Morgunblaðið - 28.11.2016, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2016
Netverð á mann frá kr. 79.995 m.v. 2 í gistingu.Aparthotel
Green Field
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
GRANCANARIA
30. nóvember í 20 nætur
Frá kr.
79.955
Bergþóra Jónsdóttir
bj@mbl.is
Það hefur enga þýðingu að telja raf-
ræn atkvæði í forsetakosningunum í
Bandaríkjunum að nýju að mati
Hauks Arnþórssonar stjórnsýslu-
fræðings sem kynnt hefur sér slíkar
kosningar og umræður um þær. Þar
sem engir seðlar séu til staðar vanti
grundvöll fyrir endurtalningunni.
Það er Jill Stein, forsetaframbjóð-
andi Græningja, sem krafist hefur
endurtalningar í þremur ríkjum,
Wisconson, Michigan og Pennsylv-
aniu, til að leiða í ljós hvort tölvu-
hakkarar kunni að hafa haft áhrif á
úrslitin þar. Hafa rússneskir tölvu-
þrjótar verið nefndir í umræðum
um þessi mál í því sambandi.
Hillary Clinton, frambjóðandi
demókrata, hefur
lýst yfir stuðn-
ingi við kröfuna.
Haukur segir
að um miðjan síð-
asta áratug þeg-
ar Bandaríkin
voru að byrja að
tölvuvæða raf-
rænar kosningar
hafi rafrænu
kerfin verið yfir-
farin af sérfræðingum sem héldu
því fram að þau væru óörugg . Samt
sem áður hafi verið haldið áfram að
nota þau. Flest ríki mynduðu þó
pappírsslóð, þ.e. kjörseðlarnir voru
prentaðir út til þess að sannreyna
talninguna en 15 ríki vestanhafs eru
enn með hreina rafræna talningu.
„Rafrænar kosningar hafa verið
skilgreindar sem kosningar með
tölvubúnaði á kjörstað, en netkosn-
ingar sem kosningar utan kjör-
staða, framkvæmdar á netinu. Raf-
rænar kosningar eru öruggari en
netkosningar en samt sem áður
ekki nægilega öruggar að mati
margra sérfræðinga,“ segir Hauk-
ur.
„Þetta er einfaldlega verkefni
sem upplýsingatæknin ræður ekki
vel við,“ segir hann. Það hafi lengi
verið miklar pólitískar væntingar
gagnvart rafrænni framtíð í þessum
málum en hann kveðst ekki sjá að
þær séu raunhæfar.
Miklir svikamöguleikar
„Það væri fínt ef allir gætu kosið í
gegnum takka á síma en svika-
möguleikarnir eru svo miklir. Ís-
lensk stjórnvöld hafa verið að und-
irbúa netkosningar á
sveitarstjórnarstigi og kjörskrár
sem ég tel að eigi ekki að ráðast í,“
segir Haukur. Með því að gera kjör-
skrár rafrænar sé um leið opnað
fyrir það að hægt sé að sjá hvernig
hver og einn kýs og ýmislegt fleira.
Ef menn vilji tryggja leynilegar
kosningar er rafrænn kostur alls
ekki fýsilegur að mati Hauks.
Donald Trump, verðandi Banda-
ríkjaforseti, er mjög óánægður með
kröfuna um endurtalningu. Hann
hefur gagnrýnt Hillary Clinton
harðlega fyrir stuðning hennar við
kröfuna. Trump bendir á að Clinton
hafi þegar játað ósigur sinn og við-
urkennt niðurstöður kosninganna.
Nú sé hún að hlaupa frá þeirri yf-
irlýsingu.
Rafræn kosning óörugg
Haukur Arnþórsson segir að ekki þýði að telja atkvæði aftur í Bandaríkjunum
Haukur
Arnþórsson
„Við erum undir stífri pressu því
tíminn sem við höfum til að ljúka
samningum er skammur,“ segir
Ólafur Loftsson,
formaður Félags
grunnskólakenn-
ara. Samninga-
nefndir félagsins
og sveitarfélaga
funduðu hjá rík-
issáttasemjara í
gær þar sem leit-
að var lausna í
kjaradeilu þess-
ara aðila. Í dag
er hálfur mánuður síðan sáttasemj-
ari tók við málinu og þá í upphafi
gaf fólk sér þrjár vikur til þess að
ná lendingu. Hitt viðmiðið hefur svo
verið að ná samningum fyrir mán-
aðamótin með vísan til þess að
margir kennarar hugsa sér til
hreyfings og verða þá að skila inn
uppsagnarbréfi áður en nóvember
er úti. Því eru fáir dagar til stefnu.
Ólafur segir að í viðræðunum nú
sé fólk enn að leita lausna þannig
að málið nái á beina braut. Það
skýrist á næstu sólarhringum hvort
grundvöllur sé fyrir því að halda
áfram og leiða viðræður og samning
til lykta. Ef ekki, þurfi að meta
stöðuna upp á nýtt.
Fulltrúar kennara og sveitarfé-
laga ætla að hittast á óformlegum
fundi í dag og svo hjá ríkissátta-
semjara á þriðjudaginn. Eins og áð-
ur hefur komið fram eru launatöflur
og skilgreiningar á vinnutíma
helstu umfjöllunarefnin í viðræðun-
um nú. Ólafur Loftsson segir að
fulltrúar samningsaðila hafi síðustu
sólarhringa farið yfir ýmsar hug-
myndir, tölur og útreikninga því
viðvíkjandi. Úr því sé verið að vinna
nú.
Margir hafa sagt upp
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu um helgina hafa minnst 90
grunnskólakennarar í Reykjavík og
á Suðurnesjum sagt upp störfum.
Af um 170 grunnskólakennurum í
Reykjanesbæ er fjórðungur á för-
um. Þá hafa margir lagt orð í belg
um stöðu kennaradeilunnar. Þar má
nefna kennara við Áslandsskóla í
Hafnarfirði sem ætla að setja
kennslustarfið sjálft í forgang uns
samningar um kaup og kjör hafa
náðst. Innleiðingu nýrrar aðalnám-
skrár ætla þeir að láta mæta af-
gangi á meðan.
Fáir dagar eru til stefnu
Fundað í kennaradeilu Stíf pressa Uppsagnir berast
Morgunblaðið/Eggert
Skólastarf Kennarar krefjast
bættra kjara og vilja úrbætur.
Vignir Vatnar
Stefánsson hefur
nú náð yfir 2.400
skákstigum og er
því sá yngsti á Ís-
landi sem náð
hefur þeim ár-
angri í skákinni
en hann er aðeins
þrettán ára gam-
all. Áður hafði
Héðinn Stein-
grímsson náð sambærilegum ár-
angri við fimmtán ára aldurinn.
„Það er mikill áfangi fyrir menn
að fara í 2.400 skákstig og sér-
staklega fyrir svona ungan skák-
mann,“ segir Gunnar Björnsson, for-
seti Skáksambands Íslands, en hann
er nú staddur á skákmóti í Fær-
eyjum þar sem Vignir stóð sig afar
vel. Þegar skákmaður nær yfir 2.400
skákstigum nálgast hann styrk al-
þjóðlegs meistara í skák.
„Hann verður í um það bil 17. sæti
á Íslandi yfir alla þá sem eru með
skákstig,“ segir Gunnar jafnframt
en það séu því aðeins stórmeistarar
og alþjóðlegir skákmeistarar sem
séu stigahærri en Vignir.
„Hann er gríðarlegt efni og búinn
að vera í mikilli þjálfun. Hann er
með náttúrulega skákhæfileika og
hefur lagt mikið á sig,“ bætir hann
við en næsta markmið hjá Vigni sé
eflaust að ná stöðu alþjóðlegs meist-
ara en til þess þarf Vignir að ná
þremur áföngum og tefla á alþjóð-
legum mótum. laufey@mbl.is
Yngstur
með 2.400
skákstig
Vignir Vatnar
Stefánsson
Vignir í 17. sæti yf-
ir skákmenn Íslands
Verslunin IKEA ætlar að greiða öllu
starfsfólki sínu mánaðarlaun auka-
lega á næsta ári ef áætlanir um sölu
ganga eftir. Þetta kom fram í frétt-
um Stöðvar 2 í gærkvöldi.
Liðnir eru þrír mánuðir af starfs-
ári IKEA, sem ekki fer saman við
almanaksárið, og hefur sala á þeim
tíma verið umfram væntingar.
Þórarinn Ævarsson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, sagði í
samtali við mbl.is í gærkvöldi að með
bónusgreiðslu af þessu tagi vilji
IKEA þakka starfsfólkinu fyrir góð
störf. Fyrirtækið skili eigendum arði
og hafi getað lækkað vöruverð til
neytenda að undanförnu.
13 mánuður-
inn greiddur
Ólafur Loftsson
Í Austurstræti í Reykjavík er veröld í deiglu. Þar
mætast ólíkir menningarstraumar í borg sem er
orðin alþjóðleg. Fólk frá öllum heimshornum
leggur leið sína til hins svala Íslands og klæðir
þá af sér vetrarkuldann, sem bitið getur fast.
Reyndar ætti ástföngnu fólki ekki að verða kalt,
því kærleikanum fylgir svellandi hiti. Sú var til
dæmis raunin með skötuhjúin frá Austurlöndum
fjær sem voru hress og kát og „af bernsku-
glöðum hlátri strætið ómar“ eins og Tómas Guð-
mundsson borgarskáld sagði í hinu fræga ljóði
sínu, Austurstræti.
Ástfangin í Austurstræti og verður ekki kalt
Morgunblaðið/Eggert
Menningarstraumar heimsins mætast í miðborginni