Morgunblaðið - 28.11.2016, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2016
TOPPUR ehf
Bifreiðaverkstæði
TOPPUR er viðurkennt
þjónustuverkstæði fyrir
Skemmuvegi 34 • Kópavogi • Sími 557 9711 • toppur@toppur.is
Um 4.000 almennir borgarar hafa flúið austur-
hluta Aleppo-borgar í Sýrlandi síðastliðinn sól-
arhring. Margir þeirra hafast við í bráðabirgða-
búðum í Jibreen-hverfinu í borginni. Greint var
frá því í gær að sýrlenski stjórnarherinn hefði
náð hverfunum Masaken Hanano, Badeen og Ja-
bal Badro í austurhlutanum á sitt vald en þrettán
dagar eru nú síðan herinn hóf árásir til að ná
borgarhlutanum af uppreisnarmönnum.
Þúsundir borgara á vergangi vegna árása
AFP
Fjölskyldur hafast margar við í bráðabirgðabúðum í Aleppo
Ágúst Ásgeirsson
agasf1@gmail.com
Francois Fillon vann yfirburðasigur á
mótframbjóðanda sínum Alan Juppe,
borgarstjóra í Bordeaux, í prófkjöri
franska Lýðveldisflokksins í gær.
Kepptust þeir um að hljóta útnefn-
ingu sem frambjóðandi flokksins við
forsetakosningarnar í Frakklandi í
vor. Kannanir á fylgi flokka þykja
benda til þess að sigurvegari próf-
kjörsins í gær verði að líkindum næsti
forseti Frakklands.
Í sigurræðu sinni þegar 70% at-
kvæða höfðu verið talin og Juppe ját-
að sig sigraðan hvatti Fillon lands-
menn til samstöðu um sigur á hægri
öfgaöflum og trausti rúnum vinstri-
mönnum í forsetakosningunum í vor.
Í fyrri umferðinni fékk Fillon
44,1% atkvæða og Alain Juppe 28,5%
atkvæða en munurinn var miklu
meiri í gær, eftir að fimm keppinaut-
ar þeirra voru fallnir úr leik, þar á
meðal fyrrverandi
forseti Frakk-
lands, Nicolas
Sarkozy.
Juppe játar sig
sigraðan
Fyrstu tölur,
sem birtar voru
eftir að talin höfðu
verið atkvæði í
2121 kjördeild af rúmlega 10 þúsund,
sýndu að Fillon hafði hlotið 69,5%
þeirra og Juppe 30,5%. Var það nokk-
uð í samræmi við spár sem sýnt höfðu
fram á að Fillon myndi fara með sigur
af hólmi með um 20 prósentustiga
mun.
Bilið var enn 68,4% gegn 31,6%
þegar helmingur atkvæða hafði verið
talinn, eða úr 5307 kjördeildum af
rúmlega 10 þúsund. Á því stigi játaði
Juppe sig sigraðan og hét honum
stuðningi sínum í forsetakosningun-
um í vor. Hið sama gerði Sarkozy og
sagði nú taka við tímabil þar sem mik-
ilvægt væri að hægri öflin og mið-
flokkar mynduðu breiðfylkingu er
tryggði Fillon kosningu sem næsta
forseta Frakklands.
Juppe, sem er 71 árs, hafði lýst sér
sem hófsamari manni en Fillon og
sakað hann um andúð í garð innflytj-
enda og að hafa tekið undir lýðskrum
gegn múslimum. Fillon, sem er 62 ára
og kvæntur breskri konu, háði kosn-
ingabaráttu sína meðal annars á því
að lofa víðtækum frjálslyndum mark-
aðsumbótum, stífum niðurskurði hjá
hinu opinbera og takmörkun straums
flóttamanna til Frakklands. Báðir eru
Juppe og Fillon fyrrverandi forsætis-
ráðherrar Frakklands.
Hollande verði ekki forsetaefni
Frakkar munu ganga að kjörborði
og kjósa forseta í lok apríl og byrjun
maí. Á þessu stigi er óljóst hvort nú-
verandi forseti, Francois Hollande,
verður í framboði. Búist er við yfirlýs-
ingu um það efni af hans hálfu
snemma í desembermánuði.
Allar líkur eru á að Hollande verði
ekki útnefndur forsetaefni fyrirhafn-
arlaust, heldur þurfi hann fyrst að
taka þátt í prófkjöri hjá Sósíalista-
flokknum í byrjun nýs árs. Vegna
sundrungar í flokknum og sundur-
lyndis, svo og mikillar óánægju
flokksfélaga sem lengst standa til
vinstri með forsetann þykir ógjörn-
ingur um að segja á þessu stigi hvort
Hollande kemst í gegnum prófkjörið.
Flokkur hans þykir standa veikt að
vígi vegna gríðarlegra óvinsælda for-
setans. Benda kannanir og umsagnir
fréttaskýrenda meira að segja til
þess, að ekki séu miklar líkur á að for-
setaefni Sósíalistaflokksins, hver sem
það verður, komist í seinni umferð
forsetakosninganna í maí.
Á þessu stigi þykir flest benda til
að þar muni etja kappi Fillon og
Marine Le Pen, leiðtogi Þjóðfylk-
ingarinnar.
Fillon bar sigur úr býtum
Fillon verður frambjóðandi franska Lýðveldisflokksins til forseta Vill sam-
stöðu um sigur á öfgaöflum og vinstrimönnum Juppe lofar stuðningi sínum
Francois Fillon
Lars Løkke Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur og formaður
Venstre-flokksins, segist hafa kom-
ist að samkomulagi um myndun
nýrrar ríkisstjórnar við Íhalds-
flokkinn og Frjálslynda bandalagið.
Með þessu er komið í veg fyrir
nýjar kosningar og gerir það Løkke
Rasmussen kleift að halda völdum
eftir að samstarfsflokkar höfðu
hótað að velta minnihlutastjórn
hans úr sessi vegna ágreinings um
skattamál, innflytjendamál og vel-
ferðarstefnuna. Þykir hann hafa
verið snöggur að snúa stöðunni sér
í hag því það var ekki fyrr en í byrj-
un síðustu viku að hann hóf við-
ræður við aðra flokka um að
treysta stöðu stjórnarinnar í
þinginu. Tekur samsteypustjórnin
við af minnihlutastjórn Venstre
sem hlaut 34 þingmenn af 179 í
kosningum í fyrra. Sat hún í skjóli
nýju samstarfsflokkanna og
Danska þjóðarflokksins.
Nýja stjórnin tekur formlega við
völdum á morgun en hún þarf
áfram á því að halda að Danski
þjóðarflokkurinn verji hana van-
trausti. Á blaðamannafundi í Kaup-
mannahöfn í gær sagði Rasmussen
að nýja stjórnin myndi freista þess
að auka útgjöld til varnarmála og
lækka skatta og álögur á eigendur
íbúðarhúsnæðis og hátekjufólk.
Ennfremur yrði dregin upp áætlun
um að halda útgjöldum ríkisins í
skefjum. Hins vegar var ákveðið að
leggja á ís 10 ára áætlun um efna-
hagsstjórn landsins.
Búist er við að ráðherrar Frjáls-
lynda bandalagsins verði sex,
Íhaldsflokkurinn fái þrjá og
Venstre þrettán og þar með yrðu í
henni 22 ráðherrar. Í fráfarandi
stjórn sátu 17 ráðherrar. Eftir að
hafa fengið flokkana tvo til liðs við
stjórn sína sagði Rasmussen á sam-
félagsvefnum Twitter að mynduð
hefði verið stjórn „þríblaða smára“
er myndi gera Danmörku „frjáls-
ari, ríkari og öruggari“.
Ný ríkisstjórn í Danmörku
AFP
Forsætisráðherra Løkke er sagður
snöggur að snúa stöðunni sér í hag.
Stjórnin boðar
„frjálsara, ríkara og
öruggara“ land
Milljónir síta-
múslíma tóku
þátt í einni
stærstu mót-
mælagöngu í
heimi í liðinni
viku. Árlega
ferðast stór hóp-
ur múslíma í píla-
grímsferð í gegn-
um Írak til að
fagna múslimska
píslarvottinum Arbaeen en á síðustu
árum hefur gangan einnig haft ann-
an tilgang, að mótmæla víasamtök-
unum Ríki íslam. Þetta kemur fram í
frétt frá Independent.
Pílagrímsferðin er ein sú stærsta í
heiminum og mun stærri en Hajj-
pílagrímsferðin sem gengin er til
Mekku en þátttakendur í henni eru
um ein og hálf milljón á meðan þátt-
takendur í Arbaeen göngunni eru
hátt í 20 milljónir. Þrátt fyrir þetta
hefur Arbaeen-pílagrímsferðin ekki
fengið mikla athygli í fjölmiðlum en
skipuleggjendur Arbaeen-göngu í
Bretlandi hafa gagnrýnt áhugaleysi
hefðbundinna fjölmiðla.
„Því miður hafa [ákveðnir] fjöl-
miðlar einblínt á sögur sem að ein-
hverju leyti geta valdið sundrung.
Ef hópur múslíma gerir eitthvað
gott er það ekki rætt í fjölmiðlum
eða ekki minnst á trúarbrögð en ef
eitthvað [neikvætt] gerist er það á
forsíðu blaðanna og þar er minnst á
trúarbrögð.“
Þátttakendur enda svo gönguna í
borginni Karbala í Írak.
Múslímar
mótmæla
Ríki íslam
Mótmæli Gangan
endar í Karbala.
Ein stærsta mót-
mælaganga í heimi
Til greina kemur að banna sölu dísil-
bíla í Frakklandi, a.m.k. frá bílsmið-
unum Volkswagen og Renault. Þetta
staðfestir franski umhverfis-
ráðherrann Segolene Royal.
Í umræðum á Evrópuþinginu í
Strassborg fyrir helgi sagðist hún
ekki útiloka allsherjarbann við sölu
dísilbíla Renault og Volkswagen, ef
niðurstöður sérstakrar rannsóknar
á hugbúnaði dísilvéla Renault þættu
gefa tilefni til.
Í framhaldi af afhjúpun blekk-
ingarbúnaðar í bílum Volkswagen í
Bandaríkjunum í fyrra voru fleiri
framleiðendur teknir til skoðunar í
Evrópu. Í ljós kom m.a.að Renault
nýtti tól er drógu úr skilvirkni vél-
búnaðar sem ætlað var að hreinsa
lofttegundina nituroxíð úr útblæstri.
Bann við sölu
á dísilbílum?