Morgunblaðið - 28.11.2016, Blaðsíða 9
Fást í bókaverslunum um land allt
Verð 5.980 kr.
Sumsstaðar er boðið upp á vildarverð.
Ný bók að vestan
GAMLAR GLEFSUR OG NÝJAR
Gunnar B. Eydal er Akureyringur, bróðir
þeirra landskunnu tónlistarmanna, Ingimars
og Finns. Hann lærði aftur á móti lögfræði og
var skrifstofustjóri Reykjavíkurborgar í 30 ár
og starfaði með 12 borgarstjórum.
„Þessi bók er ekki ævisaga heldur glefsur
úr lífi mínu“ segir höfundur. „Framsetningin
er svolítið sundurlaus og hlaupið úr einu í
annað“ segir hann. Það kemur þó ekki í veg
fyrir að glefsur þessar eru bæði vel skrifaðar,
gagnorðar og lifandi segir útgefandinn.
Norðlenski húmorinn skín svo alls staðar í
gegn! Margir karakterar koma við sögu, háir
sem lágir, landskunnir sem óþekktir. Glefsur
Gunnars B. Eydal munu vekja áhuga margra,
bæði norðan heiða og sunnan.
Ingimar var við nám í klassískum píanóleik
og það voru óneitanlega vonbrigði fyrir
kennara hans þegar hann „datt í djassinn“
eins og það var orðað.
Finnur mun hafa verið 13 ára gamall þegar
hann kom fyrst fram sem klarinettleikari.
Ég get fullyrt að hljómsveit bræðra minna
ásamt Helenu Eyjólfsdóttur,
Vilhjálmi Vilhjálmssyni og Þorvaldi
Halldórssyni var eitt það besta
á þessu sviði tónlistar á þeim tíma.
Mér var uppálagt að kaupa einungis
vörur frá KEA og SÍS. KEA - smjörlíki,
KEA - brauð, KEA – pylsur og sperðla,
Sjafnar - þvottaduft, Sjafnar – tannkrem,
Og svo auðvitað Braga kaffi.
Þá sjaldan að við máttum kaupa gosdrykk
keypti ég appelsín framleitt í Flóru
sem var í eigu KEA en Siggi vinur minn
keypti Valash frá Sana.
Allt varð þetta að vera á hreinu.
Fljótt eftir áramótin var farið að horfa til
öskudagsins. Þá fór móðir mín að sauma
öskudagsbúninga. Við bræður áttum t. d.
viðeigandi skikkjur að hætti fornmanna.
Ingimar átti rauða, Finnur græna og ég
bláa með rauðum bryddingum.
Þetta fannst okkur flott.
Ég held að ég hafi verið settur í
„tossabekk“ því ég kunni lítið að
lesa og foreldrar mínir tilheyrðu ekki
aristókratíinu á Akureyri.
Örn Snorrason kenndi „fínu“ krökkunum
sem kunnu sæmilega að lesa og umfram
allt áttu góða að.
Ég hef alla tíð verið heltekinn af
fjallgöngum og útivist. Ætli þennan áhuga
megi ekki að einhverju leyti rekja til Björns
Bessasonar frá Kýrholti í Skagafirði, sem
kvæntur var föðursystur minni, Þyri Eydal
Staða skrifstofustjóra borgarstjórnar er
mikil ábyrgðarstaða og er hann nánasti
samstarfsmaður og trúnaðarmaður
borgarstjórnar og borgarráðs.
Ég átti því láni að fagna að með mér
störfuðu hæfileikaríkir og góðir starfsmenn
og jafnan var vinnumórall einkar góður.
Ég starfaði með Davíð Oddssyni sem
borgarstjóra í níu ár. Við áttum
mjög góða samvinnu. Hann gat
verið harður og jafnvel ósvífinn sem
stjórnmálamaður, en hann var úrvals
embættismaður og einkar glöggur á
stjórnsýsluna.