhúsinu á Ísafirði
í kvöld og leikur mörg eftirlætislög
Villa Valla, kunnar djassperlur, auk
þekktra laga eftir hann sjálfan.
Vilberg Vilbergsson
er heiðurslistamaður
Ísafjarðar. Hann er
þekktur sem Villi
Valli og hefur staðið
tónlistarvaktina fyr-
ir vestan í
rúma sjö
áratugi.
Leika lög Villa Valla
og uppáhaldslög hans
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg suðlæg átt. Skýjað og lítilsháttar súld eða slydda á köflum
SV- og V-lands, annars þurrt og bjart veður. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig við ströndina síðdegis.
Á sunnudag Vaxandi sunnanátt og fer að rigna á V-verðu landinu en þurrt A-til. Sunnan
10-18 síðdegis og hiti 3 til 8 stig, en í kringum frostmark í innsveitum NA-lands.
Á mánudag Sunnan 10-15, en hvessir um kvöldið. Úrkomulítið á NA- og A-landi, annars
rigning, einkum V-lands. Hiti 6 til 12 stig.
,,Við fylgdumst með Elíasi Má í leikj-
um U-21 árs landsliðsins hér heima á
dögunum þar sem hann stóð sig vel
og þá hefur hann verið að gera fína
hluti með Gautaborg. Fyrst Kolbeinn
og Alfreð eru báðir utan hópsins var
Elías næsti maður inn,“ segir Helgi
Kolviðsson aðstoðarlandsliðsþjálfari
meðal annars í samtali við Morgun-
blaðið í dag. »4
Elías fær tækifæri í fjar-
veru framherjanna
Þórsarar frá Þorlákshöfn
urðu í gærkvöldi fyrstir til
að leggja Íslands- og bikar-
meistara KR að velli í Dom-
inos-deild karla í körfu-
knattleik á þessu keppnis-
tímabili. Þórsarar gerðu sér
lítið fyrir og unnu KR með
fimmtán stiga mun í Frosta-
skjólinu í gærkvöldi. Þórs-
arar hrósuðu einnig sigri á
Akureyri í gærkvöldi eftir
framlengingu. »2,3
Meistararnir töp-
uðu fyrir Þór Þ.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Íslands-
meistari í golfi úr GR, verður í eldlín-
unni í Abu Dhabi í dag. Þar er hún í
toppbaráttunni í móti á Evrópu-
mótaröðinni. Ólafía er í 5. sæti fyrir
lokahringinn, fjórum höggum á eftir
efstu konu. Ef Ólafía leikur vel í dag
vinnur hún sér inn nokkrar milljónir í
verðlaunafé og
eykur mögu-
leika sína á því
að fá keppn-
isrétt á
mótaröðinni
á næsta ári
til muna. »1
Stór dagur fram undan
hjá Ólafíu Þórunni
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
„Mér fannst bara vera kominn tími á
breytingar, mig langar til að fara í
viðskiptatengt nám hérna í Dan-
mörku og ég ætla að nota þetta ár til
að verða betri í körfubolta og læra
dönsku.“ Þetta segir Sandra Lind
Þrastardóttir, tvítug körfuboltakona
úr Keflavík, sem nú spilar með körfu-
boltaliðinu Hørsholm 79ers sem á
heimavöll í bænum Hørsholm á Sjá-
landi í Danmörku.
Sandra Lind fór á fyrstu körfu-
boltaæfingu sína þegar hún var 11
ára og æfði síðan og spilaði með liði
Keflavíkur. Hún var einn af lykil-
leikmönnum meistaraflokksliðs
kvenna, hún varð bæði Íslands- og
bikarmeistari með liðinu og á að baki
níu landsleiki.
Mikil stemning á heimaleikjum
„Sumt er betra hér í Danmörku,
annað verra,“ svarar hún þegar hún
er spurð um samanburð á körfubolt-
anum hér á landi og ytra. „Íþróttin
sem slík er svipuð, það má meira í
vörn í Danmörku. Aðalmunurinn er
kannski á öllu því sem er í kringum
íþróttina.“
Kvennalið Hørsholm 79ers er í
öðru sæti í úrvalsdeildinni í Dan-
mörku og að sögn Söndru Lindar er
mikil stemning í bænum og nágrenni
hans þegar liðið á heimaleiki. „Þeir
eru alltaf vel sóttir. En það gildir því
miður það sama um körfuboltann og
margar aðrar íþróttagreinar; það er
meiri aðsókn á karlaleikina.“
Samningur Söndru Lindar við
danska liðið er að hennar sögn „semi-
atvinnumannasamningur“. Hún fær
greitt fyrir að æfa og spila með lið-
inu, æft er á hverjum degi og stund-
um oftar þegar líður að leikjum. „En
greiðslan dugar ekki til að lifa af, ég
þarf að vinna aðra vinnu með. Það er
algengt og lá alltaf fyrir,“ segir hún.
Sandra Lind segist ekki vita um
aðra íslenska konu sem spili með
körfuboltaliði í Danmörku en segist
vel geta mælt með því við áhuga-
samar körfuboltakonur. „Það er svo
margt jákvætt við þetta, það opnast
margar leiðir og svo er þetta bara
svo skemmtilegt.“
Spurð hvort nafn félagsins sé borið
fram á dönsku, „Hørsholm ni og
halvfjerds“, eða á ensku, „Hørsholm
seventy nine“, segist Sandra Lind
hafa velt því fyrir sér þegar hún kom
fyrst til félagsins. „En auðvitað er
það enska útgáfan,“ segir hún hlæj-
andi. „Þetta er jú körfubolti.“
Heitir ekki ni
og halvfjerds
Landsliðskonan Sandra Lind úr
Keflavík spilar körfubolta í Danmörku
Sigursælar Hørsholm 79ers er í öðru sæti dönsku úrvalsdeildarinnar í
körfubolta. Sandra Lind er í treyju nr. 12 og er fimmta frá hægri í efri röð.
Ljósmynd/Mads Olesen
Körfuboltakona Landsliðskonan Sandra Lind Þrastardóttir, sem áður spil-
aði með Keflavík, unir hag sínum vel í bænum Hørsholm í Danmörku.