Morgunblaðið - 28.11.2016, Síða 1
M Á N U D A G U R 2 8. N Ó V E M B E R 2 0 1 6
Stofnað 1913 279. tölublað 104. árgangur
AÐ SEGJA SÖGU
Í MYNDUM
OG MÁLI
FORLÖGIN
LEIDDU ÞÆR
SAMAN
KVENRADDIR
SKAPA EINSTAKT
HLJÓÐFÆRI
NÝTT BÓKAFORLAG 34 MARGRÉT PÁLMADÓTTIR 6ÞORGRÍMUR KÁRI 12
Verulegur kostnaður hefur fallið á
Þjóðskjalasafn Íslands vegna óska
um aðgang að gögnum sem rann-
sóknarnefnd Alþingis um fall bank-
anna afhenti safninu eftir að
skýrsla nefndarinnar kom út árið
2010.
Samkvæmt upplýsingum frá
Þjóðskjalasafninu hafa borist 37
fyrirspurnir varðandi skjalasafn
rannsóknarnefndarinnar frá því í
maí 2010 þar til í október á þessu
ári.
Sumar þessara fyrirspurna voru
afar umfangsmiklar eða í allt að 200
liðum. Margar eru frá innlendum og
erlendum tryggingafélögum sem
seldu gömlu bönkunum, Glitni,
Kaupþingi og Landsbankanum, svo-
nefndar stjórnendatryggingar.
Í 13 tilfellum af þessum 37 hefur
aðgangur verið veittur að gögnum í
heild eða að hluta. Í flestum til-
fellum er um að ræða aðgang ein-
staklinga að eigin skýrslu fyrir
nefndinni eða aðgang t.d. saksókn-
ara í málum að gögnum vegna rann-
sóknar. Flestum beiðnum trygg-
ingafélaganna hefur hins vegar
verið hafnað . gummi@mbl.is »18
Kostnaðarsöm safnvarsla
Verulegur kostnaður hefur fallið á Þjóðskjalasafn vegna skjalasafns rannsókn-
arnefndar Alþingis Ein fyrirspurnin í nær 200 liðum Flestum beiðnum hafnað
Morgunblaðið/Ómar
Skjöl Í geymslum Þjóðskjalasafns er gífurlegur fjöldi opinberra skjala.
Óformlegar viðræður fóru fram á
milli formanna Sjálfstæðisflokksins,
Viðreisnar og Bjartrar framtíðar á
laugardag. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins var engin sérstök
málamiðlunartillaga rædd á þeim
fundi formannanna, aðeins staða
mála. Auknar líkur eru þó taldar á að
formlegar stjórnarmyndunarvið-
ræður hefjist milli stjórnmálaflokk-
anna þriggja að nýju.
Enginn fundur var boðaður í þing-
flokki Sjálfstæðisflokksins í gær
vegna viðræðnanna en þingflokkur
Viðreisnar var hins vegar boðaður
með stuttum fyrirvara til þingflokks-
fundar síðdegis í gær. Pawel Bartos-
zek, þingmaður Viðreisnar, sagðist
ekki geta tjáð sigum efni þingflokks-
fundarins. „Staðan er bara við-
kvæm.“
„Ég á ekki von á neinum fundum
fyrr en á morgun. Þetta er eins og
hefur komið fram í fjölmiðlum og ég
vona bara að menn hafi vit á því að
grandskoða þetta áður en þeir fara í
einhverjar fleiri æfingar,“ sagði
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins, í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Kemur enn allt til greina
Formenn flokkanna þriggja vörð-
ust allra frétta af stöðu mála í gær.
Enginn þeirra vildi tjá sig um hvað
væri til umræðu.
„Það vita allir að það er ýmislegt í
gangi. Bæði formenn og aðrir eru að
hittast og svo tökum við stöðuna og
sjáum hvernig hún er,“ sagði Pawel
en kvaðst ekki vita til þess að boðað
hefði verið til fleiri funda um málið.
Forystumenn annarra flokka en
þessara þriggja áttu einnig samtöl
um helgina um þá möguleika sem
eru í stöðunni.
Láta ekkert
uppskátt
Reynt að mynda þriggja flokka stjórn
MStaða viðræðna viðkvæm »2
Reykur og ólykt frá nýju kísilveri
United Silicon í Helguvík hefur
valdið miklu uppnámi í Reykja-
nesbæ undanfarna daga. Heilsu-
gæslunni og bæjaryfirvöldum í
bænum hafa borist margar kvart-
anir vegna málsins sem ýmsir telja
heilsufarslega ógn.
Kjartan Már Kjartansson, bæjar-
stjóri Reykjanesbæjar, kvaðst í
samtali við Morgunblaðið í gær
ætla að fylgjast með stöðu og gangi
mála í kísilverksmiðjunni. Dagný
Alda Steinsdóttir, félagi í Náttúru-
verndarsamtökum Suðvesturlands,
segir íbúa hafa fundið fyrir óþæg-
indum frá verksmiðjunni í hálfan
mánuð. »6
Ljósmynd/Sigursteinn Gunnar
Mengun Íbúar í uppnámi vegna reyks.
Íbúar Reykjanes-
bæjar áhyggjufullir
Haukur Arn-
þórsson stjórn-
sýslufræðingur
hefur ekki trú á
því að hægt sé að
telja aftur at-
kvæði þeirra
ríkja í Bandaríkj-
anna sem skáru
úr um það hvort
Clinton eða
Trump yrði forseti. Fram hefur
komið í fréttum að óskað hafi verið
eftir því að endurtalin yrðu atkvæði
þriggja ríkja í Bandaríkjunum, í
Wisconson, Michigan og Pennsylv-
aníu.
Haukur hefur fylgst með um-
ræðunni um rafrænar kosningar í
mörg ár og telur hann að vegna
þess að engir seðlar séu til staðar
hafi endurtalning þessara ríkja
enga þýðingu. »4
Rafræn kosning
ekki góður kostur
Haukur Arnþórsson
Vignir Vatnar
Stefánsson hefur
náð yfir 2.400
skákstigum og er
því sá yngsti á Ís-
landi sem náð
hefur þeim ár-
angri í skákinni
en hann er að-
eins þrettán ára
gamall. Áður
hafði Héðinn
Steingrímsson náð sambærilegum
árangri við fimmtán ára aldurinn.
„Það er mikill áfangi fyrir menn
að fara í 2.400 skákstig og sér-
staklega fyrir svona ungan skák-
mann,“ segir Gunnar Björnsson,
forseti Skáksambands Íslands. »4
Vignir yngstur með
2.400 skákstig
Vignir Vatnar
Stefánsson
Þessi kópur hefur haldið sig í Grafarvoginum síðustu vikur og hámað í sig
smáfiska því að hann vill verða spikaður eins og pabbi hans og mamma.
Honum varð ekki um sel á dögunum þegar hann sat á steini og sá undar-
legan mann á vappi í fjörunni. Svo varð hann forvitinn, virti furðuveruna
fyrir sér vel og lengi og þandi út nasirnar sem urðu eins og hjarta í laginu.
Krúttlegur kópur gerir hlé á átinu
Morgunblaðið/Bogi Þór Arason
Hjartanlega sáttur við
tilveruna í Grafarvoginum
Á allra næstu sólarhringum skýrist
hvort grundvöllur sé fyrir áfram-
haldandi viðræðum í kjaradeilu Fé-
lags grunnskólakennara og sveitar-
félaga. Ef ekki, þarf að setja málið á
ís, meta stöðuna og byrja upp á nýtt.
Ólafur Loftsson, formaður FG,
segir að samningar þurfi helst að
hafa náðst innan viku héðan í frá.
Æskilegast væri þó að slíkt tækist
fyrir næstkomandi fimmtudag, 1.
desember, þar sem margir kennarar
sem hyggjast hætta störfum þurfa
að hafa skilað uppsagnarbréfi fyrir
mánaðamótin. Deiluaðilar ætla því
að hittast í dag og bera saman bækur
sína fyrir formlegan fund hjá ríkis-
sáttasemjara, sem verður á morgun,
þriðjudag.
Nú hafa minnst 90 grunnskóla-
kennarar í Reykjavík og á Suður-
nesjum sagt upp störfum og af 170
grunnskólakennurum í Reykja-
nesbæ er fjórðungur á förum. Búast
má við að fleiri kennarar skili upp-
sagnarbréfum á næstu dögum. »4
Vilja ná samningum
fyrir mánaðamót